Fréttablaðið - 10.12.2004, Page 70

Fréttablaðið - 10.12.2004, Page 70
Jólin eru mörgum erfið sérstak- lega ef þeir þurfa að eyða þeim einir enda fátt verra en að vera einn þegar allt gengur út á að njóta samvista við ættingja og vini. Jólin eru einhleypum auð- mönnum oft mjög erfið eins og sást best í Jólasögu Dickens þar sem Skröggur gamli hafði engan til að tala við en nokkra drauga sem gerðu honum lífið leitt. Jólamyndin Surviving Christ- mas er nýtt tilbrigði við þetta gamla stef en þar leikur Ben Aff- leck milljónamæring sem fyllist tómleika fyrir jólin og ákveður að kaupa sér jólagleði með því að leigja sér fjölskyldu til þess að eyða jólunum með. Hann fer á gamlar heimaslóðir og gerir fólk- inu sem býr á æskuheimili hans tilboð sem þau geta ekki hafnað þannig að þau taka hann að sér yfir jólin gegn 250.000 dollara greiðslu. Það er James Gandolfini, sjálf- ur Tony Soprano, sem leikur fjöl- skylduföðurinn sem fellur fyrir gylliboði Afflecks án þess að gera sér nokkra grein fyrir hvað hann er að kalla yfir sig og fjölskyldu sína. Fjölskyldan verður að lúta vilja Afflecks og taka þátt í einum allsherjar jólaskrípaleik þar sem allt á að vera fullkomið og þannig má Gandolfini setja upp jóla- sveinahúfu, syngja sálma með Affleck og leggja á sig mikla leit að rétta jólatrénu. Affleck er kominn langt með að gera Gandolfini og fjölskyldu hans óð þegar dóttir hans kemur heim í jólafrí og þá fyrst hitnar í kolunum þar sem hún tekur það ekki í mál að taka þátt í að skapa ríkum brjálæðingi gleðileg jól. Framleiðendur myndarinnar fóru létt með að fá Affleck til liðs við sig en hann var sá sem þeir sáu upphaflega fyrir sér í hlut- verki auðmannsins. Þá var Gand- olfini einnig efstur á óskalistan- um yfir fjölskylduföðurinn enda vart hægt að hugsa sér betri leik- ara þar sem grunnt er á því góða á milli persóna og fáir geta sett upp jafn dramatískan morðingjasvip og Gandolfini. Tökur á Surviving Christmas rákust á við upptökur á The Sopranos og annarri mynd sem Gandolfini leikur í og hann af- þakkaði því hlutverkið. Það var svo ekki fyrr en Affleck hringdi í hann og grátbað hann um að vera með sem hann sló til. Sjúkur sagarmorðingi Andi jólanna og náungakær- leikur eru víðsfjarri í hryllings- spennumyndinni Saw. Hún gerist að mestu leyti í drungalegu fylgsni klikkaðs raðmorðingja sem hefur klófest tvo menn leikna af þeim Leigh Whannell og Carey Elwes. Þeir koma til meðvitundar í upphafi myndarinnar og komast að því að búið er að hlekkja þá við sitt hvort járnrörið. Þeir eru með lík á milli sín og komast að þeirri niðurstöðu að alræmdur morðingi sem er kallaður Jigsaw hafi örlög þeirra í hendi sér. Morðinginn er þekktur fyrir að etja fórnarlömbum sínum saman þannig að þau enda á því að berjast upp á líf og dauða og þeir félagar hafa því takmarkaðan tíma til að snúa á illmennið og bjarga sjálfum sér og fjölskyldu Elwes sem morðinginn hefur einnig í haldi. Það er ekkert gefið eftir í blóðsulli og hryllingi í Saw og þar sem tveir menn eru saman komnir, hlekkjaðir við rör með sög við höndina þarf ekki að leggja út í mikla útreikninga til að komast að þeirri niðurstöðu að út- koman verði subbuleg. ■ 50 10. desember 2004 FÖSTUDAGUR Ómissandi á DVD Spennumyndin True Romance er fáanleg í sérútgáfu á tvöföldum DVD- diski. Á meðal aukaefnis er öðruvísi endir en í handriti Tarantinos dó aðalhetjan Clarence en Scott kaus að leyfa honum að lifa í þeirri út- gáfu sem fór í bíó. National Treasure Christmas With The Kranks The Polar Express The Incredibles Closer The SpongeBob SquarePants Movie Alexander Finding Neverland Bridget Jones: The Edge of Reason Ray Sideways After the Sunset The Grudge Saw Shall We Dance? Kinsey Seed of Chucky The Motorcycle Diaries House of Flying Daggers Napoleon Dynamite 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 13 14 15 16 17 18 19 20 [ aðsóknarmestu ] BÍÓMYNDIR SÍÐUSTU HELGAR JÓLAMYNDIRNAR Eru að gera það gott í Bandaríkjunum þessa dagana. Christmas With The Kranks var í öðru sæti um helgina og The Polar Express fylgdi á eftir í því þriðja. „If there's one thing this last week has taught me, it's better to have a gun and not need it than to need a gun and not have it.“ - Sakleysinginn Clarence Worley var fljótur að læra í True Romance. Vandi að lifa jólin af SURVIVING CHRISTMAS James Gandolfini leikur rólegan fjölskylduföður sem tekur Ben Affleck inn á heimili sitt yfir jólin. Sú sambúð verður býsna strembin og gæti allt eins endað með morði. NÝTT BLAÐ Á NÆSTA SÖLUSTAÐ! Á s k r i f t a r s í m i : 5 1 5 5 5 5 5 1 2 . tb l. 2 1 . á rg . 2 0 0 4 A F S A M V IS K U O G T ÍM A Desember 2004 12. tbl. 21. árg. 899 kr. m. vsk BROTTREKSTURÁRSINS Páll Rósinkranz ➝ Kantskurður karla ➝ Jólaförðunin ➝ Herborg Eðvaldsdóttir ➝ Skartgripatískan ➝ Vala Matt ➝ Barnabókahöfundar ➝ Jakob Ágúst Hjálmarsson ➝ Svafa Grönfeldt ➝ Herratískan ➝ Tvíhöfði ➝ Jóhann Freyr Björgvinsson Sigurður G. Guðjónsson um leynimakkiðhjá Norðurljósum, samband sitt við JónÓlafsson og brostnar vonir „ÉG ER RAUNSÆBARÁTTUKONA“ Steinunn Valdís borgarstjóri um póli-tíkina, móðurmiss-inn og glasabarnið JÓLA- GJAFIR 2004 BESTU KNATT-SPYRNUMENN ÍSLANDSSÖGUNNAR KÁRI JÓNASSONKVEÐUR RÚV Fréttastjórinn fyrrverandium átökin í Ríkisútvarp-inu og framtíð þess AÐSÓKNARMESTU MYNDIRNAR Í BANDA- RÍKJUNUM HELGINA 3.-5. DESEMBER: Stórleikarinn Mel Gibson er einn framleiðenda Paparazzi en það vill svo skemmtilega til að mynd- in fjallar um hasarmyndaleikara sem fær sig fullsaddan af ágangi blaðaljósmyndara og tekur til við að stúta þeim. Það má vel vera að Gibson, sem kemur fram í litlu aukahlutverki í myndinni, sé hér að fá útrás fyrir andúð sína á þeirri stétt ljósmyndara sem kennd er við paparazzi og hefur lífsviðurværi af því að leggja fræga fólkið í einelti. Það er í það minnsta ekki hægt að líta fram hjá því að Gibson á ýmislegt sameiginlegt með aðalpersónu myndarinnar Bo Laramie. Bo er hasarmyndahetja á hraðri uppleið. Honum gengur allt í haginn en frægðin tekur sinn toll og hann fær lítinn frið fyrir blaðaljósmyndurum. Það er sérstaklega ein fjögurra manna ljósmyndaraklíka sem gerir honum lífið leitt. Snáparnir svífast einskis til að ná myndun- um sínum og í hamaganginum verða þeir valdir að bílslysi og stofna Bo og fjölskyldu hans í stórhættu. Þá er okkar manni nóg boðið og hann snýr vörn í sókn með því að ganga milli bols og höfuðs á ljósmyndurunum. Paparazzi er fyrsta leikstjórn- arverkefni Pauls Abascal sem hefur mest unnið við gerð sjón- varpsþátta. Cole Hauser, Dennis Farina, Robin Tunney, Tom Hollander, Daniel Baldwin og Tom Sizemore fara með helstu hlutverk. Hauser er sonur leikar- ans Wings Hauser og hefur lítið látið að sér kveða hingað til. Farina er hins vegar mörgum góðkunnur fyrir leik sinn í mynd- um á borð við Get Shorty, Out of Sight, Snatch og sjónvarpsþátt- unum Law&Order. ■ DENIS FARINA Þessi fyrrverandi lögregla hefur sérhæft sig í að leika löggur og hann er einmitt í hlutverki rannsóknarlögreglumanns í Paparazzi en þar reynir hann að stöðva kvikmyndaleikara sem segir slúðurblaðaljósmyndurum stríð á hendur. Leikari berst við ljósmyndara DANNY GLOVER Leikur lögreglumann sem er á hælum morðingjans Jigsaw í spennutryllinum Saw. 70-71 (50-51) Bíóopna 9.12.2004 19:57 Page 2

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.