Fréttablaðið - 20.03.2005, Page 11
Það virðist í tísku fleira en að verið
sé að drepa síðasta hvalinn. Nú er
heimsbyggðin heilaþvegin um að
„hækkun hitastigs“ sé bara af völd-
um hins hryllilega Homo Sapiens.
Náttúrusveiflur eru ekki til umræðu
frekar en með þorskinn. Hvalir, rán-
dýr og fiskar eru friðuð og friðuð.
Meira að segja Mikki refur á
Ströndum má nú éta alla mófugla
svæðisins – átölulaust. Svo rjúpurn-
ar. Ég má ekki veiða 10 rjúpur í
jólamatinn, en Mikki og minkarnir
hafa óheft sóknarmark allt árið. Ég
get bara étið það sem úti frýs!
Svo er öll þessi þorskfriðun sem
alls staðar hefur mistekist. Öfgarn-
ar í friðun smáþorsks hafa verið
stórskaðlegar – en „umhverfisvinir“
koma í veg fyrir að þau sönnunar-
gögn séu rædd (sjá bakkafjordur.is
– Gunnolfur ehf – Má veiða meiri
þorsk). „Þorskurinn á að njóta
vafans“ – þó enginn viti hver „vaf-
inn“ er. Þetta er fínn frasi með
„vafann“ sem svínvirkar í áróðrin-
um. Gadus morhua skal hafa meiri
rétt en Homo Sapiens – sem getur
enn og aftur étið það sem úti frýs.
Svo er þessi hækkun hitastigs.
Alls ekki fjalla um það að hér við
land hafi t.d. verið heitara 1924 til
1960 en í dag! „Fagmenn“ halda ráð-
stefnur og sýna „mikla hækkun
hitastigs“ – frá 1972 – byrjunarstaða
– í enda hafísáranna 1972. Þetta skal
jú vera Homo Sapiens að kenna – og
ekkert múður með það. Alls ekki
fjalla um að hitastig á norðurslóðum
hafi verið mun hærra árin 800-1200
en í dag! Hefði verið „nútímaleg
umhverfisvernd“ 800 til 1200 hefðu
þessir bölvaðir víkinga-ribbaldar
aldrei sloppið gegnum „umhverfis-
mat“ þá og ekki fengið ferða-visa.
Þá hefðu Ísland og Ameríka aldrei
fundist og væru nú lifandi minja-
safn – sem bara mætti skoða úr 30
þúsund feta hæð.
Árin 800 til 1200 var Vatnajökull
í tvennu lagi og reiðgata milli jökla –
Hrafnkellsdalur / Öræfasveit –
„greið leið – gatan liggur breið“
trall-la-la. Ekki segja frá því í trún-
aði! Nú skal fjalla um „bráðnun
jökla“ – en ekki að við séum að fær-
ast til fyrra horfs hérlendis. „Slæm
umhverfisáhrif“ árin 800 til 1200
hljóta þá að hafa haldið þessari reið-
leið opinni – með bráðnun jökla.
Helv... víkinga-ribbaldarnir –
brenndu blessaðan skóginn og létu
rollur éta laufið. Mögnuðu þannig
upp CO2 árin 800 til 1200 með
brennuvargshætti og rollufreti og
þannig varð auðvitað þessi kólnun
upp úr 1600 sem stækkaði Vatnajök-
ul svo Hornafjörður næstum sökk.
Þetta liggur í augum úti! Móðuharð-
indin eru forfeðrunum að kenna.
Þetta er jú alltaf Homo Sapiens að
kenna – ekkert múður með það.
Svo er það stærsta leyndarmál
samtímans. Stórir hvalir drulla í
trúnaði – allt að 200 tonnum á kjaft
árlega – af ógeðslega umhverfis-
vænum hvalakúk – í leyfisleysi.
Þetta veldur bullandi CO2 mengun –
til viðbótar fretinu. Hvalir svæla
meira CO2 út í andrúmsloftið en öll
iðjuver heimsins. Ekki segja fráðí!
Hvalveiðar skulu ekki leyfðar.
Aldrei! Hvalir hafa óskráð einka-
leyfi til að freta gat á ósonlagið!
Þetta á að vera Homo Sapiens að
kenna – og hananú.
Villidýr, rándýr og fiskar skulu
hafa líffræðilegan forgang – af öll-
um gerðum og stærðum – þar til
Homo Sapiens verður kominn að
fótum fram sjálfur í fyllingu tímans
– í útrýmingarhættu vegna hungurs
eins og þorskurinn. Þá setjum við
bara Homo Sapiens á válista við
hliðina á hinum þorskunum. ■
Fer Homo Sapiens á válista?
11SUNNUDAGUR 20. mars 2005
KRISTINN PÉTURSSON
FISKVERKANDI BAKKAFIRÐI
UMRÆÐAN
SKRIFAR UM
RÉTTINDI MANNA
OG NÁTTÚRU
Hvar eru
peningarnir þínir?
Gleypa reikningar og afborganir nánast
öll launin þín um hver mánaðamót?
Veltirðu því stundum fyrir þér í hvað
peningarnir hafa eiginlega farið?
• Hvar eru peningarnir?
• Borgar sig að kaupa eða leigja?
• Hvernig lán er best að taka?
•Hvernig greiðum við niður
skuldir á stuttum tíma?
•Hvenær er best að byrja sparnað?
•Hvernig sköpum við fjárhagslegt
öryggi á efri árum?
Í þessari nýstárlegu bók er að finna
svör við þessum spurningum og bent á
raunhæfar leiðir til að endurskipu-
leggja fjármál heimilisins og eignast fé
án þess að breyta um lífsstíl eða herða
sultarólina.
Ótrúlegur árangur á stuttum tíma og
gjörbreyttur fjárhagur þegar litið er til
lengri tíma.
Ókeypis hjálpargögn
á SPARA.IS!
Bókinni fylgir veflykill
sem veitir aðgang að
hjálpargögnum sem
auðvelda þér að finna
peningana þína.
Ingólfur H. Ingólfsson
hefur um árabil haldið
vinsæl námskeið um
fjármál heimilanna og
hjálpað fjölda fólks að ná
tökum á fjármálum sínum.
Komin í
verslanir
gróðaöflum þjóðfélagsins lausari
tauminn. Áfram skal stefnt að sölu
símans ásamt grunnneti þótt marg-
sinnis hafi komið fram í könnunum
að mikill meiri hluti þjóðarinnar er
því andvígur. Forsætisráðherra Ís-
lands þarf ekki að hlusta á fólkið í
landinu. Eða trúir einhver því að Ís-
lendingar hafi ekki efni á að byggja
hátæknisjúkrahús á næstu árum án
þess að til komi sala á Símanum. Er
líklegt að einkavæddur sími þar
sem gróðasjónarmið ráða muni
bæta fjarskiptaþjónustuna í dreif-
býlinu. Hræða ekki sporin frá
einkavæðingu Íslandspósts fyrir
nokkrum árum sem haft hefur í för
með sér lakari þjónustu fyrir ýmsa
staði úti á landsbyggðinni. Stofnun
fyrirtækisins Landsnets sem iðnað-
arráðherra Framsóknar, Valgerður
Sverrisdóttir, hefur staðið fyrir að
sögn samkv. tilskipunum frá EES,
virðist helst munu hafa þann
„ávinning“ í för með sér að kostnað-
ur raforku húshitenda á lands-
byggðinni mun hækka umtalsvert.
Það er væntanlega liður í við-
leitni ríkisstjórnarinnar til að efla
jafnvægi í byggð landsins. Iðnaðar-
ráðherra á sér þann draum að sam-
eina og einkavæða orkufyrirtækin
þrjú í landinu sem hafa verið í eigu
ríkis og sveitarfélaga sem væntan-
lega yrðu þá seld útlendingum að
stærstum hluta, kannski Alcoa eða
Alcan eða einhverjum öðrum á hin-
um alþjóðlega fjármagnsmarkaði.
Allt ber að sama brunni, hrá mark-
aðslögmálin og gróðasjónarmið
ráða för sem aldrei fyrr en peninga-
stofnanir og gróðafurstar maka
krókinn og leika sér með fjármuni
þjóðarinnar eins og krakkar í sand-
kassaleik meðan lífskjör stórs hluta
þjóðarinnar standa í stað eða versna
og 12-20 þúsund manns í landinu
búa nánast við fátæktarmörk. Það
er ófagur vitnisburður um stjórnar-
stefnu ríkisstjórnar Davíðs og Hall-
dórs og mætti þó margt fleira tína
til svo sem stefnu í virkjana- og
stóriðjumálum þar sem skammsýni
og gróðasjónarmið ráða för. Varla
munu framsóknarmenn almennt
hafa ástæðu til að líta með stolti til
verka núv. leiðtoga sinna í ríkis-
stjórn enda mælist nú fylgi flokks-
ins í sögulegu lágmarki um þessar
mundir. En formaður flokksins er
harla ánægður með allt. Nú virðist
svo komið fyrir flokknum sem eitt
sinn taldi sig málsvara bænda og
dreifbýlisfólks að hann sér fátt ann-
að úrræði en að gæla við Evrópu-
sambandsaðild eins og tillaga sú
sem samþykkt var á nýafstöðnu
flokksþingi ber með sér sem þó er
raunar opin í báða enda að hætti
flokksins.
Fátt sýnir betur uppgjöf flokks-
ins og vantrú á það að þjóðin geti
áfram sem hingað til lifað af því
sem landið og hafið umhverfis gef-
ur. Hvort formanninum tekst með
tillöguflutningi þessum að næla í
einhver atkvæði frá öðrum flokkum
skal ósagt látið. Nema alþjóðlega
magadansatriðið við setningu
þingsins geti skilað honum eitthvað
á þeirri leið, það skyldi þó aldrei
vera.
Það er „vitlaust gefið“ í ríkis-
stjórn Halldórs og Davíðs. Menn
hafa rangt við í spilunum. Afleiðing-
in verður misskipting. Það þarf að
gefa upp á nýtt með nýjum mönnum
við borðið. Því fyrr – þeim mun
betra fyrir þjóðina.
Höfundur er sóknarprestur á
Mælifelli í Skagafirði. ■