Morgunblaðið - 20.05.2004, Blaðsíða 53

Morgunblaðið - 20.05.2004, Blaðsíða 53
ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. MAÍ 2004 53 Opna Lancome laugardaginn 22. maí Fyrsta opna kvennamótið í sumar Ræst verður út á öllum teigum samtímis kl. 10:00 Þrír flokkar: 1. fl. forgj. 0-20 2. fl. forgj. 20,1-30 3. fl. forgj. 30,1-36 Glæsileg verðlaun frá Nándarverðlaun á allar par 3 brautir. Teiggjafir. Dregið úr skorkortum. 5 gjafabréf. 50% afsláttur í Helenu Rubinstein á Akranesi. Skráning er hafin inn á golf.is eða ghr@simnet.is og í síma 487 8208 FELIX Magath, þjálfari þýska knattspyrnuliðsins Stuttgart, sagði við fréttamenn í gær að hann tæki við þjálfara- starfinu hjá Bayern München í júlí. Forráða- menn Bæjara tilkynntu í fyrradag að Ottmar Hitz- feld myndi stjórna sínum síðasta leik með Bayern í leiknum gegn Freiburg í lokaumferð þýsku 1. deildarinnar sem fram fer um næstu helgi. „Ég hef greint leikmönnum mín- um frá því að ég verði ekki þjálfari þeirra á næstu leiktíð,“ sagði Ma- gath. Magath er samningsbundinn Stuttgart fram yfir næsta tímabil en hann hefur komist að samkomulagi við stjórn félagsins um að fá að hætta eftir þetta tímabil. Magath gerir þriggja ára samning við Bayern en undir stjórn Hitzfeld vann liðið engan titil á tímabilinu. Hitzfeld tók við þjálfarastarfinu hjá Bæjurum árið 1996 og skilaði liðinu Þýskalands- meistaratitlinum fjórum sinnum, tveimur bikarmeistaratitlum og ár- ið 2001 vann Bayern München sigur í Meistaradeildinni. Magath er fyrrverandi landsliðs- maður Þýskalands og leikmaður Hamburger SV – geysilega öflugur miðvallarleikmaður. Felix Magath tekur við Bayern München Felix Magath  FERNANDO Morientes, framherji Mónakó, segist hafa mikinn áhuga á að reyna fyrir sér í ensku úrvalsdeild- inni. Morientes er í eigu Real Madrid en er í láni hjá Mónakó þar sem hann hefur svo sannarlega slegið í gegn.  MORIENTES er markahæsti leik- maður Meistaradeildar Evrópu með 9 mörk en lið hans, Mónakó, mætir Porto í úrslitaleik keppninnar í Þýskalandi í næstu viku. Enskir fjöl- miðlar greina frá því að Arsenal og Chelsea hafi sýnt áhuga á að fá Spán- verjann í sínar raðir og í viðtali við The Sun segist Morintes stoltur að félög á borð við Arsenal og Chelsea vilji fá sig.  FRANSKA íþróttablaðið L’Equipe segist hafa heimildir fyrir því að Frakkinn Didier Dechamps, þjálfari Mónakó, verði næsti knattspyrnu- stjóri enska úrvalsdeildarliðsins Chelsea. Blaðið segir að Deschamps hafi hafnað tilboði um að taka við starfi Marcelos Lippi hjá Juventus því hann hafi frekar kosið að fara til Chelsea.  JONATHAN Woodgate, varnar- maðurinn sterki hjá Newcastle, gæti misst af upphafi næstu leiktíðar en í ljós hefur komið að leikmaðurinn er alvarlega meiddur í læri og verður frá knattspyrnuiðkun næstu þrjá mánuðina í það minnsta.  ARGENTÍNSKI miðjumaðurinn Fernando Redondo yfirgefur her- búðir AC Milan í sumar. Redondo, sem verður 35 ára gamall í næsta mánuði, gekk til liðs við Mílanóliðið frá Real Madrid fyrir þremur árum. Redondo náði einungis að spila átta leiki fyrir liðið en hann hefur átt við mikil hnémeiðsli að stríða. „Það er sárt að fara frá Milan en ég verð að fá að spila enda að komast á aldur,“ sagði Redondo á heimasíðu AC Mil- an. FÓLK Westwood segir að margir kylf-ingar sem leiki að mestu á mótaröð atvinnumanna í Bandaríkj- unum séu á milli steins og sleggju í þessu máli. „Ég hef alltaf haldið að Ryderkeppnin væri á milli liða frá Evrópu og Bandaríkjunum en ekki keppni á milli atvinnumótaraða í Bandaríkjunum og Evrópu,“ sagði Westwood við BBC er ljóst var að Englendingurinn Luke Donald gæti ekki tekið þátt í Ryderliðinu þar sem hann hefur að mestu leikið í Banda- ríkjunum á keppnistímabilinu og nær ekki að leika á 11 mótum í Evr- ópu eins og krafist er. Jesper Parne- vik, Carl Pettersson og Mathias Grönberg eru einnig úr leik af sömu ástæðu. „Það væri skömm að mæta ekki til leiks með sterkasta liðið sem völ er á,“ bætti Westwood við. Jamie Spence, talsmaður Ryder- liðs Evrópu, ver núverandi kerfi í viðtali við BBC. „Það eru aðeins sex mót í Evrópu sem þessir kylfingar þurfa að sækja yfir hafið, fimm mót á Evrópumótaröðinni fara fram í Bandaríkjunum og það ætti að vera auðvelt fyrir þá að uppfylla þessar kröfur. Verðlaunaféð á bandarísku mótaröðinni er mun hærra en á þeirri evrópsku. Við erum einfald- lega að tryggja hagsmuni okkar, ef við gerum það munum við aldrei fá nýjan „Ballesteros“, „Harrington“ eða „Garcia“,“ sagði Spence en Ryd- erkeppnin fer fram 14.–19. septem- ber í Michigan. ÞAÐ verður meistaraandrúmsloft í Keflavík í kvöld þegar Keflvíkingar taka á móti KR-ingum í efstu deild karla. Nú eru liðin 40 ár síðan Kefl- víkingar urðu Íslandsmeistarar í knattspyrnu, 1964. Þá skutu Kefl- víkingar þáverandi Íslandsmeist- urum KR ref fyrir rass og fögnuðu Íslandsmeistaratitlinum á grasvell- inum í Njarðvík eftir jafnteflisleik gegn KR, 1:1. Alls 4.120 áhorfendur sáu Rúnar Júlíusson hljómlistar- mann skora mark Keflvíkinga, sem tóku síðan á móti Íslandsbikarnum á Laugardalsvellinum í jakkafötum, eftir síðasta leikinn á Íslandsmót- inu, leik KR og ÍA. Í tilefni leiksins í kvöld hafa Kefl- víkingar kallað saman gömlu meist- arana og nokkra leikmenn KR- liðsins 1964 í hóf í Landsbankanum í Keflavík fyrir leikinn og síðan mæta gömlu meistararnir að sjálf- sögðu til að sjá viðureign Keflavík- ur og KR á Keflavíkurvellinum, þarf sem þeir heilsa upp á leikmenn liðanna fyrir leikinn. Í meistarahópi Keflavíkur eru markverðirnir Kjartan Sigtryggs- son og Gottskálk Ólafsson, sem sér son sinn Ólaf verja mark Keflvík- inga. Aðrir leikmenn frá 1964 eru Magnús Haraldsson, Ólafur Mar- teinsson, Högni Gunnlaugsson, Sig- urður Albertsson, Magnús Torfa- son, Hólmbert Friðjónsson, Einar Magnússon, Grétar Magnússon, Geirmundur Kristinsson, Gísli Ell- erup, Sveinn Pétursson, Sigurvin Ólafsson, Guðni Kjartansson, Jón Ólafur Jónsson, Rúnar Júlíusson, Karl Hermannsson og Jón Jóhanns- son. Þjálfari liðsins var Óli B. Jóns- son. Nýjar reglur um val á kylfingum í Ryderlið Evrópu í golfi Westwood er ósáttur ENSKI kylfingurinn Lee Westwood er ekki sáttur við þær reglur sem settar voru sl. haust um val á kylfingum í Ryderlið Evrópu, en leikið verður gegn liði Bandaríkjanna í haust. Forsvarsmenn Ryderliðs Evrópu settu það skilyrði að kylfingar sem ætluðu sér að komast í liðið yrðu að taka þátt í það minnsta 11 mótum á Evrópumótaröð- inni til þess að öðlast keppnisrétt, en þeir kylfingar frá Evrópu sem eru í hópi 50 efstu á heimslistanum þurfa aðeins að taka þátt í 6 mótum á Evrópumótaröðinni. Lee Westwood Högni Gunnlaugsson, fyrirliði Keflavíkurliðsins 1964, á heim- leið úr Laugardalnum með Íslandsbikarinn. Leikmenn Keflavíkurliðsins tóku á móti Íslandsbikarnum á Laugardalsvellinum í sparifötunum. Gamlir meistarar mæta til leiks
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.