Morgunblaðið - 20.06.2003, Blaðsíða 42

Morgunblaðið - 20.06.2003, Blaðsíða 42
FRÉTTIR 42 FÖSTUDAGUR 20. JÚNÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ R A Ð A U G L Ý S I N G A R FUNDIR/ MANNFAGNAÐUR Aðalfundur Plastprents hf. Aðalfundur Plastprents hf. verður haldinn mánu- daginn 30. júní 2003 kl. 16.00 í húsnæði félagsins á Fosshálsi 17—25, Reykjavík. Dagskrá: 1. Venjuleg aðalfundarstörf samkvæmt 18. gr. samþykkta félagsins. 2. Tillaga um heimild til stjórnar til kaupa á eigin hlutabréfum félagsins, samkvæmt 55. grein hlutafélagalaga. 3. Önnur mál, löglega upp borin. Dagskrá, endanlegar tillögur og reikningar félagsins, munu liggja frammi á skrifstofu félagsins, hluthöfum til sýnis, viku fyrir aðal- fund. Fundargögn verða afhent á fundarstað. Stjórn Plastprents hf. NAUÐUNGARSALA Uppboð Uppboð munu byrja á skrifstofu embættisins í Hafnarstræti 1, Ísafirði, þriðjudaginn 24. júní 2003 kl. 14.00 á eftirfarandi eignum: Bárugata 4, Flateyri, þingl. eig. Ágústa Guðmundsdóttir, gerðarbeið- andi Fróði hf. Bibbi Jóns ÍS-65 (sknr. 2199), þingl. eig. Páll Björnsson, gerðarbeið- andi Sjóvá-Almennar tryggingar hf. Fjarðargata 40, 2. hæð t.v., Þingeyri, þingl. eig. Aðalsteinn Einarsson, gerðarbeiðendur Innheimtustofnun sveitarfélaga og Íbúðalánasjóður. Hlíðarvegur 15, neðri hæð, 0101, Ísafirði, þingl. eig. Bergljót Hall- dórsdóttir og Einar Garðar Hjaltason, gerðarbeiðandi Byggðastofn- un. Sjávargata 6, Þingeyri, þingl. eig. Unnur ehf., gerðarbeiðendur Byggðastofnun og Ísafjarðarbær. Stakkanes ÍS-847, skskrnr. 1011, þingl. eig. Torfnes ehf., gerðarbeið- andi Þróunarsjóður sjávarútvegsins. Sýslumaðurinn á Ísafirði, 19. júní 2003. TIL SÖLU Ítalskur veitingastaður í miðborg Reykjavíkur er til sölu. Um er að ræða einn glæsilegasta veitingastað borgarinnnar í góðum rekstri. Undirritaðir hafa tekið að sér söluna í einkasölu og veita frekari upplýsingar á skrifstofu sinni. Væntanlegir tilboðsgjafar þurfa að sýna fram á fjárhagslega getu sínu til kaupanna. Lögmenn Borgartúni 33. Sími 562 9888. Fax 561 7266. Trjáplöntusalan, Bjarkarholti 1 (við hliðina á Krónunni í Mosfellsbæ) Aspir, reynitré, stafafura, blágreni, sitkagreni, bakkaplöntur og fleira á góðu verði. Opið alla daga. Upplýsingar í síma 566 6187. TILKYNNINGAR SKIPULAGS- OG BYGGINGARSVIÐ Auglýsing um deiliskipulag í Reykjavík Í samræmi við 25. gr. skipulags- og byggingar- laga nr. 73/1997, með síðari breytingum, er hér með auglýst til kynningar tillaga að breytingu á deiliskipulagsáætlun í Reykjavík: Klettháls, deiliskipulag. Tillaga lýtur að breytingum á deiliskipulagi Klettháls sem afmarkast af Bæjarhálsi, Suður- landsvegi og Tunguhálsi. Tillagan gerir m.a. ráð fyrir að ef uppbygging lóðar er áfangaskipt skal gera grein fyrir heildaruppbyggingu lóðarinnar með fyrsta áfanga, heimilt er að fara nær lóðarmörkum en kveðið er á um í 75. gr. byggingarreglugerðar, enda liggi fyrir þinglýst samþykki viðkomandi lóðarhafa aðlægrar lóðar. Mesta leyfileg mænishæð verði 10 m og mesta vegghæð langveggja 8,50 m. Tillagan gerir einnig ráð fyrir að á þeim lóðum sem liggja að Bæjarhálsi megi byggja tvær hæðir en á öðrum lóðum er gert ráð fyrir einnar hæðar húsum. Nánar vísast í kynningargögn. Tillagan liggur frammi í upplýsingaskála skipulags- og byggingarsviðs Reykjavíkur- borgar í Borgartúni 3, 1. hæð, virka daga kl. 8.20 – 16.15, frá 20. júní 2003 til 1. ágúst 2003. Einnig má sjá tillöguna á heimasíðu sviðsins, skipbygg.is. Eru þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta hvattir til að kynna sér tillöguna. Ábendingum og athugasemdum við hana skal skila skriflega til Skipulags- og byggingarsviðs (merkt skipulagsfulltrúa) eigi síðar en 1. ágúst 2003. Þeir sem eigi gera athugasemdir innan tilskilins frests, teljast samþykkja tillöguna. Reykjavík, 20. júní 2003. Skipulagsfulltrúi Reykjavíkur SMÁAUGLÝSINGAR FÉLAGSLÍF www.fi.is 21. júní Hekluganga - sumar- sólstöðu- og næturganga. Gengið á Heklu úr Skjólkví- um. Verð kr. 4.800/5.300. Lagt verður af stað frá BSÍ, með við- komu í Mörkinni 6, kl. 18.00 22. júní Gamla Krýsuvíkur- leiðin VII Kaldársel – Hafn- arfjörður kl.10.00. mbl.is ATVINNA Tónleikahald skólans var með meira móti, en alls voru haldnir 52 tónleikar á vegum skólans á skóla- árinu, þar af 15 opinberir og 37 inn- an skóla. Námskeiðahald skólans var að langmestu leyti í samvinnu við tón- listardeild Listaháskóla Íslands. TÓNLISTARSKÓLINN í Reykjavík hefur nú lokið sínu 73. starfsári og brautskráði nú tólf nemendur frá skólanum með sextán lokapróf, en fjórir nemendur luku tvenns konar prófi. Fimm nemendur luku blás- arakennaraprófi, þrír söngkenn- araprófi, einn píanókennaraprófi, tveir luku burtfararprófi, þrír ein- leikaraprófi og einn lokaprófi frá tónfræðadeild og jafnframt hljóm- sveitarstjóraprófi, en það er í fyrsta sinn sem nemandi lýkur prófi í þeirri grein frá skólanum. Við skólaslitin lék kvintett nemenda úr blásaradeild skólans þátt úr Kvint- ett nr. 3 eftir Victor Ewald. Síðan flutti skólastjórinn, Halldór Har- aldsson, ræðu um helstu atburði skólaársins, en í upphafi hennar minntist hann Árna Kristjánssonar, píanóleikara og fyrrverandi skóla- stjóra skólans, sem lést 19. mars sl. Halldór lætur nú af starfi skóla- stjóra. Að þessu sinni gáfu útskrift- arnemendur skólanum fjárstyrk til kaupa á nýjum hljómflutnings- tækjum í bókasafn skólans. Sig- urður Markússon, sem útskrifaðist frá skólanum fyrir 50 árum, gaf skólanum nótnasafn, Guðríður St. Sigurðardóttir talaði fyrir hönd 25 ára júbílanta, sem gáfu skólanum píanóstól, og jafnframt gáfu 10 ára júbílantar skólanum píanóstól. Tónlistarskólinn í Reykjavík útskrifar hljómsveitarstjóra Nemendur sem brautskráðust frá Tónlistarskólanum í Reykjavík nú í vor ásamt skólastjóra, Halldóri Haraldssyni. VERKSTJÓRASAMBAND Íslands hélt nýlega sitt þrítugasta þing á Ak- ureyri. Verkstjórasambandið varð 65 ára þann 10. apríl sl. svo að ýmsu var að fagna. Til þingsins mættu rúmlega eitt hundrað manns með mökum. Þetta tilefni var notað til að veita Vegagerðinni viðurkenningu fyrir ríflega 65 ára farsælt samstarf og stuðning við verkstjóra. Veitti vegamálastjóri viðurkenningunni móttöku. Fjórðungssjúkrahúsinu á Akur- eyri var fært gjafabréf fyrir spegl- unartæki að upphæð kr. 600.000 af þessu sama tilefni. Á þinginu voru tekin fyrir flest mál er varða hagsmuni verkstjóra og ályktað um mörg þeirra. Meðal ann- ars var mótuð launastefna fyrir kom- andi kjarasamninga. Í ályktun um heilbrigðiskerfið eru stjórnvöld hvött til að varðveita gæði heilbrigð- iskerfisins og taka á málum þar sem öfugþróun hefur orðið. Þingið skorar á stjórnir og starfsmenn lífeyris- sjóða að sýna varkárni, vanda hvert skref og leita allra leiða til að bæta stöðu sjóðanna. Þing Verkstjórasambandsins lýsir áhyggjum sínum yfir tillögu sem fram hefur komið hjá verslunar- mönnum um eftirgjöf á veikinda- rétti. Um þá tillögu að laun séu greidd frá og með fyrsta veikinda- degi hefur enginn ágreiningur verið við vinnuveitendur síðustu áratugi. Þingið hafnar algjörlega hug- myndum um skerðingu veikindarétt- ar. Verkstjórasambandið hvetur ráðamenn fyrirtækja til að ganga skipulega til verks með því að gera símenntunaráætlun fyrir fyrirtæki sín. Slíkar áætlanir eru ekki flóknar í vinnslu en munu skila fyrirtækjun- um góðum arði til langs tíma. 30. þing Verkstjórasambands Íslands Vegagerðinni veitt viðurkenning
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.