Morgunblaðið - 30.10.2002, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 30.10.2002, Blaðsíða 26
26 MIÐVIKUDAGUR 30. OKTÓBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ Hallgrímur B. Geirsson. Styrmir Gunnarsson. Framkvæmdastjóri: Ritstjóri: STOFNAÐ 1913 Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík. Aðstoðarritstjórar: Karl Blöndal, Ólafur Þ. Stephensen. Fréttaritstjóri: Björn Vignir Sigurpálsson. Stjórnmálaflokkarnir eruþessar vikurnar að veljaþá sem koma til með aðskipa efstu sætin á fram- boðslistum flokkanna vegna alþing- iskosninganna sem fram fara 10. maí á næsta ári. Sex eiginleg próf- kjör verða haldin í nóvember, en auk þess kýs þrengri hópur flokks- manna frambjóðendur í nokkrum kjördæmum. Víða er viðhöfð upp- stilling. Aðeins tveir þingmenn af þeim sem nú sitja á Alþingi gefa ekki kost á sér til áframhaldandi þingsetu, en það eru Svanfríður Jónasdóttir, Samfylkingunni, og Sverrir Hermannsson, Frjálslynda flokknum. Sem kunnugt er verður í vor kos- ið eftir nýrri kjördæmaskipan. Í stað átta kjördæma sem kosið hef- ur verið í frá árinu 1959 verður nú kosið í sex kjördæmum. Í stuttu máli má segja að þessi breyting leiði til þess að þingmönnum sem kosnir eru í landsbyggðarkjördæm- um fækki, en þingmönnum sem kosnir eru á höfuðborgarsvæðinu fjölgi. Sjálfstæðisflokkurinn stillir upp í þremur kjördæmum Sjálfstæðisflokkurinn verður með prófkjör í þremur kjördæmum og uppstillingu í þremur kjördæm- um. Sameiginlegt prófkjör verður í Reykjavíkurkjördæmunum tveim- ur dagana 22.–23. nóvember. Sá sem verður í fyrsta sæti í prófkjör- inu verður í forystu fyrir flokkinn í öðru kjördæminu og sá sem verður í öðru sæti í prófkjörinu verður í forystu fyrir flokkinn í hinu kjör- dæminu og svo koll af kolli. Sautján bjóða sig fram í prófkjörinu. Þau eru Ásta Möller alþingismaður, Birgir Ármannsson aðstoðarfram- kvæmdastjóri, Björn Bjarnason al- þingismaður, Davíð Oddsson for- sætisráðherra, Geir H. Haarde fjármálaráðherra, Guðlaugur Þór Þórðarson borgarfulltrúi, Guð- mundur Hallvarðsson alþingismað- ur, Guðrún Inga Ingólfsdóttir hag- fræðingur, Ingvi Hrafn Óskarsson, formaður Sambands ungra sjálf- stæðismanna, Katrín Fjeldsted al- þingismaður, Lára Margrét Ragn- arsdóttir alþingismaður, Pétur H. Blöndal alþingismaður, Sigurður Kári Kristjánsson héraðsdómslög- maður, Soffía Kristín Þórðardóttir þjónustustjóri, Sólveig Pétursdótt- ir dómsmálaráðherra, Stefanía Óskarsdóttir stjórnmálafræðingur og Vernharð Guðnason, formaður Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna. Sjálfstæðisflokkurinn verður einnig með prófkjör í Norðvestur- kjördæmi, en það fer fram 9. nóv- ember. Tíu eru í kjöri, en þau eru, Birna Lárusdóttir bæjarfulltrúi, Einar Kristinn Guðfinnsson alþing- ismaður, Einar Oddur Kristjánsson alþingismaður, Guðjón Guðmunds- son alþingismaður, Jón Magnússon verkfræðingur, Jóhanna Pálma- dóttir bóndi, Ragnheiður Hákonar- dóttir bæjarfulltrúi, Skjöldur Orri Skjaldarson bóndi, Sturla Böðvars- son alþingismaður og Vilhjálmur Egilsson alþingismaður, Í Norðausturkjördæminu mun kjörnefnd stilla upp á framboðslista Sjálfstæðisflokksins. Tillaga nefnd- arinnar verður síðan lögð fyrir kjördæmisþing sem ráðgert er að halda í lok nóvember. Þingmenn flokksins gefa kost á sér þ.e. Arn- björg Sveinsdóttir, Halldór Blön- dal, Sigríður Ingvarsdóttir og Tóm- as Ingi Olrich. 7. nóvember. Úrslit verða 9. nóvember. Kjörskrá í Su dæmi verður lokað 3. nóv Suðvesturkjördæmi er kjö lokað 6. nóvember, en í R geta stuðningsmenn Samf innar skráð sig í flokkinn kjördag, 9. nóvember. Samfylkingin er með s legt prófkjör í Reykjavík eru 13 í kjöri, en þau er Ólafur Ágústsson háskóla formaður Sambands ungr armanna, Ásta Ragnhe hannesdóttir alþingismaðu Dýrfjörð rafvirkjameistar dís Hlöðversdóttir alþing Guðrún Ögmundsdóttir maður, Einar Karl Harald gjafi, Helgi Hjörvar var fulltrúi, Hólmfríður Garð aðjúnkt, Jakob Frímann son tónlistarmaður, Jóha urðardóttir alþingismaður Árnason íslenskufræðingu Grendal formaður Félags kennara og Össur Skarph alþingismaður. Í Norðausturkjördæmi kjöri, en þau eru séra C aldsson, Einar Már Sigurð þingismaður, Kristján L. M þingismaður, Lára Stefá Þorgerður Þorgilsdóttir s Þorlákur Axel Jónsson ke Örlygur Hnefill Jónsson lö Kosið er um tvö efstu sæti Í Suðurkjördæmi verður Sjálf- stæðisflokkurinn einnig með upp- stillingu. Tillaga kjörnefndar verð- ur lögð fyrir kjördæmisráðsfund sem ráðgert er að halda 30. nóv- ember. Þingmennirnir Árni Ragnar Árnason, Drífa Hjartardóttir, Kjartan Ólafsson og Kristján Páls- son gefa öll kost á sér til framboðs. Í Suðvesturkjördæminu, sem inniheldur m.a. Kópavog, Hafnar- fjörð, Garðabæ og Mosfellsbæ verður einnig viðhöfð sú aðferð hjá Sjálfstæðisflokknum að fela kjör- nefnd að leggja fram tillögu að framboðslista. Stefnt er að því að leggja tillöguna fyrir fund í kjör- dæmisráði 30. nóvember. Þing- mennirnir Árni M. Mathiesen, Gunnar Ingi Birgisson, Sigríður Anna Þórðardóttir og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir gefa kost á sér til áframhaldandi þingsetu. Samfylkingin með prófkjör 9. nóvember Samfylkingin verður með próf- kjör í öllum kjördæmum nema í Norðvesturkjördæmi. Þar hefur uppstillingarnefnd verið falið að stilla upp á lista. Öll prófkjörin fara fram 9. nóvember. Nokkuð mis- munandi er hvenær kjörskrá er lokað. Það er t.d. búið að loka kjör- skrá í Norðausturkjördæmi þar sem fer fram póstkosning, en hún hófst formlega um helgina og lýkur                            !      !       !       !     !     !  "# !   "$ !  ! " !  #$$$ "  %& Sex pró verða h í nóvem Þessar vikurnar eru stjórnmálaflokkarnir að taka ákvarðanir um val á frambjóðendum í efstu sæti framboðs- lista vegna alþing- iskosninganna næsta vor. Aðeins tveir þing- menn af þeim sem nú sitja á Alþingi gefa ekki kost á sér til áfram- haldandi þingsetu, Svanfríður Jónasdóttir, Samfylkingunni, og Sverrir Hermannsson, Frjálslynda flokknum. Valið er á listana með ýmsum hætti. Lögreglumenn flytja kjörk NORÐURLÖND OG FRAMTÍÐIN Í gegnum umfjöllun fjölmiðla færfólk stundum þá mynd af nor-rænu samstarfi að það snúist um hátíðarkvöldverði, verðlaunaafhend- ingar og endalausar umræður stjórn- málamanna, eins og nú eiga sér stað á hálfrar aldar afmælisþingi Norður- landaráðs í Helsinki. Þetta er þó að- eins yfirborð og umbúðir. Norðurlandaráð hefur vissulega verið hugmyndasmiðja samstarfsins í fimmtíu ár, en hin raunverulega póli- tíska þýðing norræns samstarfs liggur ekki sízt í víðtæku tengslaneti og dag- legum samskiptum norrænna embætt- is- og stjórnmálamanna, upplýsinga- miðlun og samráði, t.d. á vettvangi alþjóðlegra stofnana. Þetta samstarf hefur komið að miklu gagni, ekki sízt fyrir Ísland, sem er minnsta sjálf- stæða ríkið í samstarfinu. Mesti styrkur norrænnar samvinnu er hins vegar að hún er að langmestu leyti grasrótarsamstarf, sem fram fer á vegum frjálsra félagasamtaka, fyr- irtækja, sveitarfélaga, skóla, lista- manna, menningarstofnana, vísinda- manna o.s.frv. Einn mikilvægasti hluti þess grasrótarstarfs hefur falizt í því að gefa ungu fólki tækifæri til að taka þátt í alþjóðlegu samstarfi, kynnast tungu og menningu annarra Norður- landaþjóða, sækja sér menntun eða öðlast starfsreynslu í öðru norrænu ríki. Vigdís Finnbogadóttir, fyrrverandi forseti Íslands, hélt í gær ræðu á af- mælisþingi Norðurlandaráðs, þar sem hún fjallaði um starf sitt með norræn- um ungmennum undanfarna mánuði, en hún hefur sótt ráðstefnur með ungu fólki, kennurum og fræðimönn- um í öllum ríkjunum og fjallað um norrænt lýðræði og gildismat. Vigdís hvatti til þess að lýðræðið yrði styrkt á öllum vígstöðvum til þess að varð- veita hið einstaka gildismat, sem væri hugmyndagrundvöllur norrænna sam- félaga og öðrum þjóðum fyrirmynd. Hún hvatti til þess að menn væru á verði til að koma í veg fyrir að norræn ungmenni létu glepjast af hættulegri öfgahugmyndafræði, sem því miður lægi víða í leyni. Hún ræddi um mik- ilvægi þess að styrkja sjálfsvirðingu ungs fólks, m.a. með því að hjálpa því að varðveita sitt eigið móðurmál. Án móðurmálsins hyrfi menningin smám saman, sjálfsmyndin skekktist og hugsanlega einnig sjálfsvirðingin. „Við verðum að hafa í huga að tím- inn lýtur eigin lögmálum og það er ekki sízt mikilvægt að við gefum ungu fólki tíma til að hugsa um lífið og til- veruna til þess að það geti þroskazt og orðið sjálfstæðir einstaklingar sem geta borið dýrmæta arfleifð okkar, norrænt lýðræði, inn í framtíðina ásamt þeim ómetanlegu verðmætum sem felast í norrænu tungumálunum, grundvelli sjálfsvitundar okkar.“ Óhætt er að taka undir þessi orð fyrrverandi forseta Íslands. Norður- landaráð myndi gera vel í því að leggja enn aukna áherzlu á samstarf og skoðanaskipti ungs fólks á Norð- urlöndum. Með öflugu samstarfi verð- ur ungt fólk í hverju landi um sig bet- ur í stakk búið en ella til að fást við vandamál og hættur á borð við for- dóma og skort á umburðarlyndi, áhugaleysi á stjórnmálum og lýðræði, ásókn enskunnar og einsleitrar, oft of- beldisskotinnar múgmenningar. Sam- eiginlegur norrænn menningararfur, lýðræðishefð og gildismat er gott veganesti til framtíðar fyrir ungt fólk á Norðurlöndum. BARNAVERND Barnavernd Reykjavíkur barst 1.781tilkynning vegna barna á grundvelli barnaverndarlaga á síðasta ári sam- kvæmt ársskýrslu Félagsþjónustunnar í Reykjavík fyrir árið 2001. Eins og greint var frá í Morgunblaðinu í gær voru flest málin tilkynnt vegna gruns um van- rækslu eða vanlíðan barns eða gruns um áfengis- eða vímuefnaneyslu foreldra, en í málum 75% barna, sem fá aðstoð á grundvelli barnaverndarlaga berst til- kynning. Í skýrslunni kemur fram að Barna- vernd Reykjavíkur hafi haft mál 1.273 barna til meðferðar árið 2001, en árið 2000 var mál 1.181 barns tekið fyrir. Alls vörðuðu þessi mál 992 fjölskyldur í fyrra, en 936 árið á undan. Hins vegar fækkaði málum, sem lögð voru fyrir barnaverndarnefnd verulega milli ára, var 141 og varðaði 114 fjölskyldur árið 2001, en árið 2000 voru málin 226 og vörðuðu 170 fjölskyldur. Í inngangsorð- um Láru Björnsdóttur félagsmálastjóra að skýrslunni segir að árið 2001 hafi ver- ið fyrsta heila árið, sem Barnavernd Reykjavíkur hafi starfað sem sjálfstæð eining innan Félagsþjónustunnar með sérstökum framkvæmdastjóra og bætir hún við að þótt of snemmt sé að segja til um reynsluna af þeim breytingum sé nú þegar ljóst að barnaverndarmál séu orð- in sýnilegri og yfirsýnin betri en áður. Það er vissulega nauðsynlegt að leggja aukna áherslu á barnaverndar- mál. Umfang þeirra er verulegt og því bera ekki aðeins þessar tölur vitni. Í upphafi árs var greint frá því að í skýrslu Barnaverndarstofu fyrir árið 2000 hefðu barnaverndarnefndir á landinu öllu tek- ið á móti 2.728 tilkynningum vegna barna og hefði verið talin þörf á afskipt- um í 84% tilvika. Eftir könnun á högum barnsins var talið að 31 barn hefði verið beitt líkamlegu ofbeldi, en það eru um 2% heildartilkynninga. Í Morgunblaðinu í janúar var haft eft- ir Gesti Pálssyni, barnalækni á Barna- spítala Hringsins, að þótt þessar tölur væru sláandi teldi hann að vandamálið væri vangreint hér á landi og benti hann á í því sambandi að til dæmis bærust hlutfallslega fáar tilkynningar frá heilsugæslustöðvum og sjúkrahúsum. Alls bárust 109 tilkynningar (4%) frá heilsugæslu og sjúkrahúsum árið 2000. Tölur um fjölda þeirra barna, sem þurftu á vistun að halda, segja sína sögu. Á síðastliðnu ári voru samtals 469 börn í fóstri á einkaheimilum eða á meðferð- arheimilum, að því er fram kom í Morg- unblaðinu í upphafi mánaðarins. Þar af fóru 113 börn í neyðarvistun, 40 börn voru á meðferðarheimilinu Stuðlum, 36 börn fóru í langtímameðferð, 50 börn voru á meðferðarheimilinu Árvöllum, 60 börn voru í tímabundnu fóstri og 170 börn í varanlegu fóstri. Rýmum á meðferðarstofnunum, sem reknar eru á grundvelli barnaverndar- laga, hefur verið fjölgað tvöfalt frá árinu 1995 og eru nú 70. Á annað hundrað börn eiga leið á þessar stofnanir ár hvert og er dvalartími þeirra mismunandi. Eins og sést á þeim tölum, sem hér hafa verið nefndar, mæðir verulega á því kerfi, sem ætlað er að taka á barna- verndarmálum. Það er mikilvægt að það kerfi hafi bolmagn til þess að taka á þeim málum því að mikið er í húfi.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.