Fálkinn


Fálkinn - 25.10.1961, Blaðsíða 14

Fálkinn - 25.10.1961, Blaðsíða 14
BÓNDINN stóð andspænis lækninum við hvílu hinnar deyjandi konu, sem hlustaði á tal þeirra hin rólegasta. Hún átti að deyja og tók því vel. enda hafði hún tvo um nírætt. Geisla júlísólarinnar lagði inn um gluggann og hinar opnu dyr og einnig dauninn utan af ökrunum. Engisprett- urnar sungu í sig hæsi. Læknirinn tók til máls og sagði: — Honore, þú mátt ekki yfirgefa þína dauðvona móður. Dauðann getur borið að, áður en minnst varir. Bóndi svaraði vandræðalega: — Ég verð að ná inn hveitinu, því að það hefur legið úti lengi og nú er veður til að hirða. Hvað segir þú um það, móðir sæl? Hin deyjandi kona, sem enn var hald- in ágirnd Norður-Frakklands, kinkaði kolli til samþykkis og hvatti þannig son sinn til að hirða hveiti sitt meðan hún sjálf yfirgæfi heiminn. En læknirinn gerðist þá reiður, stappaði niður í fólf- ið og sagði: — Þú ert ómenni, heyrirðu það? Og ég leyfi þetta ekki. Skilurðu? Og verð- ir þú endilega að ná inn hveitinu í dag, farðu þá til frú Rapet og fáðu hana til að líta eftir henni móður þinni. Ég krefst þess. En ef þú hlýðir ekki skaltu ekki vænta minnar hjálpar þá einhvern tíma þú kannt að veikjast. Bóndi, sem var langur sláni og magur og seinn til allra hluta, var sem milli tveggja elda. Hann óttaðist lækninn, en sparnaðarhugurinn var hins vegar mikill. Eftir alllanga bið fær hann loks- ins stamað: — Hvað tekur frú Rapet mikið fyrir að sitja yfir veiku fólki? — Hvernig ætti ég að vita það? hrópaði læknirinn. — Það er án efa undir því komið, hversu lengi hennar er þörf. Talaðu við hana, maður. En ég vil, að hún sé hingað komin áður en klukkustund er liðin, heyrirðu það? Maðurinn tók ákvörðun sína. — Ég skal ná í hana, svaraði hann. — Verið ekki reiðir, læknir. Hinn síðarnefndi fór þá burt, en sagði um leið: — Gættu þín, ungi maður, því að ég er harður í horn að taka, þegar ég reiðist. Þegar þau voru tvö ein eftir, sneri bóndi sér að móður sinni og mælti lág- um rómi: — Ég ætla að ná í frú Rapet eins og læknirinn segir. Dey þú ekki á með- ‘an. Síðan fór hann út. Frú Rapet, sem var þvottakerling, sat 14 FÁLKINN yfir látnu og deyjandi fólki þar í ná- grenninu, en milli þess sem hún saum- aði línklæði þessara viðskiptavina sinna saumaði hún og bætti klæði hinna, sem enn voru í tölu lifenda. Hún var illgjörn, öfundsjúk og fégjörn, gekk í keng og var líkast því sem hún væri brotin í sundur um miðjuna. Hún tal- aði ekki um annað en fólk, sem hún hafði séð deyja og um þær mismunandi myndir, sem dauðinn birtist í. Hún hafði sömu ánægju af að tala um þetta og veiðimaðurinn, sem segir frá afrek- um sínum. Þegar Honore Bontemps kom inn í kofa hennar, var hún önnum kafin við þvotta sína. — Gott kvöld, frú Rapet, sagði hann. — Þú lifir og blómstrar, sé ég. Hún sneri sér við, leit á hann og sagði: — Mér líður ágætlega, þakka þér fyrir. En hvað er frá þér að segja? — Allt hið bezta, en móðir min er hins vegar mikið veik. — Móðir þín? — Já, móðir mín. — Hvað gengur að henni? —- Ekki annað en það, að hún er að hrökkva upp af. Kerlingin þurrkaði blautar hendur sínar og spurði með hluttekningarróm: — Er það svona slæmt? — Læknirinn heldur, að hún muni ekki lifa til morguns. — Þá hlýtur hún að vera mikið veik. Nú kom hik á Honore. því að hann vildi hafa formála nokkurn áður en hann setti tillögur sínar fram. Hann kom þó brátt að efninu því að hann var seinn að hugsa sem og til annarra hluta. — Hvað tekur þú mikið fyrir að vera hjá henni til hins síðasta? Þú veizt að ég er ekki ríkur og hef ekki einu sinni ráð á að hafa vinnukonu. Það er ein- mitt þetta, sem komið hefur móður minni á grafarbakkann, of mikil vinna og þreyta. Hún vann á við tíu manns, þrátt fyrir sinn háa aldur. Fólk er ekki svona harðgert nú á dögum. Frú Rapet svaraði alvarlega: — Ég tek 40 sous á dag en þrjá franka á nóttu fyrir þá ríku, en 20 sous á dag og 40 á nóttu fyrir aðra. Þú borg- ar þessa 20 og 40. Bóndi varð hugsi því að hann þekkti , móður sína vel. Hann vissi hversu líf- seig hún var og að hún lét sér ekki allt fyrir brjósti brenna. Hann vissi, að hún gat haldið út í viku enn, hvað sem læknirinn áleit, og sagði ákveðinn: — Nei. ég vil heldur að þú takir ein- hverja ákveðna upphæð fyrir þetta. Læknirinn heldur, að hún eigi mjög skammt eftir ólifað og sé svo, þá er hagnaðurinn þinn. Hins vegar tekur þú þá áhættu að hún lifi til morguns eða lengur. Kerling horfði undrandi á manninn, því að aldrei hafði hún fengið slíkt til- boð áður, en hik kom á hana, því að hér var ef til vill auðunninn skilding að fá. Samtímis kom þó tortryggni upp í huga hennar og hún svaraði: — Ég get ekkert um þetta sagt, fyrr en ég hef séð hana móður þína. — Komdu þá og líttu á 'hana. Hún þvoði hendur sínar og fór með honum. Þau töluðu ekkert saman á ieið- inni. Hún trítlaði við hlið hans, en hann stikaði stórum eins og hann væri að stíga yfir læk við hvert fótmál. Kýrn- ar lágu úti á túni og bauluðu letilega.

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.