Morgunblaðið - 30.10.2002, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 30.10.2002, Blaðsíða 21
ERLENT MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 30. OKTÓBER 2002 21 Þýsk stáláhöld Glæsileg gjöf frá www.ostur.is alpaSMJ Ö R Frábært ábrauð, ímatargerð ogbakstur. Íslensk afurð - evrópsk hefð Alpa smjör er hrein, íslensk náttúruafurð sem hentar vel ofan á brauð, í bakstur og matargerð. Alpa smjör er unnið úr sýrðum rjóma eftir vinnsluaðferð sem löng hefð er fyrir meðal smjörmeistara í Evrópu. Skólabraut – einbýlishús Sími 586 8080 - Fax: 586 8081 - www.fastmos.is *NÝTT Á SKRÁ*. 136,4 fm einbýlishús ásamt 24,5 fm bílskúr. 4 svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús, geymsla, stór stofa og gott eldhús. Húsið er staðsett á stórri hornlóð með fallegu útsýni, mjög stutt í alla þjónustu, skóla og leikskóla. Verð kr. 17,9 m. Í DRÖGUM að tilvonandi stjórnarskrá Evrópusambands- ins er lagt til að nafni þess verði breytt í „Sameinuð Evrópa“ og mælt með því að stofnað verði nýtt embætti kjörins forseta sem fara muni fyrir ráðherra- ráðinu til nokkurra ára í senn. Drögin voru lögð fram á mánudag, en þau eru afrakstur vinnu fyrstu átta mánaða ráð- stefnunnar um framtíð Evrópu, eins og hún hefur verið kölluð, en hlutverk hennar er að endur- skoða og einfalda stofnlög ESB. Valery Giscard d’Estaing, fyrr- verandi forseti Frakklands, stýrir starfi ráðstefnunnar, sem 105 fulltrúar núverandi og til- vonandi aðildarríkja ESB sitja. Er ætlunin að sú „tiltekt“ í stofnlögum og afleiddu lagasafni ESB muni bera þann árangur að nýi stjórnarskrársáttmálinn geymi raunveruleg grundvallar- lög sambandsins, sem geti stað- ið „að minnsta kosti í 20 ár, jafnvel 50 ef vel tekst til“, eftir því sem Giscard lét hafa eftir sér. Sagðist Giscard hafa fengið „hvetjandi og jákvæð“ viðbrögð frá leiðtogum ESB-ríkjanna 15 er hann kynnti drögin fyrir þeim á fundi í Brussel sl. fimmtudag, en hann kynnti drögin fyrir ráðstefnufulltrúun- um á mánudag. „Ráðstefnan hefur stigið mikilvægt skref í dag,“ sagði Giscard í ávarpi. „Við höfum hafizt handa við að smíða stjórnarskrársáttmála.“ Smærri ríkin tortryggin En smærri aðildarríkin hafa lýst áhyggjum yfir tillögunni um varanlegan forseta ESB, sem hugmyndin er að komi í stað formennskuhlutverksins í ráð- herraráðinu sem gengur milli aðildarríkjanna á hálfs árs fresti, eins og reglurnar eru núna. Tillagan nýtur stuðnings Breta, Frakka og Spánverja. Fulltrúar Þýzkalands hafa sagt þeir væru ekki andsnúnir því að komið verði á fót nýju forseta- embætti, en þeir vilja einnig sjá hlutverk framkvæmdastjórnar ESB styrkt. En önnur (og smærri) aðild- arlönd, svo sem Finnland og Benelux-ríkin, Holland, Belgía og Lúxemborg, vilja ekki sjá grafið undan vægi fram- kvæmdastjórnarinnar með makki hinna stóru. „Við erum tilbúnir að ræða leiðir til að ljá Evrópusambandinu skýrara andlit út á við. En okkur virðist skynsamlegra að fyrst sé rætt hver boðskapurinn skuli vera áður en ákveðið er hverjum skuli falið að bera hann út í okk- ar nafni,“ segir í sameiginlegri yfirlýsingu fulltrúa Benelux- ríkjanna. Peter Hain, sem í liðinni viku tók við embætti ráðherra mál- efna Wales en var áður Evr- ópuráðherra bresku ríkisstjórn- arinnar, sagði í gær að Bretar myndu aldrei samþykkja að nafni Evrópusambandsins yrði breytt á þann veg að í því fælist yfirþjóðlegt vald miðstjórnar- innar í Brussel yfir aðildarríkj- unum. Segja „Bandaríki Evrópu“ með öllu fráleit Sú tillaga hefur verið sett fram að nafni sambandsins verði breytt í „Bandaríki Evrópu“. Lýsti Hain yfir því að bresk stjórnvöld teldu þá tillögu með öllu fráleita og kvaðst þeirrar hyggju að hún hlyti aldrei brautargengi á vettvangi ráð- stefnunnar. Kaus Hain að túlka tillögu Giscards um að sam- bandið nefndist „Sameinuð Evr- ópa“ þannig að með því yrði ekki vegið að fullveldi aðildar- ríkjanna. Ýmsir hafa hins vegar túlkað tillögu Giscards á gagnstæðan veg þannig að gert sé ráð fyrir kerfi sambandsríkja að hætti Bandaríkjamanna. „Evrópuborgarar“ Meðal annarra tillagna sem felast í stjórnarskrársáttmála- drögunum og vakið hafa sér- staka athygli er að opnað verði á þann möguleika að aðildarríki segi sig úr ESB. Þá er ráð fyrir því gert að sérhver íbúi Evrópu hafi tvöfalt ríkisfang þ.e. að viðkomandi verði í senn ríkisborgari heima- landsins og „Evrópuborgari“. Þessi tillaga hefur fallið í grýtt- an svörð sérstaklega í Bretlandi. Önnur tillaga sem valdið hef- ur deilum kveður á um að stofn- að verði embætti „utanríkisráð- herra Evrópu“. Viðkomandi kæmi þá í stað fulltrúa á sviði utanríkis- og öryggismála en því embætti gegnir nú Spánverjinn Javier Solana. Drög að stjórnarskrársáttmála Evrópusambandsins ESB verði „Sameinuð Evrópa“ Gert ráð fyrir tvöföldum rík- isborgararétti Evrópubúa Reuters Valery Giscard d’Estaing gerir grein fyrir nýju tillögunum. Brussel. AFP.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.