Fréttablaðið - 17.02.2007, Page 102

Fréttablaðið - 17.02.2007, Page 102
!óíbí.rk045 Gildir á allar sýningar í Regnboganum merktar með rauðu SÍMI 564 0000 SÍMI 551 9000 SÍMI 462 3500 NOTES ON A SCANDAL kl. 3, 6, 8 og 10 B.I. 12 ÁRA PAN´S LABYRINTH kl. 3, 5.45, 8 og 10.15 B.I. 16 ÁRA ANNA AND THE MOODS ENSKT TAL kl. 3, 4 og 5 STUTTMYND / ÓTEXTUÐ LITTLE CHILDREN kl. 8 og 10.30 B.I. 14 ÁRA LITTLE MISS SUNSHINE kl. 3, 5.50, 8 og 10.10 B.I. 7 ÁRA KÖLD SLÓÐ/COLD TRAIL kl. 5.45 ENGLISH SUBTITLES B.I. 12 ÁRA GHOST RIDER kl. 5.30, 8 og 10.30 B.I. 12 ÁRA SÝND Í LÚXUS kl. 3, 5.30, 8 og 10.30 NOTES ON A SCANDAL kl. 8 og 10 B.I. 12 ÁRA THE PURSUIT OF HAPPYNESS kl. 5.30, 8 og 10.30 ANNA AND THE MOODS ENSKT TAL kl. 1, 2, 3, 4 og 4.45 STUTTMYND / ÓTEXTUÐ ANNA & SKAPSVEIFLURNAR ÍSL. TAL kl. 1, 2, 3, 4 og 4.45 STUTTMYND ROCKY BALBOA kl. 8 og 10.20 B.I. 12 ÁRA VEFUR KARLOTTU ÍSL. TAL kl. 1 og 3.10 NIGHT AT THE MUSEUM kl. 1, 3.20 og 5.40 KÖLD SLÓÐ kl. 5.45 B.I. 12 ÁRA GHOST RIDER kl. 5.40, 8 og 10.15* B.I. 12 ÁRA THE PURSUIT OF HAPPYNESS kl. 8 og 10.20 ANNA & SKAPSVEIFLURNAR ÍSL. TAL kl. 3.40, 4.20 og 5 STUTTMYND DREAMGIRLS kl. 5.40 NIGHT AT THE MUSEUM kl. 3.40 *KRAFTSÝNING MIÐASALA Í SMÁRABÍÓ OG REGNBOGANN Á HEIMSFRUMSÝNING SVALASTA SPENNUMYND ÁRSINS ÓSKARSVERÐLAUNA TILNEFNING1 Kvikmyndin Dreamgirls segir sögu þriggja ungra blökkukvenna í Bandaríkjunum í kringum 1960 sem eiga sér þann draum heitastan að slá í gegn sem söngkonur. Þegar þær fyrir tilviljun rekast á hinn orðlipra umboðsmann Curtis Taylor virðist frægðin á næsta leiti. Leiðin á toppinn er hins vegar þyrnum stráð. Dreamgirls var upprunalega söngleikur sem átti vinsældum að fagna á níunda áratug síðustu aldar. Hann er lauslega byggður á ferli Díönu Ross og árum hennar með sönghópnum The Supremes, en sagan segir að Díönu sé meinilla við myndina á meðan stalla hennar úr sveitinni, Mary Wilson, segir mynd- ina nær sannleikanum en fólk gruni. Leikstjóri myndari, Bill Condon, hefur mestmegnis starfað sem sjón- varpsleikstjóri, en á að baki ágætis- mynd eins og Kinsey frá 2004 ásamt því að vera einn af handritshöfun- um á söngleikjamyndarinnar Chi- cago. Stjörnurnar sem prýða myndirn- ar eru ekki af verri endanum. Bey- oncé Knowles, Eddie Murphy, Danny Glover og Jamie Foxx gera öll hlutverkum sínum góð skil. Ameríska Idol-stjarnan Jennifer Hudson er þó kannski sú sem fær bitastæðasta hlutverkið sem Effie White, sem er bolað úr sveitinni þrátt fyrir að vera sú sem syngur best. Margir söngleikir hafa litið dags- ins ljós í bíóhúsunum síðustu árin þar sem hæst tróna Chicago og Moulin Rouge. Dreamgirls hefur alla burði til að vekja sömu aðdáun en tekst því miður ekki. Myndin fer í allt of margar áttir. Hún segir í senn dramatíska sögu þessara ungu kvenna og lífsförunauta þeirra á tíu ára tímabili, gerir tónlistarstefnu þessa tíma skil og fjallar um rétt- indabarátta blökkumanna þar sem Martin Luther King Jr. þrumar ræður í bakgrunninn. Efnistökin eru of umfangsmikil, persónusköp- un er einföld og óáhugaverð og oft á tíðum er óljósum söguþræði bjarg- að fyrir horn með því að láta fólk bresta í söng í miðju samtali. Aðdá- endur sálartónlistar fá sannarlega eitthvað fyrir sinn snúð en á heild- ina litið er myndin ekkert til að hrópa húrra fyrir. Draumur um frægð Leikkonan Scarlett Johansson tók á móti verðlaunum sem kona ársins af Hasty Pudding-leik- listarsamtökunum í Harvard á dögun- um. Gert var grín að Scarlett á ýmsan máta, m.a. með frægri ljósmynd sem birtist af henni nakinni á for- síðu tímaritsins Vanity Fair. Scarl- ett tók samt öllu saman með bros á vör. „Takk kærlega fyrir verð- launin. Þetta hefur verið frábær dagur. Þetta er það næsta sem ég kemst því að útskrifast frá Har- vard,“ sagði Scarlett. „Þetta er mikill heiður og ég get ekki beðið eftir partíinu sem verð- ur í kvöld.“ Scarlett, sem er 22 ára, hefur leikið í myndum á borð við Lost in Trans- lation, The Girl with a Pearl Earr- ing, Match Point og The Black Dahlia. Ben Stiller tekur við verðlaun- um sem maður ársins hjá Hasty Pudding þann 23. febrúar. Verð- launin fá þeir listamenn sem hafa haft mikil áhrif á skemmtanaiðn- aðinn. Þeir sem fengu verðlaunin á síðasta ári voru Halle Berry og Richard Gere. Scarlett kona ársins Virðing Réttlæti F í t o n / S Í A VR | KRINGLUNNI 7 | 103 REYKJAVÍK | S. 510 1700 | F. 510 1717 | WWW.VR.IS Pssst! Taktu þátt. Og láttu skilaboðin ganga. Fyrirtæki ársins er árleg könnun VR á aðbúnaði og ánægju starfsfólks íslenskra fyrirtækja. Mikilvægt er að sem flestir taki þátt, því þannig fæst skýrari mynd af stöðu vinnustaðar þíns í samanburði við aðra. Skilafrestur er til 20. febrúar næstkomandi.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.