Morgunblaðið - 04.12.2007, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 04.12.2007, Blaðsíða 8
8 ÞRIÐJUDAGUR 4. DESEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR LJÓS voru tendruð á jólatré Kringlunnar í fyrradag við hátíð- lega athöfn. Dorrit Moussaieff for- setafrú kveikti ljósin og Margrét Eir Hjartardóttir og skólakór Kárs- ness sungu við athöfnina auk þess sem jólasveinar mættu á svæðið. Við sama tækifæri hófst góðgerða- söfnun á jólapökkum undir tréð. Jólapakkasöfnun Kringlunnar í samstarfi við Mæðrastyrksnefnd og Fjölskylduhjálp Íslands er árviss viðburður á aðventunni. Íslend- ingar hafa tekið þessari söfnun afar vel og í fyrra gáfu 4.000 viðskipta- vinir í söfnunina, segir í frétta- tilkynningu. Þessum gjöfum deila Mæðrastyrksnefnd og Fjölskyldu- hjálpin út til fjölskyldna sem hafa úr litlu að moða fyrir jólin. Starfs- fólk Fjölskylduhjálparinnar og Mæðrastyrksnefndar metur þörf- ina mikla og á mörgum heimilum gera þessar gjafir gæfumuninn á jólahátíðinni. Skapast hefur skemmtileg hefð hjá mörgum fjöl- skyldum að kaupa „eina gjöf til við- bótar“ þegar farið er í Kringluna pakka henni inn á staðnum og skilja eftir við jólatréð. Íslandspóstur býður þeim sem búsettir eru utan höfuðborgar- svæðisins að koma pökkum í söfn- unina án endurgjalds. Í jólaskapi Dorrit Moussaieff forsetafrú tendraði ljósin á jólatrénu og við sama tækifæri hófst góðgerðasöfnun á jólapökkum. Jólapökkum safnað undir jólatré í Kringlunni DAGUR B. Eggertsson borgarstjóri og Clarence E. Glad, stjórnarfor- maður Reykjavíkurakademíunnar, skrifuðu nýlega undir endurnýjað- an þjónustusamning Reykjavíkur- borgar og Reykjavíkurakademí- unnar. Samningurinn er til tveggja ára og kveður á um að fyrir 4,8 milljónir á ári vinni RA ýmis verk- efni sem RA og Reykjavíkurborg komi sér saman um auk þess sem hluti fjárframlagsins renni til um- sýslu verkefnanna, þ.e. starfs- manns á skrifstofu RA. Reykjavíkurakademían fagnaði tíu ára starfsafmæli sínu síðastliðið vor. Hún hefur frá upphafi notið velvildar og stuðnings borgarinnar. Starfsemin hefur vaxið og dafnað frá því 12 fræðimenn fluttu inn í jafnmargar skrifstofur í JL-húsinu við Hringbraut í nóvember 1998, rúmu ári eftir að félagið var stofn- að. Á síðasta ári var RA gerð að sjálfseignarstofnun. Nú starfa um 80 manns þar innan veggja, í 57 skrifstofum. Samvinna Dagur B. Eggertsson og Clarence E. Glad. Samstarf við akademíuna NORRÆNA ráðherranefndin um atvinnulíf setti baráttu gegn veikindafjarveru í brennidepil árið 2005. Skipaður var vinnuhópur, sem fékk tvö ár til að skoða þróun veik- indafjarvista á Norðurlöndunum, hvað gert hefði verið til að koma í veg fyrir þær og til að afla upplýsinga um það starf sem unnið hefði verið í hverju landi. Í nýju tölublaði Atvinnulífs á Norðurlöndum er fjallað um rannsóknina. Skoðanir á veikindafjarvistum eru mjög mismunandi. Danir eru frjálslynd- astir hvað varðar töku veikindaleyfis, en Finnar og Íslendingar íhaldssam- astir. Flestir voru þeirrar skoðunar að í lagi væri að vera heima vegna kvefs og hita, eða 21 prósent aðspurðra. Verst þótti að vera heima vegna „timb- urmanna“ og mikillar drykkju. Þjóðirnar líta þó fjarveru vegna drykkju mismunandi augum. 86 prósent Norðmanna töldu ekki að fólk ætti að taka veikindadag vegna timburmanna og 71 prósent Finna var á sömu skoðun. Danir frjálslyndastir TENGLAR ................................................................................................. norden.org SEXTÁN tillögur bárust að úti- listaverki sem Samorka og Mos- fellsbær hyggjast láta reisa á nýju torgi við Þverholt í Mosfellsbæ. Til- efni samkeppninnar eru 100 ára af- mæli hitaveitu á Íslandi, sem miðast við frumkvöðulsstarf Stefáns B. Jónssonar á Suður-Reykjum í Mos- fellssveit árið 1908, og 20 ára af- mæli Mosfellsbæjar árið 2007. Samorka vill á þessum tímamót- um einkum beina sjónum fólks að því mikilvæga hlutverki sem heita vatnið hefur gegnt í því skyni að bæta heilsufar og almenn lífsgæði Íslendinga. Er þá horft til þátta á borð við betur kynt hýbýli og því bætt heilsufar, hreinna andrúms- loft (í stað kola- og/eða olíureyks), sundlaugamenningu og þar með aukin tækifæri til útivistar, hreyf- ingar og félagslífs. Nánar á samorka.is Margar tillögur RSE stendur fyrir opnu málþingi um eignarrétt á auðlindum í jörðu í dag, þriðjudaginn 4. desember. Fjallað verður um hverjir eigi auð- lindirnar og hvernig eignarhaldi sé best fyrir komið. Málþingið fer fram á Hótel Sögu (salur Harvard 2. hæð) og hefst kl. 16. Framsögu- menn verða Karl Axelsson, hæsta- réttarlögmaður og dósent við Há- skóla Íslands, og Ragnar Árnason, prófessor við HÍ. Að loknum fram- sögum verða pallborðsumræður. Ásamt framsögumönnum munu Þorsteinn Pálsson, ritstjóri Frétta- blaðsins, Sigurður Líndal, prófess- or við Háskólann á Bifröst, og Birg- ir Þór Runólfsson, dósent við HÍ, taka þátt. Gert er ráð fyrir að fundi ljúki eigi síðar en kl. 18. Auðlindir í jörðu ÞRETTÁNDI loftslagsþing aðildar- ríkja Rammasamnings Sameinuðu þjóðanna um loftslagsbreytingar hófst á Balí í Indónesíu í gær og stendur til 14. desember. Fulltrúar 180 ríkja sitja fundinn ásamt fulltrú- um alþjóðastofnana, félagasamtaka og fjölmiðla. Hægt er að fylgjast með vefútsendingum frá þinginu og nálgast upplýsingar um gang þess á heimasíðu rammasamningsins á slóðinni: www.unfccc.int. Vonast er til að á Balí verði lagður grunnur að samkomulagi um hvað taki við þegar Kyoto-bókunin um takmarkanir á losun gróðurhúsaloft- tegunda fellur úr gildi í lok árs 2012. Stefnt er að því að ljúka þessu samn- ingaferli í Kaupmannahöfn 2009. Þinginu lýkur á ráðherrafundi sem hefst 12. desember. Þórunn Sveinbjarnardóttir umhverfisráð- herra mun sækja ráðherrafundinn fyrir hönd Ís- lands. Aðrir í sendinefnd Ís- lands á þinginu eru Magnús Jó- hannesson, ráðu- neytisstjóri um- hverfisráðuneyt- isins, Anna Kristín Ólafsdótt- ir, aðstoðarkona umhverfisráðherra, Hugi Ólafsson, skrifstofustjóri í umhverfisráðuneyt- inu, Stefán Einarsson, sérfræðingur í umhverfisráðuneytinu, Sveinn Þor- grímsson úr iðnaðarráðuneytinu og Bjarni Sigtryggsson úr utanríkis- ráðuneytinu. Auk þeirra sækja fundinn þeir Árni Finnsson, formaður Náttúru- verndarsamtaka Íslands, Björgólfur Thorsteinsson, formaður Land- verndar, og Pétur Reimarsson frá Samtökum atvinnulífsins. Ramma- samningur Sameinuðu þjóðanna um loftslagsbreytingar var samþykktur í Ríó de Janeiró árið 1992. Markmið hans er að koma í veg fyrir hættu- lega röskun á loftslagskerfinu af mannavöldum, og tryggja þannig að matvælaframleiðslu í heiminum verði ekki stefnt í hættu og að efna- hagsþróun geti haldið áfram á sjálf- bæran máta. Auðvelda á aðlögun Jafnframt er það markmið samn- ingsins að stuðla að alþjóðlegri sam- vinnu um að auðvelda félagslega og efnahagslega aðlögun að loftslags- breytingum. Kyoto-bókunin var samþykkt árið 1997 sem viðbót við rammasamninginn. Samkvæmt henni eru sett bindandi markmið um samdrátt í losun gróðurhúsaloftteg- unda á tímabilinu 2008-2012. Þing um loftlagsbreyt- ingar hófst á Balí í gær Hugi Ólafsson Eftir Ómar Friðriksson omfr@mbl.is „ÞAÐ blasir við að það þarf að tvö- falda veginn á Kjalarnesi og tvöfalda [Hvalfjarðar]göngin miðað við þá umferðaraukningu sem orðið hefur og útlit er fyrir að verði á næstu ár- um,“ segir Gísli Gíslason, stjórnar- formaður Spalar. „Spurningin er sú hvernig menn vilja taka á málinu og hvort menn hafa einhvern hug á því að Spölur komi að því með einhverj- um hætti eða ekki,“ bætir hann við. Afhenda göngin skuldlaus Stjórn Spalar ehf. bíður nú svara frá ríkisstjórninni um mögulega þátttöku Spalar í tvöföldun Hval- fjarðarganga. Stjórnin hefur kynnt Kristjáni L. Möller samgönguráð- herra þrjá kosti sem félagið og rík- isvaldið standi frammi fyrir varðandi málefni Spalar og ganganna vegna uppgreiðslu skulda, gjaldskrár ganganna, hugsanlegrar aðildar Spalar að tvöföldun ganganna og þess verkefnis ríkisins að tvöfalda veginn á Kjalarnesi. Stjórn Spalar ætlar að taka afstöðu til málsins á næstunni og telur hún að það þurfi stjórnvöld sömuleiðis að gera. Þeir þrír kostir sem stjórn Spalar telur að félagið og stjórnvöld þurfi að taka afstöðu til fljótlega eru eftir- taldir: 1. Að gjaldskrá Spalar verði haldið óbreyttri næstu árin. Þannig verði að óbreyttu unnt að ljúka við að greiða skuldir félagsins árið 2015 og afhenda ríkinu Hvalfjarðargöng skuldlaus, þremur árum fyrr en gert er ráð fyrir í samningum. 2. Að innheimta veggjald í Hval- fjarðargöngum út samningstímann, þ.e. til 2018, en lækka gjaldið enn frekar innan tveggja til þriggja ára. 3. Að halda óbreyttu veggjaldi til ársins 2018 og nota umframtekjur af umferðinni til að fjármagna að hluta tvöföldun Hvalfjarðarganga og flýta jafnframt fyrir framkvæmdinni. Niðurstöðu úr kostnaðarmati að vænta í vor Spölur og Vegagerðin undirrituðu samkomulag í janúar á þessu ári um að Spölur hraðaði um 10 ár uppgjöri á 150 milljóna króna skuld við Vega- gerðina og að þessum fjármunum yrði varið til undirbúnings fram- kvæmda við að tvöfalda þjóðveginn um Kjalarnes og gera ný göng undir Hvalfjörð. Vegagerðin leggur 100 milljónir króna til viðbótar í þessa undirbúningsvinnu á árunum 2007 og 2008. Gísli segir að ágæt samvinna eigi sér stað við Vegagerðina varðandi undirbúning, sem hafinn er fyrir nokkru, um rannsóknir og gerð kostnaðarmats. Segir Gísli að búast megi við að skýr mynd af honum geti legið fyrir næsta vor. „Í framhaldi af því fer að halla nærri því að menn hugi að með hvaða hætti eigi að framkvæma þetta. Þá fellur það saman við hvern- ig menn vilja stýra Spalarskútunni áfram,“ segir hann. Á aðalfundi Spalar sagði Gísli aug- ljóst að ef ekki væri áhugi eða sátt um að safna fjármunum til að hefja framkvæmdir við tvöföldun Hval- fjarðarganga næði það mál ekki lengra og myndi Spölur þá ekki huga frekar að undirbúningi þeirrar fram- kvæmdar. „Stefna félagsins yrði þá sú að halda óbreyttu gjaldi og flýta uppgreiðslu lána. Ef óskir eru um það af hálfu ríkisins að lækka veggjaldið og halda innheimtu þess áfram til ársins 2018 myndi stjórn Spalar taka þann þátt til sérstakrar skoðunar,“ sagði hann. 5.470 ökutæki um göngin á dag Umferð um Hvalfjarðargöng hélt áfram að aukast á þessu ári. Frá 1. október í fyrra til 30. september sl. fóru alls 1.996.501 ökutæki um göng- in, sem er 8,94% aukning. Þetta sam- svarar því að um 5.470 ökutæki hafi farið um göngin að meðaltali dag hvern. Á fyrsta rekstrarári Hvalfjarðar- ganga fóru 1.030.778 bifreiðir um göngin en í ár bendir allt til þess að sá fjöldi verði um tvær milljónir bif- reiða. Í nýtútkominni ársskýrslu Spalar er tekið fram að það sé ekki hlutverk Spalar að kveða upp úr um veggjald heldur sé það viðfangsefni ríkisins. Fram kemur að aðeins einu sinni á rekstrartíma Hvalfjarðarganga hef- ur þurft að hækka gjaldskrá félags- ins, en a.m.k. þrisvar sinnum hefur veggjaldið verið lækkað, auk þess sem gerðar hafa verið breytingar á afsláttarkjörum. Gjaldið hefur því á síðustu árum lækkað beint og að verðgildi. Í september sl. voru nettótekjur af hverri bifreið 493 kr. og höfðu þá lækkað frá því í október 2006 úr 515 krónum eða um 4,3% að því er fram kemur í ársskýrslu Spalar. Bíða svars um stækkun Hvalfjarðarganga  Stefnir í metumferð tveggja milljóna bíla um göngin í ár  Ríkið taki afstöðu til þriggja kosta um veggjald og tvöföldun Morgunblaðið/Sverrir Sífellt fleiri Bílum sem aka um Hvalfjarðargöng fjölgar að jafnaði um 13% á ári. Stjórnendur Spalar telja að sá tími renni upp fyrr en varir að umferð- arþungi fari umfram eðlileg mörk. Taka þurfi ákvarðanir um tvöföldun. Í HNOTSKURN » Tekjur Spalar á liðnu fjár-hagsári fóru lítillega yfir einn milljarð kr. Rekstrar- kostnaður nam 229 milljónum og rekstrarhagnaður af reglu- legri starfsemi fyrir skatta var 337 milljónir. » Langtímaskuldir Spalareru nú tæpir 3,6 milljarðar kr. » 11. júlí 2008 verður haldiðupp á 10 ára afmæli Hval- fjarðarganga.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.