Morgunblaðið - 30.10.2002, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 30.10.2002, Blaðsíða 11
Ljósmynd/Matti Hurme Þjóðhöfðingjar Norðurlandanna í Helsinki í gær. Martti Ahtisaari, fyrrverandi forseti Finnlands, og kona hans Eeva, Dorrit Moussaieff og Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, Pentti Arajärvi, maður forseta Finnlands , Karl Gústaf Svíakonungur, Tellervo Koivisto, fyrrv. forsetafrú Finna, Tarja Halonen, forseti Finnlands, Mauno Koivisto, fyrrverandi forseti Finna, Haraldur konungur Noregs og Sonja drottning, Hinrik prins og Margrét Danadrottning. NORÐURLANDARÁÐ var stofnað árið 1952 til að stuðla að innra sam- starfi Norðurlandanna og jafnframt að auka hlutverk norræns samstarf um allan heim. Auk Íslands eiga Noregur, Svíþjóð, Finnland og Dan- mörk aðild að ráðinu sem og sjálfs- stjórnarsvæðin Færeyjar, Græn- land og Álandseyjar. Kóngar og drottningar Danmerkur, Svíþjóðar og Noregs, forsetar Finnlands og Íslands og forsætisráðherrar land- anna fimm og sjálfsstjórnarsvæð- anna þriggja auk 87 þingmanna frá Norðurlöndunum sitja þingið. Í ræðu sinni við setningu Norð- urlandaráðsþingsins í gær sagði Kjell Magne Bondevik, forsætisráð- herra Noregs, að norrænu þjóðirn- ar hefðu á sérhverjum tíma farið hver sína leið. „En það hefði ekki komið í veg fyrir „fullkomið inn- byrðis jafnvægi“ sem hefur sannað að við erum bræðraþjóðir með sömu rætur“, er haft eftir Bondevik á vef Norðurlandaráðs. „Við eigum sömu sögu, sameiginlegan menning- ararf, sömu lýðræðishefð. Þetta er hornsteinninn í samstarfi norrænu ríkjanna fimm og sjálfsstjórnar- svæðanna þriggja, þess fimmtíu ára samstarfs sem við fögnum nú,“ sagði Bondevik. Hann bætti við að á þeirri hálfu öld sem liðin er frá stofnun Norðurlandaráðs hefðu fjöl- mörg málefni, stærri og minni, fengið skynsamlega og hagnýta lausn á norrænum vettvangi. Nor- rænt samstarf væri fyrirmynd ann- ars staðar í Evrópu. Viðræður ESB við EFTA- löndin hefjast eftir áramót Þrjú Norðurlandanna eiga aðild að Evrópusambandinu en tvö, Ís- land og Noregur, standa utan þess. Meðal þess sem var rætt á þinginu í gær voru væntanlegar viðræður EFTA og ESB um aðlögun EES- samningsins eftir stækkun ESB til austurs, sem er fyrirhuguð árið 2004. Davíð Oddsson forsætisráðherra sagðist bjartsýnn á að samningar mundu nást við Evrópusambandið um aðgang að mörkuðum og greiðslur í þróunarsjóði í tengslum við stækkun ESB. Þetta kom fram eftir fund norrænu forsætisráð- herranna í gær. Anders Fogh Rasmussen, for- sætisráðherra Danmerkur, sem nú fer með formennsku í Evrópusam- bandinu, lýsti því yfir á fundinum að finna mætti „sanngjarna lausn á málinu“. Viðræður við EFTA-löndin myndu hefjast strax eftir áramót, en ráðgert er að viðræðum ESB við tilvonandi aðildarlönd ljúki í desem- ber. Segir Davíð að hann og Kjell Magne Bondevik hafi verið sam- stiga á fundi norrænu forsætisráð- herranna og lagt áherslu á að þess yrði að gæta að innganga nýrra landa í ESB yrði ekki til þess að spilla fríverslunarsamningum nýrra aðildarríkja ESB og EFTA. Þeir bentu jafnframt á að greiðslur í þróunarsjóð ESB ættu sér enga stoð í samningum og kröfum um áframhaldandi og auknar greiðslur í sjóðinn yrði ekki vel tekið nema markaðsaðgangur yrði tryggður á móti. Forsætisráðherrar Norður- landa funduðu einnig í gær óform- lega. Segir Davíð að viðræðurnar hafi verið mjög góðar, einlægar og upplýsandi. Norðmenn eiga nú sæti í örygg- isráði Sameinuðu þjóðanna en Bandaríkjastjórn þrýstir mjög á um að ráðið samþykki ályktun sem veiti henni heimild til tafarlausrar árásar á Írak fyrir að óhlýðnast tilskipun SÞ um vopnaeftirlit. Á fundi með forsætisnefnd Norðurlandaráðs í gær sagði Kjell Magne Bondevik að Norðurlöndin hefðu fylkt sér að baki Frökkum í andstöðu við að SÞ heimili sjálfkrafa árás á Írak, telji Bandaríkjastjórn Íraka ekki hafa hlýtt skilyrðum SÞ um vopnaeft- irlit. Bondevik, sem talaði fyrir hönd allra norrænu forsætisráðherranna, sagði Norðurlöndin setja þrjú skil- yrði fyrir aðgerðum gegn Írökum. „Allar aðgerðir verða að byggjast á ákvörðunum Sameinuðu þjóðanna. Það verður að setja Írökum skýr skilyrði um vopnaeftirlit, sem verð- ur einnig að ná til forsetahallanna átta,“ sagði Bondevik sem hafnaði öllum hugmyndum um sjálfkrafa heimild Bandaríkjanna til árásar. „Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna verður að koma aftur saman og fá tækifæri til frekari umræðna um leið og vopnaeftirlitsmenn hafa ver- ið í Írak svo hægt sé að meta stöð- una upp á nýtt,“ sagði Bondevik ennfremur. „Hryðjuverk mega aldrei borga sig“ Gíslataka tsjetsjenskra hryðju- verkamanna í leikhúsi í Moskvu sem endaði með áhlaupi rússneskra sérsveita á laugardag, var meðal þess sem forsætisráðherrar Norð- urlandanna ræddu á fundi sínum. Vildu ráðherrarnir ekki gagnrýna notkun Rússa á sljóvgandi gasi, sem varð a.m.k. 116 gíslum að bana. Sögðu þeir að þessi hryðjuverk hefðu getað farið mun verr. „Við þurfum frekari upplýsingar um málið, en við verðum að hafa í huga að gíslatakan hefði getað farið mun verr,“ sagði Bondevik þar sem hann talaði fyrir hönd ráðherranna. Sagði Anders Fogh Rasmussen það ekki vera hlutverk norrænna ráð- herra að fjalla um hvort það hafi verið rétt hjá Rússum að nota gas til að binda enda á gíslatökuna. „Hryðjuverk mega aldrei borga sig. Hvorki í Afganistan, Írak né annars staðar. Við fordæmum allir gísla- tökuna í Moskvu,“ sagði Fogh Rasmussen. Unga fólkið mikilvægt Í tilefni af hálfrar aldar afmæli Norðurlandaráðs var boðað til há- tíðarfundar í hádeginu í gær þar sem Tarja Halonen, forseti Finn- lands, var gestgjafi. Að honum loknum var settur hátíðarfundur Norðurlandaráðs í finnska þinginu, Eduskunta. Komu þar fram ræðu- menn frá Norðurlöndunum öllum og jafnframt erlendir gestir, m.a. frá þingi Evrópuráðsins, Ráðstefnu um öryggi og samvinnu, Rússlandi og Eystrasaltslöndunum. Vigdís Finnbogadóttir, fyrrver- andi forseti Íslands, hélt ræðu við setningu þingsins í gær þar sem hún fjallaði um ungmenni og lýð- ræði. Vigdís lagði áherslu á að stjórnmálamenn yrðu að huga að og ræða við ungu kynslóðina svo hún glataði ekki virðingu fyrir þeim og missti áhugann á stjórnmálum og samfélagsmálefnum. Jafnframt þyrfti að koma í veg fyrir að ung- menni létu freistast af hættulegri hugmyndafræði. Vigdís hefur að undanförnu ferðast um Norðurlönd og tekið þátt í ráðstefnum með ungu fólki, kennurum og fræðimönnum um norrænt lýðræði og gildismat. Hún sagði að einn lærdómurinn af ferð- inni hefði verið sá að þrátt fyrir að Norðurlönd hefðu lengi haft náið samstarf væru samskiptin enn mjög lærdómsrík. Það væri mikilvægur hluti af uppeldi barna að kenna þeim að bera virðingu fyrir sjálfum sér, því að þannig lærðu þau jafn- framt að bera virðingu fyrir öðrum. Í ræðu sinni nefndi Vigdís einnig mikilvægi þess að börn héldu móð- urmáli sínu, því að án þess hyrfi menningin smám saman, sjálfs- myndin skekktist og hugsanlega einnig sjálfsvirðingin. Í gærkvöldi var haldin hátíðar- samkoma í finnsku Þjóðaróperunni þar sem þjóðhöfðingjar og ráða- menn allra Norðurlandanna voru saman komnir. Dagskránni var sjónvarpað beint um öll Norður- löndin. Fimmtíu ára afmæli Norðurlandaráðs haldið hátíðlegt í Helsinki í Finnlandi Forsætisráðherrar Íslands, Finnlands og Noregs, Davíð Oddsson, Paavo Lipponen og Kjell Magne Bondevik, svara spurningum blaðamanna. „Erum bræðraþjóðir með sömu rætur“ Evrópusambandið, hernaður í Írak og ungt fólk á Norðurlöndunum var meðal þess sem fjallað var um á fyrsta degi 50. þings Norð- urlandaráðs sem sett var í Helsinki í gær. Þar eru kóngafólk, forsetar, ráðherrar og þingmenn frá öllum Norðurlöndunum sam- an komin til að fagna afmæli ráðsins. FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 30. OKTÓBER 2002 11                  !" #  $  " %&'                 !  )*      "   %+  ,$"  # ) *  -   .   " %   , ,'       "  "  %&'   # */% ) "  0  ,          , ,'    *  "  # */% Stórhöfða 21, við Gullinbrú, s. 545 5500. www.flis.is  netfang: flis@flis.is flísar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.