Fréttablaðið - 17.02.2007, Page 30

Fréttablaðið - 17.02.2007, Page 30
Æ fing er að klárast í Loft- kastalanum og síðhærða hálfnorska ljónið stígur af sviði og nær í ferðatöskuna sína og pokann úr tollinum enda nýlent- ur á íslenskri grundu. Rauðhærðu félagarnir ráða ráðum sínum og sammælast um að halda skuli í reykherbergið en fjölskyldumað- urinn Dr. Gunni mátti vart vera að því að mæta í Eurovisionviðtöl þar sem hann var önnum kafinn við barnauppeldi. Þeir eru flottur dúett þó að vísu fari eitthvað minna fyrir hárinu á doktornum og segist hann fyrir löngu vera búinn að gefa drauminn um sítt hár upp á bátinn. Haldið þið að rauðhærðu genin muni eitthvað hjálpa ykkur í kvöld? Dr. Gunni: Tja, ég er nú alveg orð- inn sköllóttur, veit ekki hvort það gerir eitthvað fyrir mig. Eiríkur: Rauðhært fólk er náttúr- lega minnihlutahópur og allir minnihlutahópar eru í hávegum hafðir í dag. En, nei, ég held það hafi nú ekki mikið að segja. Dr. Gunni: Tvímælalaust er þetta jú afar flottur stofn. Þið eruð báðir önnum kafnir menn, fyrir utan það að annar þarf að fljúga milli heimilis og æfinga- staðar, þá ert þú Eiríkur að fara í tónleikaferðalag með fyrrum for- sprakka Uriah Heep og svo ert þú í miðjum barnasöngleik í Hafnar- fjarðarleikhúsinu Dr. Gunni. Finnst ykkur Eurovisionþátttakan tímans virði? Dr. Gunni: Sem betur fer er Euro- vision ekki fullt starf. Eiríkur: Nei, nákvæmlega. Þó ber að taka þessari keppni af fullri alvöru því hún hefur mikið áhorf. Engu að síður er þetta aðeins um þriggja mínútna törn þegar til kastanna kemur. Dr. Gunni: Já og mínar þrjár mín- útur eru þarna á bak við, þar sem ég er skjálfandi á beinunum. Eiríkur: Er ekki miklu meiri spenna að vera lagahöfundur en keppandi? Dr. Gunni: Jú, það getur verið. Annars er þessi keppni alveg rakin leið til að gefa eitthvað út því þarna færðu alla þjóðina til að hafa skoðun á tónlistinni. Ef ég væri að gefa út plötu myndi ég kannski fá einhver viðbrögð, og þá lítil. Þannig að þessi laugardagur er voða mikið beint í andlitið. Eiríkur: Þótt Eurovision sé gamalt í hettunni þá er það samt að fær- ast nær nútímanum og mér finnst það vera að brjótast út úr skel sinni. Mér dettur í hug til dæmis Wig Wam, sem tóku þátt fyrir tveimur árum og vöktu mikla athygli og svo Lordi í fyrra. Dr. Gunni: Já, það er greinilegt að allt getur gerst í þessu. Oft eru þeir sem ná langt með mjög fríkað efni á Eurovision standard. Fyrir nokkrum árum var það furðulegt lettneskt band sem bar sigur af hólmi, annar flippari frá Austur- ríki lenti líka ofarlega. Það má því kannski segja að það sé dálítið skrítið að Silvía Nótt skyldi ekki ná lengra en hún gerði, í ljósi þess hve mikið flipp það var. Urðuð þið hissa á þeim úrslitum? Dr. Gunni: Stelpugreyið var bara eitthvað slöpp þarna á sviðinu, fór einfaldlega yfir um á stressi. Eiríkur: Þetta frík var í raun ágætishugmynd en hún er týpa sem íslenska þjóðarsálin er búin fá að melta í einhvern tíma. Svo er erfiðara verk að skila þessum húmor sem er búinn að vera að gerjast hér heima í meira en eitt ár, þarna úti á einni viku. Og það fór út um þúfur. Þú ert ekki fyrsti maðurinn sem kemur upp í hugann, Dr. Gunni, þegar Eurovision ber á góma en þú ert hins vegar kannski fyrsti maðurinn sem mér dettur í hug við sama tækifæri, Eiríkur. Hvað fékk þig til að taka þátt núna dokt- or og ert þú mjög innvígður í keppnina Eiríkur? Dr. Gunni: Það er nú bara eins og ég segi, það varð til lag sem pass- aði í þessa keppni og ég ákvað að tékka á Heiðu hvort hún væri í stuði og hún var í stuði. Eiríkur: Ég er þeirrar ónáttúru gæddur að ég hef alltaf viljað fara eigin leiðir og hef náttúrulega fengið að líða fyrir það hjá gagn- rýnendum. En ég hef svo mikla tröllatrú á sjálfum mér sem rokk- ara að mér finnst ég geta leyft mér allt og líka það að taka þátt í Eur- ovision. Ég held að það sé meira rokk í mér á þremur mínútum í Eurovision en hjá mörgum í heilan feril. Þó svo að menn eigi sína for- tíð í að fordæma Eurovision þá finnst mér að menn ættu að hugsa dæmið aðeins aftur og ef menn eru með gott lag undir höndum, að reyna að fatta það hvað þetta er stór vettvangur. Þegar ég var úti með Gleðibankann á sínum tíma, þá man ég hvað manni buðust mörg hugsanleg sambönd sem ég nýtti mér svo aldrei. Þetta er mark- aður sem hægt er að nýta sér. Dr. Gunni: Ég er ekkert svo viss um að keppnin sé svakaleg lyftistöng fyrir einn né neinn, ég held til dæmis að Lordi hafi ekkert selt mikið af plötum þó þeir hafi unnið í fyrra. Held þeir hafi náð um 100.000 eintök af fyrsta albúminu þeirra sem er helmingi minna en Gus Gus seldi. Þannig að ég held að þetta sé ekki alþjóðlegur stökkpallur. Eiríkur: Það er í rauninni bara eitt dæmi um slíkt og það var Abba. Dr. Gunni: Já og Celine Dion kannski. En það dæmi var kannski ekki eftirsóknarvert. Hafði skrímslasveitin Lordi kannski einhver áhrif á það að þið ákváðuð að taka þátt? Dr. Gunni: Já, kannski aðeins. Ég er dálítill áhugamaður um finnska menningu og tónlist þannig að ég hélt með þeim síðast og hafði mjög gaman af því að þeir ynnu. Líka fyrst að Silvía Nótt tók þátt síðast að þá hélt maður að keppnin væri orðin kannski nógu svöl. Eiríkur: Ég get tekið undir það og ég vonaðist til að Lordi myndu vinna. Ég spáði því líka að ef þeir kæmust áfram frá fimmtudegi til laugardag að þá myndu þeir vinna. Það er í sjálfu sér meira afrek að komast áfram á fimmtu- deginum heldur en að lenda í 10 efstu sætunum í lokakeppninni. Ég held það ætti að vera markmið þess aðila sem fer út fyrir okkar hönd. Dr. Gunni: Það eru ekki einu sinni helmingslíkur á að komast upp úr fimmtudeginum þannig að við gætum verið föst þar. Eurovision hefur oft verið nefnd ýmsum nöfnum, ruslakista tón- smíða, söngvakeppni samkyn- hneigðra og fleira, hvert er ykkar álit á keppninni? Eiríkur: 70-80 prósent þess sem flutt er í keppninni eru vafalítið mjög léleg. Ég held ég falli inn í þann stóra hóp sem hefur ekkert álit á Evróvisjón en horfir samt á þetta. Þetta er þrælskemmtileg vika í útlöndum og ef þú ert hepp- inn þá eru listamenn þarna sem þú þekkir og svo aðrir sem þú þarft að hafa túlk þér til handa til að ná sambandi við. Þetta er frábær vika þar sem allt flæðir í kampavíni. Dr. Gunni: Ég myndi segja að þetta væri frábær ástæða til að hafa gott partí. Dr. Gunni, hvað fannst þér um búningana sem Eiríkur var í þegar Icy-tríóið söng Gleðibankann og hefur þú fylgst með skyrtutísku doktorsins, Eiríkur? Dr. Gunni: Ég var auðvitað mjög andfélagslegur árið 1986 þannig að ég horfði ekkert á þetta svo búningarnir fóru alveg fram hjá mér. Eiríkur: Búningarnir okkar þá eru auðvitað bara frábær saga og segja má að þjóðfélagið hafi hrein- lega farið á hvolf. Þetta gekk svo langt að einhver reyndi meira að segja kenna mér og Pálma að dansa sem var auðvitað gjörsam- lega misheppnað. En hvað skyrt- urnar hans Gunna varðar þá hefur það farið fram hjá mér eins og svo margt sem hefur gerst meðan ég var úti. Dr. Gunni: Þú verður auðvitað að gera þér grein fyrir því að þú ert að tala við Norðmann. Eiríkur: Já, ég man samt eftir Gunna í Svarthvítum draumi, Bensínskrímslið skríður var mjög gott lag. Dr. Gunni: Já, sko. Og ég á meira að segja eina plötu með Start. Hver haldið þið að muni veita ykkur harða samkeppni? Dr. Gunni: Friðrik Ómar og Jónsi. Annars er erfitt að spá í það. Eiríkur: Ég er svo heppin að þar sem ég bý erlendis hef ég aðeins heyrt þau lög sem voru í mínum riðli. En ég hef heyrt marga segja að Heiða og Dr. Gunni eigi góða möguleika. Verður þetta mikið andlegt álag? Eiríkur: Ég held bara mínu striki, finn mér einhvern glugga og næ mér í síðasta smók rétt fyrir úrslit. Annars er þetta bara Eurovision og fólk verður að gera sér grein fyrir því að andlega álagið felst í því að ætla að hlusta á næstum 40 Eurovisionlög í partíinu, það kemst enginn heill heilsu frá því. Bara það að þjóðin fari ekki í ein- hverja gleðibankageðveiki. Dr. Gunni: Sem gerist samt alltaf, sama hversu oft við lendum í 16. sæti. En já, það er mjög nauðsyn- legt að taka margar, margar klósettpásur þegar horft er á keppnina heima í stofu. Enga gleðibankaveiki Hvernig tekst tveimur rauðhærðum rokkurum, einum síðhærðum og öðrum sköllóttum, að vera ofursvalir en syngja samt og semja fyrir Eurovision? Júlía Margrét Alexandersdóttir hitti þá Eirík Hauksson og Gunnar Hjálmarsson, betur þekktan sem Dr. Gunna, sem sögðu Eurovision vera gott og skondið kampavínspartí.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.