Morgunblaðið - 04.12.2007, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 04.12.2007, Blaðsíða 33
BARNAHEILL boða til há- degisfundar í Kornhlöðunni miðvikudaginn 5. desember kl. 12-13. Hvernig eru starfs- stéttir sem vinna með börn- um, eða að málefnum þeirra, búnar undir það að takast á við mál tengd kynferðislegu ofbeldi gegn börnum? Hvern- ig búa íslenskir háskólar nemendur sína undir slíkt? Þessum spurningum var leit- að svara við í úttekt sem Barnaheill létu gera sumarið 2007. Á fundinum mun Margrét Júlía Rafnsdóttir, verkefn- isstjóri hjá Barnaheillum, kynna niðurstöður úttekt- arinnar. Enn fremur mun hún fjalla um aðkomu Evrópuhóps Barnaheilla að baráttunni gegn mansali. Fundurinn er framlag Barnaheilla í 16 daga átaki félagasamtaka gegn kynbundnu ofbeldi. Fundastjóri er Petrína Ás- geirsdóttir, framkvæmda- stjóri Barnaheilla. Þátttöku skal tilkynna á: raningvars- @barnaheill.is Sjá nánar um 16 daga átak um kynbundið ofbeldi á: www.humanrights.is. Kynferðis- legt ofbeldi gegn börnum og menntun fagstétta MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. DESEMBER 2007 33 Félagsstarf Aflagrandi 40 | Vinnustofa opin kl. 9-16.30, jóga kl. 9, hádegismatur kl. 12, postulínsmálning og út- skurður kl. 13, lestrarhópur kl. 13.30 og kaffi 15. Árskógar 4 | Kl. 8.15-16 baðþjónusta. Kl. 9.-16.30 opin handavinnustofa. Kl. 9-16.30 opin smíðastofa/ útskurður. Kl. 9 leikfimi. Kl. 9.45 botsía. Bólstaðarhlíð 43 | Hárgreiðsla, böðun, handa- vinna, vefnaður, dagblöð, fótaaðgerð, hádeg- isverður, línudans, kaffi. Aðventuskemmtun verður 7. des. kl. 17. Söngur, gamanmál, jólasaga, hátíð- arkór. Jólahlaðborð frá Lárusi Loftssyni. Miðaverð 3.500 kr. Skráning í s. 535-2760 f. 5. des. Dalbraut 18-20 | Kl. 9-16.00 Vinnustofa í hand- mennt opin kl. 9-16, leiðb/Halldóra frá kl. 9-12. Framsögn kl. 14, leiðb/Guðný, félagsvist kl. 14. Félag eldri borgara, Reykjavík | Skák kl. 13. Fé- lagsvist kl. 20. Félagsheimilið Gjábakki | Leikfimi kl. 9.05 og kl. 9.55. Gler- og postulínsmálun kl. 9.30. Handavinna kl. 10, leiðbeinandi verður til kl. 17. Jóga kl. 10.50. Hádegisverður kl. 11.40. Róleg leikfimi kl. 13. Alkort kl. 13.30. Félagsmiðstöðin Gullsmára 13 | Kl. 9 vefnaður, kl. 9.15 jóga, kl. 9.30 myndlistarhópur, kl. 10 ganga, kl. 11 leikfimi. kl. 11.40 hádegisverður, kl. 13 bútasaumur, kl. 18.15 jóga, kl. 20 leshópur. Félagsstarf eldri borgara, Garðabæ | Línudans kl. 12, karlaleikfimi kl. 13, botsía kl. 14, trésmíði og tré- skurður kl. 13.30, kyrrðarstund í kirkjunni kl. 12, spil- að kl. 13, vatnsleikfimi kl. 14, miðar á jólagleði seldir í Jónshúsi kl. 10-16. Furugerði 1, félagsstarf | Kl. 13 frjáls spilamennska. Herrafatasala frá Herrafataverslun Andrésar verð- ur frá kl. 13.30 til 15. Aðventuskemmtunin verður fimmtudaginn 6. des. kl. 20. Allir velkomnir. Garðaholt samkomuhús | Jólafundur Kvenfélags Garðabæjar verður haldinn 4. des. kl. 20. Jóna Hrönn Bolladóttir flytur hugvekju og Ragnar Bjarnason flytur jólalög. Fundarsölunefnd verður með varning til sölu. Kaffinefnd – hverfi: 1, 7, 8, 9 og 16 mætir kl. 19. Hraunbær 105 | Handavinna, glerskurður, hjúkr- unarfræðingur kl. 9, botsía kl. 10, leikfimi kl. 11, mat- ur kl. 12, Bónusbíllinn kl. 12.15, kaffi kl. 15. Hár- greiðslustofan Blær opin alla daga sími 894-6856. Hvassaleiti 56-58 | Bútasaumur hjá Sigrúnu kl. 9- 13. Jóga kl. 9-11, Björg F. Böðun fyrir hádegi. Hádeg- isverður kl. 11.30. Námskeið í myndlist kl. 13.30- 16.30 hjá Ágústu. Helgistund kl. 14 í umsjón séra Ólafs Jóhannssonar, söngstund á eftir. Hársnyrting 517-3005. Hæðargarður 31 | Fastir liðir eins og venjulega. Jólafundur bókmenntahóps 11. des. kl. 20. Jólahlað- borð 14. des. kl. 17, húsinu lokað kl. 15. Verð: 3.800 kr. Jólaheimsókn leikskólans Jörva 20. des. Skap- andi skrif á mánud. kl. 16. Allir velkomnir. Íþróttafélagið Glóð | Hringdansar í Kópavogsskóla kl. 14.20. Uppl. í síma 564-1490 og 554-5330. Korpúlfar Grafarvogi | Á morgun, miðvikudag, kl. 13.30 er gaman saman á Korpúlfsstöðum. Langahlíð 3, félagsmiðstöð | Morgunkaffi og vísna- klúbbur kl. 9, botsía, kvennaklúbbur kl. 10.15, hand- verkstofa opin kl. 13. Opið hús, spilað á spil kl. 13, kaffiveitingar kl. 14.30. Aðventuskemmtun verður 7. desember kl. 17.30, matur, skemmtiatriði og dans, Ómar Ragnarsson verður veislustjóri. Leshópur FEBK Gullsmára | Íslenzka stakan og ís- lenzk fyndni verða í öndvegi 5. desember. Sr. Hjálm- ar Jónsson dómkirkjuprestur, Ólafur G. Einarsson, fv. forseti Alþingis, og Steingrímur J. Sigfússon, formaður VG leiða. Enginn aðgangseyrir. Norðurbrún 1 | Smíðastofan opin kl. 9-16, m/leiðb. Daníel. Vinnustofan í handmennt opin. m/leiðb Hall- dóra kl. 13-16. Myndlistarnámskeið m/leiðb. Hafdís kl. 9-12. Þrykk og postulín leiðb. Hafdís kl. 13-16. Leikfimi leiðb. Janick kl. 10. Sjálfsbjörg – félag fatlaðra á höfuðborgarsvæðinu | Bingó kl. 19.30, í félagsheimili Sjálfsbjargar á höf- uðborgarsvæðinu, Hátúni 12. Slysavarnadeild kvenna í Reykjavík | Jólafundur verður 6. desember á Grand Hótel við Sigtún kl. 20. Kaffihlaðborð, leiksýning, o.fl., munið jólapakkana. Verð 2.000 kr Vesturgata 7 | Hárgreiðsla og fótaaðgerðir, mynd- mennt kl. 9-16, enska kl. 10.15, hádegisverður kl. 11.45, leshópur 13.30, spurt og spjallað /Mynd- bandasýning kl. 13, bútasaumur og spil kl. 13-16, kaffiveitingar kl. 14.30. Kirkjustarf Áskirkja | Opið hús kl. 10-14. Föndur og spjall. Bænastund í umsjá sóknarprests kl. 12, léttur há- degisverður eftir bænastundina. Breiðholtskirkja | Bænaguðsþjónusta kl. 17.30. Digraneskirkja | Leikfimi ÍAK kl. 11, kirkjustarf aldr- aðra kl. 11.45, léttur málsverður. Helgistund og sam- vera, umsjón dr. Sólveig Anna Bóasdóttir, kaffi. KFUM&K fyrir 10-12 ára kl. 17- 18.15. Æskulýðsstarf Meme fyrir 9.-10. bekk kl. 19.30-21.30. (www.digra- neskirkja.is) Fella- og Hólakirkja | Kyrrðarstund kl. 12. Org- elleikur, íhugun og bæn. Kirkjustarf eldri borgara kl. 13-16 í safnaðarheimili kirkjunnar. ,,Steinafólkið“ Auður Gísladóttir listakona kemur í heimsókn. Kaffiveitingar. Helgistund í kirkju. Fríkirkjan Kefas | Almenn bænastund kl. 20.30. Hægt er að senda kirkjunni bænarefni á bjorg@ke- fas.is Fríkirkjan Kefas | Almenn bænastund kl. 20.30. Hægt er að senda inn bænarefni á bjorg@kefas.is Grafarvogskirkja | Opið hús fyrir eldri borgara kl. 13.30-16. Helgistund, handavinna, spilað og spjall- að. Kaffiveitingar. TTT fyrir 10-12 ára í Engjaskóla og Borgaskóla kl. 17-18. Grensáskirkja | Kyrrðarstund kl. 12.10. Stutt helgi- stund með altarisgöngu og bæn fyrir bænarefnum. Að helgistund lokinni gest kostur á málsverði í Safnaðarheimili gegn vægu gjaldi. Hjallakirkja | Prédikunarklúbbur presta kl. 9.15-11, í umsjá sr. Sigurjóns Árna Eyjólfssonar héraðs- prests. Hjallakirkja | Bæna- og kyrrðarstund kl. 18. KFUM og KFUK | Fundur í AD KFUK kl. 20. Aðvent- an og við. Sr. María Ágústsdóttir íhugar boðskap aðventunnar. Kaffi eftir fundinn. Allar konur eru vel- komnar. Laugarneskirkja | TTT-fundur kl. 16 (5.-6. bekkur). Umsj. hafa sr. Hildur Eir Bolladóttir og Andri Bjarna- son. Kvöldsöngur kl. 20, Þorvaldur Halldórsson leiðir sönginn og sóknarprestur flytur Guðsorð og bæn. Sorgarhópur með Sigrúnu Guðmundsdóttur og trúfræðsla hjá sr. Bjarna Karlssyni kl. 20.30. Vídalínskirkja Garðasókn | Opið hús kl 13-16. Spil- að og rætt saman. Spiluð vist, bridds og lomber, púttgræjur á staðnum. Kaffi kl. 14.45. Akstur fyrir þá sem vilja, upplýsingasími: 895-0169. Vídalínskirkja Garðasókn | Kyrrðastund er kl. 12. Tónlist leikin og ritningartextar lesnir frá kl. 12.10. Súpa og brauð kl. 12.30, 400 kr. dagbók Í dag er þriðjudagur 4. desember, 338. dagur ársins 2007 Orð dagsins: Kærleikurinn er langlyndur, hann er góðviljaður. Kærleikurinn öfundar ekki. (I. Kor. 12, 4.) Þjónustuhópur Stjórnvísi býðurtil fyrirlestrar næstkomandiföstudag, kl. 8.30 til 10 í gamlaMorgunblaðshúsinu, jarðhæð. Þar mun Emil B. Karlsson, for- stöðumaður Rannsóknaseturs versl- unarinnar flytja erindið Nýsköpun í þjónustugreinum. „Mikil nýsköpun hefur átt sér stað í þjónustugreinum hér á landi, og ætla ég að ræða um þróunina og hvað þurfi að gera til að stuðla að enn frekari nýsköp- un á þessu sviði,“ segir Emil. „Vert er að hafa í huga að þjónustugreinar hafa ekki setið við sama borð og aðrar grein- ar hvað varðar stuðning til nýsköpunar, og virðist allt stuðnings- og styrkjakerf- ið miðast við framleiðslugreinarnar, þrátt fyrir að um 70% af vinnuafli á Ís- landi starfi í þjónustugreinum, og að þær standi undir tveimur þriðju af landsframleiðslunni og þriðjungi gjald- eyristekna.“ Emil segir að sumum virðist verka framandi, að hægt sé að stunda nýsköp- un í þjónustugreinum eins og til dæmis fjármálastarfsemi, verslun og ráðgja- fastarfsemi: „Hugtakið nýsköpun verð- ur fyrst til með komu nýsköpunartog- aranna á sínum tíma, og breiddist hugtakið síðan út til iðnaðarins og há- tækni. Á meðan nýsköpun í fram- leiðslugreinum snýst oftast um að búa til nýja vöru og tæknilausnir, þá snýst nýsköpun í þjónustugreinum um bætta starfsferla og betri nýtingu mannauðs.“ Emil bendir jafnframt á að nýsköpun í þjónustugreinum hafi staðið undir styrkingu íslenska hagkerfisins á und- anförnum árum: „Fjármálaþjónusta, flutningastarfsemi og verslun hafa þar leikið mun stærra hlutverk en fram- leiðslugeirinn.“ Emil segir aldrei hafa verið mik- ilvægara að styrkja þjónustugrein- arnar: „Mikilvægt er að byggja upp sterka virðiskeðju, allt frá framleiðslu til markaðssetningar og þjónustu, því allir hlekkir keðjunnar eru jafnmik- ilvægir,“ segir hann. „Með alþjóðavæð- ingunni verða þjónustugreinarnar æ mikilvægari, sérstaklega í ljósi þess að framleiðslugreinarnar færast í meira mæli til Asíu og annarra láglaunasvæða, þjónustugreinarnar verða eftir á Vest- urlöndum og keppa sín á milli.“ Efnahagsmál | Fyrirlestur á vegum þjónustuhóps Stjórnvísi á föstudag Nýsköpun í þjónustugreinum  Emil B. Karls- son fæddist í Reykjavík 1953. Hann lauk Cand.- phil. gráðu frá Há- skólanum í Lundi 1983 og B.S.-prófi í viðskiptafræði frá Háskólanum á Bif- röst 2000. Hann var alþjóðafulltrúi Iðntæknistofnunar 1988-2001, og starfsmaður Samtaka verslunar og þjónustu frá 2001 til 2006 þegar hann tók við starfi for- stöðumanns Rannsóknaseturs versl- unarinnar. Emil er kvæntur Hallveigu Thordarson förstðumanni hjá TR, eiga þau alls fimm börn. Myndlist Mosfellsbær | Þóra Sigurþórs- dóttir leirlistarkona hefur opnað sýningu á verkum sínum í nýju galleríi á Hvirfli í Mosfellsdal. Sýn- ingin verður opin til 14. desember, alla daga vikunnar kl. 14-18. Tónlist Bústaðakirkja | Jólasveifla Létt- sveitar Reykjavíkur verður 4. og 6. des. kl. 20, bæði kvöldin. Að þessu sinni aðstoða Tómas R. Einarsson og Stína Bongó á bassa og slagverk. Miðasala í síma 897-1885. Hvítasunnukirkjan Fíladelfía | Jólatónleikar Fíladelfíu verða 4., 5., og 6. desember. Flytjendur eru Gospelkór Fíladelfíu undir stjórn Óskars Einarssonar ásamt ein- söngvurum. Flutt verða þekkt jólalög á íslensku ásamt nýju efni. Um útsetningar og tónlistar- stjórn sér Óskar Einarsson. Að- gangseyrir rennur óskiptur til þeirra sem minna mega sín. Laugarneskirkja | Tónlistarmað- urinn Bjarni Þór flytur eigin lög og annarra á tónleikum 7. desem- ber. Bjarni Þór á fjölbreyttan feril að baki í tónlist, hann hefur kom- ið fram með hljómsveitum, sem trúbador og sungið í kórum og óperuuppfærslum o.fl. Tónleik- arnir hefjast kl. 20.30. Norræna húsið | Daglega í des- ember verður opnaður einn gluggi í jóladagatali Norræna hússins. Hver gluggi hefur ein- hverja óvænta lifandi uppákomu að geyma. Hvað er á bak við gluggann? Er það Megas? Mug- ison? Ólöf Arnalds? Það er bara að koma og sjá kl. 12.34 á hverj- um degi fram að jólum. Dans Næsti bar | Kennsla í argent- ínskum tangó kl. 20-21. Frá kl. 21- 23 er danskvöld með leiðsögn. Umsjón María Shanko. Ein- staklingar og pör velkomin. Tekið er við frjálsum framlögum. Skemmtanir Aflagrandi 40 | Jólafagnaður föstudaginn 7. desember í fé- lagsmiðstöðinni Aflagranda 40. Húsið opnað kl. 18. Fordrykkur og jólahlaðborð. Senjórítukórinn flytur jólalög. Guðrún Steph- ensen flytur jólasögu. Ræðumað- ur kvöldsins er Helgi Hjörvar. Miðaverð 3.300 kr. Fyrirlestrar og fundir Félag Nýalssinna | Kynningar- og umræðufundur á Álfhólsvegi 121 í Kópavogi 5. des. kl. 20. Jarð- fræðingurinn og náttúrufræðing- urinn dr. Helgi Pjeturss. Rann- sóknir hans á eðli drauma og sambandi lífs í alheimi. Allir vel- komnir. Geðhjálp | Túngötu 7. Þunglynd- ishópur Geðhjálpar kemur saman kl. 20-21.30. Allir sem eiga eða hafa átt við þunglyndi að stríða og aðstandendur eru velkomnir. Fréttir og tilkynningar AA-samtökin | Neyðarsími AA- samtakanna er 895-1050. Blóðbankinn | Blóðbankabíllinn verður við Rauðakrosshúsið í Grindavík 5. des. kl. 10-17. FRÉTTIR SÍÐASTA Hitt Femínistafélags Íslands á þessu ári verður haldið í kvöld, þriðjudag 4. desember. Umræðuefni verður kristin trú og jafnrétti. Dag- skrá kvöldsins hefst á uppboði á handmáluðum jólakúlum fjöllistakonunnar Tinnu Krist- jánsdóttur. Kúlurnar eru prýddar jólasveinum Fem- ínistafélagsins. Allur ágóði af uppboðinu rennur til Konu- kots. Fyrra erindi kvöldsins held- ur Ingibjörg María Gísladóttir, meistaranemi í guðfræði, og nefnist það „Trú og mannrétt- indi“ og Toshiki Toma, prest- ur innflytjenda, fjallar um samræmingu þess að vera prestur og að vera virkur í mannréttindabaráttu. Á Hittinu verða einnig seld jólakort femínistafélagsins með óskum um frið og jafn- rétti á komandi ári. Kortin verða seld 8 í pakka á 1.500 krónur. Eftir Hittið fara kortin í sölu í Kaffi Hljómalind. Hittið hefst að venju kl. 20 og verður haldið á Bertelstofu á Thorvaldsenbar í Austurstræti. Femínistar með jóla- kúlnauppboð KENND verður hugleiðsla nýrrar aldar og hvernig hægt er að auka meðvitund í dag- legu lífi á hugleiðsluhelgi í Bláfjöllum um næstu helgi. Pierre Stimpfling annast hug- leiðsluna og segir í frétta- tilkynningu að boðið sé upp á rólega helgi í sönnum jóla- anda í Bláfjöllum. Þema helgarinnar er „sam- skipti í samböndum“ en þar verður unnið að því að styrkja þátttakendur í að eiga kærleiksrík og sönn samskipti við nánustu vini og maka. Pierre hefur komið til Íslands undanfarin ár og haldið nám- skeið og þar sem hann hefur kennt annarskonar hug- leiðsluaðferð en flestir eiga að venjast. Þessi hugleiðsla er oft nefnd „hugleiðsla þessarar aldar“ (Meditation for This Age) þar sem tekið er á því sem veldur streitu og vanlíð- an í nútímasamfélagi, segir í tilkynningunni. Kynning á hugleiðsluhelg- inni er í Pósthússtræti 13 miðvikudaginn 5. Desember kl. 19.30. Á föstudag er mæt- ing er milli kl. 17 og 18 í Blá- fjöll og helginni lýkur kl. 16 á sunnudag. Hugleiðsla í Bláfjöllum MÁLÞING um forvarnir og að- gerðir gegn einelti og kynferð- islegri áreitni á vinnustöðum verður haldið 5. des. nk. á Grand hóteli, Gullteigi. Markhópar mál- þingsins eru þjónustuaðilar í vinnuvernd, fulltrúar stjórnsýslu, heilbrigðisstarfsfólk, fulltrúar samtaka á vinnumarkaði, stjórn- endur og starfsmenn á vinnustöð- um. Auknar forvarnir á vinnustöðum Markmið málþingsins er að varpa ljósi á stöðu þessa mála- flokks í íslensku samfélagi. Fjallað verður um hvernig auka megi forvarnir á vinnustöðum gegn einelti og kynferðislegri áreitni. Einnig verður fjallað um hvernig gera má viðbrögð og þjónustu gagnvart þolendum markvissari. Fyrirlesarar og aðrir þátttak- endur verða sérfræðingar Vinnu- eftirlitsins, fulltrúar þjónustuaðila á sviði vinnuverndar, fulltrúar atvinnulífsins og fleiri. Aðgangs- eyrir er 1.500 kr. og er morgun- verður innifalinn. Málþingið hefst með skráningu og morgunverði kl. 8. Formleg dagskrá hefst kl. 8.30 og stendur til kl. 10.15. Ósk- að er eftir að þátttaka verði til- kynnt á netfangið gudrun@ver.is. Málþing um áreitni og einelti á vinnustöðum

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.