Fréttablaðið - 10.12.2004, Page 42

Fréttablaðið - 10.12.2004, Page 42
Jólamatur Þegar jólamaturinn er eldaður er um að gera að blanda allri fjölskyldunni í undirbúninginn ef hægt er. Þeir elstu geta eldað það erfiðasta og fyrir yngstu krakkana er hægt að finna upp sniðug og einföld verkefni eins og að setja servíettur á diskana inni í stofu.[ Fyrir alla fjölskylduna Jólasöngleikurinn Jólin syng- ja verður frumsýndur þann 12. desember í Iðnó. „Ég var að lesa um íslensku jóla- sveinana og fékk þá hugmynd að söngleiknum. Ég hélt alltaf að það væri bara til einn jólasveinn, þessi ameríski í rauðu fötunum. Ég las líka um hvernig íslensku jólasveinarnir hafa breyst í gegnum tíðina með tilkomu am- eríska jólasveinsins,“ segir Seth Sharp, leikstjóri og handritshöf- undur ásamt Axeli Jóhanni Björnssyni, framkvæmdastjóra Ljóss og listar. „Jólin hafa mismunandi þýð- ingu fyrir hverjum og einum og geta þar af leiðandi búið til drama í leikhúsi. Söngleikurinn fjallar í meginatriðum um hinn íslenska jólasveinn og hinn ameríska sem rekast á því allir elska þann amer- íska en hinn er frekar óvinsæll. En íslenski jólasveinninn lætur ekki deigan síga og kemur af stað grasrótarhreyfingu til að fá alla á sitt band,“ segir Seth og bætir við að öll fjölskyldan geti notið skemmtunarinnar. „Við erum með vinsæl íslensk jólalög eins og Jólasveinninn kemur í kvöld og Ég fæ jólagjöf sem allir kunna og geta sungið með. Við erum bæði með mikið grín fyrir krakkana og alvarleika fyrir fullorðna þannig að þetta er söngleikur fyrir alla.“ Tónlistarstjóri sýningarinnar er Rósa Guðmundsdóttir en í aðal- hlutverkum eru Ruth Reginalds og Evert Ingólfsson. ■ Trommusett með öllu, ásamt kennslu- myndbandi og æfingaplöttum á allt settið. Rétt verð 73.900.- Tilboðsverð 54.900.- Ný diskasería frá UFIP Laugavegi 70 www.hsh.efh.is Íslensk hönnun ] 26-34 Seth Sharp leikstýrir verkunum en hann er Íslendingum kunnur úr sýningum eins og Harlem Sophisticate sem sett var upp fyrr á þessu ári. 42-43 (08-09) Allt Jólin koma 9.12.2004 14.52 Page 2

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.