Morgunblaðið - 10.09.2005, Blaðsíða 46

Morgunblaðið - 10.09.2005, Blaðsíða 46
46 LAUGARDAGUR 10. SEPTEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ Kvikmyndahátíðinni í Fen-eyjum lýkur í kvöld meðafhendingu Gullna ljóns- ins en stórstjörnur hafa sett svip sinn á eyjarnar undanfarna daga. Þegar ég kom til Feneyja vissi ég aðeins að ég ætti að finna „the press desk at the Casino“ til að sækja blaðamannapassann minn. Að því loknu hugðist ég hringja í Matthew hjá McDonald & Rutter og fá upplýsingar um viðtalið sem ég átti að fá við Heath Ledger og fleiri kunna leikara þennan sama dag. Ekki hafði ég minnstu hug- mynd um eftirnafn Matthews eða hvað þetta McDonald & Rutter er. Þetta var afrakstur tveggja klukkutíma rannsóknarvinnu við að lesa í gegnum tölvupósta sem höfðu verið áframsendir á mig vegna tilraunar minnar til að fá eitt til tvö viðtöl rétt á meðan ég væri í Feneyjum, þótt það væri reyndar í öðrum erindagjörðum. Þrátt fyrir að hafa ítrekað marg- oft að ég yrði aðeins í Feneyjum yfir helgina bárust mér stöðugt tölvuskeyti um að ég ætti að mæta á mismunandi stöðum í við- töl eða á sýningar á miðvikudegi, mánudegi, þriðjudegi og jafnvel fimmtudegi. Kvikmyndahátíðin í Feneyjum fer fram á eyjunni Lido. Skrefið út úr strætisvagninum er skref inn í aðra veröld. Alls staðar eru blaðamenn og það gildir það sama um þá og gesti kvik- myndahátíðarinnar; sumir eru þar vegna óþrjótandi áhuga á kvikmyndum en aðrir hafa mest- an áhuga á í hvaða fötum stjörn- urnar koma fram. Sænskur mað- ur sem ég rakst á eitt kvöldið þurfti að drífa sig í háttinn því hann ætlaði að vakna klukkan hálfsjö næsta morgun til að mæta í bíó. Hann stefndi á að sjá fimm- tíu myndir á hátíðinni.    Öryggisgæslan er mikil ogblaðamenn þurfa að ganga í gegnum málmleitarhlið til að komast inn á blaðamannafundi. Eftir að hafa verið vísað upp og niður í „the Casino“ fann ég loks- ins „the press desk“. Þar greiddi ég 50 evrur fyrir blaðamanna- passann og fékk stærðarinnar sjampóbrúsa í kaupbæti. Wella er einn af styrktaraðilum hátíð- arinnar. Nýgræðingur gæti haldið að kvikmyndahátíð snúist um listina. Það þarf þó ekki að horfa í kringum sig lengi til að sjá að þetta snýst miklu meira um pen- inga og glamúr. Aðstandendur myndanna og aðalleikarar halda venjulega stóra blaðamannafundi en þeir sem eru heppnir komast á pallborðsfundi með stjörnunum þar sem færri blaðamenn fá lengri tíma til að spyrja út í myndirnar. Ef marka má tölvu- póstana sem mér bárust kostar þátttaka í slíku pallborði 250–400 dollara á mann eða milli 15 og 25 þúsund krónur. Blaðamennirnir í pallborðinu skipta tugum. Auk þess fá sumir einkaviðtal við ákveðnar stjörnur en það þýðir að viðkomandi blaðamaður fær nokkrar mínútur til að fleygja fram spurningum áður en komið er að næsta. Hjálplegar konur í fjölmiðla- básnum urðu mér úti um síma- númerið hjá Matthew. Hann var alveg lens yfir að ég væri í Fen- eyjum þar sem ég mætti ekki á miðvikudeginum. Ég hafði í öllum mínum tölvupóstum ítrekað að ég kæmi á föstudegi. „Og ertu búin að sjá myndina?“ spurði hann. Ég neitaði sem satt var og þá kom í ljós að ég mátti ekki taka þátt í pallborðsviðtalinu við Heath Ledger og félaga. Ég reyndi að útskýra fyrir honum að maðurinn sem ég hafði verið í sambandi við hefði sagt að ég gæti tekið þetta eina viðtal án þess að hafa séð myndina en allt kom fyrir ekki enda kannaðist Matthew ekkert við umræddan mann. Í staðinn dreif ég mig á stóra blaðamanna- fundinn vegna einnar af þremur myndum Heaths Ledger á hátíð- inni, Casanova. Þessi fundur var opinn öllum sjampóbrúsaeigend- um með blaðamannapassa.    Á fundinum voru hundruðblaðamanna frá ýmsum heimshornum og ólíkum fjöl- miðlum. Fundurinn tafðist um hálftíma þar sem stjörnurnar voru ekki mættar. Þegar þær loksins létu sjá sig brutust út mikil fagnaðarlæti og blístur. Þær voru síðan kynntar ein af annarri og blaðamennirnir klöpp- uðu meira og blístruðu svo engu líkara var en að um fótboltaleik væri að ræða. Kvikmyndin Casanova fjallar um hinn ítalska Giacamo Cas- anova sem var uppi á 18. öld. Casanova á að hafa verið maður margra kvenna en sjálfur sagðist hann hafa notið ásta með meira en hundrað konum. Í myndinni verður Casanova ástfanginn af einu konunni sem hafnar honum en Sienna Miller fer með hennar hlutverk. Myndin var sérlega vin- sæl á hátíðinni þar sem hún er tekin upp í Feneyjum og leik- arahópurinn dvaldi þar í nokkra mánuði ásamt leikstjóra og töku- liði. Hinn sænski Lasse Hallström er leikstjóri myndarinnar en auk hans sátu í pallborði Heath Ledg- er, Siena Miller, Jeremy Irons, Oliver Platt og Lena Olin sem jafnframt er eiginkona Hall- ströms. Mest var klappað fyrir Ledger enda er hann víst aðalgæinn. Ledger er með strákslegt yfir- bragð. Hann tuggði tyggjó og átti greinilega erfitt með að ákveða hvort hann ætlaði að vera með grænu derhúfuna sína eða ekki meðan á blaðamannafundinum stóð. Mest var hann þó í því eins og félagar hans í myndinni að senda stjörnubrosið út í salinn. „Er þetta ekki örugglega blaða- mannafundur?“ spurði ég sessu- naut minn sem var öllu vanari kvikmyndahátíðum en ég. „Jú, þetta er alltaf svona,“ svaraði hann.    Um leið og orðið var gefiðlaust byrjuðu blaðamenn að spyrja spurninga. Sumir forvitn- uðust um hugmyndir leikstjórans um myndina eða spurðu út í ákveðin atriði en aðrir notuðu tækifærið til að daðra við leik- arana. „How do you like Venice?“ flaut svo með frá ítölskum blaða- manni. Hópurinn bar því vel sög- una að hafa tekið myndina upp í Stjörnunum fagnað í Feneyjum ’Nýgræðingur gætihaldið að kvikmyndahá- tíð snúist um listina. Það þarf þó ekki að horfa í kringum sig lengi til að sjá að þetta snýst miklu meira um peninga og glamúr.‘ AF LISTUM Halla Gunnarsdóttir Reuters Sienna Miller, umkringd ljósmyndurum, mætir á frumsýningu myndar- innar Casanova á Kvikmyndahátíðinni í Feneyjum. Fékk Grand Prix verðlaunin í Cannes. Hefur fengið einróma lof gagnrýnenda um heim allan. Sýnd kl. 2 og 4 ísl tal Sýnd kl. 8 og 10.20 Sýnd kl. 2, 4 og 6 Í þrívíddSýnd kl. 5.30, 8 og 10.30kl. 3.30, 5.45, 8 og 10.20 B.i 10 ára VINCE VAUGHN OWEN WILSON BESTA GRÍNMYND SUMARSINS „FGG“ FBL.  H.J. / Mbl.. . l. O.H.H. / DV H.J. / Mbl. . . . / . . / l. ÞEGAR EKKI ER MEIRA PLÁSS Í HELVÍTI MUNU HINIR DAUÐU RÁFA UM JÖRÐINA MEISTARI HROLLVEKJUNNAR SNÝR AFTUR TIL AÐ HRÆÐA ÚR OKKUR LÍFTÓRUNA Sími 564 0000Miðasala opnar kl. 13.15i l r l. . Sýnd kl. 2, 4, 6, 8 og 10 b.i. 14 árakl. (4 kr 400) 6, 8 og 10 b.i. 14 ára kl. 8 og 10 b.i. 16 ára kl. 4, 6, 8 og 10 TILBOÐ Á FYRSTU SÝNINGAR DAGSINS - AÐEINS 400KR. ATH! SÝNINGAR SÉRMERKTAR MEÐ RAUÐU   Verðið á karlhórum hefur lækkað töluvert fyrir evrópskar konur! Verðið á karlhórum hefur lækkað töluvert fyrir evrópskar konur! Sprenghlægileg gamanmynd! Sprenghlægileg gamanmynd!   Sýnd kl. 4 ísl tal kr. 400Sýnd kl. 6 S.K. DV  KVIKMYNDIR.IS 

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.