Morgunblaðið - 20.05.2004, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 20.05.2004, Blaðsíða 10
FRÉTTIR 10 FIMMTUDAGUR 20. MAÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ VIÐ upphaf þriðju og síðustu um- ræðu um fjölmiðlafrumvarpið á Al- þingi sagði Bjarni Benediktsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og formaður allsherjarnefndar, að kom- ið væri til móts við fjölmargar at- hugasemdir sem settar hefðu verið fram um fyrirhugaða lagasetningu á undanförnum dögum. Með breyting- artillögum sé leitast við að raska ekki rekstrargrundvelli fjölmiðlafyrir- tækja meira en eðlilegt geti talist í þágu markmiðsins um fjölbreytta fjölmiðlum. Þá sé komið til móts við ýtrustu sjónarmið um meðalhóf með ríflegum aðlögunartíma og öryggis gætt með tilliti til verndar eigna- og atvinnuréttinda, sem varin séu af 72. gr. stjórnarskrárinnar. Bryndís Hlöðversdóttir, þingmað- ur Samfylkingarinnar, mælti fyrir framhaldsnefndaráliti minnihluta allsherjarnefndar. Sagði hún að vand- ræðagangur með frumvarpið hefði haldið áfram milli annarrar og þriðju umræðu. Lagfæringar á því breyti ekki þeirri skoðun minnihluta alls- herjarnefndar og stjórnarandstöð- unnar að málið sé ónýtt og því verði ekki bjargað. Rök sem koma fram í nefndaráliti minnihlutans eiga enn við að mati Bryndísar og ef eitthvað er hafi kom- ið betur í ljós að frumvarpið sé sér- tækt og beint gegn einu fyrirtæki. Það muni ganga þvert gegn markmiði sínu um fjölbreytni í fjölmiðlun. „Lík- ur eru á að það stangist enn á við stjórnarskrá lýðveldisins og það tek- ur á engan hátt tillit til EES-réttar,“ sagði hún og taldi frumvarpið ganga lengra en nauðsynlegt sé. Það geti reynst samkeppnishamlandi og dreg- ið úr aðgangi fjölmiðla að fjármagni. Andstæðingar í Baugsliði Bryndís sagði ennfremur að stjórn- arliðar hefðu sýnt það að undirliggj- andi markmið frumvarpsins væri að þagga niður óþægilega umræðu til- tekinna fjölmiðla sem skaprauni stjórnvöldum með umfjöllun sinni, og sagðist hún vitna þar til ummæla dómsmálaráðherra. „Og þeir sem kaupa ekki þetta frumvarp, sem eru ansi margir virðulegi forseti, þeir eru í Baugsliðinu. Þeir eru að ganga er- inda auðhringsins sem Davíð Odds- son, riddari réttlætis og lýðræðis, er í hatrammri baráttu gegn,“ hélt hún áfram og sagði alla stjórnarandstöð- una vera í því liði, lungi þjóðarinnar, eigendur Morgunblaðsins, stór hluti lögfræðistéttar, stéttarfélög og sam- tök þeirra, Samkeppnisstofnun, Verslunarráð og fleiri. Nú síðast teld- ist forseti lýðveldisins til þess liðs. Vísaði hún til ummæla forsætisráð- herra í sjónvarpsviðtali og sagði að hann hefði gefið í skyn og fullyt að forseti lýðveldisins væri að ganga er- inda eins auðhrings með því að fara ekki í brúðkaup Danaprins. „Það er alveg sama hvað ríkis- stjórnin reynir að kítta í sprungurnar í þessu máli. Það verður aldrei úr því trúverðug lagasetning sem hefur lýð- ræði og fjölbreytni í fjölmiðlum að leiðarljósi. Það er einfaldlega búið að segja of margt, virðulegi forseti,“ sagði Bryndís Hlöðversdóttir. Virða stjórnarskránna Halldór Ásgrímsson utanríkisráð- herra tók til máls og sagði almenna samstöðu á Alþingi um að setja lög- gjöf sem hamli gegn samþjöppun á fjölmiðlamarkaði og tryggi þar fjöl- breytni. Vék hann að þeim spurning- um sem hafa komið upp í sambandi við þessa lagasetningu. Varðandi afturvirkni laganna sagði Halldór að ekkert í frumvarpinu tæki rétt eða leyfi af aðilum. Aðlögunar- tíminn væri tvö ár. Þingmenn yrðu svo að svara þeirri spurningu hvort eðlilegt væri að markaðsráðandi að- ilar hefðu minni möguleika á eignar- haldi og ráðstöfun fjölmiðla en aðrir. „Ég svara þeirri spurningu játandi. Ég tel fulla ástæðu til þess að mark- aðsráðandi aðilar hafi minni mögu- leika á því að vera ráðandi afl í fjöl- miðlum en önnur fyrirtæki,“ sagði hann. Meiri hætta væri á að þeir mis- noti stöðu sína. Einnig tryggi aðskiln- aður á dagblaða- og útvarpsrekstri meiri fjölbreytni á fjölmiðlamarkaði. Halldór sagði stjórnmálamenn hafa heitið því að virða stjórnar- skrána og hver og einn alþingismaður vilji gera það. Álitamálin sem nefnd hafi verið í umræðunni eigi ekki að brjóta gegn stjórnarskránni. Ekki sé um afturvirkni laga að ræða og flestir svari því játandi að það samrýmist stjórnarskrá að takmarka eignarhald á fjölmiðlum. Hann sagði því haldið fram að það samrýmdist ekki stjórn- arskránni að banna algjörlega mark- aðsráðandi fyrirtækjum að eiga í fjöl- miðlum. „Það er ekki verið að gera það en það er verið að takmarka það. Og það eru uppi umræður um það, af eðlilegum ástæðum, hvað sú tak- mörkun getur verið mikil,“ sagði Halldór og nefndi nokkrar hlutfalls- tölur sem dæmi. Enginn geti svarað því nákvæmlega hvað það hlutfall eigi að vera hátt en álit ríkisstjórnarinnar sé að það eigi að vera 5%. „Og þó að við höfum unnið það heit, að virða okkar stjórnarskrá hér á Al- þingi, þá höfum við aldrei unnið það heit, að það geti aldrei reynt á túlkun hennar,“ sagði utanríkisráðherra. Í andsvörum sagðist hann aldrei úti- loka að það reyni á þessa túlkun þeg- ar hann ynni að málum. Stjórnarskrá- in sé ekki nákvæmt plagg hvernig eigi að standa að lagasetningu. Nefndi hann yfirlýst áform Norð- urljósa, án þess að nefna fyrirtækið sérstaklega á nafn, að kvarta yfir þessari lagasetningu til eftirlitsstofn- unar Evrópska efnahagssvæðisins, ESA, og í framhaldinu hugsanlega til EFTA-dómstólsins. „Mér finnst eðli- legt að um slíkt mál, að það sé fjallað um það eins hratt og mögulegt er eins og öll önnur mál. Ég mun fyrir mitt leyti óska eftir því við þá eftirlits- stofnun að þeir sinni því máli hratt og vel þótt þeim beri engin sérstök skylda til að taka tillit til þess. Mér finnst það nauðsynlegt, að það sé gert.“ Frumvarp um eignarhald á fjöl- miðlum beinist ekki gegn einu fyrir- tæki, sagði Halldór. Hann hefði orðið glaður þegar hann heyrði stjórnar- formann Norðurljósa segja í útvarpi að fyrirtækið myndi standast þessi lög og starfa áfram. Látið hefði verið í veðri vaka að til stæði að segja þar upp öllu starfsfólki og umræðan hefði gengið út á að hræða þetta fólk sem væri ósæmilegt. „En ég virði stjórn- arformann þessa tiltekna fyrirtækis vegna þess að hann hefur komið fram í þessari umræðu af mikilli hógværð og hann hefur gert það með málefna- legum hætti.“ Lokað á samstöðu Steingrímur J. Sigfússon, formað- ur Vinstri grænna, sagði alla þing- flokka hafa lýst því yfir að mikilvægt væri að taka eignarhald á fjölmiðlum til skoðunar. Því sé dapurlegt hvernig að málinu sé staðið og þingmenn meirihlutans á Alþingi skuli vera fangar vinnubragða sem formenn stjórnarflokkanna þvingi uppá þá. „Þetta mál er í heljargreipum for- manna stjórnarflokkanna, sem keyra með offorsi áfram, og bjóða ekki uppá umræðu, skoðanaskipti eða viðleitni til að ná saman um eitt eða neitt,“ sagði hann og dyrunum væri lokað á samstöðu innan þings og utan. Þótt þingmenn Vinstri grænna væru allir af vilja gerðir og vildu vinna að breytingum á þessu frum- varpi þá væri það ekki í boði. Á þeim forsendum væri þingflokkurinn á móti þessu frumvarpi þótt áherslur hans beindust í þessa átt. „Vinnu- brögð formanna stjórnarflokkanna hafa einfaldlega tekið þetta mál í gísl- ingu. Það er engin leið að komast að því á neinum þeim málefnalegu for- sendum sem gerir það kleift og fært; að reyna að vinna að því að lagfæra það,“ sagði Steingrímur. Þvinga eigi þennan gjörning í gegn sem engan veginn nái utan um fjölmiðlasviðið í heild sinni. Guðjón Arnar Kristjánsson, for- maður Frjálslynda flokksins, sagði engan hafa komið með skýringar á því hvað færi á hliðna í landinu vegna fjölmiðlareksturs á næstu fimm til sex mánuðum. Spurði hann af hverju ekki megi vinna þetta mál áfram skynsamlega og reyna að ná um það sátt. Koma eigi með víðtækara og betra frumvarp inn í Alþingi á haust- dögum. „Af því að það var hæstvirtur for- sætisráðherra, Davíð Oddsson, sem ákvað að fara með þetta mál af stað virðist enginn hafa bein í nefinu til að segja honum að þetta mál er slæmt eins og það er uppsett,“ sagði Guðjón. Haldið áfram á morgun Þriðja umræða hófst klukkan 11 í gærmorgun og stóð til kl. 22.20 um kvöldið, með stuttum hléum. Þegar hlé var gert voru 12 þingmenn á mæl- endaskrá. Enginn þingfundur er í dag og hefst þriðja umræða kl. 11 á morgun, föstudag. „Beinist ekki gegn einu fyrirtæki“ Þriðja umræða um fjölmiðlafrumvarpið hófst á Al- þingi í gær. Fram kom við umræðurnar að ef Norð- urljós kvarta til Eftirlitsstofnunar EES vegna lagasetningarinnar ætlar utanríkisráðherra að óska sjálfur eftir því að málið vinnist hratt og vel. Bryndís Hlöðversdóttir sagði lagfæringar á frum- varpinu ekki breyta skoðun stjórnarandstöðu. Morgunblaðið/Árni Torfason Þingmennirnir Bjarni Benediktsson og Ásgeir Friðgeirsson þungt hugsi við þriðju umræðuna um fjölmiðlafrumvarpið á Alþingi í gær. SENDIHERRA Bandaríkjanna á Íslandi var kall- aður í íslenska utanríkisráðuneytið og honum af- hent formleg mótmæli íslenskra stjórnvalda vegna upplýsinga um misþyrmingar, sem banda- rískir hermenn hafa beitt íraska fanga í Abu Ghraib-fangelsinu í Bagdad í Írak. „Hann kvaðst mundu koma þeim sjónarmiðum íslenskra stjórn- valda á framfæri við stjórnvöld í Whasington,“ sagði Halldór Ásgrímsson utanríkisráðherra í ut- andagskrárumræðu um stöðu mála í Írak við upp- haf þingfundar í gær. Steingrímur J. Sigfússon, þingmaður Vinstri grænna, var málshefjandi. Hann sagði innrás Bandaríkjamanna og Breta í Írak ólögmætt árás- arstríð samkvæmt þjóðarrétti. Ákvæði Genfar- sáttmála séu gróflega brotin með skipulögðum pyntingum hersetuliðsins í Írak. Benti hann líka á mannréttindabrot í Afganistan og herstöð Banda- ríkjanna Guantanamo á Kúbu. „Sem aðilar bæði að stofnsáttmála Sameinuðu þjóðanna og Genfarsáttmálunum berum við Ís- lendingar mikla ábyrgð; ekki aðeins á að virða sjálf ákvæðin heldur ber okkur okkur einnig að gera okkar til þess að aðrir geri það,“ sagði Stein- grímur. „Þegar svo bætist við að Ísland á beina að- ild að málinu vegna stuðningsyfirlýsingar forsæt- is- og utanríkisráðherra eru spurningarnar sem vakna um lagalega, pólitíska og siðferðislega ábyrgð okkar áleitnar.“ Steingrímur lýsti hvernig stuðningur við stríðið í Írak færi þverrandi og erlendir stjórnmálamenn þyrftu að gera grein fyrir ábyrgð sinni og ákvörð- unum. „Það er óhjákvæmilegt að gera þessi mál upp á Íslandi,“ sagði hann og lagði nokkrar spurn- ingar fyrir utanríkisráðherra. Vildi hann m.a. fá að vita hvort forsætis- og utanríkisráðherra hefðu hugleitt þann möguleika að biðja íslensku og írösku þjóðirnar afsökunar á ákvörðun sinni um stuðning við Íraksstríði. Nöpurlegar kveðjur Halldór Ásgrímsson sagði ákvörðun um hern- aðarlega íhlutun í Írak ekki hafa byggst á einni af- gerandi ástæðu heldur mörgum samverkandi þáttum og lýsti þeim. „En það eru nöpurlegar kveðjur til hinnar ný- frjálsu írösku þjóðar að ákvæði Genfarssáttmál- ans séu ekki virt af herjum vestrænna lýðræð- isríkja. Það eru ekki þau skilaboð sem íraska þjóðin á skilið og ekki þau skilaboð sem við Íslend- ingar viljum senda frá okkur,“ sagði Halldór og hann hafi afdráttarlaust lýst því yfir að opinber rannsókn eigi að fara fram á ásökunum um mis- þyrmingar herliðsins í Írak. Halldór sagði það hefði ekki verið auðveld ákvörðun, sem íslensk stjórnvöld stóðu frammi fyrir, að styðja hernaðaríhlutun í Írak. „Ákvörðun ríkisstjórnarinnar var hvort tveggja pólitísk og jafnframt byggð á grunni alþjóðalaga. Sagan ein getur dæmt um það hvort hún var rétt, en eitt er víst að hún var í fullu samræmi við utanríkisstefnu okkar Íslendinga á umliðnum áratugum. Hún var pólitísk vegna þess að trúverðugleiki Sameinuðu þjóðanna var í húfi og hún var lögleg vegna þess að stjórn Saddams Hussein hafði ítrekað brotið ályktanir samtakanna,“ sagði Halldór. Röng ákvörðun Össur Skarphéðinsson, formaður Samfylking- arinnar, sagði að þessi ákvörðun hefði verið röng og ekki lögleg af hálfu íslensku ríkisstjórnarinnar. „Ríkisstjórnin á að biðja íslensku þjóðina afsök- unar á því að hafa hnýtt hana, að henni forspurðri, í tagl innrásarherjanna í Írak. Ríkisstjórnin á líka að biðja írösku þjóðina afsökunar á þeim miska sem innrásin hefur unnið henni,“ sagði hann. Gunnar Örlygsson, þingmaður Frjálslynda flokksins, lýsti yfir skömm og hneykslan sinni á framferði utanríkisráðherra og forsætisráðherra og krafðist þess sem Íslendingur að þeir biðji ís- lensku þjóðina afsökunar. Utanríkisráðherra segir kveðjurnar til Íraka nöpurlegar Sendiherra Bandaríkjanna afhent formleg mótmæli HALLDÓR Ásgrímsson utanrík-isráðherra fordæmir árásir Ísr-aelshers á menn og mannvirki á Gaza-svæðinu, einkum dráp og limlestingar á óbreyttum borg- urum, þ.m.t. börnum, og eyðilegg- ingu á heimilum þúsunda Palest- ínumanna, að því er segir í tilkynningu frá utanríkisráðuneyt- inu. „Þar sem Gaza-svæðið er her- numið í andstöðu við ítrekaðar ályktanir öryggisráðs SÞ þá eru slíkar aðgerðir ótvírætt brot á al- þjóðalögum. Með slíku atferli verður vítahringur ofbeldisverka ekki rofinn. Íslensk stjórnvöld fagna áform- um forsætisráðherra Ísraels um að leggja niður landtökubyggðir Ísraelsmanna á Gaza-svæðinu og hvetja sem fyrr til þess að Ísr- aelsmenn hverfi frá öllum her- numdu svæðunum um leið og ör- yggi Ísraelsríkis verði tryggt. Miklu skiptir að samfélag þjóð- anna styðji áframhaldandi starf Fjóreykisins og framkvæmd Veg- vísisins og stuðli þar með að var- anlegum friði fyrir botni Miðjarð- arhafs,“ segir í tilkynningunni. Utanríkisráð- herra fordæmir árásir Ísraels- hers á Gaza
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.