Morgunblaðið - 09.11.2002, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 09.11.2002, Blaðsíða 9
FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. NÓVEMBER 2002 9 HÆSTIRÉTTUR hefur dæmt konu í vil sem stefndi íslenska rík- inu vegna launa í barnsburðar- leyfi. Féllst rétturinn á það sjón- armið hennar að umsamin 30 klukkustunda föst yfirvinna á mánuði hafi verið hluti þeirra dag- vinnulauna sem hún ætti rétt á í barnsburðarleyfi. Konan, sem var fulltrúi á sýslu- mannsskrifstofu, fór í nóvember 1996 í barnsburðarleyfi og um rétt hennar til launa í slíku leyfi fór samkvæmt þágildandi reglu- gerð um barnsburðarleyfi starfs- manna ríkisins. Hún taldi um- samda 30 klukkustunda fasta yfirvinnu á mánuði hafa verið kaupauka við grunnlaun sam- kvæmt kjarasamningi, sem aukið vinnuframlag hafi ekki komið fyr- ir, og þannig hluti þeirra dag- vinnulauna sem hún ætti rétt á í barnsburðarleyfi. Hæstiréttur taldi sannað að vinnuframlag umfram dagvinnu skyldi ekki koma fyrir greiðslu fyrrgreindra 30 yfirvinnustunda á mánuði. Var lagt til grundvallar niðurstöðu í málinu að umsamið endurgjald konunnar fyrir átta stunda vinnudag skyldi vera laun samkvæmt viðeigandi launaflokki og andvirði 30 yfirvinnustunda. Hæstiréttur telur að fullt tilefni hafi verið til að taka fram í um- ræddri reglugerð að um dag- vinnulaun samkvæmt kjarasamn- ingi væri að ræða, hafi önnur laun fyrir dagvinnu ekki átt að koma til greiðslu í barnsburðarleyfi starfs- manna. Málið var rekið til að fá úrlausn ágreinings milli stéttarfélags kon- unnar og íslenska ríkisins. Var krafa konunnar um 108.878 krónu greiðslu með vöxtum og dráttar- vöxtum að fullu tekin til greina. Ennfremur var ríkið dæmt til að borga konunni 350.000 krónur í málskostnað fyrir Hæstarétti, en málskostnaður í héraði var felldur niður. Málið dæmdu hæstaréttardóm- ararnir Markús Sigurbjörnsson, Gunnlaugur Claessen og Ingi- björg Benediktsdóttir. Lögmaður konunnar var Jónas Haraldsson hrl. og lögmaður stefnda, ríkisins, Einar Karl Hallvarðsson hrl. Umsamin óunnin yfirvinna hluti af dagvinnulaunum í barnsburðarleyfi HÆSTIRÉTTUR hefur sýknað ríkissjóð af kröfum lögreglumanns við embætti sýslumannsins á Húsa- vík, sem krafðist þess að fá greidd- ar 280 gæsluvaktastundir á mánuði í stað þeirra 190 sem honum höfðu verið greiddar. Var dómur Héraðs- dóms Reykjavíkur frá 11. febrúar þar með staðfestur. Umræddur lögreglumaður var eini lögreglumaðurinn á Þórshafn- arsvæðinu þar til í mars 1997 þegar annar lögreglumaður tók við starfi varðstjóra á Raufarhöfn, en sá var einnig búsettur á Þórshöfn. Fyrir þann tíma fékk lögreglumaðurinn greiddar 280 gæsluvaktastundir á mánuði í samræmi við ákvæði kjarasamninga en eftir það 190 stundir en 380 gæsluvaktastundum var þá skipt milli lögreglumann- anna tveggja. Hinn lögreglumaðurinn hætti störfum um áramótin 1998/1999 og sá sem við því starfi tók er búsettur á Raufarhöfn. Lögreglumaðurinn sem málið höfðaði er því eini starf- andi lögreglumaðurinn á Þórshöfn en næsta lögreglustöð, á Raufar- höfn, er í um 65 km fjarlægð. Taldi lögreglumaðurinn sig eiga rétt, með vísan til kjarasamninga, á 280 gæsluvaktastundum á mánuði í stað þeirra 190 sem honum höfðu verið greiddar þar sem hann stæði aftur einn allar vaktir á Þórshöfn í sam- ræmi við ákvæði kjarasamninga þar um. Hæstiréttur taldi hins vegar að eftir breytingar sem gerðar voru á varðskrá þeirra lögreglumanna sem höfðu aðalstarfssvæði á Raufarhöfn og Þórshöfn þar sem ein varðskrá kom í stað tveggja áður og lög- reglumönnunum þannig gert kleift að skipta vöktunum á milli sín væri um að ræða fámennan stað þar sem tveir lögreglumenn störfuðu og því rétt að gæsluvaktastundafjöldinn væri 380 klst. á mánuði eða 190 klst. fyrir hvorn lögreglumann. Var ríkið því sýknað af kröfum lög- reglumannsins. Málið dæmdu hæstaréttardómar- arnir Guðrún Erlendsdóttir, Garðar Gíslason og Hrafn Bragason. Lög- maður áfrýjanda, lögreglumanns- ins, var Gylfi Thorlacius hrl. Til varnar ríkinu var Óskar Thoraren- sen hrl. Lögreglumaður fær ekki 90 vinnustundir viðurkenndar UM 20 bændur, á Suðurlandi, í Borg- arfirði og úr Dölunum, hafa stefnt rík- inu til ógildingar á úrskurði landbún- aðarráðuneytisins um að viðskipti milli bænda með mjólk séu óheimil. Að sögn Ólafs Björnssonar, lög- manns bændanna, hafa bændur um árabil samið sín á milli um viðskipti með mjólk, en landbúnaðarráðuneyt- ið hafi úrskurðað að slíkt sé ólöglegt og hafi bakfært beingreiðslur vegna slíkra viðskipta fyrir verðlagsárið 2001. Um væri að ræða eitt prófmál fyrir marga bændur þar sem það varðaði talsverða hagsmuni. Ólafur sagði ráðuneytið túlka bú- vörulögin með þeim hætti að bein- greiðsla til bænda sé styrkur til raun- verulegra framleiðenda. Viss sveigjanleiki sé í kerfinu, sem feli í sér að ekki þurfi að framleiða nema 80% af kvótanum til þess að fá fullar bein- greiðslur. Bændur telji hins vegar að það þurfi að vera meiri sveigjanleiki í reglugerð ráðuneytisins og líti svo á að þeir geti átt þess kost að bjarga sér tímabundið ef þeir lenda í vandræð- um, svo sem ef þeim tekst ekki að full- nýta kvótann. Það sé þeirra mál hvernig þeir fari að því að fullnýta kvótann. Kúabænd- ur stefna ríkinu Mörkinni 6, sími 588 5518 Nýjar vörur Opið virka daga frá kl. 9-18. Laugardaga frá kl. 10-15. Úlpur, ullarstuttkápur, hattar, húfur og kanínuskinn Síðasti tilboðsdagur á buxum, peysum og bolum Engjateigi 5, sími 581 2141. Opið virka daga frá kl. 10.00—18.00, laugardaga frá kl. 10.00—15.00. Vorum að taka upp fínar hnepptar peysur St. 36-44 & 44-56 Eddufelli 2 Bæjarlind 6 s. 557 1730 s. 554 7030. Opið mán.—fös. frá kl. 10—18, lau. 10—15. Auðbrekku 14, Kópavogi. Símar 544 5560 og 820 5562, www.yogastudio.is Hentar þeim sem vilja læra að nýta sér ilmkjarnaolíur á fyrirbyggjandi hátt og í baráttunni við ýmsa almenna kvilla. Ítarleg kennslumappa, Oshadhi ilmkjarnaolíur, grunnolía og blöndunarbúnaður fylgir námskeiðinu. Nánari upplýsingar er að finna á www.yogastudio.is. Leiðbeinandi: Lísa B. Hjaltested.Kennt 15. og 16. nóv. (fös. kl. 19:30-22.00 og lau. kl. 14:30-17.00) ilmkjarnaolíunámskeið Neðst við Dunhaga, sími 562 2230 Franskar dragtir, peysur og buxur frá stærð 34 20% af öllum buxum Opið í dag kl. 10-16 RAÐGREIÐSLUR Ný sending á útsöluverði 5% aukaafsláttur m.v. staðgreiðslu Sími 861 4883 á handhnýttum, austurlenskum gæðateppum á Grand Hóteli, Sigtúni, Reykjavík SÖLUSÝNING laugardag 9. nóv. kl. 12-19 sunnudag 10. nóv. kl. 13-19 Verðdæmi Stærð Verð áður nú staðgreitt Balutch bænamottur ca 80x145 cm 12-16.000 8.900 Pakistönsk „sófaborðsstærð“ 125x175-200 cm 43.900 28.400 Pakistönsk „borðstofustærð“ 219x308 cm 125.500 89.300 Rauður Afghan ca 200x280 cm 90.000 64.100 og margar gerðir af afghönskum og pakistönskum teppum. Single - Partý föstudagskvöld 15. nóvember Viltu vera með? Sendu þá netpóst á 2single@2single.is Upplýsingar í síma 698 7799
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.