Morgunblaðið - 04.12.2007, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 04.12.2007, Blaðsíða 24
24 ÞRIÐJUDAGUR 4. DESEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN VEGNA fréttar í Morgunblaðinu hinn 28.11. 2007 þar sem Vil- hjálmur Egilsson segir að núver- andi réttindakerfi framleiði öryrkja vil ég koma hér á fram- færi nokkrum leiðrétt- ingum sem segja meira um ástandið heldur en flestir gera sér grein fyrir og ég tel það mjög mik- ilvægt að fólk hugsi aðeins út í það sem ég ætla að telja upp hér á eftir hvað það varð- ar. Í fyrsta lagi þá spyr ég úr hvaða stéttum koma öryrkjar helst? Svar: Jú. Úr láglaunastéttum. Og þá af hverju úr þeim? Jú. Vegna þess að fólk þarf að þræla baki brotnu á lægstu laununum í minnst 12 tíma á dag til að eiga í sig og á. Margir hafa jafnvel verið í tveim til þrem vinnum til að geta séð sér og sínum farborða og það að vinna þannig í mörg ár jafnvel áratugi gerir það að verkum að fólk verður að út- slitnum aumingjum langt fyrir ald- ur fram. Einnig sem það er stað- reynd að þegar fólk er sífellt þreytt þá er meiri hætta á slysum eða óhöppum og þó vinnudagurinn sé langur er það ekkert ávísun á meiri afköst starfsmannsins. Reyndar hafa rannsóknir sýnt að sá sem vinnur í 8 tíma afkastar að jafnaði meiru heldur en sá sem vinnur í 10 til 12 tíma. En hverjir eru það sem í raun bera ábyrgð á fjölgun öryrkja? Jú það eru í fyrsta lagi atvinnurek- endur og í öðru lagi verkalýðs- félögin. Hvers vegna? Jú vegna þeirrar stefnu að halda niðri launum og stuðla þannig að óhóf- legri yfirvinnu til að fólk geti haft í sig og á. Stjórnvöld bera einnig ábyrgð á ástandinu með því að vera óábyrg í skatta- málum og þessi sí- fellda skattalækkun skilar þeim lægst launuðu engum ávinn- ingi heldur aðeins þeim sem eru með há- ar tekjur. Þarf ekki stærðfræðiprófessor til að reikna það út því það sér það hver heilvita maður. Hvaða tillögur hef ég svo fram að færa? Jú, það er einfalt. Hækka lægstu laun upp í 200 þúsund á mánuði og hækka skattleys- ismörkin í 160 til 180 þúsund og gera fólki þar með kleift að vinna sína 8 tíma og geta lifað af því. Það yrði að auki atvinnuhvetjandi fyrir þá öryrkja sem hafa getu og áhuga til þess að vinna, en til þess að það geti orðið verður að hækka skerð- ingarmörk örorkubóta verulega til að öryrkjar geti í raun tekið þátt í atvinnulífinu en þau eru nú 350 þúsund. Hvað kemur þetta til með að kosta þjóðfélagið? Því get ég ekki svarað en ég held þegar á heildina er litið þá skili þetta þjóðinni betra starfsfólki, betri framleiðni og það sem meira er að þetta minnkar fá- tækt og skilar okkur að auki fjöl- skylduvænna þjóðfélagi þar sem börnin fá þá að eyða einhverjum tíma á degi hverjum með for- eldrum sínum í stað þess að vera lokuð inni á stofnunum mestan part dagsins. Ég ætla að leyfa mér að segja það aftur að ég tel yfirlýsingu Vil- hjálms Egilssonar rakalaust bull þar sem hann reynir að koma sök- inni á fjölgun öryrkja alfarið yfir á núverandi réttindakerfi og honum væri hollara að skoða hlutina eins og þeir eru en ekki reyna að búa til blóraböggul og þannig reyna að firra sig og umbjóðendur sína þeirri ábyrgð sem þeir raunveru- lega bera á þessu ástandi. Hverjir bera ábyrgð á fjölgun öryrkja? Hrafnkell Daníelsson skrifar opið bréf til samtaka atvinnu- lífsins, atvinnurekenda og verkalýðsfélaga á Íslandi »Margir hafa jafnvelverið í tveim til þrem vinnum til að geta séð sér og sínum far- borða og það að vinna þannig í mörg ár jafnvel áratugi gerir það að verkum að fólk verður að útslitnum aumingjum langt fyrir aldur fram. Hrafnkell Daníelsson Höfundur er öryrki og búsettur í Danmörku. HVERNIG eru starfsstéttir sem vinna með börnum, eða að mál- efnum þeirra, búnar undir það að takast á við mál tengd kynferðislegu ofbeldi gegn börnum? Hvernig búa íslenskir háskólar nemendur sína undir slíkt? Þessum spurn- ingum var leitað svara við í úttekt sem Barna- heill létu gera sumarið 2007. Helstu niðurstöður úttektarinnar eru þær, að alls fjalla 32 nám- skeið í íslenskum há- skólum að einhverju leyti með beinum hætti um kynferðislegt of- beldi gegn börnum, þar af voru 17 í Háskóla Ís- lands. Fimm námskeið í Lögregluskóla ríkisins fjalla um þetta mál. Fjallað var með beinum hætti um kynferðislegt ofbeldi gegn börnum í tæplega 3% námskeiða innan þeirra deilda sem skoðaðar voru. Nám- skeiðin eru jafnmisjöfn og þau eru mörg. Í sumum nám- skeiðanna er umfjöllunin í eina kennslustund en önnur fjalla um kynferðislegt ofbeldi gegn börnum frá ýmsum hliðum og fjalla um barnavernd og aðra skylda þætti. Enga heildstæða stefnu er að finna um kennslu í þessum málaflokki í ís- lenskum háskólum. Það virðist að mestu fara eftir áhuga og þekkingu kennara hvort einhver umfjöllun er um málefnið og með hvaða hætti. Úttektin náði til Háskóla Íslands, Háskólans í Reykjavík, Háskólans á Bifröst, Háskólans á Akureyri og Kennaraháskóla Íslands og einnig til Lögregluskóla ríkisins. Skoðuð voru námskeið innan deilda eða brauta, sem útskrifa fólk sem gera má ráð fyrir að eigi eftir að vinna með börnum eða að málefnum þeirra. Fagfólk í skólakerf- inu, í félags- og heil- brigðisþjónustu, í dómskerfinu og í lög- gæslu er í lykilhlut- verki varðandi for- varnir og fræðslu, varðandi greiningu og þekkingu á einkennum barna sem hafa orðið fyrir kynferðislegu of- beldi, varðandi með- ferð og stuðning við börn og foreldra þeirra og einnig varðandi meðferðarúrræði og refsingu fyrir ger- endur. Góður und- irbúningur í námi hlýt- ur að vera ein af undirstöðum þess að vel takist til í vinnu fagfólks, börnum og samfélaginu til heilla. Barnaheill hafa um árabil unnið að málefnum tengdum kynferð- islegu ofbeldi gegn börnum og telja samtökin mjög mikilvægt að mótuð verði heildstæð stefna í íslenskum háskólum hvað varðar kennslu um barnavernd og um ofbeldi gegn börnum. Á morgun, miðvikudaginn 5. des- ember, boða Barnaheill til hádeg- isfundar þar sem nánar verður fjallað um úttektina og niðurstöður hennar. Á fundinum verður enn fremur fjallað um aðkomu Evr- ópuhóps Barnaheilla að baráttunni gegn mansali. Fundurinn er haldinn í Kornhlöðunni, Bankastræti 2, Reykjavík, frá kl. 12-13 og er öllum opinn. Skráning fer fram á ran- ingvars@barnaheill.is Hvernig er háskólakennslu um kynferðislegt ofbeldi gegn börnum háttað? Margrét Júlía Rafnsdóttir skrifar í tilefni af 16 daga átaki gegn kynbundnu ofbeldi »Enga heild-stæða stefnu er að finna um kennslu í þess- um málaflokki í íslenskum há- skólum. Margrét Júlía Rafnsdóttir Höfundur er verkefnastjóri hjá Barnaheillum. JÓLIN, hátíð barnanna, eru að koma. Tilhlökkun og eftirvæntingu er þó ekki að finna í hjörtum allra barna. Hópur barna kvíðir nefnilega jól- unum. Þar á meðal eru börn foreldris/ foreldra sem eiga við áfengis- og vímuefnavanda að stríða. Í þessari grein langar mig að fjalla sérstaklega um börn foreldra sem hafa litla eða enga stjórn á áfengisneyslu sinni. Um jól drekka þessir foreldrar oft meira en ella þar sem á að- ventunni og jólahátíð- inni eru mannfagnaðir og félagslegar uppá- komur gjarnan tíðari. Í aðdraganda jóla og á jólunum sjálfum líður barni alkóhólistans oft illa. Ástand foreldris sem á við drykkjuvanda að stríða og aðstæður sem það skapar valda því að dýrðarljómi há- tíðarinnar fær á sig grá- an blæ og tilhlökkunin verður kvíðablandin. Sjúkdómurinn alkó- hólismi spyr ekki hvort það er sunnudagur, af- mælisdagur fjölskyldu- meðlims, aðfangadagur jóla eða páskadagur. Börnin sem kvíða nú jólunum vegna drykkjuvanda foreldris eru farin að hugsa um hvernig ástandið verði heima um þessi jól. Sum börn hafa lifað mörg jól þar sem drykkja foreldris hefur sett svartan blett á hátíðina og nú óttast þau að ástandið verði eins um þessi jól. Þau biðja og vona innra með sér að allt verði í lagi enda þótt reynslan hafi e.t.v. kennt þeim að var- ast ber að treysta nokkru þegar áfengi er annars vegar. Þau velta einnig vöngum yfir því hvort það sé eitthvað sem þau geti gert til að mamma eða pabbi drekki ekki ótæpi- lega á aðfangadagskvöld eða á öðrum dögum jólahátíðarinnar. Mörgum þessum börnum finnst þau ekki geta rætt um kvíða sinn og áhyggjur við nokkurn mann. Það er vegna þess að þeim hefur í ótal til- fellum verið kennt með beinum eða óbeinum hætti að um þetta má ekki tala. Sjúkdómurinn meðvirkni sem herjar einna helst á aðstandendur alkóhólista nær einnig að festa rætur í hjörtum barna þeirra eins og hjá mökum margra alkóhólista. Fjöl- skyldan og heimilislífið verður að líta vel út á yfirborðinu þótt vandinn kraumi innan veggja heimilisins. Hversu illa sem börnum virkra alkó- hólista líður gleyma þau því ekki að um drykkjuskapinn heima má helst enginn vita. Þau halda þess vegna áfram að láta sem allt sé í himnalagi eins lengi og þess er nokkur kostur. Því miður er meðvirknin, með felu- leikinn í fararbroddi, oft svo yf- irþyrmandi að jafnvel þótt einhver í fjölskyldunni sé farinn að sýna alvar- leg einkenni andlegrar og lík- amlegrar vanlíðunar reynist það sumum fölskyldum samt um megn að horfast í augu við rót vandans og leita viðeigandi lausna. Þess á milli sem kvíða- hnúturinn í maga barna virkra alkóhólista herp- ist við tilhugsunina um hvort mamma eða pabbi verði drukkin um jólin reyna þau að gleyma sér og taka þátt í jólastemn- ingunni. Óhjákvæmilega bera þau heimilislíf sitt saman við heimilislíf t.d. vina sinna þar sem sam- bærilegur vandi er ekki til staðar. Þau horfa á fölskvalausa gleði og til- hlökkun vinanna og óska þess að þau geti líka áhyggjulaus hlakk- að til jólanna. Við svo óhagstæðan samanburð upplifa börn alkóhólist- ans eigin örlög enn bitr- ari. Tilfinning á borð við skömm, vanmátt og vonleysi grípur um sig og þau spyrja sig hvort ástandið heima kunni jafnvel að vera þeim að kenna, vegna þess að þau hafi ekki verið nógu þæg eða dugleg börn? Ég vil skora á foreldra, bæði þá sem eiga við áfengisvandamál að stríða og maka þeirra, að setja sig í spor barna sinna og skynja hvernig það er fyrir litlar sálir að þurfa að kvíða jólunum af því að pabbi eða mamma og stundum jafnvel báðir foreldrarnir verða kannski ölvuð um jólin. Sé vandinn einvörðungu hjá öðru foreldrinu er ábyrgð þess for- eldris sem ekki drekkur mikil. Það er á valdi þess foreldris sem ekki drekk- ur að skapa börnum sínum öruggar aðstæður þar sem þau geta átt áhyggjulausa tilveru. Að halda upp á jólin í athvarfi eða á heimili vina eða vandamanna gætu orðið gleðilegri jól fyrir börn sem búa við þær heimilis- aðstæður sem hér hefur verið lýst. Minningar um jól þar sem áfeng- isneysla foreldris réð ríkjum eru minningar sem seint ef nokkurn tím- ann hverfa í gleymsku. Börnin sem kvíða jólunum Kolbrún Baldursdóttir skrifar um áfengisdrykkju á jólum Höfundur er sálfræðingur. Kolbrún Baldursdóttir » Sum börnhafa lifað mörg jól þar sem drykkja foreldris hefur sett svartan blett á hátíð- ina... FYRIR borg- arstjórnarkosning- arnar vorið 2006 voru málefni eldri borgara, ekki síst búsetuúrræði, eitt stærsta kosninga- málið. Á 12 ára valda- tíma R-listans höfðu þessi mál verið al- gjörlega vanrækt, skiptir þá ekki máli hvort verið sé að fjalla um framboð öryggis- og þjónustuíbúða eða uppbyggingu fé- lagsmiðstöðva, eins og til dæmis við Furugerði, Lönguhlíð, Seljahlíð og Norðurbrún. Á sama tíma var uppbygging hjúkr- unarheimila í lágmarki og má þar um kenna sameiginlegum vand- ræðagangi ríkis og borgar hvað varðar allan undirbúning, en upp- bygging hjúkrunarheimila er sam- starfsverkefni ríkis og borgar. Þegar um bygg- ingu og rekstur slíkra heimila er að ræða hef- ur verið samkomulag um það að ríkið greiði um 70% stofnkostnaðar en Reykjavíkurborg um 30%. Ríkinu ber að greiða rekstrarkostnað slíkra heimila. Einnig má nefna að R-listinn ákvað á sínum tíma að einungis skyldi fjölgað um 50 félagslegar íbúðir árlega á árunum 2006- 2010, sem á engan hátt gat mætt þörfinni fyrir slíkar íbúðir. Meirihluti sjálfstæðis- og framsókn- armanna, ákvað að 100 félagslegar íbúðir yrðu keyptar eða byggðar ár- lega á þessu tímabili, meðal annars fyrir eldri borgara. Í byrjun júlí á síðasta ári skipaði ég stýrihóp vegna uppbyggingar og framkvæmda í þágu aldraðra. Stýri- hópurinn, undir forystu Jórunnar Frímannsdóttur, fyrrv. formanns velferðarráðs, vann mjög gott starf. Ákveðið var að ganga til samstarfs við Eir um byggingu rúmlega 100 öryggis- og þjónustuíbúða í Spöng- inni auk þjónustukjarna og á sama hátt við Hrafnistu um 100 öryggis- og þjónustuíbúðir við Sléttuveg. Einnig voru lagðar fram tillögur um að fjölga íbúðum fyrir eldri borgara Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson skrifar um málefni eldri borgara Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson Búsetuúrræði og þjónusta við eldri borgara »Við sjálfstæðismennmunum fylgja því fast eftir að staðið verði við þær samþykktir og fyrir- heit í búsetuúrræðum og þjónustu við aldraða …

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.