Morgunblaðið - 17.08.2006, Qupperneq 11
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. ÁGÚST 2006 11
FRÉTTIR
25-50%
afsláttur
Finnurðu ekki stærðina þína?
Eiðistorgi 13, 2. hæð á torginu Sími 552 3970
Saumum buxur eftir pöntun
Tilbúnar stærðir 38-50 eða sérpöntun
Opið:
mán.-fös.
kl. 14-18.
buxur.is
FASTEIGNAKAUP ERLENDIS - HAGNAÐUR EÐA TAP?
ÁNÆGJA EÐA VONBRIGÐI?
Námskeið um fasteignakaup erlendis verður haldið
þriðjudaginn 22. ágúst kl. 16-19 á
Hótel Sögu. Verð kr. 18.000.
• Vissir þú að verð á fasteignum í Evrópu hefur hækkað um 125% sl. 5 ár?
• Vissir þú að kostnaður við kaup á fasteign á Spáni og Frakklandi er frá 10-20%?
• Vissir þú að það má ekki bera leigjanda út í Frakklandi að vetrarlagi, jafnvel þótt hann
hafi aldrei borgað húsaleigu og hafi skemmt íbúðina þína?
• Farið verður yfir hagnýt atriði, sem gagnast öllum sem huga að fasteignakaupum erlendis.
Námskeiðið fjallar um eftirtalin atriði
Hvaða atriðum þarf að huga að þegar keypt er fasteign á erlendum mörkuðum.
1. Markmið með kaupunum, fjárfesting eða heimili.
2. Bein fasteignakaup - kostir og ókostir.
3. Framgangsmátinn við að kaupa.
4. Nýtt húsnæði eða notað, að hverju þarf að huga.
5. Skattaleg atriði sem hafa þarf í huga.
6. Nokkur algeng mistök sem kaupendur gera.
7. Spár um hækkanir á næstu árum.
8. Fasteign sem hluti af eignasafni.
Erlendir markaðir sem farið er yfir:
Frakkland, Spánn, Ítalía, Austur-Evrópa, Marokkó og nokkrir framandi markaðir.
Fyrirlesarar:
Brynhildur Sverrisdóttir, MBA og löggiltur verðbréfamiðlari, sem hefur mikla
reynslu af fjárfestingum í verðbréfum og fasteignum erlendis.
Aðalheiður Karlsdóttir, B.ed. og löggiltur fasteignasali.
Vinsamlega tilkynnið þátttöku á netfang: ak@simnet.is eða brynhildur@btinternet.com
KARL Tómasson, oddviti Vinstri-
grænna og forseti bæjarstjórnar
Mosfellsbæjar, vísar því á bug að
Vinstri grænir séu ekki umhverfis-
sinnaðir, en í grein Önnu Sigríðar
Guðnadóttur, varaformanns Sam-
fylkingarinnar í Mosfellsbæ, á vef
Samfylkingarinnar, segir að instri
grænir hafi tvívegis haft tækifæri til
þess að standa við yfirlýsta stefnu
sína í umhverfismálum og taka af-
stöðu með umhverfinu en í bæði
skiptin ákveðið að beygja sig að fullu
undir stefnu samstarfsmanna sinna í
meirihluta, þ.e. sjálfstæðismanna, og
greitt atkvæði gegn tillögum Sam-
fylkingarinnar varðandi tengibrautir
við og yfir Varmána.
Karl segist furða sig á þessum
fullyrðingum þeirra. „Lagning þess-
arar tengibrautar í Álafosskvos var
samþykkt löngu fyrir tíð Vinstri-
grænna í bæjarstjórn Mosfellsbæj-
ar,“ og bætti því við að Samfylkingin
hefði getað komið í veg fyrir lagn-
ingu hennar á síðasta kjörtímabili.
„Oddviti Samfylkingarinnar hefur
greitt atkvæði sitt með lagningu
þessarar brautar alveg fram á dag-
inn í dag. Ekki gerði hann athuga-
semdir við lagningu þessarar braut-
ar á síðasta kjörtímabili,“ og bætti
Karl því við að brautin væri í aðal-
skipulagi sem í gildi væri til 2024 en
hugmynd hennar væri frá stjórnar-
tíð Framsóknarflokksins og G-lista
vinstri manna sem voru við völd á ní-
unda áratugnum.
Pirringur yfir samstarfi
Karl sagðist í samtali við blaða-
mann jafnframt furða sig á pirringi
Samfylkingarinnar í garð Vinstri-
grænna eftir að meirihlutaviðræður
þeirra fóru út um þúfur eftir síðustu
kosningar: „Ég furða mig á því hvað
Samfylkingin ætlar að verða þolin-
móð við að vera í fýlu yfir því að hafa
ekki náð að komast í meirihluta í
Mosfellsbæ, Vinstri grænir stóðu
ekki í vegi fyrir því. Þau hafa verið
afskaplega ötul við að skrifa í bæj-
arblaðið um þetta samstarf sem virð-
ist fara mjög fyrir brjóstið á þeim og
þau virðast seint þreytast á því velta
sér upp úr því. Það er eins og það
verði allt vitlaust þegar Vinstri
hreyfingin – grænt framboð fer í
samstarf við Sjálfstæðisflokkinn en
það virðist vera í góðu lagi þegar
aðrir flokkar gera það. Hver er hug-
myndafræðin á bak við það?“
Varaformaður Samfylkingar í Mosfellsbæ
sakar VG um að víkja frá umhverfisstefnu
Oddviti VG vísar
gagnrýni á bug
Morgunblaðið/Kristinn
LANDSSAMTÖK sauðfjárbænda
hafa gefið út viðmiðunarverð sem
gildir til 1. júlí en nú er sum-
arslátrun í algleymingi og sauð-
fjárbændur forvitnir um hversu
hátt verð fæst fyrir afurðirnar.
Samkvæmt vefsíðu Bændasam-
takanna hækkar verðskráin um
10% frá því í fyrra og gildir það
um alla flokka nema kjöt af full-
orðnu sem hækkar um 17%. Rétt
er að taka það fram að verðskráin
birtir lágmarksverð.
Þá er gengið út frá því að út-
flutningsverð nái 220 krónum á kg
en landbúnaðarráðherra hefur
ákveðið að útflutningsskylda
haustið 2006 verði 4% til og með
9. september, muni þá hækka í
10% en lækka niður í 4% 12. nóv-
ember.
Viðmiðunar-
verð sauðfjár-
afurða hækk-
ar um 10%
Fréttir á SMS
Samfylkingin óskar eftir
fundi í allsherjarnefnd
Vilja ræða
fangelsismál
„NÚ ER svo komið að fangelsi
þjóðarinnar eru yfirfull og fram
hefur komið í fréttum að í fyrsta
skipti í 20 ár hafi þurft að vísa frá
beiðnum um gæsluvarðhald. Við
þessu þarf að bregðast og því vilja
fulltrúar Samfylkingar ræða það
alvarlega ástand sem skapast hef-
ur m.a. vegna aðgerðarleysis
dómsmálaráðherra,“ segir í til-
kynningu Samfylkingarinnar en
fulltrúar hennar í allsherjarnefnd
hafa óskað eftir fundi hið fyrsta til
að ræða það ófremdarástand sem
upp er komið í fangelsismálum
þjóðarinnar.
♦♦♦