Morgunblaðið - 04.12.2007, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 04.12.2007, Blaðsíða 40
40 ÞRIÐJUDAGUR 4. DESEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ Í framhaldi umræðunnar um listí almenningsrými á síðumMorgunblaðsins er ekki úr vegi að velta fyrir sér list í einka- rými. Undirrituð fjallaði í pistli sl. sumar um dúkkuhús auðugrar hol- lenskrar konu frá 17. öld en húsið felur í sér smækkaða mynd einka- rýmisins þar sem getur að líta ýmis agnarsmá söfn, t.d. söfn skelja, postulíns, bóka og myndverka. Ís- lensk heimili fara ekki varhluta af þessari borgaralegu söfnunarhefð. Það er raunar áberandi einkenni á íslenskum heimilum hversu rík áhersla hefur verið lögð á að prýða þau með upprunalegum listaverk- um, einkum málverkum en einnig öðrum listmunum eftir lærða sem leika listamenn (þ.m.t. yngstu fjöl- skyldumeðlimina!).    Stundum er rætt um sérstakahefð „sófamálverka“, eða „sófastykkja“ (eins og Laxness komst að orði), en þau birta skýrast mikilvægi málverksins á íslenskum heimilum. Ekki þarf annað en að líta á fasteignaauglýsingar dag- blaðanna til að minna sig á hversu algeng málverk eru á veggjum heimilanna. Í húsnæðisauglýs- ingum sést oft hin dæmigerða stað- setning stærsta (og oft dýrasta) málverksins fyrir ofan stofusófann. Málverk á íslenskum einkaheim- ilum hafa vakið athygli utan land- steinanna – nú nýlega gaf banda- ríska listakonan Roni Horn út bráðskemmtilega bók með myndum af Herðubreiðarmálverkum al- þýðulistamannsins Stórvals (Stef- áns V. Jónssonar heitins) eins og þau koma fyrir á íslenskum heim- ilum, m.a. í formi sófamálverka.    Sófamálverk og önnur myndlist íeinkarými geta sagt okkur heilmikið um fólkið í landinu og gildismat þess. Flutningar vekja fólk gjarnan til vitundar um mik- ilvægi ýmissa eigna, ekki síst þeirra sem tengjast minningum um fólk, atburði og staði. Mikill áhugi kvikn- aði á að eignast málverk af átthög- unum eða úr sveitinni við fólks- flutninga úr sveit í borg samfara umbreytingatímum í íslensku þjóð- lífi á seinustu öld. Slík verk skipuðu oft sérstakan virðingarsess á hinu nýja, borgaralega heimili. Þá röt- uðu landslagsmálverk inn á heim- ilin sem táknmyndir fyrir sérstöðu Íslands á tímum sjálfstæðisbarátt- unnar. Hér skapaðist á tiltölulega skömmum tíma almennur myndlist- aráhugi og átti listgreinin virkan þátt í sköpun nýs verðmætamats og sameiginlegra minninga.    Sé skyggnst inn á heimili afkom-enda vesturfaranna – fólks sem fluttist búferlum vestur um haf – í Kanada og Bandaríkjunum sést að landslagsmálverk frá Íslandi og aðrir munir sem tengjast Íslandi, einkum minjagripir, eiga einnig þar þátt í mótun „íslenskrar“ sjálfs- myndar, m.a. með „minningum“ sem hafa verið teknar í arf frá fyrri kynslóðum. Undirrituð hefur um árabil í samvinnu við Ólöfu Odd- geirsdóttur myndlistarmann safnað ljósmyndum og öðrum heimildum úr einkarými fólksins vestra sem tengjast íslenskri menningar- arfleifð – þetta verkefni kom í framhaldi af könnun okkar á ís- lenska „sófamálverkinu“ og sam- nefndri sýningu í Listasafni Reykjavíkur árið 2001. Vestan hafs tróna furðuvíða Herðubreið, Þing- vellir og Snæfellsjökull yfir sófum, kommóðum og rúmgöflum, tölvu- skjám og sjónvarpstækjum – rétt eins og í gamla heimalandinu.    Á Íslandi hanga nú mörg mál-verk frá fyrri hluta 20. aldar á veggjum heimila sem erfðagripir. Verk „gömlu meistaranna“ ganga einnig kaupum og sölum, sem og yngri listaverk. Málverk eru á mörgum heimilum stöðutákn og áherslan á sannferði verkanna hef- ur aukist eftir Stóra fölsunarmálið. Það þykir flott að eiga „orginal“ Kjarval eða eignast verk eftir ákveðna „dýra“ listamenn í „safn- ið“. Heimili landsins hýsa raunar margvísleg einkasöfn sem end- urspegla áhugasvið, smekk og myndlistarþekkingu eigendanna. Slík söfn spegla í mörgum tilvikum vinsældir listamanna í samræmi við markaðslögmál – sem þó samræm- ast ekki endilega listsögulegri stöðu þeirra, þ.e.a.s. hvort verk þeirra séu í eigu opinberra lista- safna.    Hin opinberu söfn gegna lyk-ilhlutverki við mótun (og síð- an ritun) miðlægrar listasögu þjóð- arinnar. Einkarýmið er hins vegar sköpunarvettvangur hinnar „óop- inberu“ listasögu – sem vissulega mótast að einhverju leyti af verð- mætasköpun listasafnanna. Einka- rýmið felur í sér annað sjónarhorn á listasöguna – og annan túlk- unarmöguleika – þar sem mörk af ýmsu tagi verða óskýr, t.d. milli lærðra og leikra listamanna, svo sem fyrr segir, og jafnframt mörk listarinnar sjálfrar. Segja má að á einkaheimilinu líti margur á listina frá sínum bæjardyrum séð, í sam- hengi fjölskyldulífs, tómstunda og daglegs amsturs. Verk Stórvals eru kannski ekki þau sem við sjáum oft- ast á veggjum stóru listasafnanna – en þau skortir ekki í einkarýminu og eru í samfloti með Kjarval í heildarlistasafni íslenskra heimila, sem er stærsta listasafn landsins. Stærsta listasafn landsins? AF LISTUM Anna Jóa »Málverk eru á mörg-um heimilum stöðu- tákn og áherslan á sann- ferði verkanna hefur aukist eftir Stóra föls- unarmálið. Sófamálverk Myndin, sem tekin var á heimili Bergs og Ingibjargar J. Gíslason þar sem sést m.a. Þingvallamálverk eftir Kjarval, er ein þeirra mynda sem sýndar voru á sýningunni „Sófamálverkið“ í Listasafni Reykjavíkur árið 2001. annajoa@simnet.is ÞÝSKA ofurfyr- irsætan Heidi Klum á tvo syni með breska söngvaranum Seal auk dóttur úr fyrra hjóna- bandi en segist sakna þess mik- ið að vera ólétt. Sig langi í fleiri börn. „Ég sakna óléttunnar mik- ið, auk þess sem smábörn geta verið ávanabind- andi. Um leið og þau byrja að stækka fer mað- ur að sakna þess tíma þegar þau voru lítil,“ sagði Klum í nýlegu viðtali. Fyrir þremur árum eignaðist fyrirsætan dótturina Leni með Flav- io Briatore, eiganda Renault liðsins í formúlu 1 kappakstrinum, en hún segir að Seal komi fram við hana eins og hún væri sín eigin. Klum segist af- ar ánægð með Seal, hann sé hennar besti vinur og auk þess opni hann dyr fyrir hana. Klum Sannarlega glæsileg kona. Háð barn- eignum 1.12.2007 1 2 9 19 26 7 7 5 0 4 0 3 3 6 2 28 28.11.2007 5 8 11 21 27 45 2510 35 / ÁLFABAKKA WWW.SAMBIO.ISVERSLAÐU MIÐA Á NETINU Á BEOWULF kl. 5:30 - 8 - 10:30 B.i.12.ára 3D-DIGITAL SYDNEY WHITE kl. 6 - 8 - 10:10 LEYFÐ AMERICAN GANGSTER kl. 5:30 - 8:30 B.i.16.ára AMERICAN GANGSTER kl. 5:30 - 8:30 LÚXUS VIP JESSE JAMES kl. 10:30 B.i.16.ára 30 DAYS OF NIGHT kl. 8 - 10:30 B.i.16.ára MICHAEL CLAYTON kl. 8 B.i.7.ára STARDUST kl. 5:30 B.i.10.ára FORELDRAR kl. 6 Síðustu sýningar B.i.7.ára „BEOWULF ER EINFALDLEGA GULLFALLEG...“ ENTERTAINMENT WEEKLY SÝND Í ÁLFABAKKA SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI, AKUREYRI, KEFLAVÍK OG SELFOSSI eeee KVIKMYNDIR.IS SÝND Í ÁLFABAKKA, AKUREYRI OG SELFOSSI

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.