Morgunblaðið - 20.05.2004, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 20.05.2004, Blaðsíða 2
FRÉTTIR 2 FIMMTUDAGUR 20. MAÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ YFIR 40 ÍRAKAR FALLA Fregnir hermdu í gær að yfir 40 manns hefðu beðið bana þegar bandarísk herþyrla hefði gert árás á fólk sem hélt brúðkaupsveislu í þorpi í Írak. Þetta var haft eftir íröskum embættismönnum en Bandaríkjaher kvaðst ekki geta staðfest fréttina. Sýkna í málverkafölsun Hæstiréttur sýknaði í gær tvo menn í málverkafölsunarmálinu svonefnda og sneri um leið við dómi Héraðsdóms Reykjavíkur í málinu. Tveir hæstaréttardómarar af fimm vildu sakfella sakborninga en meirihlutinn taldi álitsgerðir sérfræðinga Listasafns Íslands ekki tækar fyrir dómi. Því hefði sekt ekki verið nægjanlega sönnuð. Manndráp á Gaza gagnrýnd Að minnsta kosti tíu Palest- ínumenn, flestir þeirra unglingar, biðu bana í gær þegar ísraelskir hermenn skutu á hundruð Palest- ínumanna sem mótmæltu aðgerð- um Ísraelshers í flóttamannabúð- um við bæinn Rafah á Gaza-svæðinu. Öryggisráð Samein- uðu þjóðanna samþykkti í gær- kvöldi ályktun þar sem það gagn- rýnir manndrápin og aðgerðir Ísraelshers í Rafah. Sendiherra fékk mótmæli Halldór Ásgrímsson utanrík- isráðherra upplýsti í utan- dagskrárumræðu á Alþingi í gær um stríðið í Írak að sendiherra Bandaríkjanna á Íslandi hefði ný- lega fengið í hendur formleg mót- mæli íslenskra stjórnvalda vegna upplýsinga um misþyrmingar ír- askra fanga í Abu Ghraib-fang- elsinu í Bagdad. Þriðja umræða áfram Hlé var gert á þriðju umræðu um fjölmiðlafrumvarpið á Alþingi í gærkvöldi og verður henni fram haldið á morgun. Eftir eru 12 þingmenn á mælendaskrá. Y f i r l i t Í dag Sigmund 8 Viðhorf 36 Erlent 14/18 Minningar 41/43 Höfuðborgin 23 Skák 45 Akureyri 24 Bréf 48 Suðurnes 25 Kirkjustarf 45 Landið 26 Dagbók 50/51 Neytendur 28/29 Fólk 56/61 Listir 29/37 Bíó 58/61 Umræðan 38/39 Ljósvakamiðlar 62 Forystugrein 32 Veður 63 * * * Morgunblaðinu í dag fylgir auglýs- ingablaðið Bílablaðið fyrir stóru sportbílana og einnig fylgir auglýs- ingablaðið Tækniháskólinn háskóli atvinnulífsins. Morgunblaðið Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Sími 5691100 Innlendar fréttir frett@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Erlendar fréttir Ásgeir Sverrisson, fréttastjóri, asv@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Ólafur Stephensen, aðstoðarritstjóri, olafur@mbl.is Úr verinu Hjörtur Gíslason, fréttastjóri, hjgi@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Listir menning@mbl.is Orri Páll Ormarsson, ritstjórnarfulltrúi, orri@mbl.is Umræðan|Bréf til blaðsins Magnús Finnsson, fulltrúi ritstjóra, magnus@mbl.is Hallur Þorsteinsson, hallur@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók|Kirkjustarf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Fólk í fréttum Skarphéðinn Guðmundsson, skarpi@mbl.is Útvarp|Sjónvarp Andrea Guðmundsdóttir, andrea@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is FLUGSTÖÐ Leifs Eiríkssonar (FLE) braut gegn ákvæðum sam- keppnislaga með því að segja upp leigusamningi Íslensks markaðar, að því er fram kemur í bráðabirgða- ákvörðun Samkeppnisstofnunar sem var birt í gær. FLE braut gegn ákvæðum sam- keppnislaga með uppsögn á samn- ingi við Íslenskan markað um leigu á húsnæði og aðstöðu í flugstöðinni hinn 30. apríl sl. FLE braut einnig gegn ákvörðun Samkeppnisstofnun- ar, sem áfrýjunarnefnd samkeppn- ismála staðfesti 7. apríl 2003. Í yfirlýsingu frá Íslenskum mark- aði kemur fram að stjórn félagsins fagni þessari bráðabirgðaákvörðun Samkeppnisstofnunar, og með henni vonast forsvarsmenn Íslensks markaðar til þess að endi sé bund- inn á deilur sem staðið hafi um nokkurt skeið milli FLE og þeirra sem hafi með verslunarrekstur í flugstöðinni að gera. Forvali frestað Af ákvörðuninni leiðir að FLE er skylt að fresta forvali vegna útboðs á viðskiptatækifærum í flugstöðinni þar til samkeppnisyfirvöld hafa ver- ið fullvissuð um að við framkvæmd slíks forvals verði farið að sam- keppnislögum. FLE sagði upp leigusamningi Ís- lensks markaðar í flugstöðinni, og var sú ástæða gefin að verið væri að endurskipuleggja flugstöðina. Stjórn flugstöðvarinnar hefur lýst yfir undrun með bráðabirgða- ákvörðunina. Ákvörðunin er sögð áfall fyrir tilraunir FLE til að koma á fót samkeppnismarkaði innan frí- hafnarsvæðisins og bjóða þannig upp á fjölbreyttari þjónustu við far- þega. Flugstöðin braut gegn samkeppnislögum  FLE braut/2B BANASLYS varð á Reykjanesbraut sunn- an Kúagerðis í gær- morgun þegar karl- maður lést við útafakstur. Hinn látni hét Þórir Jónsson, 52 ára, sem var að góðu kunnur fyrir störf sín innan íþróttahreyfing- arinnar. Sambýliskona hans var farþegi í bíln- um og var flutt slösuð á slysadeild Landspítala – háskólasjúkrahúss en er ekki talin í lífshættu. Tildrög slyssins, sem varð rétt fyrir klukkan sjö í gær- morgun, eru ekki að fullu ljós. Bíllinn skall utan í vegrið, síðan á ljósastaur, kastaðist þaðan á annan ljósastaur og hafnaði að lokum utan vegar eftir að hafa oltið a.m.k. tvær veltur. Þórir var fæddur 25. mars 1952 í Hafnarfirði og lauk kennaraprófi frá Kennaraskóla Íslands árið 1972 og íþróttakennaraprófi frá Íþrótta- kennaraskólanum á Laugarvatni sama ár. Að námi loknu stundaði hann grunnskólakennslu í Grinda- vík, Reykjavík og Hafnarfirði. Knattspyrnuferil sinn hóf hann hjá Haukum í Hafnarfirði en færði sig yfir í Val og lék með félaginu til 1975 og varð nokkrum sinnum Íslands- meistari með félaginu. Frá Val lá leiðin til knattspyrnudeildar FH og lék Þórir með liðinu uns hann tók við þjálf- arastarfi 1977 eftir að hafa leikið með félag- inu fram að þeim tíma. Þórir tók að sér stjórn- unarstörf fyrir FH árið 1979 og starfaði að stjórnun félagsins til dauðadags. Tók hann við rekstrarfélagi meistaraflokks FH haustið 2000 og var jafnframt formaður knattspyrnudeildar FH í ríflega áratug. Hann var ennfremur brautryðjandi í skipulagningu íþróttaferða fyrir íþróttafélög og al- menning hérlendis og rak íþrótta- deild Samvinnuferða-Landsýnar frá 1987–1990 uns hann færði sig til Úr- vals-Útsýnar og rak íþróttadeild og síðar tónlistardeild fyrirtækisins. Þórir starfaði ötullega að fé- lagsmálum og sat í bæjarstjórn fyrir Alþýðuflokkinn og gegndi for- mennsku í æskulýðsráði Hafnar- fjarðar frá 1986–1994 og sat í skóla- nefnd frá 1994–1998. Þórir lætur eftir sig sambýlis- konu, þrjú börn og eitt fósturbarn. Vegna fráfalls hans verður einnar mínútu þögn fyrir leiki í Lands- bankadeild karla í dag, á morgun og laugardag og munu leikmenn og dómarar leika með sorgarbönd. Lést í umferðarslysi við Kúagerði Þórir Jónsson DAGUR sykursjúkra barna var haldinn í Húsdýragarð- inum í gær. Jónsi úr hljómsveitinni Í svörtum fötum kom ásamt félögum sínum og söng fyrir krakkana, sem gæddu sér á grilluðum pylsum í tilefni dagsins. Morgunblaðið/Golli Hátíð sykursjúkra barna SKARPHÉÐINN Berg Stein- arsson, stjórnarformaður Norðurljósa, segir breytingar á fjölmiðla- frumvarpi sem lagðar voru fram á Alþingi í gær ekki hafa neina þýðingu fyr- ir Norður- ljós. Ekki mun koma til uppsagna hjá félaginu fyrr en látið hefur verið reyna á hvort lög um eignarhald á fjölmiðlum standist. „Okkar afstaða er sú að þessi ólög geti varla staðist. Við ætlum að reyna að standa þetta af okkur á meðan verið er að fjalla um þessa lagasetn- ingu fyrir dómstólum.“ Skarphéðinn segir að Norð- urljós hafi lýst því yfir við starfsfólk sitt að ekki komi til hópuppsagna fyrr en látið hef- ur verið á það reyna fyrir dómstólum hvort lög um eign- arhald á fjölmiðlum standist stjórnarskrá og alþjóðlegar skuldbindingar, verði frum- varpið samþykkt sem lög frá Alþingi. Varðandi breytingu á ákvæði um útvarpsleyfi á þann hátt að engin leyfi renni út fyrr en í fyrsta lagi eftir tvö ár segir Skarphéðinn að það sé vissulega skárri staða, en breyti þó litlu. „Að einhverju leyti hefur þetta áhrif á eignarréttarákvæði en tjáning- arfrelsi er engu að síður skert.“ Norðurljós Engar hóp- uppsagnir fyrr en reynt hefur á lögin Skarphéðinn Berg Steinarsson SÍLDARMINJASAFNIÐ á Siglu- firði fær í dag afhent stórt og mikið bátahús sem byggingafélagið Berg ehf. hefur smíðað utan um gamla síldarbáta og endurgerð af höfn og bryggjuhúsi. Afhendingin fer fram með sérstakri viðhöfn og er þetta fyrsti liður í viðamikilli dagskrá Sigl- firðinga í ár í tilefni af 100 ára afmæli síldarævintýrisins á Íslandi. Bátahúsið, sem hefur verið í smíð- um síðan í ágúst á síðasta ári, er nyrst á lóð Síldarminjasafnsins, gríðarstórt eða rúmir þúsund fer- metrar að gólffleti. Húsið verður svo vígt í næsta mánuði. Hátíðin í dag hefst með sýningu í Galleríi Gránu á verkum leikskóla- barna sem heimsóttu Síldarminja- safnið í vetur. Munu krakkarnir syngja við það tækifæri nokkra síld- arslagara. Við afhendingu bátahúss- ins verða flutt ávörp og Karlakór Siglufjarðar syngur ættjarðarlög. Einnig mun Örlygur Kristfinnsson safnstjóri kynna Evrópuverðlaunin sem Síldarminjasafnið vann nýlega til. Að öllu þessu loknu býður burt- fluttur Siglfirðingur og gamall bræðslumaður, Hólm Dýrfjörð, bet- ur þekktur undir nafninu Holli, vin- um sínum og kunningjum upp á veit- ingar í Roaldsbrakka í tilefni 90 ára afmælis síns fyrr á þessu ári, en Holli er góðvinur og styrktarmaður Síldarminjasafnsins. 100 ára afmæli síldarævintýrisins Bátahús afhent Síld- arminjasafninu í dag RÍKISSAKSÓKNARI hefur ákært þrjá menn á þrítugs- og fertugsaldri fyrir að stofna lífi þriggja íbúa húss í Reykjavík í bersýnilegan háska með því að kveikja í húsinu með bensíni. Aðalmeðferð málsins fór fram í Hér- aðsdómi Reykjavíkur í gær og játa ákærðu sök að mestu. Eru þeir sak- aðir um að hafa hellt bensíni úr tveim- ur fimm lítra brúsum inn í anddyrið og á tröppur og veggi og kveikt í. Bótakröfur upp á 7 milljónir króna eru hafðar uppi og krefst ákæruvaldið refsingar á grundvelli 164. gr. al- mennra hegningarlaga þar sem kveð- ið er á um 2 ára fangelsi eða meira fyrir að valda eldsvoða sem veldur mönnum bersýnilegum lífsháska. Þrír ákærðir fyrir að kveikja í íbúðarhúsi
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.