Tíminn - 05.11.1994, Blaðsíða 14
14
Laugardagur 5. nóvember 1994
JÖNA RUNA á mannlegum nótum:
Kaldhæöni
Hvers kyns samneyti viö abra er
partur af daglegu lífi okkar allra
og eölilega gengur það misjafn-
lega fyrir sig. Samskipti eru vit-
anlega mismunandi náin og
oftar en ekki erum við með alls
konar sviðsetningar á sjálfum
okkur, til að þurfa ekki að vera
of innileg og kampagleið við
aðra. Við setjum upp margs
konar grímur af ólíkum tilefn-
um og alltof algengt er ab hvers
kyns kaldhæðni sé of áberandi
þáttur í samskiptum okkar við
skylda sem óskylda. Ef við finn-
um okkur óörugg, þá bregðum
við gjarnan upp einhverjum
grímum sem eiga ab tryggja
okkur fyrir því að aðrir geti get-
ib sér til um öryggisleysi okkar
og vanmátt. Við breiðum
kannski óþarflega úr okkur á
gráglettinn eða meinlegan máta
og látum eins og vib séum öðru
fólki öruggari í öllum tilvikum
með napuryrtum athugasemd-
um eða vísbendingum.
Við getum ekki ætlast til aö
aðrir finni á sér hvernig við er-
um eba hvers við væntum af
þeim, ef við erum sífellt að fela
okkur á bak við gráglettna
brandara og háðskt orðagjálfur,
sem gefur, þegar betur er að
gáð, alranga mynd af okkur og
er nöturlegt og fráhrindandi í
þokkabót. Við verðum að þora
að vera opin og elskuleg í sam-
skiptum. Þannig eigum við kost
á allt annarri og ögn skemmti-
legri framkomu annarra, en ef
vib erum kaldranaleg og forpok-
uð og látum engar tilfinningar í
ljós sem gefa vísbendingu um
hlýju eða áhuga á viðkomandi.
Best er sú útgeislun frá okkur
sem hrífur aðra með okkur á vit
þess atferlis í samskiptum sem
er viðmótsþýtt og ylríkt. Þaö er
vandasamt að vera friðsamur og
jákvæbur og ennþá meiri vandi
finnst okkur sumum ab vera
einlæg og opinská í miklu ná-
vígi við aðra. Ef við viljum
vinna að hvers kyns keppikefl-
um, sem miba að því að aörir
nálgist okkur eins og þeir eru í
raun hið innra, er trúlegt ab við
sjálf getum aukið líkur á þannig
samskiptum við abra með góð-
um vilja til þess arna. Árangurs-
ríkast er trúlega ab við veljum
sjálf að uppræta allt það fram-
ferði sem er meinlegt og sær-
andi í samskiptum. Ef vib velj-
um að vera brynjuð og óupplýs-
andi, eigum viö litla möguleika
á því að aðrir nálgist okkur eins
og þeim er eðlilegt. Trúlega
reyna þeir þá fremur að nálgast
okkur eins og þeir halda aö okk-
ur sé þóknanlegt.
Nöturlegt atferli er afleitt, en
algengt hjá þeim sem þora ekki
að vera þeir sjálfir. Geigyrtir og
háðskir einstaklingar eru venju-
legast viðkvæmir einstaklingar.
Þeir eru því oftar en ekki bæði
sárlyndir og óeðlilega meðvit-
aðir um mögulegt vanmat ann-
arra á persónu þeirra. Þetta er
atferli sem þeir reyna oftast að
fela og þeir eru því iðulega kald-
hæðnir og fráhrindandi, öðrum
til leiðinda.
Best væri ab vib veldum að
kasta kaldlyndinu, en gæfum
elskunni í sálartetrinu aukið
svigrúm í öllum samskiptum
sem skipta okkur máli. Nötur-
legt fólk er óviðkunnanlegt, en
ylríkt fólk er vibmótsþýtt, enda
góögjarnt og jákvætt.
mmm krossgatan nr. 42
gfS Leikskólar
\|l Reykjavíkurborgar
Óskum að ráða leikskólakennara eða annað uppeldis-
menntað starfsfólk í störf í neðangreinda leikskóla:
Holtaborg v/Sólheima, s. 31440
Fálkaborg v/Fálkabakka, s. 78230
Múlaborg v/Ármúla, s. 685154
Vesturborg v/Hagamel, s. 22438
Ægisborg v/Ægisíbu, s. 14810
í 50% starf e.h.:
Fálkaborg v/Fálkabakka, s. 78230
Kvistaborg v/Kvistaland, s. 30311
Einnig vantar leikskólakennara, þroskaþjálfa eða starfs-
mann með aðra uppeldismenntun í 50% stuðnings-
starf í leikskólann Árborg v/Hlaðbæ, s. 874150.
Nánari upplýsingar gefa viðkomandi leikskólastjórar.
Leikskólar Reykjavíkurborgar eru reyklausir vinnustaðir.
Dagvist barna
Hafnarhúsinu, Tryggvagötu 17, sími 27277
LAUSN A GATU NR. 41
B
77
A
n
L
o
K
77
k
A?
L
J
77
R
U
K
tí
'A
L
frno'F |
u
N
6
71
77
A
u
A
Æ T
R
A
F
T
-Ð
£
N
T
Æ
0
77
T
A
VMð-
ktfiAO I
u
LK
L
Æ
A
77
/7
Gr
R
A
Kí
A?
L
K
N
K
K
T
T
77
N
77
£
N
i-:lskaA
Tónr
/}
N
N
K
K
Æ
e
n
r
A
K
'o
H
T
AHC.M
GRÖrlrt
M
T
A
U
'I
K
Æ
rÍLL
Æ
u
M
A?
TK
Ú
Æ
T
K
0
T
N
K
Nu 0
A
K
'A
T
'0
L