Morgunblaðið - 07.06.2002, Síða 50
FRÉTTIR
50 FÖSTUDAGUR 7. JÚNÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
NAUÐUNGARSALA
Uppboð
Uppboð munu byrja á skrifstofu embættisins í Hafnarstræti
1, Ísafirði, þriðjudaginn 11. júní 2002 kl. 14:00 á eftirfarandi
eignum:
Álfabyggð 4, Súðavík, þingl. eig. Halldór Rúnar Jónbjörnsson, gerð-
arbeiðandi Íbúðalánasjóður.
Dalbraut 10, Ísafirði, þingl. eig. Guðmundur Þór Kristjánsson, Guð-
laugur Jónasson og Elínborg Helgadóttir, gerðarbeiðandi Íbúðalána-
sjóður.
Ehl. Gunnars K. Ásgeirssonar í skipinu Þokki ÍS-210, sk.skr.nr. 6248,
þingl. eig. Gunnar Kristinn Ásgeirsson, gerðarbeiðandi Leifur Árna-
son hdl.
Ehl. Þórðar G. Hilmarss. í skipinu Ritur ÍS-22, sk.skr.nr. 0612, þingl.
eig. Þórður Guðjón Hilmarsson, gerðarbeiðendur Gjaldtökusjóður
og Þróunarsjóður sjávarútvegsins.
Fjarðargata 14, efri hæð, Þingeyri, þingl. eig. Viktor Pálsson og Sólveig
Sigríður Guðnadóttir, gerðarbeiðandi Lífeyrissjóður Vestfirðinga.
Fjarðargata 35a, Þingeyri, þingl. eig. Jón Sigurðsson, gerðarbeiðandi
Íbúðalánasjóður.
Fjarðargata 40, 2. h.t.v., Þingeyri, þingl. eig. Aðalsteinn Einarsson,
gerðarbeiðandi Íbúðalánasjóður.
Hlíðargata 42, Þingeyri, þingl. eig. Jónína Kristín Sigurðardóttir og
Konráð Kristinn Konráðsson, gerðarbeiðendur Íbúðalánasjóður
og Ísafjarðarbær.
Hnífsdalsvegur 13, Ísafirði, þingl. eig. Bergvin Friðleifur Þráinsson,
gerðarbeiðendur Íbúðalánasjóður og Lífeyrissjóður Vestfirðinga.
Hrönn ÍS-74, sk.skr.nr. 0241, þingl. eig. Nökkvi, gerðarbeiðandi sýslu-
maðurinn á Ísafirði.
Húni ÍS-68, sk.skr.nr. 1149, þingl. eig. Hafvör ehf,, gerðarbeiðandi
Þróunarsjóður sjávarútvegsins.
Kolfinnustaðir, Ísafirði, þingl. eig. Einar Halldórsson, gerðarbeiðandi
Lífeyrissjóður verslunarmanna.
Langhóll, Ísafjarðarvegur, Ísafirði, þingl. eig. Óskar Friðbjarnarson,
gerðarbeiðandi Byggðastofnun.
Miðtún 27, íbúð 0101, í kjallara, Ísafirði, þingl. eig. Jón Arvid Tynes,
gerðarbeiðandi Íbúðalánasjóður.
Mjallargata 1, J, 0304, Ísafirði, þingl. eig. Húsnæðisnefnd Ísafjarðar-
bæjar, gerðarbeiðandi Íbúðalánasjóður.
Pramminn Fjölvi, sk.skr.nr. 2196, þingl. eig. Sjóverk ehf., Ísafirði, gerð-
arbeiðendur Byggðastofnun og Sjóvá-Almennar tryggingar hf.
Ránargata 3, Flateyri, þingl. eig. Hálfdán Kristjánsson og Hugborg
Linda Gunnarsdóttir, gerðarbeiðandi Íbúðalánasjóður.
Seljalandsvegur 54, Ísafirði, þingl. eig. Sakhorn Khiansanthia og
Salómon Ágúst Ágústsson, gerðarbeiðandi Íbúðalánasjóður.
Stekkjargata 38, kæliklefi og geymsluhús, Ísafirði, þingl. eig. Óskar
Friðbjarnarson, gerðarbeiðandi Byggðastofnun.
Túngata 1, ásamt öllum tilh. rekstrartækjum, Suðureyri, þingl. eig.
Timbur og íshús ehf., gerðarbeiðandi Byggðastofnun.
Túngata 4, Flateyri, þingl. eig. Leikfélag Flateyrar, gerðarbeiðendur
Ísafjarðarbær og Vátryggingafélag Íslands hf.
Vífilsmýrar l og ll, Mosvallahreppi, Ísafjarðarbæ, þingl. eig. Jarðasjóð-
ur ríkisins, gerðarbeiðendur Ísafjarðarbær og Lánasjóður landbúnað-
arins.
Sýslumaðurinn á Ísafirði,
6. júní 2002.
TIL SÖLU
Trjáplöntusalan
Bjarkarholti 1, Mosfellsbæ
(við hliðina á versluninni 11-11)
Aspir, reynitré, birki, fura, greni, fjallaþinur,
bakkaplöntur o.fl. á útsöluverði.
Sími 566 6187.
STYRKIR
Menntamálaráðuneytið
Styrkir vegna sérstaks
stuðnings við dönsku-
kennslu
Hér með er auglýst að nýju eftir umsóknum
um styrki á sviði endurmenntunar og námsefn-
isgerðar í samræmi við samning um sérstakan
stuðning við dönskukennslu milli menntamála-
ráðherra Íslands og Danmerkur, sbr. auglýs-
ingu ráðuneytisins dags. 7. mars sl. Um er að
ræða styrki til námskeiðahalds fyrir starfandi
dönskukennara á grunn- og framhaldsskóla-
stigi og til námsefnisgerðar á sömu skólastig-
um á árinu 2002. Sjá nánar um samninginn
á vef menntamálaráðuneytisins.
Umsóknir skulu berast menntamálaráðuneyt-
inu í síðasta lagi miðvikudaginn 26. júní nk.
á sérstökum eyðublöðum sem þar fást og sem
jafnframt má nálgast á vef ráðuneytisins
www.menntamalaraduneyti.is .
Nánari upplýsingar veitir María Gunnlaugs-
dóttir, deildarsérfræðingur í menntamálaráðu-
neytinu, í síma 545 9500, netfang: maria.gunn-
laugsdottir@mrn.stjr.is .
Menntamálaráðuneytið, 5. júní 2002.
menntamalaraduneyti.is .
TILKYNNINGAR
Brottfluttir
Djúpárhreppingar
Sveitarstjórn Djúpárhrepps býður brott-
fluttum hreppsbúum til vígslu nýja fjölnota
hússins í Þykkvabæ laugardaginn 8. maí
nk. kl. 14.00.
Fyrir hönd sveitarstjórnar,
Heimir Hafsteinsson,
oddviti.
Tilkynning frá
utanríkisráðuneytinu
Utanríkisráðuneytið býður fyrirtækjum, sam-
tökum, stofnunum og einstaklingum viðtals-
tíma við sendiherra Íslands til þess að ræða
hagsmunamál sín erlendis, viðskiptamöguleika
og önnur málefni þar sem utanríkisþjónustan
getur orðið að liði.
Þorsteinn Pálsson, sendiherra Íslands í London,
verður til viðtals í utanríkisráðuneytinu mánu-
daginn 10. júní nk. kl. 14—16. Umdæmi sendi-
ráðsins nær einnig til Grikklands, Hollands, Ind-
lands, Írlands, Maldíveyja, Nepal og Nígeríu.
Nánari upplýsingar og tímapantanir eru veittar
í síma 560 9900.
UPPBOÐ
Uppboð
Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim
sjálfum sem hér segir:
Rimasíða 29B, Akureyri, þingl. eig. Þórhalla D. Sigbjörnsdóttir og
Hallgrímur Már Jónasson, gerðarbeiðendur Akureyrarkaupstaður,
Byko hf., Íbúðalánasjóður, Landsbanki Íslands hf. og Sparisjóður
Norðlendinga, miðvikudaginn 12. júní 2002 kl. 10.00.
Þverá II, Eyjafjarðarsveit, þingl. eig. Jón Bergur Arason, gerðarbeiðandi
Lánasjóður landbúnaðarins, miðvikudaginn 12. júní 2002 kl. 11.00.
Sýslumaðurinn á Akureyri,
6. júní 2002.
Harpa Ævarrsdóttir, ftr.
SMÁAUGLÝSINGAR
FÉLAGSLÍF
Hornstrandafarar FÍ
Árleg messuganga Hornstranda-
fara í samvinnu við Óháða
söfnuðinn verður sunnudaginn
9. júní. Gengið kringum Hítar-
vatn. Að lokinni göngu kvöld-
verður, söngur og glens. Mæt-
ing við Kirkju Óháða safnaðarins
kl. 9. Nánari upplýsingar á skrif-
stofu FÍ og hjá Guðmundi H. í
síma 568 6114 og 862 8247.
Esjudagur 9. júní, gengið yfir
Esju, um Esju, kapphlaup,
skógarferðir, happadrætti,
veitingar o.fl. Fimmvörðu-
hálsganga og fjölskylduferð í
Þórsmörk fyrstu helgina í
júlí. Ratleikir, kvöldvaka,
söngur og glens. Sjá www.fi.is
og textavarp RUV bls. 619.
R A Ð A U G L Ý S I N G A R
ÍÞRÓTTIR
mbl.is
FÉLAG ferðaþjónustubænda hef-
ur gert samkomulag við fjarskipta-
fyrirtækið IOsat ehf. um að kynna
fyrir íbúum í dreifbýli möguleika á
tengingu við Netið um gervihnetti.
Starfsmaður á vegum fyrirtækis-
ins mun í samvinnu við félag
ferðaþjónustubænda ferðast vítt
og breitt um landið á næstu dög-
um og kynna þjónustu fyrirtæk-
isins á nokkrum af býlum ferða-
þjónustubænda.
Kynntur verður búnaður til net-
tengingar um gervihnetti og þráð-
lausar örbylgjulausnir til dreifing-
ar á merkjunum á jörðu niðri.
Að sögn Marteins Njálssonar,
formanns félags ferðaþjónustu-
bænda, hyggjast ferðaþjónustu-
bændur taka í gagnið bókunarkerfi
sem styðst við sítengingu í gegn-
um Netið. Hægt er að nálgast all-
ar upplýsingar um verkefnið á
slóðinni www.iosat.net.
Ferðaþjónusta
bænda og IOsat
Kynna þráð-
lausar net-
tengingar
ÁRSSKÝRSLA landlæknis fyrir
árið 2001 er komin út og þar kem-
ur m.a. fram að kvartanir og kær-
ur vegna meintra læknamistaka
eða yfir þjónustu heilbrigðisstofn-
ana voru alls 356 á síðasta ári. Það
jafngildir því að embættið hafi
fengið eitt mál af þessu tagi á sitt
borð nær daglega. Fjöldi þessara
mála var 372 árið 2000 en 197 árið
1997 og 289 árið 1999. Að sögn
Hauks Valdimarssonar aðstoðar-
landlæknis hafa rúmlega 100 mál
borist það sem af er þessu ári, sem
er svipuð staða og eftir fyrstu
fjóra mánuði síðasta árs.
Í ársskýrslunni kemur fram að
flest mál varða meint mistök og
næstflest samskiptaerfiðleika. Á
árunum 1991–1997, þegar 1.546
mál bárust embættinu, voru kvart-
anir og kærur um meint mistök í
starfi heilbrigðisstarfsmanna stað-
fest að fullu eða að hluta í þriðj-
ungi tilfella. Alls voru kærur
vegna meintra læknamistaka um
750 á þessum tímabili. Nokkuð
færri mál um meinta samskipta-
örðugleika voru staðfest. Í skýrsl-
unni segir að leiði rannsókn máls í
ljós staðfestingu kvörtunar geta
aðgerðir landlæknis verið allt frá
ábendingu til viðkomandi starfs-
manns og til tillögu um leyfissvipt-
ingu.
Aðspurður um skýringu á aukn-
ingu þessara mála á síðustu árum
sagði Haukur í samtali við Morg-
unblaðið margt koma til, m.a.
flóknari tækni, auknar kröfur um
þjónustu og meiri vitund sjúklinga
um sinn rétt, ekki síst eftir til-
komu laga um réttindi sjúklinga
frá árinu 1997.
Einnig má leita til
heilbrigðisstofnana og Trygg-
ingastofnunar
Haukur sagði að ekki væri búið
að fara ofan í saumana á þeim mál-
um sem borist hefðu síðan 1997
með sérstakri úttekt. Tími væri
hins vegar kominn á það. Hann
taldi þó að hlutföllin hefðu ekki
breyst mikið, þ.e. að um þriðj-
ungur mála væri staðfestur.
Aðstoðarlandlæknir sagði að enn
væri verið að afgreiða þau 356 mál
sem bárust á síðasta ári og því
lægi ekki fyrir um hve mörg
þeirra hefðu verið staðfest eða
leitt til leyfissviptingar. Hann
sagði málareksturinn taka lengri
tíma en áður og væri að mörgu
leyti þyngri í vöfum eftir að fyrr-
nefnd lög um réttindi sjúklinga
tóku gildi sem og upplýsingalögin.
Heilbrigðisstarfsmenn og sjúkling-
ar hefðu andmælarétt og land-
læknir þyrfti að skoða málin frá
öllum hliðum. Haukur sagði að al-
varleg mál fengju þó sérstaka
flýtimeðferð og reynt væri að for-
gangsraða þeim kvörtunum og
kærum sem bærust.
„Við höfum einnig viljað benda
fólki á þann rétt sinn til að kvarta
annars staðar en til landlæknis.
Samkvæmt lögum um réttindi
sjúklinga ber að senda athuga-
semdir við þjónustu eða aðgengi á
heilbrigðisstofnun til yfirstjórnar
viðkomandi stofnunar. Málin gætu
leyst þannig í vissum tilvikum og
með skjótari hætti. Í lögunum er
svo einnig tekið fram að vilji sjúk-
lingur kvarta yfir meðferð getur
hann beint kvörtun sinni til land-
læknis eða nefndar um ágreinings-
mál, sem starfar samkvæmt lögum
um heilbrigðisþjónustu,“ sagði
Haukur og benti einnig á rétt fólks
sem það hefði samkvæmt lögum
um sjúklingatryggingar. Ef skaði
hlytist í læknismeðferð ætti fólk
að leita til Tryggingastofnunar
varðandi kröfur um skaðabætur.
Landlæknisembættið tæki enga af-
stöðu til skaðabóta- eða örorku-
mála.
Kvartanir vegna meintra læknamistaka eða þjónustu heilbrigðisstofnana
Eitt mál barst
landlækni á
dag árið 2001