Morgunblaðið - 09.11.2002, Blaðsíða 74

Morgunblaðið - 09.11.2002, Blaðsíða 74
DAGBÓK 74 LAUGARDAGUR 9. NÓVEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RIT- STJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið. Skipin Hafnarfjarðarhöfn: Grand Iris fer frá Straumsvík í dag. Mannamót Félag eldri borgara, Hafnarfirði, Hraunseli, Flatahrauni 3. Nám- skeið í mótun á leir verð- ur alla föstudaga kl. 13– 16, vantar fleiri þátttak- endur. Biljarðstofan er opinn virka daga frá kl. 13–16. Skráning og upp- lýsingar í Hraunseli sími 555 0142. Á mánudag púttað í Hraunseli kl. 10 og félagsvist kl. 13.30. Eldri borgarar í Mos- fellsbæ, Kjalarnesi og Kjós. Félagsstarfið opið mánu- og fimmtudaga. Mánudagur: Kl. 16 leik- fimi. Fimmtudagur: kl. 13 tréskurður, kl. 14 bókasafnið, kl. 15–16 bókaspjall, kl. 17–19 æf- ing kór eldri borgara í Damos. Laugardagur: kl. 10–12 bókband, línu- dans kl. 11. Korpúlfarnir, eldri borgarar í Grafarvogi. Fimmudagur: Kl. 10, aðra hverja viku púttað á Korpúlfsstöðum, hina vikuna keila í Keilu í Mjódd. Vatnsleikfimi í Grafarvogslaug á þriðju- dögum. kl. 9.45 og föstu- dögum. kl. 9.30. Upplýs- ingar í síma 5454 500. Félag eldri borgara, Reykjavík, Ásgarði, Glæsibæ. Félagið hefur opnað heimasíðu www.feb.is. Kaffistofan er lokuð vegna breyt- inga í Glæsibæ. Sunnudagur: Dansleikur kl. 20 Caprí-tríó leikur fyrir dansi. Mánudagur: Brids kl. 13, línudanskennsla fyrir byrjendur kl. 18. Dans- kennsla samkvæmis- dansa framhald kl. 19. og byrjendur kl. 20.30. Silfurlínan er opin á mánu- og miðvikudögum kl. 10–12. Skrifstofa fé- lagsins er að Faxafeni 12 s. 588 2111. Félagsstarf- ið er í Ásgarði, Glæsibæ. Gjábakki, Fannborg 8. Fjölskyldudagur verður í Gjábakka laugardaginn 16. nóvember kl. 14. Fjölbreytt dagskrá, m.a. syngur Samkór Kópa- vogs nokkur lög, Jón Oddur og Jón Bjarni frá Þjóðleikhúsinu líta inn. Þorvaldur Halldórsson syngur þekkt lög. Sköp- unarhornið verður fyrir unga sem aldna. Vöfflu- hlaðborð. Alli velkomnir. Félag eldri borgara, Kópavogi. Púttað á Listatúni í dag kl. 10.30. Gerðuberg, félagsstarf. Í dag og á morgun kl. 13–16 myndlistarsýning Brynju Þórðardóttur op- in. Allar upplýsingar um starfsemina á staðnum og í síma 575 7720. Digraneskirkja, kirkju- starf aldraðra. Opið hús á þriðjudag frá kl. 11 leikfimi, léttur máls- verður, helgistund, fræðsluþáttur, kaffi. Grindvíkingar koma í heimsókn. Allir vel- komnir. Gönguklúbbur Hana- nú. Morgunganga kl. 10 laugardagsmorgna frá Gjábakka. Krummakaffi kl. 9. Allir velkomnir. Gigtarfélag Íslands. Gönguferð um Laugar- dalinn í dag kl. 11 frá húsakynnum félagsins að Ármúla 5. Klukku- tíma ganga. Allir vel- komnir. Ekkert gjald. Upplýsingar í síma 530 3600. Stuðningsfundir fyrr- verandi reykingafólks. Fólk sem sótt hefur námskeið gegn reyk- ingum í Heilsustofnun NLFÍ í Hveragerði, fundur í Gerðubergi á þriðjud. kl. 17.30. GA-fundir spilafíkla, kl. 18.15 á mánudögum í Seltjarnarneskirkju (kjallara), kl. 20.30 á fimmtudögum í fræðslu- deild SÁA, Síðumúla 3–5 og í Kirkju Óháða safn- aðarins við Háteigsveg á laugardögum kl. 10.30. Samtök þolenda kyn- ferðislegs ofbeldis, fundir mánudaga kl. 20 á Sólvallagötu 12. Stuðst er við 12 spora kerfi AA- samtakanna. Kattholt. Flóamarkaður í Kattholti, Stangarhyl 2, er opinn þriðjud. og fimmtud. frá kl. 14–17. Leið 10 og 110 ganga að Kattholti. SVDK, Hraunprýði, Hafnarfirði heldur fund í húsi félagsins Hjalla- hrauni 9 kl. 20 þriðju- daginn 12. nóvember. Spilað verður bingó. Barðstrendingafélagið verður með félagsvist og dans í Breiðfirðingabúð, Faxafeni 14, í kvöld kl. 20.30. Geisli. Samtök um sorg og sorgarviðbrögð. Fundur verður haldinn hjá Geisla þriðjudaginn 12. nóvember kl. 20 í safnaðarheimili Selfoss- kirkju. Gestur fundarins verður sr. Gunnar Björnsson og fjallar hann um áhyggjur, Fundurinn er öllum opinn. Minningarkort Minningarkort Lands- samtaka hjartasjúk- linga fást á eftirtöldum stöðum á Suðurlandi: Í Vestmannaeyjum: hjá Axel Ó. Láruss. skó- verslun, Vestmanna- braut 23, s. 481-1826. Á Hellu: Mosfelli, Þrúð- vangi 6, s. 487-5828. Á Flúðum: hjá Sólveigu Ólafsdóttur, Versl. Grund, s. 486-6633. Á Selfossi: í versluninni Ír- is, Austurvegi 4, s. 482- 1468, og á sjúkrahúsi Suðurlands og heilsu- gæslustöð, Árvegi, s. 482-1300. Í Þorlákshöfn: hjá Huldu I. Guðmunds- dóttur, Oddabraut 20, s. 483-3633. Minningarkort Lands- samtaka hjartasjúk- linga, fást á eftirtöldum stöðum á Reykjanesi. Í Grindavík: í Bókabúð Grindavíkur, Víkurbraut 62, s. 426-8787. Í Garði: Íslandspósti, Garða- braut 69, s. 422-7000. Í Keflavík: í Bókabúð Keflavíkur Pennanum, Sólvallagötu 2, s. 421- 1102, og hjá Íslands- pósti, Hafnargötu 89, s. 421-5000. Í Vogum: hjá Íslandspósti b/t Ásu Árnadóttur, Tjarn- argötu 26, s. 424-6500, í Hafnarfirði: í Bókabúð Böðvars, Reykjavík- urvegi 64, s. 565-1630, og hjá Pennanum- Eymundssyni, Strand- götu 31, s. 555-0045. Minningarkort Lands- samtaka hjartasjúk- linga fást á eftirtöldum stöðum í Reykjavík: Skrifstofu LHS, Suð- urgötu 10, s. 552-5744, 562-5744, fax 562-5744, Laugavegs Apóteki, Laugavegi 16, s. 552- 4045, hjá Hirti, Bónus- húsinu, Suðurströnd 2, Seltjarnarnesi, s. 561- 4256. Minningarkort Lands- samtaka hjartasjúk- linga fást á eftirtöldum stöðum á Vesturlandi: Á Akranesi: í Bókaskemm- unni, Stillholti 18, s. 431- 2840, Dalbrún ehf., Brákarhrauni 3, Borgar- nesi og hjá Elínu Frí- mannsd., Höfðagrund 18, s. 431-4081. Í Grund- arfirði: í Hrannarbúð- inni, Hrannarstíg 5, s. 438-6725. Í Ólafsvík hjá Ingibjörgu Pétursd., Hjarðartúni 1, s. 436- 1177. Minningarkort Lands- samtaka hjartasjúk- linga fást á eftirtöldum stöðum á Vestfjörðum: Á Suðureyri: hjá Gesti Kristinssyni, Hlíðarvegi 4, s. 456-6143. Á Ísafirði: hjá Jóni Jóhanni Jónss., Hlíf II, s. 456-3380, hjá Jónínu Högnad., Esso- versluninni, s. 456-3990, og hjá Jóhanni Káras., Engjavegi 8, s. 456-3538. Í Bolungarvík: hjá Kristínu Karvelsd., Mið- stræti 14, s. 456-7358. Minningarkort Lands- samtaka hjartasjúk- linga fást á eftirtöldum stöðum á Austfjörðum. Á Seyðisfirði: hjá Birgi Hallvarðssyni, Botnahlíð 14, s. 472-1173. Í Nes- kaupstað: í blómabúð- inni Laufskálanum, Kristín Brynjarsdóttir, Nesgötu 5, s. 477-1212. Á Egilsstöðum: í Blómabæ, Miðvangi, s. 471-2230. Á Reyðarfirði: hjá Grétu Friðriksd., Brekkugötu 13, s. 474- 1177. Á Eskifirði: hjá Aðalheiði Ingimundard., Bleikárshlíð 57, s. 476- 1223. Á Fáskrúðsfirði: hjá Maríu Óskarsd., Hlíðargötu 26, s. 475- 1273. Á Hornafirði: hjá Sigurgeiri Helgasyni, Hólabraut 1 a, s. 478- 1653. Styrktarfélag krabba- meinssjúkra barna. Minningarkort eru af- greidd í síma 588-7555 og 588-7559 á skrifstofu- tíma. Gíró- og kredit- kortaþjónusta Í dag er laugardagur 9. nóvember, 313. dagur ársins 2002. Orð dagsins: Og hann leit í kring á þá með reiði, sárhryggur yfir harðúð hjartna þeirra, og sagði við manninn: „Réttu fram hönd þína.“ Hann rétti fram höndina, og hún varð heil. (Mark. 3, 5.) Víkverji skrifar... MINNING skógarþrastarinssem endaði líf sitt í viftunni í íþróttahúsinu á Húsavík á eftir að lifa lengi, enda hefur hann fengið verðug eftirmæli í fjölmiðlum. Hjálmar Freysteinsson, læknir á Akureyri, sérhæfir sig í mannfólk- inu, en sýnir þó að honum eru örlög engrar skepnu óviðkomandi: Harmur stór og hjörtu brostin hljóðnar fjas um pólitík, þjóðin stendur þrumu lostin; þröstur dó á Húsavík. Friðrik Steingrímsson úr Mý- vatnssveit er lítt hrifinn af veðrinu þessa dagana, segir það gráni á kvöldin, hláni á nóttunni og slabbi á daginn. Hann skilur vel að þröstur taki upp á því að flýja veðrið inn í íþróttahús. Ef til vill hafi búið undir löngun til að spreyta sig á tónleikum: Inn í húsið þröstur þaut þráði raust að brýna, en í viftu í einum graut endaði daga sína. Eins og kom fram í Morgun- blaðinu á fimmtudag notaði lögregl- an loftbyssu til þess að reyna að hrekja fuglinn út eða niður á gólf, þar sem hægt yrði að fanga hann. Friðriki fannst fara vel á því að lög- reglan í Suður-Þingeyjarsýslu notaði loftbyssu: Lögguþjóna lúmskur her litla fuglinn reyndi að þvinga með loftriffli sem eflaust er aðalskotvopn Þingeyinga. x x x UM KVÖLDIÐ voru tónleikarmeð karlakórunum Heimi og Hreim ásamt Óskari Péturssyni, ein- um Álftagerðisbræðra. Fyrir lagið „Skál, skál“, sló hann á létta strengi og hafði orð á því að nú væri síðasti séns fyrir áheyrendur að brosa. Friðrik Steingrímsson syngur í Hreim, en gafst þó tími til að yrkja: Óskar talað getur gleitt og gasprað eftir vonum, en hvernig á að brosa breitt við beljandann í honum? x x x ÍDAG er kosið í prófkjöri Samfylk-ingarinnar og hafa sumir fram- bjóðenda farið ótroðnar slóðir til að kynna sig og sína stefnu. Jóhanna Sigurðardóttir hefur rekið skrifstofu á hjólum, þ.e. bíl sem hún hefur lagt við fjölfarna staði. Á heimasíðu Helga Hjörvars er getraun um úrslit prófkjörsins. Á meðal verðlauna eru slaufa af Össuri Skarphéðinssyni og eiginhandaráritun Jakobs Frí- manns. Mörður Árnason fléttar sam- an stefnumál og feril í litríkum prósa í rafrænu formi. Þar segir m.a.: „Ég er ekki karlpungur./ Ég er ekki held- ur mjúkur maður/ og ekkert sérlega góður að búa til mat – en mér/ er eðlilegt og inngróið að kynin séu jafn-rétthá./ Mamma kenndi mér þetta strax í æsku … “ x x x VINIR og samherjar Ólafs G.Einarssonar efndu til veislu honum til heiðurs sjötugum, en hann hafði verið að heiman á afmælisdag- inn. Séra Hjálmar Jónsson orti við það tækifæri notalegar heillaóskir: Leiði þig um lífsins stig leiftursnöggur hvinur. Bláa höndin blessi þig í bak og fyrir vinur. Smáralindin ekki leikvöllur ÉG las í Morgunblaðinu 2. nóbember sl. um konu sem hljóp á eftir syni sínum í Smáralindinni þar sem hann hékk á rúllustiganum. Ég vil bara benda á að þeg- ar foreldrar koma í Smára- lindina eru þeir ekki komn- ir í pásu við að gæta barnanna. Í huga barnsins fer hugmyndaflugið á ferð og það sér ýmis tækifæri, sem við foreldrar erum grandalausir um, til að nota umhverfið til leiks. Þau eru ekki fá skiptin sem ég hef talað og bent börnum og unglingum á að hanga ekki á rúllustiganum. Eins finnst mér fyndið að sjá þegar foreldrar koma í verslunarferð í Smáralind- ina að það fyrsta sem þeir gera er að senda börnin í Dótabúðina „til að skoða“ sem flokkast frekar undir pössun. Ég er sammála Birnu að við Íslendingar megum vera meira vakandi fyrir því sem er að gerast í kringum okkur, hvort sem það er hlutur eða mannleg- ur þáttur. H.B. Mér ofbýður MÉR ofbýður sóðaskapur- inn í kringum ákveðinn verslunarkjarna og íbúðar- blokk á sama stað í efra Breiðholti. Ég spyr: Hver á að þrífa þetta? Mig langar til að bjóða borgarstjóranum okkar að koma og skoða þetta mál. Ingibjörg. Fyrirspurn varðandi matvöru ER einhver sem veit hvort frysta megi slátur, lifrar- pylsu og sviðasultu? Ef svo er af hverju eru þessar matvörur þá ekki seldar frystar í verslunum? Breyt- ist bragðið eitthvað? O.G.E. Fyrirspurn ER einhver sem tekur að sér að laga peysur í vél? Vinsamlegast hafið sam- band við Ingu Ósk í síma 551-8727 eða 891-8727. Tapað/fundið Þrjú hjól í óskilum ÞRJÚ hjól eru í óskilum við bensínstöð Olís í Mjódd. Eitt hjólið er blátt MTB- hjól, annað er grátt Prince- hjól og þriðja er silfurlitað Oncilla-hjól. Tvö hjól í óskilum GULT Trek 220-hjól með svörtum talnalás og dökkt Diamond Nevada-hjól með rauðum lás fyrir lykil. Upp- lýsingar gefur Hanna í síma 869-2560. Úr tapaðist GYLLT Candino-kven- mannsúr tapaðist í Fléttu- rima eða Gylfaflöt í Graf- arvogi sl. þriðjudag. Skilvís finnandi vinsamlega hafi samband við Dagrúnu í síma 695-9970. Gleraugu töpuðust MAX Mara-kvengleraugu töpuðust í sl. viku í ná- grenni Bústaðavegar. Finnandi er vinsamlegast beðinn að hringja í síma 695-5125. Fundarlaun. Nokia 3330 tapaðist NOKIA 3330 tapaðist í grennd við Broadway laug- ardaginn 22. október sl. Hann er grár í svörtu leð- urhulstri. Finnandi er vin- samlegast beðinn að hringja í síma 564-0779 e. kl. 17. Fundarlaun. VELVAKANDI Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15. Netfang velvakandi@mbl.is LÁRÉTT: 1 steins, 8 kvenmenn, 9 starfið, 10 greinir, 11 blóms, 13 endast til, 15 sól, 18 borða, 21 skúm, 22 róin, 23 skriðdýrið, 24 hryssingslegt. LÓÐRÉTT: 2 nirfill, 3 nemur, 4 eydd- ur, 5 korn, 6 bjartur, 7 ilma, 12 beita, 14 bókstaf- ur, 15 bráðum, 16 hrak- yrðir, 17 nabbinn, 18 högg, 19 heiðarleg, 20 hófdýrs. LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU: Lárétt: 1 dreki, 4 hegri, 7 mótor, 8 lyfin, 9 afl, 11 asni, 13 æran, 14 logns, 15 holl, 17 arða, 20 ári, 22 rotin, 23 gildi, 24 annar, 25 akarn. Lóðrétt: 1 dimma, 2 ertin, 3 iðra, 4 hóll, 5 gæfur, 6 innan, 10 fægir, 12 ill, 13 æsa, 15 hirta, 16 látin, 18 rolla, 19 al- inn, 20 ánar, 21 igla. K r o s s g á t a 6 8 11 15 22 1 24 12 3 10 17 21 4 9 13 18 23 14 5 19 7 20 2 16 VEGNA fyrirspurnar í Velvakanda 6. nóvember sl. vill Löggildingarstofa taka fram eftirfarandi: Rafmagnsöryggisdeild Löggildingarstofu að- stoðar lögregluyfirvöld við rannsókn á brunum og slysum af völdum raf- magns. Á síðasta ári tók deildin þátt í 103 rann- sóknum þar sem grunur lék á að brunaorsök væri af völdum rafmagns. Það er ekki hægt að segja með neinu móti að ákveðnar tegundir heimilistækja, s.s. þvottavélar, þurrkarar eða sjónvörp, valdi íkveikju frekar en aðrar tegundir. Löggilding- arstofa er nú þessa dagana að leggja síðustu hönd á skýrslu vegna bruna og slysa af völdum rafmagns fyrir árið 2001. Fljótlega verður hægt að nálgast skýrsluna á skrifstofu stofnunarinnar í Borg- artúni 21 eða á veffangi : www.ls.is. Jóhann Ólafsson, deildarstjóri rafmagns- öryggisdeildar. Rafmagnsbrunar í heimahúsum
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.