Fréttablaðið - 17.02.2007, Side 54

Fréttablaðið - 17.02.2007, Side 54
 17. FEBRÚAR 2007 LAUGARDAGUR12 fréttablaðið eurovision Umsjónarmaður stærstu Euro- vision-aðdáendaheimasíðu heimsins, Barry Viniker, verður sérstakur gestur á úrslitakvöldi íslensku Eurovision-undan- keppninnar. Hann hefur verið aðdáandi hátíðarinnar frá árinu 1985 en hann segir að Ísland sé eitt af sínum uppá- haldsþátttakendum í keppn- inni. Barry var aðeins fimm ára gamall þegar hann fyrst byrjaði að hafa áhuga á Eurovision. Það var árið 1985, þegar Bobbysocks frá Noregi komu, sáu og sigruðu. „Þetta norska lag var fullkomið fyrir fimm ára dreng. Lagið var svo grípandi að ég var heltekinn af því í um það bil ár. Síðan þá byrjaði ég að fylgjast með á hverju ári, byrj- aði síðan að skrifa um keppnina, gekk til liðs við heimasíðuna (www. esctoday.com) og stjórna henni núna. Þetta hefur rúllað eins og snjóbolti og í ár heimsæki ég sem dæmi undankeppnir í níu löndum og skrifa um þær á heimasíðunni.“ Barry er ekki alveg viss hversu oft hann hafi mætt á sjálf úrslitin en finnst líklegt að heimsóknirnar séu orðnar átta. Hann hefur þó eingöngu tvisvar verið á staðnum á sjálfu úrslitakvöldinu þar sem honum finnst algjörlega nauðsyn- legt að sjá útsendinguna hjá BBC, þar sem Terry Wogan hefur lýst keppninni síðan árið 1980. Spurður um uppáhaldsúrslita- kvöld segir Barry að nokkur komi til greina. „Árið 1985, því það var mín fyrsta keppni og þá unnu Norðmenn líka í fyrsta skiptið. 1991, því þar var virkilega spenn- andi keppni á milli Svíþjóðar, Frakklands og Ísraels. Dana Inter- national árið 1998 var einnig mjög minnisstæð. Eftir að þátttakend- um var fjölgað í keppninni er spennan hins vegar aldrei eins mikil og hún var alltaf.“ Barry er nokkuð fylgjandi því að núverandi formi verði breytt, það er að segja að undanúrslitakvöldið verði skipulagt öðruvísi því að minni spámenn á borð við Ísland, Portú- gal og Belgíu eiga þar erfitt upp- Vill Siggu Beinteins aftur í Eurovision Barry Viniker, umsjónarmaður stærstu Eurovision-aðdáendasíðunnar á netinu, www.esctoday.com, ásamt hetjunum sínum í Bobbysocks sem hann hitti í undankeppninni í Noregi á þessu ári. FRÉTTABLAÐIÐ/ dráttar. Annars segist Barry afar ánægður með sjálft úrslitakvöldið á laugardeginum. Barry er á leið hingað til lands í fyrsta skiptið en hann hefur lengi fylgst vel með undankeppninni hérlendis. Uppáhaldsframlag Íslendinga til Eurovision er að mati Barry Nætur, með Siggu Beinteins, en hún er í sérstökum metum hjá Barry. „Mér hefur líkað vel við öll lögin hennar í Eurovision. Ég vona bara að hún prófi að keppa einu sinni til við- bótar. Henni hefur gengið afskap- lega vel til þessa og Íslendingar þurfa á góðum úrslitum að halda á næstum tveimur árum.“ Barry hefur hlustað á öll lögin sem keppa í íslensku undan- keppninni í ár og líst vel á. Hann segir að nokkur laganna eigi góðan möguleika á að komast til Helsinki en er ekki tilbúinn að gefa upp hvaða lög það eru. Með tilliti til sigurvegara í aðalkeppn- inni undanfarin ár telur Barry samt nokkuð víst að venjulegt Júró-popp eða ballaða muni standa uppi sem sigurvegari í Helsinki. En af hverju er Eurovision svona vinsælt? „Af því að það er skemmtilegt og kitsch. Þetta er búið að vera í gangi í 52 ár og allt sem nær að halda út svo lengi þróar með sér költ-aðdáendahóp,“ segir Barry að lokum, hýr á brá. steinthor@frettabladid.is Hver er maðurinn? Ég hef haft tónlist sem aðalatvinnu. Ef ég ætti að lýsa mér sem einstaklingi þá myndi ég segjast vera fókuserað- ur, opinn, sanngjarn, jákvæður og sigurstranglegur! Áður í Eurovision? Ég varð í þriðja sæti í þessari keppni í fyrra en það er í eina skipti sem ég hef tekið þátt. „Það sem verður“ hét það lag. Í fyrra átti ég líka lag sem Geir Ólafsson söng. Hvernig tónlist hlustarðu á? Ég hlusta mikið á gamla tónlist eins og Elvis og Van Morrison. Svo hlusta ég á það sem er að gerast í dag. Hvernig undirbýrðu þig fyrir kvöldið í kvöld? Ég ætla að ein- beita mér að því að ná fullri heilsu og fara í þetta með rétta hugarfar- ið. Vera rétt einbeittur til að syngja fyrir fólkið heima í stofu. Annars er ég ekki hlynntur miklum breyt- ingum fyrir svona. Ég lifi heil- brigðu lífi þannig að þetta er allt í góðu. Hvað gerirðu ef þú sigrar í kvöld? Ég ætla að garga úr mér lungun. Ég hef fylgst með Euro- vision síðan ég man eftir mér og er mikill áhugamaður um keppnina. Þetta er mér mikið hjartans mál. Ég ætla að fara fyrir hönd þjóðar- innar og gera þetta með stæl. Ég er fullviss um að þetta sé lagið sem geti komið okkur upp úr undanriðl- inum. Besta íslenska Eurovisionlag allra tíma? Það er Nína. Hjartans mál að sigra 900 2001 Titill: Eldur Flytjandi: Friðrik Ómar Höfundur: Grétar Örvarsson, Kristj- án Grétarsson Texti: Ingibjörg Gunnarsdóttir Grímur kokkur ehf | sími 481 2665 | grimurkokkur@grimurkokkur.is | www.grimurkokkur.is Munið eftir bolludeginum mánudaginn 19. febrúar Gríms fiskibollur eru hollar og góður kostur fyrir þá sem hugsa um heilsuna. þær eru fulleldaðar og þarf aðeins að hita upp í ofni eða á pönnu og innihalda aðeins um 1% fitu.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.