Fréttablaðið


Fréttablaðið - 20.03.2005, Qupperneq 58

Fréttablaðið - 20.03.2005, Qupperneq 58
26 20. mars 2005 SUNNUDAGUR GÆTI HAFA SPILAÐ MINN SÍÐASTA LANDSLEIK Knattspyrnumaðurinn Rúnar Kristinsson, land- sleikjahæsti leikmaður Íslands frá upphafi, ákvað í síðustu viku að gefa ekki kost á sér í komandi landsleiki gegn Króatíu og Ítalíu þrátt fyrir að vera leikfær með liði sínu Lokeren í Belgíu. Ákvörðun Rúnars hefur vakið nokkur viðbrögð á meðal ís- lenskra fótboltaunnenda, sem eiga það sameiginlegt að vilja veg landsliðsins ávallt sem mestan og gera þannig kröfu um að bestu og reyndustu leikmenn liðsins gefi kost á sér. Fréttablaðið átti spjall við Rúnar þar sem hann gerir grein fyrir ákvörðun sinni og segir frá því hann hafi hugsan- lega spilað sinn síðasta landsleik. „Ég hef enn þann dag í dag mjög gaman að því að spila með landsliðinu,“ segir Rúnar og hrekur þannig allar fullyrðingar þess efnis að hann hafi misst áhugann fyrir því að leika fyrir Íslands hönd. „Eftir leikinn gegn Þjóðverjum ytra í lokaleik undankeppni EM árið 2003 hafði ég í hyggju að hætta með lands- liðinu. Ég sagði Ásgeiri að ég þyrfti minn umhugsunarfrest og mitt sumarfrí og það var til dæm- is ástæðan fyrir því að ég tók ekki þátt í Manchester-mótinu síðasta sumar. Ég þurfti einfald- lega að hugsa minn gang,“ segir Rúnar. Eftir að hafa hugsað málið í bak og fyrir tilkynnti Rúnar lands- liðsþjálfurunum að hann hygðist gefa kost á sér í landsliðið áfram svo framarlega sem þeir teldu sig geta nýtt krafta hans. „Ég mætti í leikinn gegn Ítalíu á Laugardalsvelli en síðan varð ég fyrir því óláni að lenda í þessum meiðslum sem hafa valdið því að ég hef misst af öllum leikjunum í undankeppninni til þessa.“ Of mikið í húfi Umrædd meiðsli útskýrir Rúnar sem „svolítið flókin“ og segir hann það hafa tekið langan tíma að komast í almennilegt leik- form. „Meiðslin eru efst í fram- anverðu lærinu og ég hef verið tæpur í allan vetur. Ég var alveg frá í þrjá mánuði í lok síðasta árs og rétt náði að spila tvo leiki fyrir jól með Lokeren. Ég var ekki kominn í toppform fyrr en í lok janúar og síðan þá hef ég leikið flesta leikina. Ég spilaði 90 mínútur í síðustu viku og þurfti að frá sprautu daginn eftir til að minnka eymsli í fætinum. Staðan er bara þannig að ég verð að fara varlega,“ segir Rúnar og bætir við að þannig sé hann tilneyddur að hugsa um sjálfan sig. „Ég verð að hugsa um heilsuna til að ég sé fær um að stunda mína vinnu með mínu félagsliði. Ég held að ég eigi það inni þar sem ég hef mætt í nánast hvern ein- asta leik frá því að ég hóf að leika með landsliðinu,“ segir Rúnar, sem lék sinn fyrsta landsleik þegar hann kom inn á í 2-0 tapi gegn Sovétríkjunum suður við Svartahaf, þá aðeins 18 ára gam- all og leikmaður KR. „Ég verð að horfa til aðstæðna hverju sinni. Samningur minn við Lokeren rennur út í vor og ég hef hug á því að vera eitt ár til við- bótar hjá félaginu. Það er því mikilvægt að ég sé heill og klár í leikina fyrir félagið sem borgar mér mín laun. Mig dauðlangar að spila þessa landsleiki en stundum verður maður að láta skynsemina ráða. Ef ég fer í þessa leiki, gegn læknisráði Lokeren, og það fer eitthvað úrskeiðis bitnar það náttúrlega bara á mér. Ég gæti orðið frá það sem eftir er tíma- bilsins og þá er minn ferill búinn hér í Belgíu,“ segir Rúnar. Hann vill þó ekki meina að þjálfarar og stjórnarmenn Lokeren hafi beitt hann þrýstingi. „Það var engin pressa þannig séð en þeir voru ekki hrifnir að því að ég færi í landsleiki eins og ástandið á mér er núna,“ segir hann. Fer að verða gott Rúnar verður 36 ára í september á þessu ári og viðurkennir hann að aldurinn sé farinn að segja til sín. Aðspurður hvort hann hefði gefið sér kost í þessa landsleiki fyrir 10 árum segir Rúnar að því sé erfitt að svara. „Það hefði að minnsta kosti verið mun auðveldara fyrir mig að standast álagið fyrir 10 árum síð- an. Ég er lengur að ná mér á milli leikja núna og það tekur lengri tíma að endurheimta þá krafta sem þarf í hvern leik. Og þegar leikjahrina kemur þar sem spilað er tvisvar í viku í nokkurn tíma, eins og raunin er nú, þá eru það mikil átök fyrir líkamann. Það var ekki þannig fyrir 10 árum.“ -Hvernig sérðu þá framtíð þína með landsliðinu? „Mig dauðlangar að hjálpa liðinu að ná árangri. Hann hefur látið á sér standa hingað til og það er ekki til að minnka pressuna á þjálfara og leikmenn. Með því að segja það er ég ekki að setja mig á einhvern stall því liðið gæti vel verið stigalaust ef ég hefði spilað alla þessa leiki. En í augnablikinu hugsa ég ekki lengra en fram á vor því að þá eru ákveðin tíma- mót á mínum ferli og það gæti farið svo að ég hætti í fótbolta. Þangað til mun ég gefa kost á mér í landsliðið ef heilsan leyfir.“ Muntu leggja skóna á hilluna ef þú færð ekki áframhaldandi samning hjá Lokeren? „Ég veit það ekki. Ég reyni að hugsa ekki svo langt. Maður reynir kannski að finna sér annað félag, hvort sem það verður heima á Íslandi eða annars stað- ar, en ég vonast til að geta verið eitt ár til viðbótar hjá Lokeren.“ Væri til í að spila nokkra leiki En gæti verið að þú hafir leikið þinn síðasta landsleik? „Já, það gæti vel verið. Ég væri al- veg til í að spila nokkra leiki í við- bót en þetta veltur allt á því hvort Ásgeir og Logi geta notað mig og hvernig heilsa mín verður. Ég mun taka ákvörðun þegar þar að kemur en ég geri mér grein fyrir því að það fer að koma að þeim tíma þar sem þakkað er fyrir sig og nýjum mönnum er hleypt að,“ segir Rúnar Kristinsson. vignir@frettabladid.is SUNNUDAGSVIÐTALIÐ > RÚNAR KRISTINSSON BÚIÐ Í BILI Þessi mynd var tekin þegar Rúnar Kristinsson gekk af velli eftir 3-0 tap fyrir Þjóðverjum í síðasta leik Íslands í undankeppni EM. Það var eftir þennan leik sem Rúnar hafði í hyggju að leggja landsliðsskóna á hilluna en eftir að hafa hugsað málið ákvað hann að gefa kost á sér áfram. FRÉTTABLAÐIÐ/ÞÖK
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.