Fálkinn - 05.04.1965, Blaðsíða 8
Strax
þegar
leikur hefst
er taugaspeuna
búin
— Nei, ég fór ekki með
þangað. Ég var ekki búinn að
vera nema svo skamman tíma
í liðinu þá, svo ég kom ekki
til greina. Ef takmörk væru
ekki sett í þessu sambandi,
gætu þeir keypt nýja menn inn
í liðið hverju* sinni sem keppni
fer fram. Reglan er sú, að ég
held, að leikmaður þurfi að
vera í liðinu í þrjá mánuði áður
en dregið er í hverja umferð,
en ég var aðeins búinn að vera
hálfan mánuð í liðinu þegar
dregið var í þessa umferð, svo
ég kom ekki til greina í hvor-
ugum leiknum.
— Ef þið vinnið leikinn á
miðvikudag, hvað þá? (Hér er
átt við síðari leikinn í Evrópu-
bikarkeppninní, Rangers gegn
Inter Milan).
— Þá á ég möguleika á að
spila með í næstu umferð. Ef
við komumst áfram núna, verð-
ur Rangers eitt af átta liðum
sem keppir til úrslita. (Rangers
komst ekki áfram vegna óhag-
stæðs markahlutfalls). í Evr-
ópubikarkeppnina fara liðin
sem vinna deildakeppni. Þetta
er sama keppnin og KR tók
þátt í. Mér fannst sjálfsagt hjá
KR að taka þátt í þessari
keppni. Ég sá leikinn í Liver-
pool og fannst mjög gaman að
honum. Það var mikill viðburð-
ur fyrir strákana að spila þarna
— 30 þúsund áhorfendur og
leikið á móti mjög góðum
mönnum. Það kom mér á óvart
að margt fólk skyldi vera þeirr-
ar skoðunar, að KR ætti ekki
að taka þátt í þessari keppni
vegna þess að liðið ætti engan
„sjens“. Það væri lítið um þetta
sport, ef enginn tæki þátt i
því nema að hafa mikla sigur-
möguleika.
— Hvað gerirðu að aflokn-
um keppnisdegi?
— Við förum venjulega heim
og horfum á sjónvarp eða för-
um í kvikmyndahús. Við get-
um valið á milli tveggja stöðva
í sjónvarpinu, BBC og STV
(Scotish Television) og dag-
skráin er mjög góð.
— Ertu taugaspenntur fyrir
leiki?
— Já, ég er það. En strax
þegar leikurinn hefst er tauga-
spennan úr sögunni. Ég get
ekki sagt eins og íþróttamaður
heima, sem frægt er orðið: „Af
hverju að vera taugaspenntur,
það er mikið verra!“
Þórólfur á æfingu á Ibroxleikvanginum.
Ungir aðdáendur og rithanda-
safnarar þyrpast hér um Þórólf
fyrir utan Ibrox leikvanginn.