Morgunblaðið - 20.06.2003, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 20.06.2003, Blaðsíða 22
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ 22 FÖSTUDAGUR 20. JÚNÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ Virkir dagar frá kl. 10-18 Laugardagar frá kl. 11-16 Sunnudagar frá kl. 12-16 MEGN óánægja er vegna vals for- valsnefndar á tillögum um skipulag á slippsvæðinu við Mýrargötu. For- valsnefnd tilkynnti um sitt val 6. júní síðastliðinn en umsóknir bárust frá 19 ráðgjafarhópum og voru fjór- ir hópar valdir til frekari þátttöku í verkefninu. Ein þeirra tillagna verð- ur síðan valin til frekari þróunar. Guðjón Bjarnason, arkitekt og fulltrúi Bjarnason/Zapata-hópsins, segir það illskiljanlegt hvaða hags- munir almennings mæli gegn því að heimsþekktir erlendir arkitektar og verkfræðingar fái að koma fram sinni sýn á svæðið. Guðjón myndaði hóp ásamt bandaríska arkitektinum Carlos Zapata, teiknistofu hans W+Z og verkfræðistofunum LERA og Rozzi sérstaklega til að takast á við skipulag Mýrargötusvæðisins og hafa þeir sent borgarráði erindi um að þeir séu reiðubúnir að gefa starfskrafta sína til verksins. „Þetta snýst ekki um fjármuni heldur snýst þetta um að fólk fái að njóta sinna hæfileika og starfsheiðurs og að fá að taka þátt í skipulagsmálum höf- uðborgarinnar. Þetta erindi liggur fyrir í borgarráði og mun vænt- anlega verða tekið fyrir á næsta fundi borgarráðs,“ segir Guðjón. Gestur Ólafsson, skipulagsfræð- ingur og arkitekt, myndaði ráðgjaf- arhóp ásamt Lichfield Planning, sem er með þekktari skipulags- stofum Englands og hefur unnið að skipulagsverkefnum hér á landi, auk annarra sérfræðinga. Hann gagn- rýnir valið á þeirri forsendu að ekki hafi verið leitað eftir hæfustu sér- fræðingum í skipulagsmálum. „Að fenginni niðurstöðu forvalsnefndar er mér hulin ráðgáta að hverju er verið að leita og þess vegna ritaði ég bréf til borgarráðs til þess að biðja um útskýringu á þessu,“ segir hann. Steinunn Valdís Óskarsdóttir borgarfulltrúi átti sæti í forvals- nefnd og segir hún að þeir 19 ráð- gjafarhópar sem sótt hafi um verkið hafi allt verið mjög frambærilegir aðilar og vel samsettir hópar. „Við þurftum að velja úr fjóra aðila og ég tel að við höfum unnið okkar vinnu eins samviskusamlega eins og var unnt. Við bjuggum til ákveðna flokkun þar sem við reyndum að beita eins hlutlægum aðferðum og okkur var unnt. Við reyndum að meta menntun hópanna, reynslu, samsetningu þeirra, auk ýmissa annarra þátta sem komu inn í þetta. Auðvitað er það alltaf þannig að ein- hverjir sem ekki eru valdir eru skilj- anlega óánægðir og hafa óskað eftir að fá rökstuðning og við munum auðvitað gefa hverjum og einum rökstuðning fyrir því af hverju hann var ekki valinn en einhver annar,“ segir hún. Hún leggur áherslu á að í forval- inu nú hafi verið unnið eftir nýrri aðferðarfræði í skipulagsmálum, þar sem byggt sé meira á samráði við íbúa og hagsmunaaðila á svæð- inu og þetta samráð fari fram á frumstigi skipulagsvinnunnar. Enginn ágreiningur innan nefndarinnar „Það er auðvitað skiljanlegt að aðilar, sem eru færir hönnuðir og góðir að teikna hús, séu óánægðir með það að hafa ekki verið valdir inn í þetta, en það byggist á því að við vorum að leita að hópum sem gátu komið til sögunnar með reynslu af skipulagsgerð, með sér- fræðinga í samráðsskipulagi, með sérfræðinga í skipulagi hafna og umferðarsérfræðinga, vegna þess að þetta mun snúast mjög mikið um framtíðarlegu og útfærslu Mýr- argötunnar. Þetta eru þau efnislegu rök sem lágu á bak við okkar val,“ útskýrir Steinunn og tekur það fram að enginn ágreiningur hafi verið innan forvalsnefndarinnar. Auk Steinunnar Valdísar áttu borg- arlögmaður, sviðstjóri skipulags- og byggingarsviðs, borgarverkfræð- ingur og fulltrúi frá Reykjavík- urhöfn sæti í hópnum. Í bréfi forvalsnefndar til þátttak- enda í forvalinu var tilkynnt að sam- kvæmt niðurstöðu hæfismats sem sett hafi verið fram í verkefnalýs- ingu hafi 4 ráðgjafarhóparnir verið valdir til áframhaldandi þátttöku. Í fyrsta hópnum eru Kanon arkitekt- ar, Teiknistofan Tröð, Línuhönnun og samstarfsaðilar. Annan hópinn skipa Skaarup & Jespersen- archtects and planners, Ramböll Nyvig A/S, Almenna verk- fræðistofan, Úti & Inni og sam- starfsaðilar. VA arkitektar ehf., Hönnun hf., Landmótun ehf. og Björn Ólafs standa að þriðja hópn- um, en fjórða hópinn skipa VSÓ Ráðgjöf ehf., Hornsteinar arkitekt- ar ehf., Schmidt, Hammer & Lassen, Niras og samstarfsaðilar. Greiðsla til hvers hóps er ein milljón króna. Unnu tillögur að endurbygg- ingu World Trade Center Guðjón telur að mat á þátttak- endum hafi átt að liggja fyrir þegar úrslit valsins voru kynnt. „Ég hef fengið þau svör að það sé ekki hægt að veita allar upplýsingar að svo stöddu um aðra þátttakendur þar sem það kunni hugsanlega að stang- ast á við upplýsingalög, en hvernig getur maður metið hæfi eigin teym- is án þess að hafa önnur til sam- anburðar?“ leggur hann áherslu á. Guðjón segir það vekja athygli að í hópunum sem voru valdir séu nán- ast allar stærstu verkfræðistofur landsins. „Með fyllstu virðingu fyrir verkfræðingum þá tel ég að þeir séu ekki sérmenntaðir í því að fást við borgarskipulag. Þar eru menning- arleg og samfélagsleg gildi sem þarf að taka tillit til, sem eingöngu er á valdi hæfustu arkitekta og skipu- lagsfræðinga að eiga við í meg- indráttum á þessu mikilvæga svæði.“ Guðjón segist hafa rætt við Carl- os og hans fólk um niðurstöður vals- ins og segir hann að þessir rólynd- ismenn séu undrandi á vali nefndarinnar og jafnframt því að rökstuðningur hennar liggi ekki fyr- ir, enda séu þeir vanir að fá skýr- ingar á niðurröðun keppenda í því alþjóðlega gegnsæja umhverfi sem þeir starfa í. „Carlos Zapata er alþjóðleg stjarna á sviði framsækinnar nú- tímabyggingarlistar, hann er arki- tekt og rekur teiknistofu í Boston og í Shanghæ. Verkfræðistofan Rozzi hannar eingöngu umferðarmann- virki og sér meðal annars um um- ferðarkerfi Bostonborgar. Sam- starfsmaður Carlosar, Benjamin Twood, er frumkvöðull í hönnun hafnarsvæða og hefur komið að hönnun flestra mikilvægustu hafn- arsvæða Bandaríkjanna og víðar. Ég vil alls ekki vega að þeim starfs- bræðrum mínum sem valdir voru, enda býr hæfileikafólk þar á meðal. Ég lít hins vegar á að þeir búi ekki yfir sams konar reynslu og yfirsýn eins og þessi hópur, sem hefur verið samsettur sérstaklega fyrir þetta verkefni. Hér er um að ræða breið- an hóp fagfólks sem fyrir löngu síð- an hefur skapað sér nafn sem við- urkenndir hæfileikamenn á alþjóðasviði,“ lýsir hann. Hann nefnir sem dæmi um traust og virð- ingu Carlosar að hann hafi verið einn sjö alþjóðlegra arkitekta sem var valinn til að gera grunntillögur að endurbyggingu World Trade Center-svæðisins, auk þess sem LERA hafi séð um alla verkfræði- vinnu á því svæði frá upphafi til enda og vinni nú að gerð hæstu byggingu veraldar. Hann undir- strikar jafnframt að Carlos hafi mikla þekkingu á norrænu um- hverfi, þar sem hann hefur unnið til verðlauna í samkeppnum á Norð- urlöndum, en hann er einmitt á leið hingað til lands í næstu viku. Ekki lágmarkskröfur til menntunar í Reykjavík Gestur segir að Evrópusamband skipulagsfræðinga geri kröfur um að fólk sem vinni svona skipulag þurfi að lágmarki að hafa fjögurra ára háskólanám í skipulagsfræðum og tveggja ára starfsreynslu. Skipu- lagsfræðingafélag Íslands hafi jafnframt tekið upp þessar lág- markskröfur og iðnaðar- og við- skiptaráðuneytið staðfest fyrir nokkrum árum. „Hins vegar virðist þessi lágmarkskrafa ekki gerð hér í Reykjavík. Eins og ég þekki málið get ég ekki séð að þessi krafa hafi verið gerð, en í svari sem ég fékk frá forstöðumanni skipulags- og byggingarsviðs er vísað í reglugerð þar sem engar sambærilegar menntunarkröfur eru gerðar,“ segir hann. Hann telur að íbúar Reykja- víkur eigi heimtingu á því að fá ráð- gjafa sem hafi að minnsta kosti sömu lágmarksmenntun og starfs- reynslu og annars staðar séu gerðar kröfur um. Skipulag sé allt annað en að teikna hús eða reikna út járn í steinsteypu. Að hans sögn hefur Lichfield Planning þróað sérstaklega aðferðarfræði í samráði við almenn- ing og hlaut stofan meðal annars verðlaun Konunglega skipulags- fræðingafélagsins fyrir frumkvöðla- starf á þessu sviði. „Það er bara blásið á þetta og þó héldum við að þetta væri aðalatriði í þessu útboði, það er annars vegar menntun og starfsreynsla í skipulagsfræðum og hins vegar sérþekking í samráði við almenning. Auk þess vorum við með í skipsrúmi hjá okkur meðal annars Hildi Kristjánsdóttur sem er um- hverfisfræðingur og okkar besti sér- fræðingur í þessum efnum, nýbúin að skrifa bók um þátttöku almenn- ings í mótun skipulags, hug- myndafræði og aðferðir,“ bætir hann við. Samsetning hópanna það sem leitað var eftir Hann leggur áherslu á að margir aðrir sérfræðingar kunni að vera mjög hæfir á sínu sviði en skipulags- fræði sé bara allt annar hlutur. „Það vita það allir sem hafa komið nálægt svona vinnu að stigagjöfin er hug- læg, útbjóðandi getur fengið hvaða niðurstöðu sem honum dettur í hug allt eftir því hvaða augum hann lítur á silfrið. Ég er að biðja borgarráð um að leggja þessi gögn upp á borð- ið og sýna þeim sem tóku þátt í þessu forvali og almenningi hér í Reykjavík hvernig var staðið að þessu og rökstyðja þessa einkunna- gjöf. Mér finnst líka að Reykvík- ingar, sem borga fyrir þessa skipu- lagsvinnu, eigi heimtingu á því.“ Steinunn Valdís vísar alfarið á bug þeirri gagnrýni að sjónarmið verkfræðinga hafi ráðið för við valið. Hún bendir á að í hópunum sem valdir voru hafi verið einhverjar öfl- ugustu arkitektastofur landsins, til að mynda þær sem komu að skipu- lagningu Skuggahverfisins og í Grafarholti. „Ég vísa því alfarið á bug, þó að þarna á meðal séu öflug- ar verkfræðistofur, þá voru þessir fjórir hópar valdir vegna þess að samsetning hópanna er einmitt það sem við vorum að leita eftir,“ bætir hún við. Hún á von á því að tekin verði af- staða til erindis Guðjóns á næsta fundi borgarráðs. Hún segir það ekki aðalatriðið hvort menn vinni endurgjaldslaust eða ekki, heldur sé það aðalatriðið að það sé mat borg- arinnar og forvalsnefndar að aðrir hópar séu faglega hæfari. „Guðjón sótti um með sínum hópi og nið- urstaðan var sú að hans hópur var ekki meðal þessara fjögurra. Það orkar kannski mjög tvímælis að hleypa hans hópi að aukalega um- fram aðra hópa.“ Óánægja með val forvalsnefndar Morgunblaðið/Arnaldur Fjórir ráðgjafarhópar hafa verið valdir til að vinna tillögur að skipulagi slippsvæðisins við Mýrargötu. Val á ráðgjafarhópum til að vinna tillögur að skipulagi á slippsvæð- inu við Mýrargötu hefur vakið hörð við- brögð. 19 hópar sóttu um verkefnið en fjórir voru valdir til frekari þátttöku. Þátttak- endur gagnrýna valið og segja það ekki nægilega rökstutt. Forvalsnefnd segir hópana hafa verið valda með hlutlægum aðferðum. Vesturbær ’ Þetta snýst ekkium fjármuni heldur að fólk fái að njóta sinna hæfileika og starfsheiðurs. ‘ ’ Í hópunum semvaldir voru eru ein- hverjar öflugustu arkitektastofur landsins. ‘
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.