Fréttablaðið - 13.03.2004, Page 45
LAUGARDAGUR 13. mars 2004
■ MYNDLISTASÝNING
45
Straumar og Stefán Hilmarsson
skemmta á NASA við Austurvöll.
Hljómsveitin Handverk spilar fyrir
dansi á Rauða ljóninu.
Á móti sól spilar í Sjallanum á Akur-
eyri.
Brimkló skemmtir á Hótel Stykkis-
hólmi.
■ ■ FUNDIR
13.00 Ráðstefnan “Þekking í þágu
skógræktar” verður haldin í stóra sal
Ferðafélags Íslands, Mörkinni 6, í
Reykjavík. Aðgangur er ókeypis og ráð-
stefnan er öllum opin.
14.00 „Skjölin lifna við” er yfirskrift
ráðstefnu í Kornhlöðunni, Bankastræti, í
tilefni af 50 ára afmæli Borgarskjala-
safns Reykjavíkur. Erindi flytja Þór
Whitehead, Andrés Erlingsson, Stefán
Pálsson, Eggert Þór Bernharðsson og
Lýður Björnsson. Aðgangur er ókeypis
og öllum heimill.
14.00 Heimspekideild HÍ, Íslensk-
japanska félagið og Stofnun Vigdísar
Finnbogadóttur standa, í samvinnu við
Sendiráð Japans á Íslandi og Scandinav-
ia-Japan Sasakawa Foundation, fyrir
málþingi um japanskt mál og menn-
ingarfærni í stofu 101 í Odda. Dagskrá-
in fer fram á ensku.
■ ■ SÍÐUSTU FORVÖÐ
Spænsku myndlistar- og ljóðasýning-
unni Þögnin lýkur á Kjarvalsstöðum um
helgina. Þar sýnir barcelónski myndlist-
armaðurinn Antonio Hervás Amuezca.
Ókeypis aðgangur.
Um helgina lýkur sýningu þeirra
Daníels Þorkels Magnússonar, Haralds
Jónssonar og Hrafnkels Sigurðssonar í
Nýlistasafninu við Vatnsstíg.
Sýningunni Löng og margþætt saga
- Flúxus frá Þýskalandi 1962-1994 lýk-
ur nú um helgina í Listasafni Íslands.
Einnig lýkur þar sýningunni Flúxtengsl,
sem er sýning á íslenskum Flúxusverk-
um.
Upplýsingar um viðburði og sýningar
sendist á hvar@frettabladid.is ekki síð-
ar en sólarhring fyrir birtingu.
Ég hef einu sinni komið til Ís-lands áður, það var fyrir 27
árum. Þá komum við hingað ný-
gift, ég og maðurinn minn, og sváf-
um hér brúðkaupsnóttina,“ segir
bandaríska listakonan Claudia
deMonte.
Nú eru þau hjónin komin hingað
aftur í stutta heimsókn. Tilefnið er
sýningin Allar heimsins konur,
sem opnuð verður í Listasafninu á
Akureyri í dag.
Þar eru sýnd 176 listaverk eftir
jafn margar konur frá jafn mörg-
um löndum. Í Sameinuðu þjóðun-
um er nú skráð 191 ríki, þannig að
aðeins vantar fimmtán ríki upp á
að öll heimsins lönd eigi fulltrúa á
sýningunni.
Claudia segist hafa ferðast mik-
ið um heiminn. Hún hefur komið
til áttatíu landa, og bætir því við að
þessi ferðagleði eigi stóran þátt í
að hún ákvað að setja saman sýn-
inguna Allar heimsins konur.
„Þegar ég var í Tíbet kynntist
ég handverkskonum sem voru að
sauma í og sá að þær voru að gera
eitthvað allt annað en ég í minni myndlist. Þá datt mér í hug að
taka saman sýningu með verkum
eftir konur frá öllum löndum
heims.“
Hún lét ekki þar við sitja, held-
ur byrjaði að þreifa fyrir sér og
falast eftir verkum. Þetta var árið
1996, og það tók hana hálft fjórða
ár að safna í heila sýningu.
„Fyrstu fimmtíu löndin voru
auðveld, en síðan fór róðurinn að
þyngjast. Ég leitaði allra ráða, var
mikið á Netinu, en á þessum tíma
voru reyndar fáir komnir á Net-
ið.“
Einu skilyrðin sem hún setti
voru þau að myndirnar væru 20
sentímetrar á hvern kant og tjáðu
með einhverjum hætti veruleika
kvenna. Þegar fleiri en ein mynd
barst frá hverju landi valdi
Claudia deMonte úr þá mynd sem
henni þótti fara næst hugmyndinni
að baki sýningunni.
„Ég valdi ekki frægustu lista-
menn í hverju landi, heldur þau
verk sem féllu best að þessari hug-
mynd.“
Sýningin Allar heimsins konur
var fyrst sýnd í New York árið
2000. Síðan bættist við eitt landið
af öðru. Akureyri er tólfti staður-
inn sem sýningin ferðast til.
Hún stendur yfir í Listasafninu
á Akureyri fram í maí og kemur þá
suður til Reykjavíkur þar sem hún
verður sett upp í Gerðubergi. ■
Allar heimsins konur
CLAUDIA DEMONTE
Opnar í dag sýninguna Allar heimsins
konur í Listasafninu á Akureyri.
EL SALVADOR
Karlisima er fulltrúi El Salvadors.
TÚRKMENISTAN
Yaznur Ovganova er fulltrúi Túrkmenistans.