Náttúrufræðingurinn - 1931, Side 3
NÁTTÚRUFI tÆ ÐIXGUHINN 1931
145
Öríon veíðímaðtir.
Myndin hér að ofan er af Orion. Hann er talinn sonur
Pósidons, sjávarguðsins. Hann var fríður sýnum og mesta
hraustmenni og afbragðs veiðimaður; stundaði hann veiðarn-
ar af svo miklu kappi, að sjálfum guðunum þótti til vandræða
horfa, og hugðu, að hann myndi eyða öllum veiðidýrum jarð-
arinnar. Veiðigyðjan Díana felldi hug til þessa gjörvilega og
snjalla veiðimanns, og vildi ganga að eiga hann. En bróður
hennar, sólguðinum Apolló, mislíkaði þessi fyrirætlun henn-
ar, og í reiði sinni batt hann enda á það, á þann hátt, að
hann sendi sporðdreka, er skyldi ráða Orion af dögum. Særði
hann Orion í hælinn með eiturklónni á sporðinum (halanum),
10