Fálkinn


Fálkinn - 25.10.1961, Blaðsíða 13

Fálkinn - 25.10.1961, Blaðsíða 13
lokiS. Svona var bréfburður þá, en þetta fór allt saman miklu betur, þegar bær- inn stækkaði. Hver bréfberi hafði sitt ákveðna svæði og hann varð að bera út öll bréf í það sem til voru í það og það skiptið. Ég var síðan bréfberi í 19 ár samfleytt, eða allt til þess, er ég fór að starfa innanhúss á pósthúsinu árið 1944.“ „Gerðist aldrei neitt, markvert á þess- um árum, eitthvað sem óvenjulegt er og mönnum ekki kunnugt, eða lentuð þer aldrei í neinum mannraunum eins og landpóstarnir gömlu?“ „Ekki get ég nú sagt það, að vísu var oft erfitt að bera út póstinn í kaldrana- legu veðri. Það er si svona ekki neitt skemmtilegt að hamast á móti óveðri og kafaldsbyl með miklar byrðar, enda þótt stutt sé á milli húsa. Annars var starfið nokkuð auðvelt og fólkið tók manni vel, þegar maður kom með bréf. Það meira að segja hringdi stundum nið- ur á pósthús, ef það átti von á bréfi. Svona var eftirvænting mikil eftir bréfi.“ „Var ekki mikið að gera um jólaleytið yfirleitt?" „Jú geysimikið oft og tíðum. Fyrst var það nú þannig. að menn urðu að bera allan þennan póst út aleinir, en svo batnaði þetta allt. Við fengum að- stoðarmenn um jólaleytið til þess að hjálpa okkur með burðinn. Það hjálp- aði okkur mikið, að póstmeistararnir voru prýðismenn, hver öðrum betri og skildu vel. hvað okkur hentaði bezt. Það kom einkum fram í kjarabarátt- unni.“ „Hvaða maður er yður nú minnis- stæðastur frá þessum árum, þegar þér störfuðuð við bréfburðinn?" „Þorleifur Jónsson póstmeistari. Hann signdi alltaf skápana á kvöldin áður en hann fór.“ „Við höfum heyrt, að þér hafið ýmis áhugamál fyrir utan starfið. Hver eru þau meðal annars?“ „Ég safna ljóðabókum, eða öllu sem heitir ljóð, hvort sem það eru sálmar eða önnur ljóð. Ég á nú um tvö þúsund eintök af ljóðabókum. Maður er að þessu af því að maður hefur gaman af því. Svo getur verið að hér sé verð- mætum bjargað frá glötun. Þetta getur orðið komandi kynslóðum til gagns, einkum ef svona bækur lenda á söfnum, þar sem allur almenningur getur náð í þessar bækur.“ Þegar við höfum rætt um bækur og bókasöfnun um stund, snúum við okk- ur að öðrum sálmum. Við höfðum frétt á skotspónum að Bjarni væri músik- alskur mjög og léki á horn að fornum sið. „Þér leikið á hljóðfæri, Bjarni, eða svo hefur okkur verið sagt?“ „Ég leik á tenórhorn bæði í lúðra- sveitinni og í Hernum. Ég hef verið í Hernum allt frá því að ég var barn.“ „Hvernig gengur svo lífið fyrir sig í Hernum?“ „Þetta er allt mjög hversdagslegt. Þetta er eins og í öðrum trúflokkum, menn trúa á sinn Guð og dýrka hann og tilbiðja. Svo er mikið um söng og hljóðfæraslátt. Biblían er bókstafur okkar, eftir henni breytum við í hví- vetna. Herinn eða fullu nafniHjálpræðis- herinn er byggður upp með eins konar herskipulagi eins og kunnugt er. Æðsti maðurinn er generalinn og svo koll af kolli. Hinir æðstu menn starfa aðallega við alls konar hjálparstarfsemi og gera ekkert annað, en við óbreyttu höfum venjulega önnur störf úti í bæ.“ Framhald á bls. 36. Rætt við Bjarna Þóroddsson póstmann, sem verið hefur liðsmaÓur í Hjálpræðishernum um langt skeið ÞAÐ ER EITT- HVAÐ k BAK VIÐ ÞETTA ALLT

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.