Morgunblaðið - 20.05.2004, Blaðsíða 45

Morgunblaðið - 20.05.2004, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. MAÍ 2004 45 FRÉTTIR FIMMTUDAGINN 20. maí kl. 11:00 verður messa í Seltjarnarneskirkju. Dagur aldraðra hefur verið hald- inn hátíðlegur í kirkjunni á upp- stigningardag um nokkurra ára skeið. Sr. Arna Grétarsdóttir þjón- ar fyrir altari og organisti er Pavel Manasek. Kvartett Seltjarnarneskirkju leiðir fallegan safnaðarsöng. Að messu lokinni verður boðið upp á léttar veitingar í safnaðar- heimili kirkjunnar. Eldri borgarar eru hvattir til að mæta til kirkj- unnar fimmtudaginn 20. maí og taka með sér fjölskyldu sína og gesti. Verið öll hjartanlega velkomin til helgrar stundar. Guðsþjónusta í Laugarneskirkju SEGJA má að vetrarstarfi eldri borgara í Laugarneskirkju ljúki á uppstigningardegi þegar allar kyn- slóðir sameinast við guðsþjónustu kl. 14:00 til að fagna því að sólin er sest að völdum á okkar kalda landi og Jesús Kristur er sestur að völd- um á himni og jörðu. Fulltrúar þjónustuhóps kirkjunnar, sem í all- an vetur hafa þjónað að samverum okkar með svo miklum sóma, munu lesa ritningartexta. Kór Laugar- neskirkju mun syngja glaða sálma við undirleik Gunnars Gunnars- sonar en sr. Bjarni Karlsson pré- dikar og þjónar fyrir altari ásamt Sigurbirni Þorkelssyni meðhjálp- ara. Að messu lokinni er ungum sem öldnum boðið til kaffiveislu í safnaðarheimilinu í boði sóknar- nefndar. Verið velkomin í Laugar- neskirkju. Guðsþjónusta í Neskirkju GUÐSÞJÓNUSTA kl. 11. Litli kór- inn, kór eldri borgara í Neskirkju, leiðir safnaðarsöng. Inga J. Back- man syngur einsöng og stjórnar kórnum. Organisti Steingrímur Þórhalls- son. Séra Örn Bárður Jónsson sókn- arprestur prédikar og þjónar fyrir altari. Veitingar að guðsþjónustu lokinni. Uppstigningardagur í Hjallakirkju Á UPPSTIGNINGARDAG, fimmtu- daginn 20. maí, verður guðsþjón- usta í Hjallakirkju kl. 14 á vegum safnaðanna þriggja í austurbæ Kópavogs, Digranes-, Hjalla- og Lindasafnaða. Dagurinn er tileink- aður öldruðum og munu Söngvinir, kór aldraðra í Kópavogi, syngja og leiða safnaðarsönginn undir stjórn Kjartans Sigurjónssonar. Prestar safnaðanna þjóna að guðsþjónust- unni og sr. Ingimar Ingimarsson prédikar. Þá mun fólk úr öldrunar- starfinu lesa ritningarlestra, Organisti er Jón Ólafur Sigurðsson. Að guðsþjónustu lokinni er við- stöddum boðið að þiggja veitingar í safnaðarsal kirkjunnar Dagur aldraðra í Seltjarnarneskirkju Morgunblaðið/ÁsdísSeltjarnarneskirkja Sumarbrids hafið Fyrstu úrslit úr Sumarbrids urðu eftirfarandi, mánudaginn 17. maí sl. Spilaður var 14 para Howell, 2 spil á milli para. Helgi Bogason – Guðjón Sigurjóns 41 Erla Sigurjóns – Sigfús Þórðars. 35 Alfreð Kristjánss. – Unnar A. Guðm. 32 Hlynur Angantýs – Hermann Friðr. 12 Eðvarð Hallgríms – Leifur Aðalst. 5 Á þriðjudagskvöldinu, 18. maí, var aftur spilaður Howell, en nú voru 3 spil á milli para. Efstu pör: Eyjólfur Magn. – Kristján B. Snorras. 33 Ásmundur Örnólfs. – Gunnlaugur Karls. 19 Ómar F. Ómars – Hlynur Angantýsson 11 Eyþór Hauksson – Sigrún Þorvarðar. 10 Kristinn Sigurjóns – Sigurbjörn Har. 0 Í báðum tilvikum fengu sigurveg- arar glæsileg verðlaun, konfekt frá Nóa Síríusi, til hamingju. Spilað er fimm kvöld í viku, mánudaga til föstudaga, í allt sumar. Spilastaður er húsnæði BSÍ, Síðumúla 37 og eru allir velkomnir, tekið er vel á móti spilurum. Á dagskrá er ávallt eins kvölds keppni og hefst spilamennsk- an klukkan 19.00. Hin landsfræga Miðnætursveitakeppni verður í boði á föstudögum og þegar frí er næsta dag. Efnt verður til skemmtilegra leikja og óvæntar uppákomur munu líta dagsins ljós. Umsjón hefur Matt- hías Þorvaldsson, en hann hefur fengið í lið með sér úrvalslið keppn- isstjóra sem verða að sjálfsögðu í sumarskapi. Nánari upplýsingar um Sumarbrids má finna á heimasíðu Bridgesambands Íslands: www.brid- ge.is Bikarkeppni BSÍ 2004 Bikarkeppnin verður með hefð- bundnum hætti í ár. Hægt er að skrá sig í bikarinn til sunnudagsins 23. maí kl. 14.00 og verður dregið í 1.um- ferð sama dag. Fyrirliðum er bent á, að við skráningu skal tilkynna sér- staklega ef sveit á rétt á að sitja yfir í fyrstu umferð. Skráning í s. 587 9360 eða www.bridge.is Síðasti spiladagur hverrar um- ferðar: 1. umf. sunnudagur 20. júní 2. umf. sunnudagur 18. júlí 3. umf. sunnudagur 15. ágúst 4. umf. sunnudagur 12. sept. Undanúrslit og úrslit verða spiluð 25. og 26. sept. BRIDS Ums jón Arnór G. Ragnars s on KIRKJUSTARF Óska eftir bíl á 0-100 þúsund Óska eftir ódýrum, gangfær- um bíl. Hafið samband í síma 696 3431. VW Passat 1,6 árg. '00 Passat 1,6 4/2000, ekinn 56.000 km. Silf- urgrár. Gullfallegur og vel með farinn. Ásett verð 1.200.000. Upplýsingar í síma 660 7881. Toyota Corolla, árg. '92, ekinn 167 þús. Sk. '05. Mikið yfirfarinn. Verð 180 þúsund. Uppl. í s. 897 9990/565 0812. Toyota Avensis dísel, árg. 2002, station, ekinn 70 þús. km., leður, álfelgur, spoiler, dráttarkúla, CD. Verð 1.850 þús. Ath. skipti. Upplýsingar í síma 690 2577. Til sölu Nissan Terrano 2, árg. '99, ek. 138 þ. km. Nýskoðaður. Skipti möguleg. Bílalán getur fylgt. Uppl. í síma 893 5664. Hyundai Getz árg. '03. Ek. 17 þús. km. Þér býðst að taka yfir rekstrarleigu á svörtum Huyndai Getz, ek. 17.500 km, álfelgur, vindskeið, geislaspilari, vetrar- dekk, frí umfelgun hjá umboðinu. Rekstrarleiga á mánuði kr. 24.000. 23 mánuðir eftir. Uppl í síma 696 9277. Til sölu Benz 1622, árg.´85 með HMF krana árg.´95 með fjarstýr- ingu. Verð 1.300.000 kr. Upplýsingar í síma 892 1986. Bryngljái á bílinn! Endist árum saman - verndar lakkið - auðveldar þrif. Mössun - blettun - alþrif. Yfir 20 ára reynsla! Litla Bónstöðin, Skemmuveg 22 sími 564 6415 - gsm. 661 9232. Ökukennsla Reykjavíkur ehf. Ökukennsla akstursmat. Sverrir Björnsson Wolksvagen Passat, 892 4449/557 2940. Vagn Gunnarsson Mersedes Benz, 894 5200/565 2877. Ævar Friðriksson Toyota Avensis '02, 863 7493/557 2493. Gylfi Guðjónsson Subaru Impreza, 696 0042/566 6442. Gylfi K. Sigurðsson Nissan Almera, 892 0002/568 9898. Snorri Bjarnason Toyota Avensis, bifhjólak. 892 1451/557 4975. Glæsileg ný kennslubifreið, Subaru Impreza 2004, 4 wd. Akstursmat og endurtökupróf. Gylfi Guðjónsson, símar 696 0042 og 566 6442. Bifhjóla og ökukennsla Eggert Valur, ökukennari. Ökukennsla/skóli/mat. Nýr M. Benz. Uppl. í símum 893 4744/565 3808/853 4744. Verður heppnin með þér í sum- ar? Tjaldvagnar til leigu. Leigjum einnig út aukabúnað. Uppl. á www.alaska.is, sími 848 1488. Tjaldvagn til sölu Til sölu lítill Combi-camp, árgerð '82, vel með farinn. Fortjald og eldhússkápur fylgja. Verð 200.000. Upplýsingar í síma 896 3109. Stórglæsilegt Suzuki Gsx 1400 07/05 "03 ekið aðeins 700 km.106 hö., 25 þús á mán á bréfi á 1085 þús. sem nýtt Upplýsingar í síma 896 3677. VW BUS dísel húsbíll - dekur- bíll VW Bus dísel á mæli til sölu. Árg. 1983. Mikið búið að dekra hann. Ekinn 70 á vél. Vaskur og gashella í innrétting.,Gott svefn- pláss fyrir tvo fullorðna. Uppl. í s. 891 9111 eða 840 1416. Tilboð óskast. Til sölu: Húsbíll WLT 28 1988. Upptekinn gírkassi, kúplingsd., pressa, tímareim. Upplýsingar í síma 477 1553. TIL SÖLU húsbíll Itasca Sunrice '94, diesel 6.2l, chevrolet. sjálfsk. e þús. mílur. lengd 7 m. svefnpláss f orðna. rafstöð, örbylgjuofn, ísskáp frystir, ofn, gashellur, loftkæling, s hitun, wc, sturta inni og úti, sóltja loftpúðar að framan, reykskynjari, skynjari, tvöföldu á aftan, sjónvar vídeó og fleira. Verð 3.700 þús. kr Upplýsingar í síma 863 4990. Fiat húsbíll, árg. 2003, til sölu Mikið af aukahlutum. Upplýsingar hjá Evró í síma 533 1414 og 898 4900. Speglar fyrir fellihýsi og tjaldvagna. Verð kr. 1.650 kr. GS varahlutir, Bíldshöfða, sími 567 6744. www.midlarinn.is Til sölu Grásleppu og Skötuselsn- et, þorskanetaúthald, netaspil. Einnig vantar á skrá, DNG rúllur og STK tækið. Sími 892 0808 midlarinn@midlarinn.is Athafnafólk ath. Gríðarlegir möguleikar fyrir alla sem vilja auka tekjurnar. Skoðið www.Markmid.com og/eða www.Samskipti.com eða sendið fyrirspurn á Info@markmid.com. Listahátíð í Reykjavík Dagskráin í dag Fimmtudagur Kl. 15 Listasafn Reykjavíkur - Kjarvalsstaðir Einkasýningar Francesco Clemente og Roni Horn. Kl. 20 Þjóðleikhúsið Hibiki, jap- anskt dansleikhús. Seinni sýning. Kl. 20 Reykholtskirkja Karlakór St. Basil-dómkirkjunnar. KIM Viborg Andersen, prófessor við upplýsingatæknideild Viðskiptahá- skólans í Kaupmannahöfn (Copen- hagen Business School), er á leið hingað til lands en hann mun halda námskeið fyrir stjórnendur og tæknimenn fyrirtækja og stofnana. Það er Stofnun stjórnsýslufræða og stjórnmála í Háskóla Íslands sem býður Ander- sen til landsins í samstarfi við ParX – viðskiptaráðgjöf IBM. Á námskeiðinu verður farið yfir innri verkferla stofnana og fyrir- tækja og tengsl þeirra við rafræna stjórnsýslu. Veita betri rafræna þjónustu Andersen mun fyrst og fremst fjalla um endurhögun verkferla í stjórnsýslu í þeim tilgangi að veita betri rafræna þjónustu. Hann hefur ritað margar bækur á þessu sviði og m.a. starfað sem mats- maður verkefna fyrir Rammaáætl- anir Evrópusambandsins. Námskeiðið verður haldið 24. maí nk. og fyrirlestrarnir fara fram á ensku. Námskeiðsgjald er 7.000 krónur. Skráning fer fram á vefslóð- inni http://stjornsyslustofnun.hi.is/ page/rafraen-stjornsysla. Námskeið um tengsl verk- ferla við rafræna stjórnsýslu Kim V. Andersen VÍS afhenti Reykjalundi sex þrek- þjálfunarhjól að gjöf 5. maí sl. Finn- ur Ingólfsson, forstjóri Vátrygg- ingafélags Íslands, afhenti hjólin við athöfn í nýju þjálfunarhúsi á Reykjalundi. Sjúkraþjálfararnir Mundína Kristinsdóttir og Hlíf Garðarsdóttir tóku við hjólunum fyrir hönd stofnunarinnar. Á myndinni má sjá Finn Ingólfs- son, forstjóra VÍS, afhenda Mund- ínu og Hlíf hjólin. VÍS færir Reykjalundi gjöf
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.