Morgunblaðið - 22.05.2003, Blaðsíða 47

Morgunblaðið - 22.05.2003, Blaðsíða 47
ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. MAÍ 2003 47 EGGERT Magnússon, formaður Knattspyrnusamband Íslands, sagði í samtali við Morgunblaðið í gær að ekkert væri að frétta af þjálf- aramálum landsliðsins en eins og kom fram á blaðamannafundi hjá KSÍ þegar tilkynnt var um afsögn Atla Eðvaldssonar fékk Eggert um- boð stjórnar KSÍ um að leita að er- lendum landsliðsþjálfara. „Næstu dagar og vikur munu fara í að viða að sér nöfnum en ég ætla að gefa mér góðan tíma í þetta. Það liggur svo sem ekkert á en það kemst kannski einhver skriður á þetta eftir landsleikina í júní. Það hefur auðvitað spurst hratt út að við séum í þjálfaraleit og þar af leið- andi hafa margir sett sig í samband við mig en sem stendur er enginn kandídat kominn. Við þurfum að fá upplýsingar um menn og fjármálin og það tekur sinn tíma,“ sagði Egg- ert, sem staddur er í Sevilla en þar hélt stjórn UEFA fund samhliða úr- slitaleiknum í UEFA-keppninni. Eggert sagði að Andy Roxburgh, fyrrverandi landsliðsþjálfari Skota, sem sinnir fræðslustarfi ásamt ung- linga- og þjálfaramálum hjá UEFA, hefði boðist til að aðstoða sig en Roxburgh er afar vel kunnugur þjálfaramálum og væntir Eggert þess að hann láti sig fá lista með nöfnum sem hugsanlega koma til greina í landsliðsþjálfarastarfið. Andy Roxburgh aðstoðar Eggert  JON Dahl Tomasson, landsliðs- framherji Dana og leikmaður AC Milan, leikur ekki meira á leiktíðinni eftir að hann meiddist í fyrri úrslita- leik AC Milan og Roma í ítölsku bik- arkeppninni í fyrrakvöld. Tomasson missir þar með af úrslitaleiknum í Meistaradeildinni.  JIM O’Brien, þjálfari Boston Celt- ics, hefur gert nýjan samning við lið- ið og er nú samningsbundinn liðinu til ársins 2006. O’Brien hefur náð góðum árangri með Boston og hefur komið liðinu í úrslitakeppnina síð- ustu tvö ár en þar á undan hafði liðið ekki komist í úrslitakeppnina í sex ár í röð. Í ár komst Boston í 2. umferð úrslitakeppninnar í Austurdeildinni en féll út fyrir New Jersey 4:0, en í fyrra tapaði Boston einnig fyrir New Jersey, í úrslitum austurdeildar.  DAVID Dunn, leikmaður Black- burn í ensku úrvalsdeildinni, hefur hafnað því að skrifa undir langtíma- samning við liðið og er líklegt að hann verði seldur frá Blackburn í sumar ef honum snýst ekki hugur.  JÜRGEN Macho, markvörður hjá Sunderland, hefur ákveðið að yfir- gefa liðið og fara til Chelsea.  BJÖRGVIN Sigurbergsson, kylf- ingur í Keili, lék fyrsta hringinn á Peugeot-mótinu í Leeds í Englandi á parinu, 71 höggi. Hann hitti 10 brautir af 14, og 14 flatir af 18 á ráð- lögðum höggafjölda. Púttin voru hins vegar ekki góð að sögn Björg- vins en hann púttaði 32 sinnum. Hann fékk þrjá fugla og jafn marga skolla en restin var á parinu. Fimm kylfingar léku á 66 höggum, eða 5 höggum undir pari. Keppninni verð- ur framhaldið í dag. FÓLK Maze, sem er atvinnumaður íÞýskalandi og besti borðtenn- ismaður Danmerkur, er í 21. sæti á heimslistanum og í tíunda sæti á list- anum yfir bestu borðtennismenn í Evrópu. Guðmundur er í 257. sæti heimslistans. Árangur Guðmundar er mjög góður, en loturnar gegn Maze fóru 11:9, 7:11, 11:5, 10:12,11:8 og 14:12. Danir höfðu gert sér vonir um að Maze, sem er þeirra besti borðtenn- ismaður, myndi blanda sér í barátt- una um verðlaun á mótinu. Eftir tap- ið sögðu danskir fjölmiðlar tap Maze vera gríðarlega vonbrigði, þau mestu sem Danir hafa orðið fyrir á mótinu. Þá er talið að tapið dragi mjög úr möguleikum Maze á að vinna sér þátttökurétt á ÓL í Aþenu. Guðmundur lék fyrst gegn Moha- men Said Abdulla frá Sómalíu á HM og sigraði 4:0. Þá vann hann sigur á Said Farid frá Alsír 4:0. Guðmundar vann síðan Adam Robertsson frá Wales, 4:3 (12:10, 14:16, 7:11, 11:5, 11:3, 8:11, 11:9). Guðmundur tapaði í gærkvöldi í 32-manna úrslitum fyrir Li Ching frá Hong Kong, 4:1. Guðmundur vann fyrstu lotuna, 11:7, en tapaði fjórum þeim næstu, 11:6, 11:4, 11:5 og 11:3. Guðmundur Stephensen borðtennismaður. Guðmundur gerði það gott í París GUÐMUNDUR E. Stephensen, Íslandsmeistari í borðtennis, gerði sér lítið fyrir í gær og lagði danska atvinnumanninn Michael Maze að velli í einliðaleik á heimsmeistaramótinu í borðtennis, sem stendur yfir í París. Guðmundur, sem lék eitt sinn tvíliðaleik með Maze, lagði hann að velli 4:2. Fyrir leikinn hafði Guðmundur fagnað sigri á þremur öðrum. Í gærkvöldi tapaði hann síðan fyrir Li Ching frá Hong Kong í 32-manna úrslitum og er þar með úr leik. Reuters Dmitri Alenichev, sem skoraði annað mark Porto í úrslitaleiknum í Sevilla í gær, og Nuno Valente fagna sigrinum á Celtic og fyrsta Evróputitli portúgalska félagsins í sextán ár. FYLKISMENN þurfa að greiða Pet- erborough 25.000 pund eða um 3 millj- ónir króna fyrir að losa Helga Val Daní- elsson undan samningnum við enska liðið – eftir því sem fram kemur á heimasíðu Peterborough. Helgi Valur átti eitt ár eftir af samningi sínum við Peterborough, en það eru svokallaðir bakhjarlar Árbæjarliðsins sem greiða upp samninginn fyrir Helga. „Helgi átti eitt ár eftir af samn- ingnum við okkur en hann sagðist vilja fara heim og setjast á skólabekk. Hann var kominn með heimþrá og það mátti vel merkja á spilamennsku hans. Helgi var að mínu mati mjög hæfileikaríkur leikmaður en honum reyndist erfitt að aðlagast okkar leik og þá sérstaklega hvað andlegu hliðina varðar,“ segir Barry Fry, knattspyrnustjóri Peter- borough, á heimasíðu félagsins. Þrjár milljónir fyrir Helga Val
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.