Morgunblaðið - 10.09.2005, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 10.09.2005, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. SEPTEMBER 2005 15 VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF GENGIÐ hefur verið frá samningi um kaup Actavis Group á einu stærsta lyfja- dreifingarfyrir- tæki í Búlgaríu, Higia AD, með fyrirvara um sam- þykki samkeppn- isyfirvalda í Búlg- aríu. Kaupverð er trúnaðarmál, en kaupin eru fjár- mögnuð með langtímaláni. Í fréttatilkynningu segir að Higia hafi verið stofnað árið 1995 í Búlgaríu og að það sérhæfi sig í dreifingu lyfja til apóteka og sjúkrastofnana. Félag- ið hafi góða markaðsstöðu og selji til um 2.000 apóteka. Starfsmenn fyrir- tækisins eru yfir 500 talsins og er áætluð velta þess á þessu ári yfir 85 milljónir evra, eða um 6,6 milljarðar króna. Félagið hefur 9 vöruhús í öll- um helstu borgum Búlgaríu, er með um 4.000 lyf í sölu og dreifir fyrir öll helstu lyfjafyrirtæki í landinu. „Búlgaría er einn af okkar lykil- mörkuðum og stefna okkar er að styrkja okkur þar enn frekar. Með kaupunum fær Actavis beinan að- gang að um 2.000 apótekum, sem mun síðan styðja enn frekar við áframhaldandi vöxt félagsins,“ segir Róbert Wessmann, forstjóri Actavis. Vægi Búlgaríu eykst „Kaupin á Higia eru mikilvægt skref fyrir Actavis í Búlgaríu og gerir félaginu kleift að stýra stærri hluta virðiskeðjunnar, sem mun styðja okkar tekjuvöxt á markaðnum til framtíðar,“ segir Róbert. Í tilkynningunni segir að ekki sé búist við því að áhrif kaupanna verði veruleg á árinu 2005, en að félagið komi inn í samstæðuna á seinni hluta fjórða ársfjórðungs. Á árinu 2006 er hins vegar búist við að tekjur Higia verði á bilinu 7–7,7 milljarðar króna. Halldór Kristmannsson, forstöðu- maður innri og ytri samskipta hjá Ac- tavis, segir markaðinn hafa verið að breytast undanfarin ár í þá átt að mikilvægi dreifingarfyrirtækja hefur verið að aukast og að þau hafi náð aukinni stjórn á markaðssetningu og dreifingu lyfja. „Þar af leiðandi fannst okkur mikilvægt að festa kaup á öflugu félagi með mjög góða mark- aðsstöðu í sölu til apóteka og sjúkra- stofnana,“ segir Halldór. „Með til- komu Higia mun vægi Búlgaríu í tekjum samstæðunnar aukast veru- lega, eða úr 2 milljörðum króna á ári í 9–10 milljarða árið 2006.“ Actavis kaupir búlg- arskt lyfjafyrirtæki Robert Wessman                     !    !" # $%%&  !" # $! ' ( # )*  !" # )+  !" # ,$  - # .-/% # 0 '/  # !" * $% # &*! # +-/% .- # 1 2 # 3.) # 3 !4! )5( 2 * /% # 6! # " !#$%   %  !" # ) %4 %'! .- # ,4" '5 # 72-   !" # +89% 5'!  # 1  )#  # :;#2 5 # <* 5 % " # =>)   =2 2!4 ? @** *4 '&'  # A !&'  # &#  ' !() ) %2- B@55 ' # +-84 .- # 3(! C* 3!'! -  ?9% 9 # (!* +, 7DBE 38'  '%2 '   F   F           F  F F    F  F  F F F $ 2@ *  ( @   '%2 ' F F F F F F F  F F F F F F F F F F F F F F F G HI F G HI F G HI F F F G HI G F HI F G HI G HI G F  HI G HI G F HI F F F F F F G F  HI G  HI F F F G  HI F F F ,2 -  '% " -*  ? /' 8 % -* !" 3     F      F             F F F     F  F F F F                                                 A '% " 8  %  ?, J #!*!   )5&-  '% "  F  F     F  F F     F  F  F F F ?,F A2* @ #!*'  % ( *  ?,F )@ #!*'! 4 !  EVRÓPUSAMBANDIÐ hefur lagt blessun sína yfir samkomulag sem sendinefnd sambandsins gerði við kínversk yfirvöld til lausnar deilu um innflutning vefnaðarvöru til Evrópu. Því má nú loks afhenda þær 77 milljónir flíka sem und- anfarið hafa verið fastar í gámum á hafnarbökkum víðs vegar um álf- una. Litháen var eina sam- bandsríkið sem ekki vildi styðja samkomulagið. Innflutningshöft á kínverska vefnaðarvöru féllu niður fyrr á þessu ári og jókst þá verulega inn- flutningur á fatnaði til Evrópu- sambandsins. Vefnaðarvörufram- leiðendur í Evrópu mótmæltu þessu harðlega og var settur tíma- bundinn kvóti á innflutninginn, með þeim afleiðingum að gríðar- mikið af kínverskum fatnaði stöðv- aðist í höfnum álfunnar. Í vikunni náðist hins vegar samkomulag um að helmingur fatnaðarins yrði dreginn á innflutningskvóta næsta árs. Ýmsir leiðtogar ESB-ríkja hafa lýst vanþóknun sinn á samkomu- laginu, þrátt fyrir stuðning við það. Anders Fogh Rasmussen, for- sætisráðherra Danmerkur, hefur harðlega gagnrýnt þá sem kröfð- ust strangari innflutningshafta, enda sé það ekki í anda nútíma viðskiptahátta. Aðeins Litháen á móti fatasamkomulagi ● Hlutabréf héldu áfram að hækka í Kauphöll Íslands í dag. Úrvals- vísitalan hækkaði um 0,3% og er 4.746 stig. Viðskipti með hlutabréf námu rúmum 2,9 milljörðum, þar af 778 milljónum með bréf Burðaráss. Bréf Hampiðjunnar hækkuðu um 4,48%, bréf Símans hækkuðu um 2,02% og bréf Nýherja um 1,89%. Bréf Kögunar lækkuðu um 0,88% og bréf Atorku lækkuðu um 0,86%. Áfram hækkun í Kaup- höllinni STJÓRN Englandsbanka ákvað á fundi í fyrradag að breyta ekki stýri- vöxtum bankans og verða vextirnir því áfram 4,5%. Búist havði verið við þessari ákvörðun en vextir bankans voru lækkaðir um 0,25 prósendur í síðasta mánuði með það fyrir augum að ýta undir einkaneyslu. Kemur þetta fram á vefsíðu BBC. Níu manna Peningastefnunefnd ákvað í ágústmánuði að lækka vexti um fjórðung úr prósentustigi í 4,5%, en margir nefndarmenn voru því and- vígir. Bankastjóri Englandsbanka, Mer- vyn King, var einn þeirra sem voru andvígir því að lækka vexti og varaði við því að of hröð vaxtalækkun gæti þrýst verðbólgu upp fyrir 2% viðmið bankans. Síðan þá hafa áhrif fellibyls- ins Katrínar aukið mjög óvissu í efna- hagsmálum og mögulegt er að olíu- skortur auki enn verðbólguþrýst- ing. Hagvöxtur í Bretlandi hefur verið meiri en bú- ist var við, en af- koma framleiðslu- geirans var betri en spáð hafði ver- ið fyrir um. Verðbólga er 2,3% og hagvöxtur var 0,5% í síðasta mánuði og því var erfitt að færa rök fyrir enn frekari vaxtalækkun. Á móti kemur að komi til umtalsverðrar hækkunar á olíu- verði geti það haft áhrif á neyslu- mynstur almennings og því dregið úr hagvexti. Allt þetta leiddi til þeirrar ágiskunar greiningaraðila að ekki kæmi til breytingar á stýrivöxtum Englandsbanka í gær. Óbreyttir stýri- vextir í Bretlandi Mervyn King ● SJÁLFKJÖRIÐ verður í stjórn Straums fjárfestingarbanka á næsta aðal- fundi, en fimm manns hafa gefið kost á sér til setu í fimm manna stjórn bankans. Framboðsfrestur til setu í stjórn bankans rann út í gær. Fimmmenningarnir eru þeir Björg- ólfur Thor Björgólfsson, Eggert Magn- ússon, Kristinn Björnsson, Magnús Kristinsson og Þór Kristjánsson. Aðalfundurinn verður haldinn hinn 15. september næstkomandi. Sjálfkjörið í stjórn Straums BARCLAYS Bank á Bretlandi bætt- ist í fyrradag í þann hóp erlendra banka sem gefið hafa út skuldabréf í íslenskum krónum og er þá heildar- upphæðin komin í 28,5 milljarða króna á hálfum mánuði. Barclays gaf út bréf fyrir 1,5 milljarða króna sem er helmingi minna en fyrsta útgáfa hinna bankanna og austurríska rík- isins. Skuldabréf Barclays bera 9% vexti og eru með gjalddaga 15. sept- ember 2006. Í Morgunkorni Íslands- banka segir að taki breskir fjárfestar bréfunum vel megi vænta þess að út- gáfan verði stækkuð fljótlega. Gengi krónunnar hefur um ríflega prósent frá því á mánudag. „Það sem skýrir lækkunina er einkum hagnaðartaka spákaupmanna. Ávöxtunarkrafa rík- isbréfa hefur haldið áfram að lækka lítillega það sem af er degi og það sama má segja um innlánsvexti á millibankamarkaði,“ segir í Morgun- korninu.. Barclays gefur út skulda- bréf í íslenskum krónum ÞETTA HELST ... VIÐSKIPTI KAUP Promens hf., móðurfélags Sæplasts, á breska plastframleiðslu- fyrirtækinu Bonar Plastics eru end- anlega frágengin. Í tilkynningu frá Promens segir að félagið hafi tekið formlega við rekstri Bonar Plastics hinn 6. september síðastliðinn. Eftir kaupin starfrækir samstæða Pro- mens samtals 19 verksmiðjur í 12 löndum, auk söluskrifstofa í Hong Kong, Kína og Víetnam. Kaupverð Bonar Plastics er um þrír milljarðar króna og var gengið frá greiðslum og undirritun síðustu skjala vegna kaupanna í þessari viku eftir að hluthafafundur í Low and Bonar hafði lagt blessun sína yfir kaupsamninginn sem undirrit- aður var í júlímánuði síðastliðnum. Ein stærsta samsteypan Í tilkynningu Promens segir að með kaupunum á Bonar Plastics sé orðin til ein stærsta fyrirtækjasam- steypa í heiminum á sviði hverfis- steyptra plasteininga með starfsemi bæði í Norður-Ameríku og Evrópu, með tilheyrandi samlegðaráhrifum. Meðal viðskiptavina félagsins eru fyrirtæki eins og DaimlerChrysler, Caterpillar, JohnDeere, Peugeot, Renault og Volvo. Um tveir þriðju hlutar framleiðslunnar eru allskyns íhlutir fyrir aðra framleiðendur en um þriðjungur eru eigin vörur. Promens hf., sem er dótturfélag Atorku Group, var stofnað síðast- liðið vor þegar starfsemi Sæplasts var endurskipulögð. Promens er móðurfélag samstæðunnar en áfram verða notuð vörumerki Bonar Plas- tics. Kaup á Bon- ar Plastics frágengin ● HAGNAÐUR Crédit Agricole, stærsta banka Frakklands, var um 1,1 milljarður evra, um 85 milljarðar króna, á öðrum fjórðungi ársins og jókst um 6% frá fyrsta ársfjórðungi. Það er nærri fjórðungi meiri hagn- aður en gert hafði verið ráð fyrir. Er árangurinn þakkaður Georges Pauget sem stýrði samruna bankans við Crédit Lyonnais og hefur nú verið skipaður forstjóri bankans. Tekjur á fjórðungnum námu um 270 millj- örðum króna, og jukust um 4% frá fyrsta ársfjórðungi. Crédit Agricole eykur hagnað ● JARÐBORANIR hf. hafa undirritað samning um sölu á dótturfélagi sínu, Einingaverksmiðjunni ehf. Kaupand- inn er THGI ehf. og hefur þegar greitt kaupverðið að fullu og yfirtekið rekst- urinn. Kaupin eru háð skilyrði um áreiðanleikakönnun sem áætlað er að ljúki eigi síðar en 8. september nk. Í tilkynningu frá Jarðborunum hf. kemur fram að hagnaður félagsins vegna sölunnar verður að óbreyttu um 100 milljónir króna og að við- skiptin munu hafa óveruleg áhrif á afkomu Jarðborana hf. Jarðboranir selja Ein- ingaverksmiðjuna :-K 3L=     H H )?3B M N    H H D D <1N    H H )N : %%2   H H 7DBN MO 02  H H

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.