Morgunblaðið - 30.10.2002, Blaðsíða 46

Morgunblaðið - 30.10.2002, Blaðsíða 46
46 MIÐVIKUDAGUR 30. OKTÓBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ Miðasala opnar kl. 15.30 HUGSAÐU STÓRT EINI THX LÚXUSSALUR LANDSINS  HL Mbl Frá leikstjóra American Beauty. Eitt mesta meistaraverk sem þú munt nokkurn tíman sjá Það verður skorað af krafti. Besta breska gamanmyndin síðan „Bridget Jones’s Diary.“ Gamanmynd sem sólar þig upp úr skónum. Sat tvær vikur í fyrsta sæti í Bretlandi. Sýnd kl. 5.45. B. i. 16.  SK RadíóX 7.30 og 10. Sýnd kl. 4, 5.30, 6.30, 8, 9 og 10.30. B. i. 16. Gott popp styrkir gott málefni Sýnd kl. 4. með ísl. tali. Fjöldi aukasýn inga 1/2Kvikmyndir.comUSA Today SV MblRadíóX Einn óvæntasti spennutryllir ársins! 1/2Kvikmyndir.is Sýnd kl. 8 og 10.30. B. i. 16. 1/2Kvikmyndir.is „DREPFYNDIN“ ÞÞ. FBL Sýnd kl. 5.50, 8 og 10.10. sparaðu fé og fyrirhöfn Sýnd kl. 5.50. Bi. 16. Einn óvæntasti spennutryllir ársins! 1/2Kvikmyndir.is Frá leikstjóra American Beauty. Eitt mesta meistaraverk sem þú munt nokkurn tíman sjá. Sýnd kl. 5.50, 8 og 10.20. B. i. 16. FYRSTI OG SKELFILEGASTI KAFLINN Í SÖGU HANNIBAL LECTER anthony HOPKINS edward NORTON ralph FIENNES Sýnd kl. 8 og 10.30. B. i. 16. 1/2 Kvikmyndir.is  Kvikmyndir.com  SV Mbl  HK DV  SK RadíóX Gott popp styrkir gott málefni 1/2Kvikmyndir.com USA Today SV Mbl RadíóX ORSON Scott Card er með helstu og afkastamestu vísindaskáldsagna- höfundum seinni ára, sló í gegn með bókinni Ender’s Game fyrir aldar- fjórðungi og hefur skrifað ótölulegan grúa bóka síðan, margar sem tengj- ast sögunni fyrstu af Ender. Ein nýjasta bókin í þeim flokki er Ender’s Shadow sem var fyrst gefin út 1999, en hún gerist sam- hliða Ender’s Game, aðalsögu- hetjan í Ender’s Shadow, Bean, kemur einmitt fyrir í aukahlutverki í þeirri fyrstu, en nú er sagan sögð út frá hans sjón- arhorni. Líkt og í velflestum bókum Cards er aðalsögurperónan utangarðsmað- ur sem á eftir að verða mikill örlaga- valdur, afskiptur og smáður en verð- ur síðar hafinn hátt undir lok bókarinnar. Dylst engum sem þekk- ir til Cards að hann er öðrum þræði að segja sögu trúarleiðtoga síns, Josephs Smiths, höfundar morm- ónatrúar, en Card er einmitt heittrú- aður mormóni. Bean í Ender’s Shad- ow er afburðasnjall en sökum grimmilegrar reynslu sem hann hef- ur hlotið í lífinu á hann mjög erfitt með að treysta á aðra, hvað þá að sýna ástúð. Hann elst upp á götunni í Rotterdam, lifir á betli og bísahætti, en er svo snjall að eftir er tekið og svo fer að honum er komið í þjálf- unarbúðir fyrir börn sem eiga að berjast við illar geimverur sem hyggjast að sögn eyða mannkyninu. Í sömu þjálfunarbúðum er Ender sá sem bækurnar heita eftir og ekki líð- ur á löngu að draga tekur til tíðinda. Enders Game var þannig skrifuð á sínum tíma að hentaði vel fyrir ung- menni, eða í það minnsta ungmenni sem kipptu sér ekki upp við smá of- beldi og blóð, en Enders Shadow er beinlínis skrifuð fyrir unglinga. Sem slík er bókin mjög vel heppnuð, framvinda mátulega ævintýraleg og Card tekst að vekja samúð lesanda með Bean þó ekki sé hann viðkunn- anleg persóna. Spennan eykst þegar líður á bókina og nær hámarki í lok- in, nema hvað, en betur hefði farið á því að ljúka við hana við svo búið; væmið niðurlag dregur nokkuð úr skemmtigildi bókarinnar, ekki síst fyrir það að Bean dettur gersamlega úr karakter á síðustu síðunum. Forvitnilegar bækur Geimsaga fyrir unglinga Árni Matthíasson Ender’s Shadow eftir Orson Scott Card. Bók fyrir ungmenni. 569 síðna kilja sem Starscape gefur út 2002. Kostar 925 kr. í Máli og menningu. DANÍEL Bjarnason er ungt tón- skáld og ber að lofa hann fyrir þetta framtak sitt. Þ.e. að drífa tónsmíðar sínar út á markað- inn og neita þeim þar með um ryk- söfnun á nótna- pappírum. Þetta viðhorf einkennir öðru fremur (neð- anjarðar)rokkara og -poppara en ég sé enga ástæðu til þess að þeir sem fást við nútímatónlist eður „sígilda“ ættu eitthvað að víla sér við það sama. Tónlist er jú gerð til að hún heyrist. Umslag er þannig smekkleg- ur sjálfþurftarbúskapur, laust við pjatt og pjátur en um leið barasta myndarlegasta smíð. Verkin hér bera þess merki að vera kvikmyndatónlist. Það er oft happa glappa hvort slík tónlist getur staðið ein og hér er það beggja blands – lengri verkin gera það prýði- lega en þau styttri síður. Hafa ber þó í huga að kvikmyndatónlist hlýtur að lúta þeim skorðum sem kvikmyndin sjálf setur henni, sköpuninni eru því alltar sett ákveðin mörk, veri það til vansa eða velferðar. Fyrstu stefin eiga við persónur úr myndinni og er þeim greinilega ætlað að lýsa skapgerðareinkennum þeirra. Þetta verkefni leysir Daníel vel af hendi, stefið sem á við gistihúsaeig- andann Jóhann er t.a.m. þungt og værukært á meðan það sem á við um unga strákinn Finn er bæði stutt og sakleysislegt. Að þessu gefnu er farið um nokkuð víðan völl í stílbrigðum og á það einnig við er „persónu“-stefjum sleppir. Maður fær ósjálfrátt á tilfinninguna að tónskáldið unga sé svona að prufukeyra sjálfan sig. Daníel reynir sig þó hvað mest við hið sorgbundna og tregafulla og það gerir hann á sannfærandi hátt. Allt fram að löngu endastefi fáum við því að heyra stuttar og þægilegar, ólíkar stemmur. Rennslið er gott og átakalítið og stefin eru snyrtilega samin og leikin, í raun furðulítill byrj- endabragur yfir öllu saman. Það getur verið að kvik- myndalegar kröfur hafi heimt- að fimmtán mínútna langt endaspilið; engu að síður fer það fljót- lega að þreyta. Lopinn er teygður heldur langt, og ekki er garnið mikið sem moðað er úr. Blessunarlega er skotið inn smá- „poppi“ strax á eftir – laginu/verkinu „Vökum mitt undur“ sem Daníel semur með unnustu sinni, fyrrum múmliðanum Gyðu Valtýsdóttur. Af- ar fallegt verk verður að segjast; þar sem söngraddir eru notaðar á frum- legan og áhrifaríkan hátt. Þá er hér raftöktum blandað smekklega saman við strok- og blásturshljóðfæri. Disk- inum er svo slaufað með stuttu eft- irspili sem er harmrænt og drama- tískt, stílbrigði sem á hvað best við Daníel, ef litið er til disksins sem heildar. Allt í allt hið burðugusta verk og megi þetta útgáfuframtak Daníels verða öðrum ungum og dugandi tón- skáldum til eftirbreytni. Tónlist Snotrar stemmur … og ögn meira Daníel Bjarnason Reykjavík guesthouse – Rent a bike Höfundur gefur sjálfur út Hér er á ferðinni tónlist við kvikmyndina Reykjavík guesthouse – Rent a bike. Höf- undur er Daníel Bjarnason. Hljóðfæraleik- arar eru þau Hildur Ársælsdóttir, Kristín Ragnarsdóttir, Melkorka Ólafsdóttir, Þór- arinn Baldursson, Steinunn Stefánsdóttir, Kristján Sigurleifsson, Alexander McNeil, Ella Ármannsdóttir, Eiríkur Ólafsson, Gyða Valtýsdóttir og Daníel Bjarnason. Tekið upp af Sveini Kjartanssyni. Hljóðblandað af Sveini og Daníel. Öll lög eftir Daníel nema „Vökum mitt undur“ sem er eftir Daníel og Gyðu. Hjálp veittu Huldar Arn- arsson og Gunnar Tynes. Arnar Eggert Thoroddsen Daníel stjórnar hér upptökum. MIKIÐ kemur út af íslenskuhiphopi fyrir þessi jól ogþar á meðal er fyrsta skífa þeirra Bents & 7bergs, Góða ferð, sem Edda gefur út. Bent er flestum kunnur enda er hann einn af mátt- arstólpum Rottweilerhundanna, en 7berg er ekki eins þekktur meðal annarra en hiphopvina. Þeir Ágúst Bent og Örn Tönsberg, sem kalla sig Bent & 7berg segjast hafa kynnst í skóla, áttu rappið sem sameiginlegt áhugamál, bæði að hlusta og skapa. Bent var þá kominn í Rottweilerhundana og er enn, en 7berg hafði ekki látið að sér kveða fram að þessu. Fyrir hálfu öðru ári byrjuðu þeir svo að vinna saman lög, stofnuðu fimm manna hljómsveit en aðrir í sveitinni eru Tryggvi, Ernie Mondeyano og Dj Paranoya. Þeir Bent og 7berg segjast haga samstarfinu svo að þeir komi sér saman um þema hvers lags, en semji síðan textana hvor í sínu lagi. „Oft gerum við takt og veljum grunnhug- mynd, þema út frá honum, en oftar er takturinn búinn til þegar textinn er tilbúinn. Þetta er allt mjög „pro“,“ segir Bent og kímir og 7berg bætir við: „Svo hittumst við allir og förum yfir lagið og fínpússum það.“ Undanfarið ár hafa þeir samið fleiri lög en rúmast á disknum, segj- ast eiga fimm til viðbótar. Bent er eins og gefur að skilja önnum hlaðinn vegna frama Rottweilerhundanna sem hafa verið óhemju duglegir við tónleikahald og eru nú með plötu í smíðum. Hann segist þó hafa gefið sér góðan tíma til að vinna skífuna með 7berg og þannig hafi hann ekki tekið til við að skrifa texta fyrir væntanlega Rottweilerskífu fyrr en Góða ferð var tilbúin. Eins og getið er velja þeir þema fyrir hvert lag, en segja að það sé engin heildarpæling sem bindi þau saman. „Þótt við séum með ferðalag sem grunn- hugmynd plötunnar eins og heyra má í nafninu meðal annars, þá kom það til eftirá,“ segir 7berg. „Við pössum okkur á því að lögin séu heilsteypt, en þegar lögin eru eins ólík og heyra má á plötunni er erfitt að hafa á þeim ein- hvern heildarsvip,“ segir Bent og 7berg heldur áfram: „Okkur langaði líka til að prófa sem flest.“ „Okkur langaði í raun til að gera allt það sem hægt er að gera í hiphopi,“ segir þá Bent, „fara út í alla und- irflokka, en halda samt okkar stíl.“ Undanfarið hafa þeir verið nokkuð duglegir við að troða upp saman en segja að nú fyrst hefjist spila- mennska til að kynna plötuna. Ekki hefur Bent neinar áhyggjur af því að það eigi eftir að rekast á við spila- mennsku hans með Rottweilerhund- unum, það hafi ekkert rekist á hing- að til. „Við munum vinna saman en ekki hver á móti öðrum.“ Mikið verður gefið út af hiphop- skífum fyrir þessi jól og mjög ólíkum. Þeir segja að útgáfurnar séu vissu- lega ólíkar, ekki síst fyrir það hversu mismikið sé í þær lagt, eftir því hvort stórútgáfa sé að gefa út eða menn séu í heimabrennslu. „Heimagerðar plötur eru ekkert verri þótt það sé alltaf gott að hafa smápen- ing til að gera plötuna enn betri.“ Bent segir að gróskan í útgáfunni sé vissulega skemmtileg, en hann segist telja að hiphop-bylgjan nái brátt hámarki. „Mikið af þeim sem eru í hiphopi í dag eru bara að elta tískuna. Það er ekkert að því, ég hef ekk- ert á móti þeim sem eru ekki búnir að vera að hlusta á hiphop í einhver ár, en megnið af þeim á ekki eftir að endast þótt tónlistarmennirnir eigi eftir að halda áfram.“ Flestir kannast við þá mynd af rappara að hann sé á kafi í íslenskum bókmenntum sífellt að leita að nýjum hugmyndum og skemmtilegum kvið- lingum og þeir félagar segjast vera víðlesnir og fróðir. Þegar gengið er á þá viðurkenna þeir þó að þeir lesi helst ekki neitt og ef það er þá eitt- hvað þá leita þeir í Andrés Önd. „Það er oft djúp speki í Andrési Önd.“ Djúp speki Andrésar Andar 7berg og Bent fara víða á fyrstu plötu sinni. Bent og 7berg gefa út Góða ferð

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.