Morgunblaðið - 30.10.2002, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 30.10.2002, Blaðsíða 1
254. TBL. 90. ÁRG. MIÐVIKUDAGUR 30. OKTÓBER 2002 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS STOFNAÐ 1913 MORGUNBLAÐIÐ 30. OKTÓBER 2002 GRÁTANDI móðir með barn sitt í fanginu gengur framhjá bílum og húsum sem skemmdust í bænum Santa Venerina á Sikiley í gær þegar jarðskjálftar riðu yfir bæi í grennd við Etnu sem byrjaði að gjósa á laugardag. Stærsti skjálft- inn mældist 4,3 stig á Richters- kvarða og skjálftamiðjan var nokkra kílómetra frá eldgígnum. Stjórn Ítalíu lýsti í gærkvöldi yfir neyðarástandi á skjálftasvæð- inu. Yfir þúsund manns misstu heimili sitt í stærsta skjálftanum, aðallega í bæjum í grennd við eld- fjallið. Skelfing greip um sig með- al íbúa borgarinnar Cataniu og margir þeirra þustu út á göt- urnar. Yfirvöld sögðu að bæjum í grennd við Etnu stafaði ekki hætta af eldgosinu þar sem hraun- ið rynni hægt og hraunstraum- arnir væru enn langt frá þeim. Reuters Jarðskjálftar í grennd við Etnu LÖGREGLAN í Moskvu hefur handtekið tugi manna sem grunaðir eru um að vera viðriðnir gíslatökuna í vikunni sem leið, að sögn Borís Gryzlovs, innanríkisráðherra Rússlands, í gær. Aðalsaksóknari Moskvu, Míkhaíl Avdjúkov, sagði að leifar af sprengiefni hefðu fundist á nokkrum þeirra sem voru handteknir. Að sögn heimildarmanna í Moskvu hefur rússneski herinn einnig handtekið um 100 manns í Tsjetsjníu vegna gruns um að þeir hafi aðstoðað gíslatökumennina. Tsjetsjenskur þingmaður í dúmunni, neðri deild rússneska þingsins, sakaði yfirvöld um að nota gíslatökuna sem átyllu til að handtaka saklausa Tsjetsjena í Moskvu. Sergej Ívanov, varnarmálaráðherra Rússlands, skýrði frá því að nokkrum stofnunum hefði verið falið að leggja drög að nýrri áætlun um ráðstafanir í öryggismálum til að uppræta hryðjuverkastarf- semi, aðallega í Tsjetsjníu. Markmiðið er að „út- rýma leiðtogum skæruliða og hryðjuverkamönn- um sem fyrst“, að sögn Níkolajs Patrúshevs, yfirmanns leyniþjónustunnar FSB. Avdjúkov sagði að fjórir gíslanna í leikhúsinu í Moskvu hefðu dáið af skotsárum, að meðtalinni konu sem var skotin til bana skömmu eftir að 50 skæruliðar réðust inn í leikhúsið og tóku yfir 800 manns í gíslingu. Áður höfðu rússnesk heilbrigð- isyfirvöld sagt að allir nema tveir gíslanna 117, sem létu lífið, hefðu dáið af völdum gass sem sér- sveitir dældu inn í leikhúsið áður en þær réðust inn í það á laugardag. Sendiherra Bandaríkjanna í Moskvu, gagnrýndi rússnesk yfirvöld í gær fyrir að skýra ekki frá því hvers konar gasi var beitt. „Ljóst er að ef nánari upplýsingar hefðu legið fyr- ir kynnu að minnsta kosti nokkrir fleiri gíslar að hafa lifað af,“ sagði hann. Bandarísk stjórnvöld telja að sérsveitirnar hafi notað gas gert úr ópíati, virka efninu í ópíumi. Breskur sérfræðingur í efnavopnum, Gary Sam- ore, sagði að notkun slíks gass væri ekki brot á al- þjóðlegum sáttmála sem bannar beitingu efna- vopna. Avdjúkov saksóknari sagði að 41 gíslatöku- mannanna hefði verið skotinn til bana í áhlaupinu. Margir þeirra voru meðvitundarlausir vegna gass- ins þegar þeir voru skotnir, að sögn sérsveitar- manna sem tóku þátt í áhlaupinu. Þeir sögðu að sérsveitirnar hefðu skotið þá Tsjetsjena sem voru með sprengjur þar sem óttast hefði verið að þeir myndu sprengja þær ef þeir kæmust til meðvit- undar. Pútín aflýsir heimsókn til Danmerkur Danska dagblaðið Berlingske Tidende skýrði frá því í gær að Pútín hefði aflýst heimsókn til Danmerkur, sem fyrirhuguð var í næsta mánuði, til að mótmæla því að dönsk stjórnvöld skyldu ekki banna alþjóðlega ráðstefnu, sem hófst í Kaupmannahöfn í fyrradag, um málefni Tsjetsjn- íu. Að sögn blaðsins er einnig líklegt að dúman samþykki á næstu dögum ályktun um að öll tengsl hennar við danska þingið verði rofin. Heimildar- menn blaðsins lýsa þessu sem mestu deilu Dana og Rússa í áratugi og óttast að hún skaði við- skiptatengsl þjóðanna. Stærsti stjórnmálaflokkur Rússlands, Samein- að Rússland, skoraði í gær á Rússa að hætta að ferðast til Danmerkur, kaupa danskar vörur og eiga viðskipti við dönsk fyrirtæki. Tugir manna handtekn- ir vegna gíslatökunnar Moskvu. AFP, AP. Reuters Ættingjar 25 ára Rússa, eins gíslanna sem létu lífið á laugardag, við útför hans í Moskvu í gær.  Getur valdið/19 STJÓRNARKREPPA vofði yfir í Ísrael í gær eftir að Verkamanna- flokkurinn sagðist ætla að greiða at- kvæði gegn fjár- lagafrumvarpi samsteypustjórn- ar Ariels Sharons forsætisráðherra og slíta stjórnar- samstarfinu. Það gæti orðið til þess að kosningum yrði flýtt. Binyamin Ben- Eliezer, varnarmálaráðherra og leið- togi Verkamannaflokksins, sagði að Sharon ætti þegar í stað að hefja við- ræður um hvenær efna ætti til kosn- inga, hugsanlega í mars eða apríl. Deilan snýst um framlög að and- virði 12,7 milljarða króna til byggða gyðinga á Vesturbakkanum og Gaza- svæðinu. Verkamannaflokkurinn krefst þess að framlögin verði lækk- uð en Sharon hefur hafnað því og segist ætla að reka þá ráðherra sem greiða atkvæði gegn fjárlagafrum- varpinu. Frammámenn í viðskiptalífinu í Ísrael ræddu við Sharon í gær og lögðu til að Verkamannaflokkurinn greiddi atkvæði með frumvarpinu eftir fyrstu umræðu í dag en reynt yrði að leysa deiluna fyrir þriðju og síðustu atkvæðagreiðsluna. Leiðtog- ar Verkamannaflokksins sögðust hafna þeim möguleika. Sharon kvaðst vona að Verka- mannaflokkurinn yrði áfram í stjórn- inni. Likud í sókn Verkamannaflokkurinn er stærst- ur stjórnarflokkanna, með 25 þing- sæti af 120, sex fleiri en Likud-flokk- ur Sharons. Talið er að Sharon geti myndað nýja stjórn með minni flokk- um hægrimanna og strangtrúaðra gyðinga. Meirihluti hennar yrði þó mjög naumur og þurfi Sharon að reiða sig á stuðning hægriöfgaflokka gæti það orðið til þess að hann tæki upp harðari afstöðu til Palestínu- manna. Leiðtogi þingflokks Likud, Zeev Boim, sagði þó í gær að slík stjórn myndi ekki verða traust og forsætis- ráðherrann kynni að þurfa að boða til kosninga innan þriggja mánaða. Stjórnin var mynduð fyrir 18 mán- uðum og næstu kosningar eiga að fara fram ekki síðar en í nóvember á næsta ári. Samkvæmt skoðanakönnun, sem birt var í gær, fengi Verkamanna- flokkurinn 21 þingsæti og Likud 29 ef kosið væri nú. Hún bendir einnig til þess að flokkarnir, sem eru líkleg- ir til að styðja Sharon, fái 65 þing- sæti af 120. Líkur á að stjórnin falli Jerúsalem. AP. Ariel Sharon Deilt um fjárlagafrumvarp í Ísrael DÓMSMÁLARÁÐUNEYTI Bandaríkjanna lagði í gær fram ákæru á hendur John Allen Muhammad, sem grunaður er um raðmorðin í Washington- borg og nágrenni. Hann á dauðadóm yfir höfði sér verði hann fundinn sekur. Samverkamaður Muham- mads, John Lee Malvo, sem er 17 ára, var ekki nefndur í ákær- unni. Hægt er að ákæra ung- linga fyrir bandarískum alrík- isdómstólum sem geta þó ekki dæmt þá til dauða. Saksóknarar í Maryland og Virginíu hafa þegar lagt fram ákærur á hendur mönnunum tveimur. Saksóknarar í Mary- land segjast ætla að krefjast dauðadóms yfir Muhammad en ekki unglingnum, en þeir eiga báðir yfir höfði sér dauðadóm í Virginíu. Ekki er ljóst hvar þeir verða leiddir fyrir rétt fyrst. Þeir hafa einnig verið ákærð- ir fyrir morð í Alabama og yf- irvöld segja að þeir hafi átt að- ild að morði á konu í Tacoma í Washington-ríki í febrúar. Ákærður fyrir rað- morðin Tacoma. AFP.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.