Lesbók Morgunblaðsins - 05.07.2008, Side 1
Laugardagur 5. 7. 2008
81. árg.
lesbók
HVERJAR ERU REGLUR TINNU?
PÁLL BALDVIN BALDVINSSON OG MARÍA KRISTJÁNSDÓTTIR
SVARA TINNU GUNNLAUGSDÓTTUR ÞJÓÐLEIKHÚSSTJÓRA >> 10
Oliver Stone ræðst ekki á garðinn þar sem hann er lægstur, nú er það Bush » 2
Bókin lýsir þeysireið höfundarins
yfir þvera og endilanga Ameríku um
miðja síðustu öld ásamt vinum sín-
um og kunningjum. Sagan segir að
Kerouac hafi skrifað bókina á þrem-
ur vikum, 29 ára að aldri, á 120 feta
langa pappírsrúllu sem hann útbjó
með því að líma saman sex 20 feta
langar pappírsrenninga til þess að
geta skrifað söguna í einum rykk á
ritvélina. Textinn var skrifaður í
hverja línu, án spássía og greina-
skila. (Handritið verður til sýnis í
Columbia College í Chicago í haust
ef einhver vill skella sér.)
En bókin varð ekki til á fáeinum
dögum árið 1951. Nýlega upplýstist
að Kerouac skrifaði fyrsta uppkast
að bókinni á frönsku árið 1948. Hann
hélt líka ítarlegar dagbækur á ferða-
lögum sínum sem stóðu vel að
merkja í sjö ár. Í þessar dagbækur
skrifaði hann bróðurhluta þess texta
sem á endanum rataði í bókina.
Hann mun svo hafa þurft að endur-
skrifa textann mjög mikið áður en
útgefandinn samþykkti hann til út-
gáfu.
En hvað um það, allir áhugamenn
um góðar bækur verða að lesa Á
vegum úti. Þýðingin er 20 ára gömul
en hefur staðist tímans tónn.
Þeysireið um Ameríku
Falleg, fersk og mikilvæg endurspeglun á löngu liðnum tíma
Eftir Þröst Helgason
throstur@mbl.is
Þegar skáldsaga Jack Kero-uac, On the Road, kom útárið 1957 sagði bók-menntagagnrýnandi New
York Times að hún væri „fallegasta,
skýrasta og mikilvægasta framlag“
bítkynslóðarinnar til bandarískra
bókmennta. Nú þegar hún er endur-
útgefin í íslenskri þýðingu Ólafs
Gunnarssonar undir heitinu Á veg-
um úti er hún enn falleg, fersk og
mikilvæg endurspeglun á löngu liðn-
um tíma.
Jack Kerouac höf-
undur Á vegum úti.
Morgunblaðið/Sverrir
Guðbergur Bergsson „Og það er yfirleitt þannig með listafólk að þú finnur þetta í leðjunni. Það sem fólki finnst jafnvel vera ógeðslegt er hin raunverulega fegurð.“ » 4