Morgunblaðið - 04.12.2007, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 04.12.2007, Blaðsíða 4
4 ÞRIÐJUDAGUR 4. DESEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR FJÓRIR þurrir dagar voru í Reykja- vík í nóvember. Úrkoman var 55 pró- sentum yfir meðallagi fyrir nóvember sem er álíka mikið og árið 2004, en ekki hefur mælst meiri úrkoma síðan 1993. Það kemur því ekki á óvart að alauð jörð var í borginni allan mánuðinn og sólarstundir fáar, aðeins 25, en þær eru 39 að meðaltali í nóvember. Í skammdeginu og rigningarveðrinu var þó ögn hlýrra en venjulega á þess- um árstíma, en meðalhiti var 3,1 stig, en hefur að meðaltali verið 1,1 stig. Ef október og nóvember eru skoð- aðir saman kemur í ljós að þessir mánuðir hafa ekki verið jafn úrkomu- samir í Reykjavík síðan árið 1993 og þar á undan 1958, segir í upplýsingum Veðurstofunnar. Á Akureyri var hinsvegar óvenju þurrt, aðeins fjórðungur af meðalúr- komu hefur fallið á Eyfirðinga síðast- liðinn mánuð. Minni úrkoma hefur ekki verið á þessum slóðum síðan 1952. Úrkoma haustsins er þó í með- allagi þegar síðustu tveir mánuðir eru lagðir saman, því óvenju úrkomusamt var nyrðra í október. Alhvít jörð var í fjóra daga en flekkótt nokkra til viðbótar. Akureyr- ingar nutu einnig fimm fleiri sólar- stunda en að jafnaði. Aðeins fjórir þurrir dagar Morgunblaðið/Frikki Rigning Reykvíkingar hafa haft drjúg not af regnhlífum í haust SJÚKLINGAR sem þurfa á áfengis- og vímuefna- meðferð að halda þurfa að taka þátt í kostnaði vegna greiningar og eftirskoðunar sem og vegna göngudeildarþjónustu og eftirmeðferðar sam- kvæmt minnisblaði sem formaður samninga- nefndar heilbrigðisráðherra lagði fram á fundi með forsvarsmönnum SÁÁ nýverið. Þar kemur fram að afeitrunarmeðferð á sjúkrahúsi sé sjúk- lingi að kostnaðarlausu eða niðurgreidd að fullu í samræmi við gjaldskrá ráðherra. Gjaldskráin mið- ast við tiltekinn meðalkostnað á hvern innlagn- arsólarhring. „Ég sé ekki betur en að þarna sé verið að boða kostnaðarauka fyrir sjúklingana,“ segir Þórarinn Tyrfingsson, yfirlæknir á Vogi. „Sjúklingar geta þurft að greiða fyrir hluta afeitr- unarmeðferðar og síðan fyrir endurhæfingu, sem fram hefur farið á Staðarfelli og Vík.“ Önnur ný- mæli samkvæmt minnisblaðinu, sem fjallar um greiðsluþátttöku TR vegna áfengis- og vímuefna- meðferðar, eru þau að afeitrunarmeðferð skal byggð á tilvísun læknis. Innan 14 daga eftir að meðferð hefst skal meðferðaraðili meta árangur- inn og gera tilvísunarlækni grein fyrir niðurstöð- unni. Á þeim grunni tekur læknirinn afstöðu til framhaldsins. Næsti fundur í samninganefndinni er í dag. „Þetta er alveg ný nálgun,“ segir Þórarinn. Undanfarin sex ár hefur SÁÁ síðan fengið fjár- magn með þjónustusamningi. Sá samningur sem verið hefur í gildi undanfarin sex ár rennur út nú um áramótin. „Við höfðum gengið út frá því að samið yrði á sömu nótum,“ segir Þórarinn. „En allt í einu núna, korteri fyrir þriðju umferð fjár- laga, þá kemur þetta útspil frá samninganefndinni sem ekki verður skilið á annan hátt en þann að menn hafi ekki vilja til að ná samningum strax. Þetta er einhver skógarferð sem við vitum ekki hvar endar.“ Þórarinn segir marga þætti óljósa varðandi þá útfærslu sem samninganefndin boðar. Vonast hann til að fá skýringar á fundi nefndarinnar í dag. Þórarinn segir helsta vandann felast í frum- varpi til fjárlaga fyrir næsta ár. „Í fjárlögunum er SÁÁ og starfsfólki þess sýnd gríðarleg lítilsvirðing,“ segir Þórarinn. „Fjárhæð- in er mun lægri en það sem við fengum til starf- seminnar 2005 miðað við verðlag. Það vantar um 170 milljónir upp á að við getum sinnt okkar verk- efnum.“ Þórarinn segir SÁÁ hafa átt á brattan að sækja fjárhagslega vegna nýrra verkefna og kostnaðar- auka. M.a. sé kostnaður vegna nýrra lyfja og nýrra aðferða mikill. „Svo hefur orðið gríðarleg aukning á þeim verkefnum sem við höfum þurft að sinna,“ segir Þórarinn og bendir á að sjúkrahús bæði á landsbyggðinni og á höfuðborgarsvæðinu hafi dregið úr þjónustu við áfengissjúka. „Ef fjár- lögin verða ekki leiðrétt með tilliti til þessa erum við í mjög mikum vanda.“ „Skógarferð sem við vitum ekki hvar endar“ Í HNOTSKURN »Fjármögnun SÁÁ var á árum áður ígegnum TR samkvæmt daggjaldakerfi. Síðan vildu menn einfalda kerfið og koma á fastri fjárveitingu. »Undanfarin sex ár hefur SÁÁ síðanfengið fjármagn með þjónustusamningi. »Sá samningur sem verið hefur í gildiundanfarin sex ár rennur út nú um ára- mótin. Samninganefnd leggur til að áfengissjúkir taki þátt í kostnaði við eftirmeðferð ÓLAFUR F. Magnússon, borgarfulltrúi F- lista, Frjáls- lyndra og óháðra, verður kosinn forseti borgarstjórnar á fundi hennar í dag. Hann mun jafnframt taka sæti í borgarráði. Margrét Sverrisdóttir, varaborg- arfulltrúi F-lista, sem leyst hefur Ólaf af í veikindum hans mun áfram gegna formennsku í menn- ingar- og ferðamálaráði auk þess sem hún á sæti í umhverfisráði. Verður for- seti borg- arstjórnar Ólafur F. Magnússon Morgunblaðið/Sverrir VEGGURINN sem var reistur til að fela brunarústir húsanna á horni Lækjargötu og Austurstrætis hefur heldur betur látið á sjá undanfarnar vikur og óhætt að segja að hann sé orðinn til vansa fyrir borgina. Til stendur að skipta um klæðningu á veggnum og er vonast til að því ljúki fyrir helgi. „Haustrigningarnar fóru með myndina, illu heilli,“ sagði Þor- steinn Bergsson, framkvæmdastjóri Minjaverndar, sem hefur verið borginni innan handar varðandi ýmislegt sem varðar húsin og vegg- inn sem hlífir þeim. Minjavernd ber þó ekki ábyrgð á verkinu, að sögn Þorsteins. Myndirnar voru á dúk sem var límdur við krossviðarplötur en í slagviðrinu í haust gaf sú líming sig og smám saman kvarnaðist úr dúkn- um. Að sögn Þorsteins höfðu vegg- urinn og myndirnar fengið að vera í friði fyrir skemmdarvörgum, allt þar til skemmdir fóru að sjást á veggnum. Eftir það leið skammur tími þar til fyrstu veggspjöldin höfðu verið límd á vegginn. „Með það sama var búið að betrekkja með þeim ófögnuði,“ sagði Þorsteinn. Aðspurður sagði Þorsteinn að engin leyfi hefðu verið veitt fyrir því að veggspjöld yrðu límd þarna upp. Þar með er ljóst að þeir sem límdu spjöldin upp brutu gegn lög- reglusamþykkt Reykjavíkurborgar því þar stendur m.a. að á mannvirki og hluti megi „ekki mála, teikna eða festa auglýsingar, nema með leyfi eiganda eða umráðamanns“. Góð auglýsing það. Morgunblaðið/Friðrik „Búið að betrekkja með þeim ófögnuði“ Veggurinn fékk ekki frið eftir að húsamyndin skemmdist EIGNAMIÐLUN og Nýsir hafa auglýst til sölu þjónustuíbúðir fyr- ir eldri borgara við Suðurlands- braut, þ.e. í Mörkinni í Reykjavík. Alls er um 78 2ja til 4ra herbergja íbúðir að ræða, á bilinu 90-140 fer- metrar. Samkvæmt upplýsingum frá sölumanni Eignamiðlunar, er verð íbúðanna á bilinu 31-61 milljón króna, 2ja herbergja íbúðir á rúm- ar 30 milljónir króna, upp í 4ra herbergja íbúðir á rúmar 60 millj- ónir króna. Þjónustan við íbúðirn- ar verði mikil og innangengt í þjónustumiðstöð, þar sem boðið verði upp á líkamsrækt, heilsulind og fleira tengdu heilsu og vellíðan. Flestar íbúðanna eru þriggja her- bergja og kostar ein slík, 113 fer- metra, rúmar 45 milljónir króna. Fermetraverð er nokkuð breyti- legt og segir sölumaður það fara eftir staðsetningu íbúðanna, íbúðir nálægt Miklubraut verði ódýrari en aðrar, en algengasta verðið sé rúmar 400.000 krónur á fermetra. Nýjar þjón- ustuíbúðir í Mörkinni ♦♦♦ TALSVERT hef- ur verið um veik- indi á leikskólum og vinnustöðum að undanförnu. Samkvæmt upp- lýsingum frá Þórði G. Ólafs- syni, yfirlækni á Læknavaktinni, hafa heimsóknir þangað verið heldur fleiri síð- ustu daga en vanalegt er. Helst sé það streptókokkasýking í hálsi sem leggst á börn og fullorðna þessa dagana, en einnig hefðbundnar umgangspestir. Starfsfólk Læknavaktarinnar hefur að hans sögn vel undan álaginu og hægt er að kalla út aukastarfsfólk eft- ir því sem þarf. Flensan hefur ekki látið á sér kræla, en hún berst yfirleitt til lands- ins í kringum áramótin, þó oftast í byrjun nýs árs. Veikindi með meira móti ♦♦♦

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.