NT - 15.05.1984, Síða 2
Ekki sama Seðla-
banka - séri og
almennur Jón!!
■ í rekstrarreikningum
Seðlabankans kemu berlega í
Ijós að það er sitthvað Jón
(almennir launþegar) og séra
Jón (launþegarhinsopinbera).
Einn af útgjaldaliðum bankans
á árinu 1983 er „Kostnaður
vegna sameiginlegs mötuneytis
með Landsbanka íslands" að
upphæð 1.524.000 krónur.
Deilt niður á fjölda starfs-
manna hafa útgjöld bankans
við að gefa hverjum starfs-
manni sínum að éta á síðasta
ári verið um 11.300 krónur á
munn, eða nær eitt þúsund
krónur á mánuði. Á þessu
sama ári var heildarlauna-
kostnaður Seðlabankans sam-
tals tæpar 45 milljónir króna.
Ef séra Jónarnir og Jónurnar
hjá Seðlabankanum borguðu
matinn sinn að fullu eins og
Jónarnir og Jónurnar hans
Guðmundar Jaka og Rögnu í
Framsókn sýnist Dropum að
Seðlabankinn gæti hækkað
kaupið hjá sínum mönnum um
3,4% án þess að það kostaði
hann eyri í aukaútgjöld.
Ef séra Jónarnir í Seðló færu
í vinnuna í strædó eins og Jónar
gera gjarnan sýnist Dropatelj-
ara að enn mætti hækka launin
þeirra um 4,2% að meðaltali.
Kostnaður vegna bifreiða
starfsmanna var nefnilega
1.905.000 krónur í fyrra, eða
rúmar 14 þúsund krónur ef upp
hæðin skiptis jafnt á þá alla.
Liðurinn „námskostnaður,
félagsmál starfsmanna og
f!eira“ er upp á 2.893.000
krónur, eða um 22 þúsund
krónur á starfsmann ef jafnt
væri skipt og samsvarar 6,4%
af heildarlaunakostnaði
bankans.
Seðlabankinn (eða báknið)
losnar heldur aldeilis ekki við
sína séra Jóna oog Jónur af
launaskrá þótt þeir hætti
störfum. Annar stærsti
útgjaldaliður á rekstrarreikn-
ingi heitir „eftirlauna-
greiðslur'1 og nemur 6.348.000
krónum á síðasta ári. Upphæðin
jafngildir um 7. hluta alls
launakostnaðar (14,1%) og er
t.d. miklu hærri en allur kostn-
aður við rekstur hinna miklu
fasteigna bankans og húsaleigu
hans.
Útþensla bákns
Seðlabankans
■ í ársskýrslu helsta pen-
ingamálastjóra þjóðarinnar -
Seðlabankans- kemur fram
fróðlegt dæmi um það hve
jafnvel hinum bestu stjórnend-
um getur reynst erfitt að halda
aftur af útþenslu „báknsins" á
sama tíma og góðhjartaðir
verkalýðsforingjar og ráðherr-
ar færa okkur fleiri langþráða
„félagsmálapakka“. En vænt-
anlega hafa fleiri en Dropar
heyrt hið skynsamasta fólk
bölva „bákninu" en blessa „fél-
agsmálapakkana", eins og
þarna þurfi engin tengsl að
vera á milli.
í nefndri ársskýrslu Seðla-
bankans kemur fram að starfs-
fólki hans (stöðugildum) hafi
á síðasta ári fjölgað óvenjulega
mikið, eða um 5,2% á árinu,
þ.e. úr 124 í 130,5 stöðugildi’
Helstu ástæður þessarar
óvenjulega miklu fjölgunareru
sagðar lenging á orlofi starfs-
manna og lenging á
barnsburðarleyfum kvenna.
Skýring á tveim þessara
stöðugilda felst þó í því að
seðlum í umferð hefur fjölgað
um 74% svo óhjákvæmilegt
hefur reynst að fjölga um tvo
menn í seðlagreiningu.
Skæruliðar á
Ólympíuleikum?
■ Nú hafa Afganir lýst því
yfir að þeir ætli ekki að taka
þátt í Olympíuleikunum. Get-
spakir menn velt því á hinn
bóginn fyrirsér, hvort afgansk-
ir skæruliðar muni ekki hafa
áhuga á þátttöku og virðist þá
trúlegast að þeir myndu vilja
keppa í skotfimi.
Það sem einna helst er talið
draga úr áhuga afgönsku
skæruliðanna, er sú staðreynd
að Rússarnir verða ekki til
staðar.
■ Marhnútarnir í Reykjavíkurhöfn fengu óvæntan félagsskap í
gærmorgun, þegar mannlaus bfll, sem stóð á bryggjunni við
Faxaskála, rann skyndilega af stað og steyptist í sjóinn.
Bfllinn náðist fljótlega upp með aðstoð krana og var þessi mynd
tekin af því. NT-mynd Sverrir
Piltarnir sem lentu í slagsmálunum í Breiðholtsstrætó
„Við dauðsjáum
eftir þessu nú“
Gáfu sig fram við lögregiuna að áeggjan NT
■ „Okkur brá heldur ónota-
lega þegar við lásum fréttina í
blaðinu enda skeði þetta ekki
eins og því er lýst þar. Og að
annar okkar hafi brugðið hnífi
og síðan hrósað sér af þessu er
hrein vitleysa", sagði annar
piltanna sem hlut átti í slags-
málunum í strætisvagni í
Breiðholti og sagt var frá í NT
í gær. Piltarnir höfðu samband
við blaðið í gær og fóru síðan
til lögreglunnar og gáfu sig
fram að áeggjan NT.
Piltarnir tveir lýstu atvikun-
um þannig að þeir hafi verið
talsvert drukknir í strætisvagn-
inum þar sem annar þeirra
lenti í orðaskaki við tvo aðra
pilta. Hann réðist síðan áannan
piltanna en sá reyndist sterkari
og náði á honum hálstaki.
Peir hafi síðan verið skildir
í sundur með aðstoð vagn-
stjórans en þá hafi sá sem
áreittur var hafið slagsmálin
aftur. „Þá keyrði ég að vísu
hnéð í andlitið á honum" sagði
annar piltanna, „og vinur minn
tók upp lokaðan vasahníf og
kreppti hnefann utan um hann
og barði hann þannig í höfuð-
ið. Þá getur verið að hann hafi
skorist á höfðinu af járninu á
hnífnum.“
„Þú getur rétt ímyndað þér
að við dauðsjáum eftir þessu
núna en maður gerir margar
vitleysur þegar maður er
fullur“ sagði pilturinn við
blaðamann NT.
blómvendi frá frú Halldóru Eldjárn, fyrrverandi forsetafrú.
N1 -mynd: Kobert
Stjórn Landsvirkjunar færði formanninum 280
þúsund króna afmælisgjöf á sextugsafmælinu:
Agreiningur um
afmælisgjöfina
í stjórninni
■ Jóhannes Nordal Seðla-
bankastjóri og formaður stjórn-
ar Landsvirkjunar varð sextug-
ur á föstudag. Af því tilefni
færði stjórnLandsvirkjunar hon-
um málverk eftir Jón Stefánsson
sem kostaði 280 þúsund kiónur.
Gjöfin var ekki samþykkt á
fnrmlF*oiim fnnHi stiórnarinnar
þar sem afmælisbarnið mátti
ekkert vita. Hann hafði þó
samkvæmt heimildum NT látið
í veðri vaka að hann langaði í
málverk eftir Jón Stefánsson.
Allir stjórnarmenn samþykktu
gjöfina nema Ólafur Ragnar
Grímsson sem lýsti strax yfir
andstöðu. Ýmsum þeirra þótti
þó gjöfin full rausnarleg þegar
verðið lá fyrir. Þá hafði þeim
ekki verið skýrt frá því að
ágreiningur hefði orðið....
Seðlabankinn færði Jóhannesi
einnig málverk að gjöf og hefur
blaðið hlerað að það hafi kostað
200 þúsund krónur...
«|M
SynjaSum
vafShatd!
. mJMI »kp. WÍU .4 -VJ. Mri... lri.£^ H«
■A kíA knikft kafto
Kartöflunefnd sett á laggirnar:
Ný stefna mótuð
í kartöflumálum?
■ Landbúnaðarráðherra
skipaði í síðustu viku nefnd,
sem huga skal að mótun
framtíðarstefnu að því er
varðar innflutning á kart-
öflum og grænmeti. í skipun-
arbréfinu segir, að nefndin
skuli meta það, hvernig hag-
ur neytenda verði best
tryggður, samtímis því að
þeirra sjónarmið sé gætt, að
íslensk framleiðsla sömu
afurða eigi aðgang að íslen-
skum mörkuðum umfram
innfluttar afurðir.
Nefndin kom saman til
fyrsta fundar í gær, en ekki
voru teknar þar neinar tíma-
mótamarkandi ákvarðanir,
að því er einn nefndarmanna
sagði í stuttu spjalli við NT.
Nefnd þessari mun að sjálf-
sögðu ekki vinnast tími til að
skila áliti áður en að því
kemur að ákvörðun verði
tekin um innflutningsleyfi
fyrir þeim kartöflum sem nú
eru á leiðinni til landsins, en
heimildarmaður blaðsins
taldi þó ekki útilokað að
nefndin mundi skila af sér
einhverri umsögn um það
mál.
Formaður nefndárinnar er
Guðmundur Sigþórsson,
deildarstjóri í landbúnaðar-
ráðuneytinu, en aðrir nefnd-
armenn eru Magnús Sigurðs-
son, bóndi, Kristján Ben-
ediktsson, garðyrkjumaður,
Ólafur Björnsson, kaupmað-
ur, Jón Óttar Ragnarsson,
matvælafræðingur, Örn
Bjarnason, læknir og Ingi
Tryggvason, formaður stétt-
arsambands bænda.