Morgunblaðið - 10.10.2005, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 10. OKTÓBER 2005 F 45
Opið mán.-fim.
frá kl. 9-12 og 13-18
fös. kl. 9-12 og 13-17:30 SÝNISHORN ÚR SÖLUSKRÁ
Sölumenn FM aðstoða
Sjá mikinn fjölda eigna og mynda á fmeignir.is og mbl.is
Sími 550 3000
fmeignir@fmeignir.is
VANTAR - VANTAR
Vegna mikillar sölu að undanförnu
bráðvantar nýjar eignir á söluskrá.
Endilega hafðu samband ef þú ert
í söluhugleiðingum.
Einbýli
Brekkuhvarf Vorum að fá í sölu eldra
einbýlishús sem stendur á 2.344 fm lóð á
þessum frábær stað í grennd við Elliðár-
vatn. Eign sem býður upp á mikla mögu-
leika. Nánari upplýsingar á skrifstofu FM
í síma 550-3000 eða fmeignir.is 7820
Hraunhólar - Garðabæ Vorum að fá
í sölu 160,2fm einbýlishús ásamt 70,6 fm
bílskúr, sem að hluta hefur verið breytt í
íbúð, á einstökum stað innan höfuðborgar-
svæðisins. Húsið stendur á óvenju stórri
lóð í jaðri hraunsins. Eign sem vert er að
skoða. Nánari uppl á skrifst. FM í síma 550-
3000. Einnig fmeignir.is 7932..
Hæðir
Skólagerði - Kópavogi Vorum að
fá í sölu 121 fm afar bjarta efri sérhæð
ásamt 32 fm bílskúr á þessum vinsæla
stað í vesturbæ Kópavogs. Gólfefni park-
et og flísar. Stutt í skóla og aðra þjón-
ustu. Eign sem vert er að skoða. Nánari
uppl. á skrifst. FM í síma 550-3000. Verð
32,3 millj. 50507
4ra herbergja
Ásbraut - Kópavogi Vorum að fá í
sölu 91fm íbúð á annarri hæð. Íbúðin er
laus til afhendingar. Gólfefni teppi og
dúkur. Snyrtileg sameign. Stutt í alla
þjónustu. Eign sem vert er að skoða.
Ekkert áhvílandi. Verð 17,3 millj. 3855
Engihjalli - Kópavogi Erum með í
sölu 4ra herb. íbúð á 5. hæð með stór-
kostlegu útsýni til austurs og suðurs.
Stutt í alla þjónustu. Gólfefni nýtt parket.
Íbúðin er öll nýmáluð. Snyrtileg sameign.
Sameiginlegt þvotthús á hæð. 30861
3ja herbergja
Hverfisgata Vorum að fá í einkasölu
71 fm fallega íbúð á fyrstu hæð í litlu fjöl-
býli við Hverfisgötu. Gólfefni parket. Nýir
gluggar og gler í íbúðinni. Skipt hefur
verið um þak á húsinu. Ný rafmagnstafla.
Eign sem vert er að skoða. Nánari uppl á
skrifstofu FM í síma 550 3000. Verð 15,9
millj. 21162
Írabakki - Breiðholti Vorum að fá í
sölu fallega 3ja herb. íbúð á þriðju hæð.
Tvennar svalir. Nýleg gólfefni. Snyrtileg
sameign. Sérþvottahús á hæðinni. Nánari
uppl. á skrifst. FM í síma 550 3000. Verð
15,8 millj. 21161
Torfufell Vorum að fá í sölu 3ja herb.
íbúð á efstu hæð í snyrtilegu húsið við
Torfufell. Hluti innbús getur fylgt með í
kaupum. Nánari uppl. á skrifstofu FM í
síma 550-3000. Verð 13,7millj.
Atvinnuhúsnæði
Hlíðasmári Mjög gott 182 fm bil á
jarðhæð, gólfefni flísar. Tveir inngangar.
Auðvelt að skipta plássinu upp í tvö bil;
annars vegar 107 fm og hinsvegar 75 fm.
Frábær staðsetning í mjög vaxandi
hverfi. Allar nánari uppl. á skrifstofu FM,
Hlíðasmára 17, sími 550-3000. Einnig
fmeignir.is 9701
Landsbyggðin
Hátorfa 5 - Hrunamannahreppi
Um er að ræða glæsilega staðsett sum-
arhús, 67,1 fm auk 29,2 fm gestahúss.
Sólpallur 181 fm. Hitaveita. Glæsilegt út-
sýni, stutt í golfvöll. Eign sem vert er að
skoða. Verð 17.0 millj. 13869.
Borgarfjarðarsveit Til sölu sumar-
hús í landi Stóra Áss í Borgarfjarðarsveit.
Um er að ræða nýtt hús á steyptum
sökkli í fallegu umhverfi á þessum vin-
sæla stað. Heitt og kalt vatn. Nánari upp-
lýsingar á skrifstofu FM. Sími 550 3000.
Sjá einnig á fmeignir.is og mbl.is. 13872.
Nollur - Grýtubakkahreppi Til sölu
er jörðin Nollur í Grýtubakkahreppi. Jörð-
in á land að sjó. Á jörðinni er íbúðarhús
203 fm á tveimur hæðum, byggt árið
1955. Annar húsakostur er; fjós sem hef-
ur verið breytt í hesthús, fjárhús og hlaða
byggð á árunum milli 1960 og 1970, 146
fm véla- og verkfærageymsla byggð
1971, 48 fm bátaskýli frá 1984 og 50 fm
hundahótel byggt árið 1990. Hér er um
að ræða fallega og vel staðsetta jörð við
austaverðan Eyjafjörð með mikla mögu-
leika, t.d. í skógrækt, hestamennsku og
skotveiði. Jörðin er talin vera um 200 ha.
Fjarlægð frá Akureyri um 26 km og til
Grenivíkur um 10 km. Nánari upplýsingar
á skrifstofu FM, sími 550 3000. Sjá einnig
fmeignir.is. Tilvísunarnúmer: 101227.
Sturluhóll Austur-Hún. Til sölu
jörðin Sturluhóll, áður Engihlíðarhreppi
nú Blönduósbæ í Austur-Húnavatns-
sýslu. Jörðin er án framleiðsluréttar en
telst vera um 130 ha, þar af ræktað land
talið vera 25 ha. Á jörðinni er 180 fm
íbúðarhús sem þarfnast lagfæringar, reist
1961 og nýrri útihús sem eru gripahús,
hlaða og geymsla. Ásett verð er 16 millj.
Nánari upplýsingar á skrifstofu FM, sími
550 3000. Sjá einnig fmeignir.is og
mbl.is. Tilvísunarnúmer: 101215.
Fyrirtæki
Svalbarði - Framnesvegi Erum
með í sölu hina fornfrægu verslun Sval-
barða við Framnesveg ásamt húsnæði.
Verslunin selst í fullum rekstri. Góðir
birgjar. Tilvalinn rekstur fyrir samhent
hjón. Nánari upplýsingar á skrifstofu FM,
sími 550-3000. 18185
Rað- og parhús
Kríuás - Hafnarfjörður Vorum að fá
í sölu fallegt endaraðhús á tveimur hæð-
um með innbyggðum bílskúr á þessum
vinsæla stað. Mikið útsýni. Nánari upp-
lýsingar á skrifst. FM, sími 550 3000.
VANTAR - VANTAR
Leitum að glæsilegri eign, einbýli
eða jörð í jaðri höfuðborgarsvæðis-
ins. Nánari upplýsingar á skrifst. FM
í síma 550 3000 (Magnús).
TIL SÖLU
FURUGRUND 18 - AKRANESI
Allar upplýsingar veittar á Fasteignamiðlun Vesturlands
í síma 431 4144 og 846 4144.
Soffía Magnúsdóttir lögg.fasteignasali.
Stórglæsilegt 287 fm
einbýlishús í grónu vin-
sælu hverfi. Á jarðhæð
eru þrjú svefnherbergi,
eldhús, borðstofa, sjón-
varpshol, baðherbergi,
anddyri, þvottahús og
bílskúr. Gengið upp 2
tröppur í stóra stofu
með arni. Í kjallara und-
ir stofu eru tvö svefnherbergi, gufubað, hvíldarherbergi með
sturtu, geymsla og hol. Frábært útsýni. Óskað er eftir tilboð-
um í eignina.
ÞAÐ er alveg nóg að
flísaleggja í kringum bað
eða sturtu en mála hina
veggina. Þar sem enginn
eða lítill raki er (t.d. á
gestasnyrtingu sem er
án sturtu) er óþarfi að
flísaleggja.
Morgunblaðið/Árni Torfason
Flísalögn
ábaðher-
bergjum
Seljendur
Sölusamningur – Áður en fast-
eignasala er heimilt að bjóða eign til
sölu, ber honum að ganga frá sölu-
samningi við eiganda hennar um
þjónustu fasteignasala á þar til gerðu
samningseyðublaði. Eigandi eignar
og fasteignasali staðfesta ákvæði
sölusamningsins með undirritun
sinni. Allar breytingar á sölusamningi
skulu vera skriflegar. Í sölusamningi
skal eftirfarandi koma fram:
Tilhögun sölu – Koma skal fram,
hvort eignin er í einkasölu eða al-
mennri sölu, svo og hver söluþóknun
er. Sé eign sett í einkasölu, skuldbind-
ur eigandi eignarinnar sig til þess að
bjóða eignina aðeins til sölu hjá ein-
um fasteignasala og á hann rétt til
umsaminnar söluþóknunar úr hendi
seljanda, jafnvel þótt eignin sé seld
annars staðar. Einkasala á einnig við,
þegar eignin er boðin fram í maka-
skiptum. – Sé eign í almennri sölu má
bjóða hana til sölu hjá fleiri fast-
eignasölum en einum. Söluþóknun
greiðist þeim fasteignasala, sem sel-
ur eignina.
Auglýsingar – Aðilar skulu semja
um, hvort og hvernig eign sé auglýst,
þ. e. á venjulegan hátt í eindálki eða
með sérauglýsingu. Auglýsingakostn-
aður skal síðan greiddur mán-
aðarlega samkv. gjaldskrá dagblaðs.
Öll þjónusta fasteignasala þ. m. t.
auglýsingar er virðisaukaskattskyld.
Gildistími – Sölusamningurinn er
uppsegjanlegur af beggja hálfu með
fyrirvara (hámark 30 dagar) og gera
þarf það skriflega. Ef einkasölusamn-
ingi er breytt í almennan sölusamn-
ing þarf einnig að gera það með skrif-
legum hætti. Sömu reglur gilda þar
um uppsögn.
Öflun gagna/söluyfirlit – Áður en
eignin er boðin til sölu, verður að út-
búa söluyfirlit yfir hana. Seljandi skal
leggja fram upplýsingar um eignina,
en í mörgum tilvikum getur fast-
eignasali veitt aðstoð við útvegun
þeirra skjala sem nauðsynleg eru.
Fyrir þá þjónustu þarf að greiða, auk
beins útlagðs kostnaðar fasteignasal-
ans við útvegun skjalanna.
Veðbókarvottorð – Þau kosta nú
1000 kr. og fást hjá sýslumannsemb-
ættum. Opnunartíminn er yfirleitt
milli kl. 10.00 og 15.00. Á veðbók-
arvottorði sést hvaða skuldir (veð-
bönd) hvíla á eigninni og hvaða þing-
lýstar kvaðir eru á henni.
Greiðslur – Hér er átt við kvittanir
allra áhvílandi lána, jafnt þeirra sem
eiga að fylgja eigninni og þeirra, sem
á að aflýsa.
Fasteignamat – Hér er um að
ræða matsseðil, sem Fasteignamat
ríkisins sendir öllum fasteignaeig-
endum í upphafi árs og menn nota
m.a. við gerð skattframtals. Fast-
eignamat ríkisins er til húsa að Borg-
artúni 21, Reykjavík sími 5155300.
Fasteignagjöld – Sveitarfélög eða
gjaldheimtur senda seðil með álagn-
ingu fasteignagjalda í upphafi árs og
er hann yfirleitt jafnframt greiðslu-
seðill fyrir fyrsta gjalddaga fasteigna-
gjalda ár hvert.
Brunabótamatsvottorð – Vott-
orðin fást hjá því tryggingafélagi,
sem eignin er brunatryggð hjá. Vott-
orðin eru ókeypis. Einnig þarf kvitt-
anir um greiðslu brunaiðgjalda. Ef fá
þarf nýtt brunabótamat á fasteign,
þarf að snúa sér til Fasteignamats
ríkisins og biðja um nýtt brunabóta-
mat.
Hússjóður – Hér er um að ræða yf-
irlit yfir stöðu hússjóðs og yfirlýsingu
húsfélags um væntanlegar eða yfir-
standandi framkvæmdir.
Afsal – Afsal fyrir eign þarf að
liggja fyrir. Ef afsalið er glatað, er
hægt að fá ljósrit af því hjá viðkom-
andi sýslumannsembætti og kostar
það nú kr. 150. Afsalið er nauðsyn-
legt, því að það er eignarheimildin
fyrir fasteigninni og þar kemur fram
lýsing á henni.
Minnisblað