Morgunblaðið - 10.10.2005, Page 2
Húsin rísa í Kerhrauni í Grímsnesi. Í þessum áfanga eru níu hús, sem eru 115 ferm. á einu gólfi, og fjögur hús, sem eru 78
ferm. og með 38 ferm. svefnlofti. Húsin koma með 17 cm einangrun, hurðum og gluggum í einingum. Þrefalt gler er í
gluggum. Síðan eru innréttingar, sem fylgja eftir smekk og þörfum kaupenda.
T
h.E. ráðgjöf ehf. hefur í
samstarfi við hóp framleið-
enda á timbureiningahús-
um í Svíþjóð hafið innflutn-
ing á heilsárshúsum af ýmsum
gerðum og stærðum, auk þess sem
nokkur raðhús verða einnig reist hér
á landi á næstu mánuðum.
Sænsku framleiðendurnir fram-
leiða ekki aðeins einbýlishús heldur
einnig skólahúsnæði, sjúkrahús, flug-
stöðvar, hótel og mótel, auk þess sem
allnokkuð hefur verið framleitt af
smáhýsum fyrir ferðaþjónustuaðila
og húsum sérhönnuðum fyrir hjól-
hýsasvæði sem seld hafa verið víða
um heim. Unnið hefur verið að kynn-
ingu þessarar framleiðslu í nokkur ár
á Íslandi en fyrsta húsið var reist í
Borgarfirði fyrir tveimur árum.
Í Kerhrauni í Grímsnesi á Suður-
landi hefur Ægisauður ehf., fjárfest-
ingafélag á Akureyri, hafið uppsetn-
ingu á 13 húsum sem er 1. áfangi í 29
húsa pöntun. Þarna á að rísa frí-
stundabyggð heilsárshúsa sem fólk
getur nýtt allt árið eftir því hvað
hverjum og einum hentar.
Húsin í þessum áfanga eru níu hús
sem eru 115 ferm. á einu gólfi og fjög-
ur hús, 78 ferm. með 34 ferm. svefn-
lofti. Húsin eru boðin í fjórum mis-
munandi gerðum en Vífill Magnússon
arkitekt staðfærir teikningarnar að
íslenskum kröfum.
Þessum áfanga á að vera lokið um
áramótin en annar áfangi hefst
seinnipart vetrar og á að vera lokið
næsta sumar. Húsin koma með 17 cm
einangrun, hurðum og gluggum í ein-
ingunum og er þrefalt gler í öllum
gluggum. Síðan eru innréttingar sem
fylgja eftir smekk og þörfum kaup-
enda.
Hér eru nú starfandi sex sænskir
smiðir sérhæfðir í uppsetningu
húsanna og vinna þeir í þriggja
manna vaktaflokkum eftir ákveðnu
kerfi og reisa þeir húsin með aðstoð
krana og gera þau fokheld á 1 til 2
dögum ef aðstæður eru í lagi. Íslensk-
ir verktakar sjá um að ganga frá
grunnum auk þess sem aðrir iðnaðar-
menn eru íslenskir, svo sem píparar
og rafvirkjar.
Að sögn Þorgeirs Arnar Elíasson-
ar, innflytjanda húsanna, hefur fram-
kvæmdin gengið að óskum hingað til
og mikill áhugi skapast fyrir húsun-
um og helmingur þeirra seldur þó enn
sé ekki byrjað að auglýsa þau til sölu.
Fjórtán raðhús á Selfossi
Th.E. ráðgjöf ehf. hefur einnig gert
samning um uppsetningu 14 raðhúsa
úr timbri á Selfossi og er reiknað með
að þau verði tilbúin til afhendingar á
næstunni og rísi í lok þessa árs og
byrjun næsta. Húsin, sem öll verða
163 ferm. að stærð, verða í tveimur
raðhúsalengjum, 8 og 6 hús saman.
„Sölusamningar þessir hafa vakið
mikla athygli í Svíþjóð enda hleypt
miklu lífi í byggingariðnaðinn í Döl-
unum í Mið-Svíþjóð,“ segir Þorgeir
Örn. „Þar eru margir smáir framleið-
endur sem taka höndum saman þegar
stór verkefni rekur á fjörurnar enda
ekki óvanir að fá pantanir erlendis
frá. Í bænum Mora, sem er stærsti
bærinn á svæðinu, er gefið út dag-
blað, Mora tidning, og hefur þegar
verið fjallað um þennan smíðasamn-
ing á heilsíðu undir fyrirsögninni:
„Hektisk höst í husfabriken“.
Það útleggst: „Rosalega mikið að
gera í húsasmíðunum.“ Þar er sagt
frá því að aldrei hafi verið svo mikið
að gera í húsaframleiðslunni á staðn-
um, en Svíar hafi ekki getað sagt nei
við hinum ævintýralegu pöntunum
frá Íslandi.“
Tveir smiðir að reisa eitt af húsunum. Þarna eru þeir að gera allt klárt til þess
að taka á móti sperrunum. Einangrunin sést vel í veggeiningunum.
Morgunblaðið/Kristinn Benediktsson
Veggir reistir að morgni, sperrur eftir hádegi og húsunum lokað daginn eftir.
Þorp timb-
urhúsa rís í
Grímsnesi
Þorgeir Örn Elíasson tæknifræðingur flytur inn þessi sænsku hús. Hér er hann
á byggingarstað. Fyrsta húsið var fokhelt á tveimur dögum.
2 F MÁNUDAGUR 10. OKTÓBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
LB
I
29
46
7
09
/2
00
54,15%
Kynntu þér kostina við íbúðalán Landsbankans. Fáðu
ráðgjöf hjá sérfræðingum okkar og veldu leiðina sem
hentar þér best. Hafðu samband í síma 410 4000 eða
á fasteignathjonusta@landsbanki.is
Íbúðalán
410 4000 | landsbanki.is
Efnisyfirlit
101 Reykjavík ...................... 36-37
Akkurat ................................ 22-23
Ás .................................................. 23
Ásbyrgi ......................................... 13
Berg ............................................... 31
Borgir ........................................... 40
Brynjólfur Jónsson ........... 58-59
DP fasteignir .............................. 38
Eignaborg .................................... 58
Eignamiðjan .................................. 11
Eignamiðlunin .......................... 6-7
Eignaval ....................................... 55
Fasteign.is ............................ 50-51
Fasteignamarkaðurinn ....... 14-15
Fasteignamiðstöðin ................. 45
Fasteignasala Íslands .............. 56
Fasteignasala Mosfellsbæjar . 52
Fasteignastofan ........................... 11
Fjárfesting .................................. 48
Fold ............................................. 4-5
Foss ............................................... 39
Garðatorg .................................... 49
Garður .......................................... 62
Gimli ........................................... 8-9
Heimili ........................................... 10
Híbýli ............................................ 30
Hof .................................................. 12
Hóll .................................................. 3
HP fasteignir .............................. 53
Hraunhamar ....................... 42-44
Húsakaup ............................... 16-17
Húsavík ........................................ 57
Húsin í bænum ........................... 54
Höfði ..................................... 25-27
Íslenskir aðalverktakar ........... 64
Klettur .................................. 28-29
Lundur ................................... 20-21
Miðborg ................................ 32-33
Skeifan ......................................... 24
Stakfell ......................................... 41
Valhöll ..................................... 18-19