Morgunblaðið - 20.05.2004, Blaðsíða 52

Morgunblaðið - 20.05.2004, Blaðsíða 52
ÍÞRÓTTIR 52 FIMMTUDAGUR 20. MAÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ BANDARÍSKA Ólympíunefndin, USOC, hefur lagt nýjar línur fyrir bandarísku keppendurna á Ólymp- íuleikunum í Aþenu í sumar, þar sem lögð er áhersla á að fagna beri sigrum af hófsemi og að bandaríski fáninn verði ekki ofnotaður í þeim tilgangi. Ólympíunefndin hefur áhyggjur af vaxandi andúð á Bandaríkja- mönnum í kjölfar stríðsins í Írak og William Martin, formaður banda- rísku Ólympíunefndarinnar, segir við New York Times að það sé heppilegt að draga úr áherslum sem hafa verið við lýði undanfarin ár. Martin segir að sundmönnum verði bannað að spýta í vatnið, bannað verður að mótmæla dómum eða tilmælum frá starfsfólki. USOC leggur á það áherslu að mótherjum verði sýnd virðing og notkun á bandaríska fánanum verði í lágmarki er sigrum verði fagnað. „Bandaríski fáninn er þjóðfáni okkar og á ekki að nota sem peysu eða stuttermabol,“ segir Martin. Bandaríkjamenn með nýj- ar áherslur á ÓL í Aþenu Marion Jones MAGNÚS Agnar Magnússon, línu- maður og fyrirliði handknattleiks- liðs Gróttu/KR á síðustu leiktíð, hefur gert eins árs samning við danska úrvalsdeildarliðið Team Helsinge á norðurhluta Sjálands. Jannik Frederiksen, framkvæmda- stjóri Team Helsinge, segir í sam- tali við Frederiksborg Amts Avis, að Magnús verði ekki aðallínu- maður Team Helsinge á næstu leik- tíð og honum sé það ljóst því aðal- línumaður liðsins, Martin Bager, sé framtíðarmaður með danska lands- liðinu, hann sé efnilegur og verði ekki svo auðveldlega velt úr sessi. Það sé hins vegar mikill kostur fyr- ir liðið að hafa á næstu leiktíð tvo fyrsta flokks línumenn. Sigursteinn Arndal, fyrrverandi leikmaður FH, hefur leikið með Team Helsinge undanfarin tvö ár. Ljóst er að a.m.k. sex íslenskir handknattleiksmenn leika í dönsku úrvalsdeildinni á næstu leiktíð auk Magnúsar. Þeir eru Aron Kristjánsson, Jón Jóhannsson og Ragnar Óskarsson hjá Skjern, Róbert Gunnarsson með Aarhus GF, Gísli Kristjánsson hjá Fredericia HK og Sigursteinn hjá Team Helsinge. Þá er ekki loku fyr- ir það skotið að Sturla Ásgeirsson, hornamaður ÍR, gangi til liðs við Aarhus GF. Hann var á æfingum hjá liðinu á dögunum og leist for- ráðamönnum Árósar-liðsins vel á það sem þeir sáu til Sturlu. Var honum boðinn samningur í kjölfar- ið en Sturla hefur enn ekki svarað. Magnús Agnar til Team Helsinge í Danmörku „VIÐ erum með ákveðið ferli í gangi sem ætti að skýrast í næstu viku,“ sagði Gissur Tryggvason, formaður körfu- knattleiksdeildar Snæfells, en liðið leitar nú að eftirmanni Bárðar Eyþórssonar sem ákvað að taka ekki að sér liðið á næstu leiktíð og valdi þess í staða að tryggja sér betri at- vinnumöguleika sem skip- stjórnarmaður. Snæfell varð deildarmeistari í vetur og lék til úrslita um Íslandsmeist- aratitilinn gegn Keflavík þar sem Stykkishólmsliðið beið lægri hlut, 3:1. Gissur sagði enn fremur að sá aðili sem rætt hefði verið við væri innlendur en hann gæti ekki svarað fyrr en í næstu viku. „Ég hef ekki tök á því að segja frá því hver sá að- ili er, en vonandi fáum við botn í þetta mál á næstunni. Það kom til greina að fá leik- mann sem myndi jafnframt leika með liðinu erlendis frá en það er ekki raunhæfasti kosturinn eins og er.“ Þráinn Hafsteinsson er mótstjóriog þarf í mörg horn að líta. „Það verða 130 starfsmenn á vellin- um við dómgæslu og að láta mótið ganga en það er meira en helmingi meira á okkar stærstu og flottustu mótum. Þetta mót er einnig á allan hátt formlegra með kynning- um og slíku. Undirbúningur hefur staðið í eitt og hálft ár og nú er loka- spretturinn að hefjast. Það er mikill heiður að fá að takast á við svona stórt mót en miklu skipti að Jónas Egilsson, formaður Frjálsíþrótta- sambandsins, er sterkur í alþjóða- samstarfinu. Það skipti líka máli að alþjóðleg mót sem við höfum haldið hafa geng- ið vel. Reykjavíkurborg hefur komið vel á móts við okkur með því að bæta aðstöðuna, til dæmis verður í fyrsta sinn þjófstartbúnaður í startblokk- unum og ný tímatökutæki. Svo verða nýjar upplýsingatöflur og allar tölur liggja strax fyrir,“ sagði Þráinn við Morgunblaðið. En það er ekki bara keppt í að hafa umgjörð sem allra besta heldur lætur allt besta frjálsíþróttafólk landsins til sín taka. „Ég er frekar bjartsýnn,“ sagði Guðmundur Karls- son landsliðsþjálfari sem mætir með 40 keppendur. „Ég einbeiti mér að mínum kepp- endum og við höfum sett upp þjálf- aralið, sem hlúir að hverri grein. Við höfum verið með landsliðsæfingar í vetur, nú síðast á laugardaginn, og mót í kjölfarið svo undirbúningurinn er eins og best verður á kosið í bili og við ætlum að koma tilbúin til leiks. Allir eru í fínu standi og það stefnir í að við verðum með okkar sterkasta lið í nokkur ár,“ sagði þjálfarinn og að mörgu þarf að hyggja. Skemmtileg umgjörð „Ég vona að okkar fólk lyftist að- eins upp og það komi svolítið af áhorfendum og að umgjörðin verði skemmtileg. Auðvitað getur þetta virkað í báðar áttir, það má ekki verða of mikil spenna heldur verður að hafa það á réttu stigi og við vinnum að því að finna það,“ sagði Guðmundur Karlsson. Morgunblaðið/Sverrir Vilhelmsson Eistlendingurinn Erki Nool og Jón Arnar Magnússon hafa oft barist hart á tugþrautarmótum á undanförnum árum. 2. deild Evrópubikarkeppninnar á Laugardalsvellinum 230 keppendur frá átta þjóðum SENN líður að stórmóti Frjálsíþróttasambands Íslands þegar 2. deild Evrópubikarkeppninnar verður haldin í Laugardalnum 19. og 20. júní. Mótið er það stærsta sem FRÍ hefur haldið en tæp 20 ár eru síðan svipað mót var haldið, nema hvað nú mæta 8 þjóðir með 320 keppendur leiks, sem er öllu meira en á Valbjarnarvellinum 1985. Umgjörðin verður öll hin glæsilegasta auk þess að allt besta frjáls- íþróttafólk landsins verður með ásamt köppum eins og tugþraut- armeistaranum Erki Nool frá Eistlandi, svo áhorfendur geta látið fara vel um sig í stúkunni. Stefán Stefánsson skrifar Þjálfaraleit Snæfells í biðstöðu  EGIDIJUS Petkevicius, hand- knattleiksmarkvörðurinn frá Lithá- en, hefur samið við Fram um að leika áfram með félaginu á næsta keppnistímabili, samkvæmt frétt á vef Framara. Petkevicius kom til liðs við Safamýrarliðið síðasta sumar en hann lék áður með KA og FH.  ÞORVALDUR Sveinn Guðbjörns- son, varnarmaður úr KA, verður ekki tilbúinn í slaginn gegn Víkingi annað kvöld en liðin mætast þá í úr- valsdeildinni í knattspyrnu. Þor- valdur, sem átti fast sæti í liði KA í fyrra, missti af leiknum gegn Kefla- vík í fyrstu umferðinni vegna meiðsla í hné.  HJÖRTUR Hjartarson skoraði þrennu fyrir ÍA sem vann Stjörn- una, 4:0, í fyrstu umferðinni í nýrri deildakeppni U23-ára liða í knatt- spyrnu sem hófst í vikunni. Liðin mega tefla fram fjórum leikmönnum sem eru eldri en 23 ára. Þess má geta að Mihajlo Bibercic, sem er orðinn 36 ára, lék með 23 ára liði Stjörnunnar á sínum gamla heima- velli.  JAY-JAY Okocha hefur loksins ákveðið framtíð sína á knattspyrnu- vellinum en Nígeríumaðurinn hefur ritað nafn sitt undir nýjan þriggja ára samning við Bolton. Okocha gekk í raðir Bolton eftir HM 2002 og hefur slegið í gegn með liðinu í ensku úrvalsdeildinni.  SIR Alex Ferguson, knattspyrnu- stjóri Manchester United, er von- góður um að geta teflt fyrirliðanum Roy Keane fram í úrslitaleik United gegn Millwall í ensku bikarkeppn- inni sem fram fer á þúsaldarvellin- um í Cardiff á laugardaginn. Keane hefur ekkert leikið með United síðan í leiknum á móti Liverpool í lok apríl en hann hefur æft í vikunni og ekki kennt sér meins.  CARSTEN Ramelow leikmaður Bayern Leverkusen tilkynnti í gær að landsliðsferli hans væri lokið. Ramelow, sem er 30 ára gamall og á að baki 46 landsleiki, var harðlega gagnrýndur í lokaleik sínum fyrir Þjóðverja en þar töpuðu þeir fyrir Rúmenum, 5:1. FÓLK
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.