Fálkinn


Fálkinn - 25.10.1961, Blaðsíða 33

Fálkinn - 25.10.1961, Blaðsíða 33
Á bílamarkaðnum CITROEIM Citroén-verksmiðjurnar í París fram- leiða margar mismunandi gerðir bif- reiða, bæði fólks- og vöruflutningabif- reiðir. Mun hér aðeins verða minnzt á þrjár gerðir af fólksbifreiðunum, sem allar hafa það sameiginlegt að vera með framhjóladrifi, og þar af leiðandi al- veg sléttu gólfi, þar sem vélin er einnig að framan. Helztu kostir framhjóla- drifs eru þeir, að bifreiðin heldur veg- inum mjög vel, ekki hvað sízt á beygj- um, þar sem framhjólin „draga“ bif- reiðina í þá átt sem stýrt er, og er því lítil hætta á því að framhjólin renni til hliðar á beygjunni Einnig er fram- hjóladrif mun betra en afturhjóladrif í lausum sandi, snjó, hálku og aur- bleytu. Fjöðrunarkerfi og höggdeyfar WILLVS Willys-jepparnir CJ-5 og CJ-6 eru með drifi á öllum hjólum, 6 gírum áfram og 2 aftur. Aðalgírkassinn er af svokallaðri „Heavy Duty“ gerð. Þér getið skipt í 4 hjóla drif á meðalhraða án þess að stöðva jeppann. Hægt er að tengja vinnuvéladrif við gírkassana til að drífa ýmis tæki svo sem — sláttuvél, hjólsög, súrheysblás- ara o. m. fl. VÉLIN. HURRICANE, 4 cyl. F. Head. Hestorkutala Hurricane vélarinnar er 75 hestöfl við 4000 snúninga. Intaks- ventlar eru í „'headdinu11 og útblásturs- ventlar í blokkinni. Stipilvídd er 3ys" og slaglengd 4%". Rúmtak cyld. er 134.2 cub. tommur. Frh. á bls. 38. hafa og mikið að segja í sambandi við það, hve vel bíll „liggur“ á vegi, en fjöðrunarkerfi Citroén-bifreiða hefur ávallt verið mikið hrósað af bílasér- fræðingum allt frá því að Citroén setti á markaðinn hinn klassíska „11L“ árið 1933, og sem var framleiddur óbreyttur til ársins 1956, en hann hafði stálöxla- fjöðrun (torsion-bar suspension), sem annars hefur aðeins fengizt í sérsmíð- uðum bílum, t- d. kappakstursbílum, og fáeinum tegundum bifreiða eftir stríð. Núverandi f jöðrunarkerfi Citroén. bifreiða er enn fullkomnara; t.d. í DS- 19 og ID-19 gerðunum er armur tengd- ur við hvert hjól; á enda hans er nokk- urs konar stimpilstöng, sem þrýstir á stimpil í sívalningi, sem fylltur er sér- stökum vökva (glussa); vökvinn þjapp- ast svo saman og þrýstir á blöðku (membrane), sem aftur þrýstir á gas, sem er í kúlulaga hylki efst á sívaln- ingnum. Hvert hjól er auk þess tengt við yfirbygginguna með höggdeyfi. Fjöðrunarkerfi AMI-6 og 2CV gerðanna er einnig sérstaklega vandað: stálöxla- fjöðrun með tveim höggdeyfum fyrir hvert hjól, og tengiarmi milli fram- og afturhjóla. DS-19 og ID-19 gerðirnar eru grindarlausar, þ.e. með tvöföldu stálhúsi, svokölluðu „monoshell body“. Þessar gerðir hafa og. í sambandi við fjöðrunarkerfið, þann kost, sem er al- ger nýjung, að þær halda sjálfkrafa sömu hæð frá jöðru, hversu mikið feem Frh. á bls. 37. 33 FALKINN

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.