Andvari

Árgangur

Andvari - 01.06.1959, Blaðsíða 104

Andvari - 01.06.1959, Blaðsíða 104
102 ÓLAFUR BRIEM ANDVARI tvö ár, aðrir aðeins eitt sumar, en hvort sannara er, verður ekki vitað. Og ekki vissu menn heldur, hve margir þeir voru, jafnvel 6 eða 7, og tvær hlutakonur voru með þeim, að því er sagt var, og eru ef til vill líkur fyrir því. Þeir höfðu með sér langan kaðal eða stjórafæri og drógu konurnar upp í hellirinn og föng sín, jafnóðum og þeir öfluðu þeirra, en það var mest sauðfé Ölfusinga eða Grafn- ingsmanna. Nú þótti sveitamönnum hart á barið að verða að þola slíka óhæfu, en fengu ekki að gert um sinn. Er frá leið, þá gerðu þeir ráð sitt og tóku sig saman eitt haust litlu fyrir fjallreið og lögðust í leyni margir saman úr háðum sveitum, Olfusi og Grafningi, sem að vísu var þá sama þingsóknin, og biðu þess, að hellis- búar færu úr hellinum í smalatúr, og ætluðu þeim svo stundirnar, og var þess skammt að bíða. Fóru nú allir úr hell- inum, en sveitamenn skipuðu sér sem fljótast fyrir hellisbergið að neðan, og komu hellismenn innan skamms með fjárhóp. En nú var ekki greitt aðgöngu og enginn vegur að ná hellinum. Sveita- menn veittu strax svo harða aðsókn, að hinir héldust ekki við, enda var liðs- munur ákaflegur, því sveitamenn höfðu verið milli 50 og 60. Fjárrekstur útilegu- mannanna tvístraðist brátt, enda gáfu menn þá engan gaum að fénu. Mellismenn tóku nú að flýja, hver sem hezt mátti, en sveitamenn eltu þá af hin- um mesta ákafa og mest þeir, sem fót- fráastir voru. Allir komust hellismenn nokkuð langt undan, og vestan í Hengl- inum urðu mestar eltingar. Þar eru melar og skriður, segja kunnugir menn. Eru þar kölluð Þjófahlaupin enn í dag sem örnefni síðan. Allir voru hellismenn drepnir, ýmist vestan í Hcnglinum eða niður á Mosfcllsheiði, því undan hlupu þeir slíku ofurefli, meðan þeir gátu uppi staðið sökum mæði. Nú voru hellismenn allir unnir, en fylgikonur þeirra voru enn í hellinum. Þær höfðu veitt hart viðnám, og svo er haft eftir þeim mönnum, sem í atförinni voru, að svo illt sem hefði verið að sigra hellisbúa, þá hefði þó hálfu verra verið að vinna fylgikonur þeirra. En samt að lokum urðu þær teknar og fluttar burtu, og er ekki getið, að þær sýndu neinn mótþróa, eftir að þær komu undir ann- arra manna hendur". Saga þessi er greinileg þjóðsaga, sem ber keim af farandsögum um útilegu- menn. Til dæmis minnir frásögnin um viðureignina við konurnar á Hellismanna- sögu. En í lok sögunnar getur Þórður þess eftir gömlum manni úr Rangárvalla- sýslu, að verið hafi í Dalsseli undir Eyja- fjöllum kerling ein, sem Vilborg hét, og hafi hún dáið um eða eftir 1800, hundrað ára gömul. Átti hún að vera fædd í hellinum og verið dóttir eins úti- legumannsins. Eftir þessu að dæma, hefði útilegumannabyggðin í hellinum átt að vera laust eftir 1700, og nú vill svo til, að árið 1703 geta annálar um útilegu- menn í Hengli. En hér kemur bobbi í bátinn. Samkvæmt manntalinu 1801 er í Dalsseli Vilborg Nicolaidóttir 59 ára, svo að ekki er hægt að samræma fæð- ingu hennar útilegumönnum annálanna. Frásagnir annálanna eru einnig tortryggi- legar, því að þær minna svo mjög á úti- legumenn á Selsvöllum og við Hverinn eina, sem samkvæmt öruggum heimild- um voru teknir þar sama ár, að ekki getur hjá því farið, að hér séu aðeins missagnir um sömu mennina. í Fitja- annál segir svo 1703: ,,Á alþingi hengdir fjórir þjófar. Höfðu tveir þeirra lagzt út í Henglinum. Þriðji af þeim kagstrýktur, náðaður af lífinu vegna ungdómsaldurs".
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116

x

Andvari

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.