Fréttablaðið - 20.03.2005, Síða 53
Það var mikið um dýrðir í húsi
Loftkastalans í gær þegar hjóla-
brettasvæðið var opnað á ný eftir
heils árs framkvæmdir og endur-
bætur. Brunavarnayfirvöld létu
loka brettagarðinum í fyrra en
síðan hafa íslenskir brettamenn
æft kúnstir sínar utanhúss, oftar
en ekki í afleitu veðri.
„Þörfin fyrir þetta er mikil því
á Íslandi er jafnan voðalegt skíta-
veður og þótt vorið sé á næsta
leiti er aldrei hægt að stóla á ís-
lenskt veðurfar, enda oftast
vinda- og votviðrasamt,“ segir
Reynar Davíð í Brimi, sem er einn
styrktaraðila „Skatepark“.
„Brettamenn hafa verið um all-
an bæ að skeita og komin góð úti-
svæði í Mosfellsbæ og Breiðholti,
en nú vænkast hagur þeirra enn
meir með nýjum og endurbættum
parki. Strákarnir sem hafa verið
hvað duglegastir að smíða og
vinna að endurbótum hafa breytt
öllu fram og til baka, en parkið
var dálítið einhæft áður. Menn
þurftu að vera svolítið mikið góð-
ir til að geta nýtt sér hann hér
áður, en nú er aðstaðan öll að-
gengilegri og orðin við allra
hæfi.“
Það er danski brettastrákurinn
Troels Jørgensen sem hefur veg
og vanda af breytingunum og hef-
ur stýrt smíðum hinna bretta-
strákanna. Troels er gífurlega
vinsæll og þekktur í Danmörku og
hefur haft mikil áhrif á íslensku
skeitsenuna, en hann stundar nám
við Listaháskólann. Reynar Davíð
segir samfélag brettamanna hafa
vaxið ört hin síðari ár.
„Þar eru margir áhrifaþættir
að verki, en fyrst og fremst er
þetta heilbrigt sport sem hefur
sýnt sig að heldur krökkum frá
öllu rugli og fikti. Metnaður til að
ná langt er áberandi og margir ís-
lenskir brettastrákar keppa orðið
erlendis og prýða blaðsíður bestu
og virtustu brettatímarita heims,
nú síðast unglingurinn Ómar Svan
Ómarsson á Akureyri í Kingpin.
Heimurinn minnkar sífellt og það
sem gerist í Bandaríkjunum ger-
ist samdægurs hér. Brettamenn í
útlöndum eru margir hverjir of-
urhetjur og hálfgerðar rokk-
stjörnur, en um leið góðar fyrir-
myndir. Þá hefur lífsstíll í kring-
um sportið verið að aukast og
margir sem fikta í báðar áttir með
hjóla- og snjóbretti,“ segir Reynar
Davíð og bætir við að aldurshópur
skeitara sé frá tíu ára upp í þrí-
tugt.
„Meiðsl eru minniháttar, mest
byltur, högg og rispur en engin há
föll eða stórslys. Tíska skeitara
var lengi vel sérstök og áberandi
þáttur, en er orðin mun fjölbreytt-
ari. Því má fólk ekki láta klæða-
burðinn stoppa sig. Maður er
fyrst og fremst maður sjálfur og
lætur aðra ekki segja sér hvernig
maður á að vera.“
thordis@frettabladid.is
SUNNUDAGUR 20. mars 2005 21
FRUMSÝNUM
NÝJAN GS
KOMDU OG REYNSLUAKTU EINUM GLÆSILEGASTA BÍL SEM VÖL ER Á.
OPIÐ SUNNUDAG FRÁ 13.00 TIL 16.00.
NÝBÝLAVEGUR 6 • 200 KÓPAVOGUR • S. 570 5400 • WWW.LEXUS.IS
NÝR GS
Við leitum stöðugt að fullkomnun.
Nýr Lexus GS færir þig nær tak-
markinu. Stíllinn er glæsilegur,
yfirbragðið sportlegt, viðbragðið
snöggt og kraftmikið og aksturinn
engu líkur. Vertu fremstur á þínu
sviði. Aktu á nýjum Lexus GS.
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
T
O
Y
27
72
5
3
/2
00
5
The pursuit of perfection
Jón Múli Árnason, sem var öll-
um kunnur, sagði mér einu sinni
sögu af tæknimanni hjá útvarp-
inu. Það var á þeim tíma sem
þjóðsöngurinn var ávallt leikinn í
dagskrárlok. Tæknimaðurinn átti
það til að láta hugann reika og
gleyma stað og stund. Það gerði
tæknimanninn nánast óhæfan.
Og svo fór að hann hætti. En áður
hafði hann týnt þjóðsöngnum
þannig að það gerðist þá, sem
aldrei átti að gerast, að dag-
skránni lauk án þess að þjóðsöng-
urinn væri leikinn.
Nokkru síðar sagðist Jón Múli
hafa verið að ganga til vinnu,
snemma morguns, var að fara á
morgunvakt. Veður var gott og
enginn á ferli, enda klukkan ekki
nema rétt um sex. Þar sem Jón
Múli gekk var bíl ekið að honum,
ökumaður stöðvaði bílinn, skrúf-
aði niður rúðuna og bauð góðan
dag. Hann sagðist vera skipstjóri
á togara og bauð Jóni Múla far,
sem hann þáði. Þá voru togararn-
ir ekki skuttogarar og sjómenn
unnu óvarðir fyrir veðri og vind-
um. Það sást oft í fari þeirra. En
þessi skipstjóri var mildur að sjá,
vildi ræða við Jón Múla um
tæknimanninn, þann sem hafði
týnt þjóðsöngnum. Sagði hann
vera háseta hjá sér og vildi vita
hvernig hann hefði reynst hjá út-
varpinu. Eftir stutt samtal sagð-
ist skipstjórinn verða að segja
sögu úr síðasta túr.
Það var strekkingsvindur og
allnokkur sjór. Allir hásetar voru
komnir inn af dekkinu, nema
tæknimaðurinn fyrrverandi.
Skipstjórinn sagðist hafa horft á
hann vinna, ekkert sérstaklega
hrifinn af verklaginu, en frásögn-
in var svosem ekkert um það.
Jæja, þannig var að skipstjórinn
sá skafl nokkurn, það er brotsjó,
nálgast skipið. Augljóst var að
tæknimaðurinn fyrrverandi var í
nokkurri hættu. Skipstjórinn
vildi vara hann við og kallaði:
Gættu þín, gættu þín!“ Tækni-
maðurinn fyrrverandi hélt áfram
starfi sínu, heyrði ekki varnaðar-
orð skipstjórans, enda þurfti sá
að kalla upp í vindinn, sem óneit-
anlega dró úr annars ágætum
raddstyrk. Skipstjórinn kallaði
enn og aftur, en hinn heyrði ekki.
Brotsjórinn nálgaðist óðfluga og
svo kom að hann skall á þvera
síðu togarans, dekkið fylltist af
sjó og tæknimaðurinn hvarf í öld-
urnar sem fleyttu honum fram
allt dekkið og til baka. Skipstjór-
inn óttaðist. Missti sjónar á
tæknimanninum og varð því mik-
ið létt þegar aldan skilaði honum
hundblautum á nánast sama stað
og hann stóð þegar ólagið reið
yfir togarann. Þegar sjóinn hafði
skolað af dekkinu, skipstjórinn
jafnað sig og tæknimaðurinn
komið undir sig fótunum, horfði
hann upp til skipstjórans, sem
enn var skelfdur á svip. Tækni-
maðurinn fyrrverandi lagði lóf-
ana flata, hvorn við sitt munnvik-
ið og kallaði upp til skipstjórans:
„Varstu að segja eitthvað?“
Saga af... tæknimanni
SIGURJÓN M. EGILSSON sigurjon@frettabladid.is
NÝJAR ÍSLENSKAR
ÞJÓÐSÖGUR
með Sigurjóni
Skeitað í skjóli
fyrir skítaveðri
Brettagarðurinn „Skatepark“ var opnaður í gær eftir
árslangar betrumbætur. Brettamenn fagna því að
komast inn á þurrt, en danski brettasnillingurinn
Troels Jørgensen hefur átt veg og vanda af glæsileg-
um breytingunum. Þórdís Lilja Gunnarsdóttir átti
orð við Reynar Davíð í Brimi, sem er styrktaraðili
parksins.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/T
O
N
I