Morgunblaðið - 30.10.2002, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 30.10.2002, Blaðsíða 31
UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 30. OKTÓBER 2002 31 SÍÐASTLIÐINN laugardag birtist hér á síðum Morgunblaðs- ins grein eftir Vigdísi Hauksdóttur varaþingmann þar sem ráðist er með miklu offorsi og vanstillingu að mér persónulega vegna starfa minna fyrir Framsóknarflokkinn í Reykjavík. Nú er það svo að ég botna lítið í skrifum Vigdísar, bæði vegna þess að þar er flestu á snúið á hvolf og einnig sökum þess að ég hef um langt skeið verið einn helsti stuðn- ingsmaður Vigdísar innan Fram- sóknarflokksins. Þannig studdi ég Vigdísi við val á frambjóðendum flokksins fyrir alþingiskosningarn- ar 1995 og 1999, barðist fyrir að hún yrði valinn varaformaður Sambands ungra framsóknar- manna 1996 og síðar varaformaður Fulltrúaráðs framsóknarfélaganna í Reykjavík þegar ég gegndi þar formennsku 2000–2001. Þá hef ég margoft beitt mér fyrir kjöri henn- ar í miðstjórn flokksins og ræddi að auki persónulega við fram- kvæmdastjóra flokksins til að styðja við kjör hennar í málefna- nefnd flokksins. Síðastliðið vor lagði ég til við annan mann, þrátt fyrir aðvaranir ýmissa félaga minna, að Vigdís yrði kjörin í fræðsluráð Reykjavíkurborgar fyr- ir yfirstandandi kjörtímabil. Gekk það eftir en fyrir því þurfti tölu- vert að hafa. Liðna daga hefur Vigdís Hauks- dóttir ítrekað haldið því fram í fjölmiðlum að ég hafi hótað henni hvers kyns ófarnaði á fundi síðast- liðinn vetur. Þetta eru ekki ein- ungis ómerkilegar dylgjur heldur einnig alrangar eins og aðrir þeir sem voru á fundi okkar geta vitnað um. Í fyrrnefndri grein Vigdísar er látið að því liggja að flokks- menn séu flestir viljalaus verkfæri í höndum mínum og hafi engar skoðanir. Heldur þykja mér það naprar kveðjur varaþingmannsins til félaga okkar. Ekki ætti að hafa dulist neinum að Vigdís vill velja frambjóðendur flokksins til næstu alþingiskosn- inga með prófkjöri. Á aðalfundi Framsóknarfélags Reykjavíkur- kjördæmis suður fyrr í mánuðin- um, þar sem ég hafði verið kjörinn fundarstjóri, lagði hún fram tillögu til ályktunar þess efnis. Fundurinn vísaði þeirri tillögu til stjórnar fé- lagsins en samþykkti hins vegar tillögu Jónínu Bjartmarz alþing- ismanns þar sem skorað var á stjórn félagsins að kanna vilja fé- lagsmanna til hvaða aðferð skyldi nota við val á frambjóðendum. Á fundinum var síðan samþykkt í skriflegri atkvæðagreiðslu með miklum yfirgnæfandi meirihluta atkvæða að vísa tveimur tillögum um val á fulltrúum félagsins á kjördæmisþing til stjórnar félags- ins en fyrir því er heimild í lögum þess. Það voru í öllum tilvikum fundarmenn sjálfir sem tóku ákvörðun um afgreiðslu mála og vísa ég því alfarið á bug að ég eða aðrir hafi beitt fundarmenn eins- hvers konar ofbeldi eins og vara- þingmaðurinn heldur fram. Loks lætur varaþingmaðurinn að því liggja að ég hafi smalað fólki á aðalfund Félags ungra framsóknarmanna í Reykjavíkur- kjördæmi suður, gert þar lítið úr störfum stjórnar og látið gera hitt og þetta. Þetta er auðvitað alrangt allt saman. Þvert á móti flutti ég ræðu á fundinum þar sem ég þakkaði stjórninni og sérstaklega formanni félagsins vel unnin störf. Ég hafði heldur ekkert umboð, heimild eða vald til að láta fólk gera eitt eða neitt og hafði ekkert með það að gera hverjir mættu á fundinn. Þar komu í einhverjum tilvikum fram tillögur frá fund- armönnum um kjör í trúnaðarstöð- ur á vegum félagsins gegn tillög- um stjórnar. Voru þær í öllum tilvikum samþykktar í skriflegri atkvæðagreiðslu með yfirgnæfandi meirihluta gegn 3–6 atkvæðum sem tillögur stjórnar fengu. Var niðurstaða fundarins því afgerandi og ótvíræð. Það er eðli lýðræðisins að menn takist á um menn og málefni í starfi Framsóknarflokksins. Slík átök hafa lengi fylgt framsókn- armönnum í Reykjavík í aðdrag- anda kosninga. Í slíkum átökum verða menn hins vegar að virða leikreglur lýðræðisins og vilja meirihlutans hverju sinni. Þar rétta menn ekki hlut sinn með því að hrópa á torgum. Af vanstilltum varaþing- manni og fleira fólki Eftir Guðjón Ólaf Jónsson „Það er eðli lýðræðisins að menn takist á um menn og málefni í starfi Fram- sóknarflokksins.“ Höfundur er formaður Kjördæm- issambands framsóknarmanna í Reykjavíkurkjördæmi suður. ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S H U S 19 0 1 0/ 20 02 20 -30% afsláttur Hreinlætistækjadagar Gustavsberg salerni með innbyggðum stút. 19.990 kr. Verð áður: 24.776 kr. Gustavsberg handlaug 56x42 sm. 4.770 kr. Verð áður: 5.964 kr. Merkur baðtæki. 22.390 kr. Verð áður: 27.971 kr. Merkur handlaugartæki. 19.790 kr. Verð áður: 24.658 kr. Tradition handlaugartæki. 14.200 kr. Verð áður: 20.245 kr. Jupiter baðtæki. 16.530 kr. Verð áður: 20.663 kr. Gustavsberg salerni, upphengt. 24.890 kr. Verð áður: 34.736 kr. Gustavsberg handlaug í borð 56x40 sm. 11.920 kr. Verð áður: 14.908 kr. 3ja rétta hádegisverðartilboð kr. 1700 Stretchbuxur kr. 2.900 Konubuxur frá kr. 1.690 Dragtir, kjólar, blússur og pils. Ódýr náttfatnaður. Brandtex fatnaður Nýbýlavegi 12, sími 5544433 Stretchbuxur kr. 2.90 Konubux r frá kr. 1.790 ragtir, kjólar, blús ur og pils. Ódýr nát fatna

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.