Morgunblaðið - 10.09.2005, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 10.09.2005, Blaðsíða 24
24 LAUGARDAGUR 10. SEPTEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ DAGLEGT LÍF | FERÐALÖG Leynifoss er falinn oss Farið um hann rennur. Dýrðar hnoss er þetta hross, hjartað í mér brennur. Þannig yrkir Grétar HallurÞórisson forstöðumaðurskíðasvæðisins í Bláfjöll-um sem eyðir miklum hluta af sumrinu í hnakk, en hann hefur haldið nokkur hross undan- farin ár. Hann fer árlega í þó nokkrar hestaferðir, ýmist langar eða stuttar, ásamt konu sinni, börnum og öðru samferðafólki. Að- spurður um uppáhalds reiðleið sagði hann þær margar en þó gæti hann nefnt eina sem hann hefði farið ótal sinnum en stæði alltaf fyrir sínu. „Reiðleiðin úr Biskups- tungum inn að Hagavatni við Langjökul er einstaklega skemmti- leg. Hún er um þrjátíu kílómetra löng, sem er mátuleg dagleið á hestum. Ég orti einmitt vísuna hér að ofan þegar ég reið um þetta svæði á góðum klár.“ Gott að gista í gömlu sæluhúsi Lagt er upp frá Hrauntúni, sem er næsti afleggjari á þjóðveginum austan við Úthlíð. „Síðan er riðið austan með Miðfelli og farið inn Bjarnarfellsvellina. Því næst með- fram svokallaðri Skeifnagirðingu vestanmegin undir Sandfelli, beygt inn að Sjónarhólum þegar þeirri girðingu sleppir og þar haldið áfram í norður þar til komið er á línuveginn og hann riðinn áfram innúr og upp Mosaskarð. Þá er rið- ið inn með Fagradalsfjalli að norðanverðu í austurátt og að af- fallinu úr Hagavatni, sem nefnist Far og rennur í Sandvatn. Hægt er að fara niður með gamla Leynifossi, sem er reyndar svolítið bratt og betra að teyma hrossin, og fara þannig niður að Farinu þar sem það er grynnra og þá er hægt að komast þar yfir á vaði. Þá er örstutt inn að Einifelli þar sem er sæluhús frá Ferða- félaginu og um að gera að hafa þar næturgistingu. Þarna geta sofið allt að fimmtán manns en reyndar er hesthúsið löngu hrunið en það er afgirt hólf á staðnum sem hægt er að koma um fjörutíu hrossum í.“ Ægifagurt um að litast Grétar segir þessa reiðleið fyrst og fremst skemmtilega fyrir þær sakir hvað hún sé fjölbreytt. „Ferðin hefst í skógi og þar er far- ið upp þröngan stíg sem er gömul upprekstrargata og heitir Hellis- gata. Þegar skógi sleppir þá sér inn í Brúarárskörð og eftir stutta reið á hraunslóðum taka við mjúk- ar moldargötur, því næst grösugir og sléttir vellir vestan undir Bjarn- arfelli. Þarna er fjallasýnin ekki amaleg, þar sem Kálfstindur, Rjúpnafell, Svínafell, Hellisskarð, Högnhöfði og aðrar perlur skarta sínu fegursta. Frá Sjónarhólum og inn að línuvegi er gróið hraun og nokkuð þýft, sem tekur ekki nema rúman hálftíma að komast yfir. Efst uppi á brún Mosaskarðs opn- ast gríðarlega mikið útsýni í austur og sér þá meðal annars vel til Blá- fells, Heklu og Tindfjalla. Þegar riðið er með Fagradalsfjalli að norðanverðu eftir glöggum götum, þá eru klettar mjög „flúraðir tröllamyndum“ á hægri hönd og vatnið og jökullinn á þá vinstri. Þarna er ægifagurt um að litast og jökulstálið mikilfenglegt. Stundum getur hrunið úr stálinu og þá er ekki leiðinlegt að vera nær- staddur,“ og þá kemur vísa upp í hugann á Grétari sem er eftir Kristinn fyrrum bónda í Borgar- holti, en hann er einn af afkom- endum Bólu-Hjálmars: Glymja köll í hamrahöll hó og sköll í tindum. Gnapa fjöllin, ferleg öll, flúruð tröllamyndum. Þessi vísa er greinilega ort í smalamennsku sem er vel við hæfi því Grétar hefur farið síðastliðin sautján ár í fjárleit Hlíðarmanna inn í Buðlungabrekkur og smalað hvern krók og kima inn við jökul- rætur.  HESTAFERÐ | Fjölbreytt reiðleið úr Biskupstungum og inn að Hagavatni við Langjökul Jökulstálið mikilfenglegt Grétar Hallur Þórisson er hér á góðri stund í hestaferð í Brúarárskörðum ásamt félaga sínum Guðmundi Magnússyni. Eftir Kristínu Heiðu Kristinsdóttur khk@mbl.is                                                                         !       "         Hér má sjá reiðleiðina merkta með rauðum lit og helstu kennileiti. Ný flugfargjöld hjá SAS Hinn 1. september tók SAS-flugfélagið í gildi ný fargjöld, sveigjanlega flug- miða sem gilda aðra leið og fyrir öll þrjú farþegarýmin. En aðeins innan Evrópu, ekki á milli heimsálfa. Nýi fararmátinn er partur af þróun hjá SAS-þjónustunni, að bjóða farþegum upp á meira val og meiri sveigjanleika með færri reglum. SAS býður upp á þrjár tegundir af ferðamáta. Það er Economy sem er lægsta fargjaldið, Economy Flex fyrir þá sem þurfa meiri sveigjanleika og Business Class fyrir farþega sem vilja þægilegt ferðalag. Breytingin felsti í því að eftir 1. sept- ember geta farþegar keypt miða aðra leið á t.d. Economy-farþegarýminu en flogið heim á Business Class. Fjölgun ferða hjá Bændaferðum Bændaferðir bjóða upp á nokkrar ferð- ir fram að jólum og er þegar uppselt í nokkrar þeirra. Meðal ferða sem enn er laust í er ferð til Þýskalands, Frakklands og Sviss dagana 2.–9. desember og má meðal viðkomustaða nefna Frankfurt og Hei- delberg þar sem jólamarkaður er skoðaður, Kehl, Strassborg, vínslóð- irnar í Alsace, og svo svissnesku borg- irnar Zürich og Basel. Þá er orðið fullt í aðra aðventuferðina sem boðið er upp á og þegar er upp- selt í tvær jólaferðir af fjórum. Í aðventuferðinni er farið til Þýska- lands, Sviss og Frakklands og áherslan er lögð á að heimsækja jólamarkaði og farið í ýmsar skoðunarferðir. Jólaferðirnar eru með öðru sniði en aðventuferðirnar. Farið er út á fimmtu- degi og komið heim á sunnudagi. Gist er í Würzburg í Þýskalandi í þrjár næt- ur og farið í dagsferð til jólabæjarins Rothenburt ob der Tauber og síðan er lögð áhersla á að upplifa jólastemmn- inguna í Þýskalandi, farið er á jóla- markað og þeir sem vilja geta farið með fararstjórn í skoðunarferð um Würzburg. Nánari upplýsingar um ferð- irnar hjá Ferðaþjónustu bænda og Bændaferðum: Sími: 570 2790. AUGLÝSINGADEILD netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111 STJÓRNVÖLD í Taílandi hafa aflétt kvöð um að Íslend- ingar þurfi að verða sér úti um vegabréfs- áritun ætli þeir sér að ferðast til lands- ins. Breytingin gekk formlega í gildi 22. júlí síðastliðinn. Ís- lendingar á leið til Taílands þurfa því nú ekki vegabréfsáritun ætli þeir sér að dvelja mánuð eða skemur í Taílandi. Kjartan Borg, ræðismaður Taílands á Íslandi, segir tíð- indin gleðileg þar sem fyrirkomulagið hafi hvorki verið gott fyrir Íslendinga né Taílendinga. Hann hafi þó engar hald- bærar skýringar á því hvers vegna Ís- lendingar lentu á lista hjá Taílend- ingum um þjóðir, sem þyrftu vegabréfsáritun. „Hér áður fyrr höfðu Íslend- ingar, eins og aðrir Norður- landabúar, þrjátíu daga dval- arleyfi í Taílandi án áritunar. Skyndilega breyttist það fyrir tveimur og hálfu ári þegar Taí- lendingar skylduðu tuttugu þjóð- ir, þar með talið Íslendinga eina Norðurlandaþjóða, að afla sér vegabréfsáritunar til að fá að komast inn í landið. Ólafur Eg- ilsson, sendiherra okkar í Taí- landi, beitti sér mjög fyrir því að fá þessu breytt í fyrra horf sem að lokum tókst og er mikill létt- ir,“ segir Kjartan Borg.  TAÍLAND | Íslendingar á faraldsfæti Áritanir þarf ekki lengur Íslendingar á leið til Taílands þurfa nú ekki vegabréfsáritun ætli þeir sér að dvelja mán- uð eða skemur í landinu. Ódýrari bílaleigubílar fyrir Íslendinga Bílar frá dkr. 1.975 vikan Bílaleigubílar Sumarhús í DANMÖRKU www.fylkir.is sími 456-3745 Innifalið í verði: Ótakmarkaður akstur, allar tryggingar, engin sjálfsábyrgð. (Afgreiðslugjöld á flugvöllum.) Höfum allar stærðir bíla, 5-7 manna og minibus, 9 manna og rútur með/ án bílstjóra. Sumarhús Útvegum sumarhús í Danmörku af öllum stærðum, frá 2ja manna og upp í 30 manna hallir. Valið beint af heimasíðu minni eða fáið lista. Sendum sumarhúsaverðlista; Dancenter sumarhús Lalandia orlofshverfi Danskfolkeferie orlofshverfi Hótel. Heimagisting. Bændagisting. Ferðaskipulagning. Vegakort og dönsk gsm-símakort. Fjölbreyttar upplýsingar á heimasíðu; www.fylkir.is www.gisting.dk sími: 0045 3694 6700 Ódýr og góð gisting í hjarta Kaupmannahafnar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.