Fálkinn - 05.04.1965, Blaðsíða 33
Einangrunargler
Framlcitt einungis úr úrvals
gleri. — 5 ára ábyrgð.
Pantið tímanlega.
KORKIÐJAM H.F.
Skúlagötu 57. — Sími 23200.
ENDURNÝJUM
SÆNGUR OG KODDA
FLJÓT AFGREIÐSLA
HÖFUM EINNIG
EINKASÖLU
A REST-BEST
KODDUM
Póstsendum
um land allt.
DÚN-
0G FIÐUR-
HREINSUNIN
VATNSSTÍG 3
(örfá skref
frá Laugavegi)
Sími 18740.
í íslandsmálum, því að stift-
amtmaður og amtmaður voru
báðir orðnir aldraðir og komnir
að fótum fram. Árið 1716 var
Miiller amtmanni skipaður að-
stoðarmaður, og átti hann að
fá helming launa hans. Þessi
maður var Niels Fuhrmann.
Hann var norskur að aett, kom
inn af góðu fólki í Björgvin.
Hann lærði skólalærdóm í
Kaupmannahöfn og lauk þar
háskólaprófi. Hann varð ritari
admíráls Christíans Schestests,
er valdamikill varð í Dana-
veldi. Fuhrmann varð ungur
mikill heimsmaður, myndar-
legur og karlmannlegur. Hann
var um flesta hluti algjör and-
stæða Kríu Miillers, röggsamur
og fylginn sér í málum, hafði
hug á að breyta ýmsu um fram-
kvæmdir stjórngæzlu hér á
landi. Hann var skörulegur
maður í framgöngu, en Kriu
Miiller var lítilmenni jafnt að
vallarsýn og í raun. En nokkur
skuggi fortíðarinnar hvíldi yfir
Fuhrmann og varð áður en
langt leið þrándur í götu frama
hans og, gengis sem embættis-
manns á íslandi og frama
hans til æðri embætta. Af þvi
verður brátt sagt.
Níels Fuhrmann fór ekki út
til íslands fyrr en sumarið 1718.
Ekki er ljóst af hverju hann
fór ekki þegar til embættis
síns. En þess má geta til, að
það hafi verið sakir ófriðarins
milli Dana og Svía. En ástand
styrjaldarinnar skapaði mjög
mikla röskun á siglingum til
íslands á þessum árum. Sum-
arið 1718 var sent herskip
með Fuhrmann amtmann til ís-
lands. Skip þetta hét Gotten-
borg og var hvortveggja í senn
stórt og vel búið vopnum og
mannskap. Það var langstærsta
skip er til íslands hafði siglt
og mannflesta. Máttu því lands-
menn kenna, að hér var mikið
í efni um för hins nýja amt-
manns. Koma Gottenborgar
vakti mikla athygli og minnti
á ömurleg atvik í sögu lands-
in^' það er erfðahyllinguna í
Kópavogi, þegar landsmenn
játuðu einveldið. Almenningi
bauð því þegar í grun, að tíð-
inda myndi að vænta um mál-
efni landsins, og myndi í för
maður, er myndi taka til mála
með nýjum hætti. Það voru
mikil tíðindi og nýtt efni, er
svo mikið og vel búið skip var
sent gagngert með amtmann
yfir íslandi.
Sigling Gottenborgar gekk
vel til landsins og bar ekki til
tíðinda í þeirri ferð. Um haust-
GLERAUGU @
Farið vel með yðar dýrmœtustu eign. S J Ó NIN A
Eí vel á að vera þuríið þér að láta augnlœkn
athuga augu yðar á hverju ári.
TÖKUM Á MÓTI RECEPTUM
FRÁ ÖLLUM
AUGNLÆKNUM
TILBÚIÐ SAMDÆGURS
TÝLI hf.
Austurstrœti 20.
P. O. Box 897.
Simi 14566.
••••••
Framh. á bls. 35.
FÁLKINN 33