Morgunblaðið - 22.05.2003, Síða 6

Morgunblaðið - 22.05.2003, Síða 6
FRÉTTIR 6 FIMMTUDAGUR 22. MAÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ VIÐ úthlutun styrkja úr Forvarna- sjóði Áfengis- og vímuvarnaráðs, ÁVVR, í gær var farið yfir þann ár- angur sem náðst hefur með forvarna- starfi undanfarin ár. ÁVVR hefur starfað í fimm ár og lýkur nú störfum. Í staðinn færist forvarnastarf yfir á sveitarfélögin. Dr. Þórólfur Þórlinds- son, prófessor og formaður ÁVVR, sagði góðan árangur hafa náðst. „Áherslur hafa verið á að hafa starfið opið, byggja á upplýsingum og rannsóknum og mati á því sem við er- um að gera, virkja almenning, fé- lagasamtök, foreldra og alla þá sem vinna með ungu fólki og fá þá til liðs við okkur. Þetta virðist hafa borið ár- angur,“ sagði Þórólfur. „Við sjáum að það hefur dregið úr neyslu frá árinu 1998 og til dagsins í dag. Þetta er allt mjög ánægjulegt. Á móti kemur að á sama tíma er veru- legur vandi í eldri árgöngum þar sem neysla var mikil á árunum 1996-1998. Þunginn á meðferðarheimilin verður mikill á næstunni vegna þessa. Þegar áróðurinn verður meiri leita einnig fleiri sér hjálpar fyrr og það eykur enn þungann á meðferðarheimilin. Þetta er dekkri hliðin á vandanum,“ sagði Þórólfur. Hann sagðist búast við að forvarn- arstarf yrði í ríkari mæli í alþjóða- samstarfi en verið hefur. „Við höfum séð öfluga hringa- myndun í Evrópu á undanförnum ár- um. Þessir hringir selja og dreifa vímuefnum. Markhópur þeirra er ungt fólk og þeirra starfsemi nær til allra landa og við þessu verðum við að bregðast,“ sagði Þórólfur. „Forvarnir hafa skilað árangri“ Inga Dóra Sigfúsdóttir ræddi um árangur af forvarnarstarfi á Íslandi síðastliðin fimm ár. Hún sagði að rannsóknir sem Rannsóknir og grein- ing hefur framkvæmt á síðastliðnum fimm árumhefðu leitt í ljós að jafn- ingjahópur vægi þungt sem áhrifa- þáttur á vímuefnaneyslu unglinga. Einnig hefðikomið í ljós að því meiri tíma sem foreldrar eyða með börnum sínum, því minni líkur séu á því að þau neyti vímuefna. Hún sagði skipu- lagt tómstunda- og æskulýðsstarf mjög mikilvægt til að skapa börnum heilbrigð lífsskilyrði. Inga Dóra sagði forvarnarstefnu undanfarinna ára greinilega hafa skilað árangri. Vímuefnaneyslan hefði dregist saman, sama hvaða vímuefni væri skoðað. Hlutfall ölv- unardrykkju hefði dregist verulega saman auk þess sem dregið hefði úr daglegum reykingum og hassneyslu. Þá sagði Inga Dóra nýjustu rann- sóknina benda til þess að neysla væri enn á niðurleið. Tómas Helgason ræddi um áfeng- isvarnir og rannsóknir. Þar kom í ljós að sala áfengis hefur aukist síðustu ár en hlutföll sterkra og veikra drykkja hafa breyst mjög mikið. Mikið hefur dregið úr sölu sterkra vína en neysla á bjór og léttvínum hefur aukist. Tómas vitnaði í niðurstöður rann- sókna sem sýna að áfengisneysla í Finnlandi hefði aukist um 46% eftir að farið var að selja bjór í mat- vörubúðum. Einnig kom fram að þeg- ar hætt var að selja bjór í mat- vörubúðum í Svíþjóð fækkaði sjúkrahúsvistunum ungs fólks vegna áfengisvanda. Sagði Tómast að breytingar á aðgengi áfengis hefðu áhrif á alla sem drekka, en mest á þá sem eiga við áfengisvanda að stríða. Rannsóknir sýna fram á að for- varnir hafa áhrif                   ! !            "  ##$   %& '            ()* "+ ,#  % - .%#/ 0%12  3* 0%/ 4#    6! 6 6 6 6 6          0. 1 7--&   1/ 8%9-) 1/%/ 0. : *.& ; 5 0%12 8## *-# 4/ / %##/ TENGLAR ..................................................... www.vimuvarnir.is ÁFENGIS- og vímuvarnaráð, ÁVVR, úthlutaði í gær við hátíð- lega athöfn í Ráðhúsi Reykjavíkur rúmum 45 milljónum úr Forvarna- sjóði til ýmissa verkefna og áfanga- heimila sem sinna forvarnastarfi. Verkefnið Vertu til, sem er sam- starfsverkefni ÁVVR og Sambands íslenskra sveitarfélaga, fékk 4,5 milljónir en það var jafnframt kynnt á fundinum. Áfangaheimilið Dyngjan og Vímulaus æska fengu 2,5 milljónir, Saman hópurinn og félag um forvarnir fékk 1,5 millj- ónir. Níu aðilar fengu eina milljón hver, en aðrir minna. Alls var 83 verkefnum úthlutað úr sjóðnum. Þau Tómas Helgason og Snjólaug Stefánsdóttir hlutu að auki við- urkenningu fyrir störf sín í þágu áfengis- og vímuvarna og afhenti forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, viðurkenningarnar. Í ávarpi sínu lagði forseti Íslands áherslu á fjölskylduna og íþrótta- iðkun sem öfluga forvörn. Hann sagði líka að því fyrr sem unglingar hæfu áfengisdrykkju því meiri hætta væri á að þeir leituðu í sterk- ari efni.„Á sama hátt hafa rann- sóknir leitt í ljós að daglegar sam- verustundir fjölskyldunnar og þátttaka í einhverri íþrótt eru besta forvörnin þegar til lengdar lætur og mikilvægt að foreldrar og sam- félagið allt skilji þennan sannleika og breyti í samræmi við hann,“ sagði forseti í ávarpi sínu. Að lok- um þakkaði Ólafur Ragnar þeim sem unnið hafa að forvarnarstarfi undanfarin ár. 83 verkefni fengu styrk úr Forvarna- sjóði Morgunblaðið/Kristinn Tómas Helgason og Snjólaug Stefánsdóttir tóku við viðurkenningum úr hendi forseta Íslands fyrir ötult forvarnarstarf undanfarinna ára. „ÉG tel ekki ástæðu til upphlaups af þessu tilefni. Ég lít á þetta sem óheppilegan rekstrarvanda okkar að hafa farið fram úr fjárheimildum sem þessu nemur,“ segir Böðvar Braga- son, lögreglustjóri í Reykjavík, um sparnaðaraðgerðir vegna 2% rekstr- arhalla embættisins á síðasta ári. Ætlunin er að ráða færri sumaraf- leysingamenn, draga úr yfirvinnu og ráða ekki í störf sem losna hjá emb- ættinu nema að vandlega yfirveguðu ráði. Félag íslenskra rannsóknarlög- reglumanna mótmælir niðurskurðin- um harðlega og segir mikla ólgu ríkja meðal lögreglumanna. Samkvæmt ársreikningi lögreglu- stjórans var hallinn 53 milljónir króna í fyrra. Árið 2001 var á hinn bóginn 13,6 milljón króna afgangur af rekstr- inum. Hallinn sem færist milli ára er því um 40 milljónir króna eða um 2% af fjárveitingum síðasta árs. Í tölvu- pósti sem sendur var starfsmönnum embættisins kemur fram að það stefnir í að í árslok verði hallinn orð- inn 60 milljónir króna. Þegar hefur verið gripið til sparnaðaraðgerða. Rannsóknarlögreglumenn á bak- og helgarvakt eru nú færri og reynt hef- ur verið að draga úr bifreiðanotkun. Snemma á árinu var ákveðið að að- eins 26–27 lögreglunemar yrðu í starfsþjálfun en síðustu árin hafa um 35 nemar og afleysingamenn unnið þar á sumrin. Af þessum sökum verð- ur ekki um sumarafleysingar að ræða í umferðardeildinni. Þá verður al- mennt ekki ráðið í stöður sem losna hjá embættinu. Mistök embættisins Böðvar Bragason segir það ein- vörðungu vera mistök embættisins að fara fram úr fjárheimildum. Hann segir að skýringin sé fyrst og fremst aukin umsvif lögreglunnar og bendir á að launakostnaður hjá lögreglu sé yfirleitt um 80% af rekstrarkostnaði. Spurður um hvort ekki hafi verið þörf á þessum auknu umsvifum segir Böðvar: „Svo er það allt annar hand- leggur, hversu lögreglan á að vera umsvifamikil. Stofnanir þurfa einfald- lega að halda sig innan þess ramma sem þeim eru settar.“ Lögreglan ákveði ekki fjárframlög heldur sendi árlega tillögur til dómsmálaráðuneyt- isins um umfang starfseminnar. Ráðuneytið setji lögreglunni síðan ramma sem hún verði að halda sig innan. Nú þurfi lögreglan að vinda of- an af hallarekstrinum og það sé aug- ljóst að ef ráðstöfunarfé minnkar hljóti einhvers staðar að draga úr starfseminni. Aðspurður segir hann að umferðarlöggæsla verði með svip- uðum hætti og fyrr í Reykjavík. Á þessu stigi sé ekki ljóst hvort hún verði meiri eða minni, það sé í athug- un. Félag íslenskra rannsóknarlög- reglumanna sendi frá sér tilkynningu í gær þar sem fyrirhuguðum niður- skurði er mótmælt og fullyrt að mikil ólga ríki meðal lögreglumanna í Reykjavík. Niðurskurður hafi þegar bitnað á starfsemi embættisins og þá sérstaklega rannsóknardeildum. Af- leiðingar frekari samdráttar verði óhjákvæmilega að málahalli aukist, þ.e. rannsókn færri mála verði lokið, og málin hljóti verri rannsókn, óánægja aukist og hætta sé á að færir rannsóknarlögreglumenn hverfi til annarra starfa. Böðvar ítrekar að aðeins sé um að ræða 2% rekstrarhalla og segir enga ástæðu til uppnáms. Aðspurður segir hann að málum sem eru til rannsókn- ar hafi fækkað síðastliðna mánuði. Mótmæla sparnaðaraðgerðum hjá lögreglunni í Reykjavík Lögreglustjóri segir enga ástæðu til upphlaups Í FRÉTTUM Stöðvar 2 í gærkvöldi var greint frá því að margir háttsettir menn innan lögreglunnar og stjórn- kerfisins, sem fréttamaður Stöðvar 2 hefði rætt við, hefðu gagnrýnt að dómsmála- ráðherra hafi sýknt og heilagt styrkt embætti ríkislögreglu- stjóra meðan lögregluemb- ætti á landsbyggðinni standi illa og mæti litlum skilningi ráðherra. „Gagnrýnendur ráðherra, sem eru margir, segja stöðuna grafalvarlega og segja Sólveigu ekki vera rétta manneskju til að leiða nauðsynlegar breytingar og endurbætur ýmissa embætta sem gera þurfi á næstu ár- um,“ sagði í fréttinni. Spurður um þetta segir Guðmundur Guðjónsson, yfir- lögregluþjónn hjá ríkislög- reglustjóranum, að rekstrar- vandi lögreglunnar í Reykjavík sé á ábyrgð lög- reglustjórans þar. Embætti ríkislögreglustjóra sé ekki rekið á kostnað lögreglunnar í Reykjavík heldur innan ramma fjárlaga eins og vera ber. „Stækkun embættisins er vegna verkefna sem því hafa verið falin af Alþingi. Ég vil í þessu sambandi vekja athygli á því að upplýsingar um öll þesi atriði koma fram í skýrslu dómsmálaráðherra um stöðu og þróun löggæsl- unnar á Íslandi sem lögð var fyrir Alþingi á síðasta ári. Við undirbúning að gerð þeirrar skýrslu tók embætti ríkislög- reglustjóra saman upplýsing- ar um þróun og vöxt embætt- isins allt frá stofnun þess árið 1997.“ Ólíðandi fullyrðingar Guðmundur leggur áherslu á að það sé með öllu ólíðandi að þrátt fyrir að réttar upp- lýsingar liggi fyrir um þessi atriði sé sífellt verið að gefa í skyn eða fullyrða að embætti ríkislögreglustjóra hafi vaxið á kostnað lögreglunnar í Reykjavík, eða löggæslunnar í landinu eða jafnvel á kostn- að öryggis almennings. Yfirlögregluþjónn ríkislögreglustjóra Embættið ekki rekið á kostnað löggæsl- unnar

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.