Fálkinn


Fálkinn - 25.10.1961, Blaðsíða 10

Fálkinn - 25.10.1961, Blaðsíða 10
0 gefinn maður, sæmilega menntaður, skáldmæltur og orti á latínu sæmilega. Hann er talinn valmenni um margt en eigi mikill skörungur. Hann var ekki mikill fésýslumaður. Honum tókst margt vel í biskupsdómi og vann mennt- um og bókmenntum talsvert gagn. Hann rækti vel bókaútgáfuna á Hólum og gaf þar út nokkrar guðsorðabækur. Hann gaf út biblíuna 1728 og er það þriðja útgáfa hennar á íslenzku. Steinn biskup var kvæntur Valgerði Jónsdóttur prests að Staðarhrauni, Guðmundssonar. Þau áttu mörg börn og eru frá þeim miklar ættir. Börn þeirra komust mörg til manns og urðu fyrirfólk. En heldur þótti kenna laus- ungar í fari þeirra. Til dæmis átti Heiga dóttir þeirra barn með Jóni stúdent Marteinssyni, sem frægur er í sögnum og Halldór Kiljan Laxness gerir ódauð- legan í skáldverki sínu um Jón Hregg- viðsson. Á öllum öldum er ástin lík til ör- laga í lífi ungs fólks. Þó er hún aldrei eins. Svipbrigði hennar og áhrif eru svo fjölbreytt og margslungin, að aldrei eru tvö ástarævintýri ©ins. Vegna þess er ástin sífellt viðfangsefni skálda og rit- höfunda. En ástin á líka rík og mörg minni í sögum og sögnum fólksins. í íslenzkri sögu gætir þessa mjög. — Frá öllum tímum eru til ástarsagnir og af heimildum aldanna er hægt að ráða, hvernig ástin hefur mótað líf einstakl- inganna. Margar þessar sögur eru heill- andi og bera glögg einkenni ástarsög- unnar, eins og þau eru skírust. Á stund- um eru þessar sagnir mótaðar af harmi og sorg. Fyrr á öldum var samband milli pilts og stúlku bundið þungum viðjum kirkjunnar og kreddum verald- legs valds. Af þeim sökum eru mörg ástarævintýri frá fyrri tímum mótuð af boðum og bönnum kirkju og kreddu ver- aldlegra valdsmanna. En æskan skeytti ekki þá fremur en nú um boð og bönn. Hún fór sínu fram, og reyndi á allan hátt að vera sem frjálsust. Ástin var örlagavaldur, réði gjörðum og tilfinn- ingum æskunnar. Máttur hennar var voldugur og skóp örlög, sem ekki var hægt að flýja. íslenzka kirkjan reyndi snemma að hafa áhrif á siðgæði fólksins, sérstak- lega unga fólksins. Aferðir kirkjunnar í siðferðislegum efnum voru margvís- leg, og árangurinn eftir því. Á öllum öldum reyndu hiskupar landsins að halda siðferðinu í traustum skorðum, sérstaklega í næsta nágrenni við sig. Á hinum fjölmennu biskupsetrum lands- ins, Hólum og Skálholti, var margt ungt fólk, lífsþyrst og leitandi að ástarævin- týrum og hamingju. Andlega valdið und- ir forustu oddvita sinna leitaðist við að hafa eftirlit með siðgæði æskunnar, og setja takmörk og bönn. Sagan sýnir alltof mörg dæmi um misheppnuð boð og bönn. Lauslæti og ástalíf án banda hins lögboðna siðferðis var furðu al- gengt. Dæmi um þetta er hægt að finna á báðum biskupsstólunum. Ungt fólk, lífsglatt og leitandi, er lítið fyrir að láta stranga siðameistara banna sér og bjóða. Það fer sínu fram og fylgir þeim lög- málum einum, sem eðli þess og heil- brigð dómgreind býður, svo framarlega sem því er sjálfrátt. Strangar kennisetn- ingar og bönn siðferðispostulanna höfðu oftast ill áhrif, og því verri, sem unga fólkið bjó í meira fjölbýli. Hvergi á ís- landi fékk unga fólkið fyrr á tímum eins mörg tækifæri til að kynnast, velja og hafna, eins og á hinum fjölmennu bisk- upssetrum, Hólum og Skálholti. Af heimildum er hægt að ráða mörg ævin- týri um ástir ungra manna og kvenna. Sum eru heiilandi af hamingju, löngu og farsælu hjónabandi, gáfuðum og dugmiklum börnum, sem miklar og góðar ættir eru frá. En önnur eru mót- uð af svipbrigðum harmleiksins, óham- ingjunnar eða jafnvel stundargleðinni. En svipbrigði sorgar og harms bera þau mörg af ofurvaldi úrelts skipulags í sið- ferðislegum efnum. Svo er vegur ástar- innar og gróandin til framtíðarinnar aðskilin kennisetningum og kreddum. 2. Sumarið 1711 kom nýr biskup frá Kaupmannahöfn til Hóla í Hjaltadal. Hann hét Steinn Jónsson, sonur síra Jóns skálds Þorgeirssonar á Hjalta- bakka í Húnavatnssýslu og konu hans Guðrúnar Steingrímsdóttur af hinni frægu Steingrímsætt í Skagafirði. Steinn biskup fór ekki til staðar og stóls á Hólum um sumarið, heldur sat hann á Setbergi í Eyrarsveit, þar sem hann hafði verið prestur, áður en hann vígðist biskup. Steinn biskup var vel Elzti sonur Steins biskups og Val- gerðar konu hans hét Jón. Hann er fæddur 1696. Hann var hinn efnileg- asti og bar snemma á miklum gáfum hjá honum. Hann var settur til mennta og varð stúdent og að prófi loknu heyr- ari við Hólaskóla. Jón tók upp nafnið Bergmann og dró það af nafni æsku- heimilis síns Setbergi. Hefur það nafn haldizt hjá afkomendum Steins bisk- ups. Svo virðist að nokkurrar lausungar hafi gætt í ýmsum efnum á Hólum í tíð Steins biskups Staðurinn var fjölmenn- ur og þar var saman komið mikið af ungu fólki, lífsglöðu og þyrstu í ævin- týri. Tækifæri voru þar mörg til ýmiss > konar skemmtana og leikja. Hinir gömlu og stóru bæir biskupsstólanna áður fyrr, voru ríkir af skotum, kimum og krók- um, þar sem ungt fólk átti hægt með að eiga leynilega ástarfundi í ranghöl- um og göngum, án þess að mikið bæri á. Á stundum urðu tækifærin til al- gjörlega óviljandi. Unga fólkið hittist af hendingu í dimmum gangi eða háif- rökkvuðum ranghala. Var þá ekki nema eðlilegt, að ástleitinn sveinn og lífsgiöð stúlka væru fljót til að svala löngun sinni í faðmlögum og kossum í skynd- ingu, sem síðar meir leiddi til áfram- haldandi funda, þar sem næði gafst til lengri og nánari kynna og ástarleikja. Margar ungar stúlkur falleruðust og guldu jafnvel lífshamingju sína alla í stundargleði lausakaupanna. Ungir Jón Steinsson, biskupssonurinn á Hólum varð snemma bráðgjör og efnilegur. Hann var lífsglaður og kaus helzt að njóta lífsins í hópi glaðra félaga og í faðmi ástþyrstra kvenna ... ÍSLENZK FRÁSÖGN EFTIR JÓN GÍSLASON 10 FÁLKINN

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.