NT - 15.05.1984, Page 17
T
Þriðjudagur 15. maí 1984 1 7
I Stacey Keach virðist
taka það sent sjálfsagðan
hlut að vera sífellt um-
kringdur fegurðardísum
■ Nora Gaye er á góðri
leið með að verða stjama
■ Lee Benton kemur frá Florida og býst
við að vakna þar einn góðan veðurdag,
þegar draumurinn er búinn
Litii og stóri
■ Þó að óneitanlega sé tals-
verður stærðar- og þyngdar-
munur á púðluhundinum Tinu
og eiganda hennar, Colin Ta-
ylor, er þó samkomulagið hið
besta hjá þeim.
Tina litla vegur ekki nema
800 grömm, en eigandi henar
heil 175 kíló! En Colin er
■ Þau Tina og Colin taka sér
daglega gönguferð í görðum
Lundúna og vekja auðvitað
mikla athygli hvar sem þau
fara.
varkár, þegar Tina á í hlut.
Það hendir hann aldrei að
misstíga sig ofan á hana,
enda þyrfti þá líklegast ekki
að spyrja að leikslokum. Og
þó að Tina sé þetta miklu
léttari á sér en Coíin, fer hún
aldrei svo hratt yfir, að Colin
hafi ekki við henni,
Þau Colin og Tina eiga
heima í London, og eins og
að líkum lætur, reka menn
upp stór augu, hvar sem þau
eru á ferð. Þá verða umferð-
artafir og jafnvel umferðar-
öngþveiti. En það er þeim
fyrirgefið, eins og fleira.
■ Gjafapakkamir til Shana voru opnaðir heima, en svo fór „afmælisbarnið og foreldrarnir“ ásamt gestum á flott hótel,
þar sem borðaður var hátíðarmatur með Shana Racquel (þ.e. tíkinni) í heiðurssæti.
Ekki er öll vitleysan eins:
Afmælisboð ffyrir kjöltu-
rakkakostaði 20.000
dollara (600.000 ísl.kr.)!
■ Það komu gestir langt að með |
flugvélum til þess að heiðra eitt
afmælisbarn og sitja veislu
þess... .leigt var fínasta hótelpláss
undir afmælisboðið, þar sem þjónar
með hvíta hanska báru fram sjörétta
máltíð .....afmælisbarnið gekk í
veilsusalinn í perlusaumuðum silki-
kjól!
Þetta var með fínni veislum í
Pittsburgh, Pennslylvaníu í Banda-
ríkjunum og áætlaður kostnaður við
veisluna var um 20.000 dollarar
(6000.00 ísl. kr.) -og heiðurgesturinn
og afmælisbarnið var kjölturakki!
Shana Racquel, tíkin er enskur
Springer Spaniel og eigendur hennar
heita Suzanne og Charles Brandau.
Þau sögðust hafa viljað að halda vel
upp á 13 ára afmæli Shana,. Hún er
vön góðu segir „mamrna" hennar.
Shana á sllt sem einn hundur getur
átt, svo sem eigið herbergi í stórhýsi
eigendanna. Óll snyrtitæki fyrir
hunda og ábreiður og kodda. Meira
að segja á Shana minkapels, sér-
saumaðan á hana!
Suzanne Brandau segir: „Hún er
auðvitað hundur - sem dýrategund -
en hún Shana er vissulega persóna.
Mér finnst hún vera litla stúlkan sem
ég aldrei eignaðist, og ég vil að hún
fái allt það besta og sé komið fram við
hana af alúð og henni sýnd virðing“.
Enda gerðu gestirnir það, því þeir
komu færandi gjafapakka og sátu svo
til borðs með hundinum á hinu glæsi-
lega Hayatt hóteli.
Gestirnir fengu fínasta veislumat,
sjö rétti og tilheyrandi vín með. Sjálf
fékk Shana hamborgara með osti og
frönskum kartöflum, en það er upp-
áhaldsmatur hennar. Kjólklæddur
þjónn með hvíta hanska skar matinn
í bita fyrir Shana og mataði hana með
silfurskeið.
Hápunktur máltíðarinnar var þó
þegar borin var fram afmælistertan
með smástyttu af hundi á toppinum,
og auðvitað fékk Shana fyrstu sneið-
ina, en hún hafði ekki góða lyst á
tertunni.
■ Shana í hvítum perlusaumuöum
kjól eins og eigandinn, og með blóma-
krans um hálsinn horfir hrifin á
„foreldra sína“, sem hjónin Suzanne
og Charles Brandau.
í gjafapökkunum voru allar mögu-
legar og ómögulegar gjafir, svo sem
leikföng, skartgripir og málverk af
sjálfu afmælisbarninu. Einnig fékk
Shana nokkrar myndarlegar gjafa-
kvittanir fyrir upphæðum sem gefnar
höfðu verið í hennar nafni til góð-
gerðastarfsemi. í einum pakkanum
var persneskt teppi, sem olíufursti
sendi sem afmælisgjöf, en hann komst
ekki sjálfur sökum anna!
Þegar veislunni Iauk var Shana
steinsofnuð á gólfinu hjá öllum gjöf-
unum sínum, því að þessi miklu
hátíðahöld geta verið þreytandi. En
þetta var alveg sérstakur afmælisdag-
ur einar lítillar tíkur, um það kom
öllum saman.
■ Sams konar naglalakk prýðir
neglur frúarinnar og „neglur“ tíkar-
innar! og svo fékk hún Shana gull-
armband með demanti í afmælisgjöf!